Morgunblaðið - 12.12.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
5
Jóhann M. Kristjánsson:
Ský á himni nor-
rænnar menningar
Hvernig má þaö ske, miðsviðs í
sjálfri menningunni, að Norður-
löndin þrjú Danmörk. Svíþjóð og
ísland. sem um aldir hafa borið
með nokkurri reisn kyndil
andlegrar menningar skuli nú
beina svo myrkum .skugga að
helgustu og fegurstu hugsjón
kristinna manna, boðskap og lífi
Jesú Krists, með bók er Mál og
Menning gefur út og einstæðri
hneykslun veldur.
Það er reynt að slökkva á
lampanum, sem gefur birtu þeim
sem i myrkri þjást, og boðskapn-
um um það, er gerir lífið og
tilveruna verðugt þess að vera til.
Þess vegna er Je.sús. boðberi
kærleikans, „kærleikurinn og líf-
ið“. Hann er opinberun Krists og
allt með honum. Þess vegna hafa
þúsundir stórmenna í andanum
lotið boðskaps hans í nærri tvö
þúsund ár.
Kristur er í Guðspeki Goethe. í
himinbornum tónverkum Beet-
hovens, mannkærleika og göfgi
Alberts Schweizers, tilbeiðslu
Hallgríms Péturssonar, marmara
Einars Jónssonar, innblásnum
sálmum Matthíasar og háspeki
Einars. Kristur er leiftrið í
skáldskap og listum, hann er
eilífðin í sálum mannanna.
Jólafundur Ilvatar f Átthagasal Sögu var mjög fjölsóttur. sóttu hann hátt í 300 manns. Venjan er að hafa
jólapakka í happdrætti, sem jafnan vekur mikla ánægju. Má hér sjá að handagangur er í öskjunni þegar kemur að
úthlutun pakkanna.
Jólafundurinn var ánægjulegur og hátíðiegur. Kerti voru á borðum og jólaskreytingar. Hjalti Guðmundsson
Dómkirkjuprestur flutti hugvekju. Sigri'ður Ella Magnúsdóttir skemmti með söng. og nokkrar Ilvatarkonur
fluttu skemmtiefni. Brynhildur Jóhannsdóttir flutti frumsamið ljóð. Þá var fjöldasöngur og söngur barnanna.
Ljósm. Rax.
íslenska þjóðin þekkir gjörst
hvaðan henni kom styrkur og ljós
þegar myrkur, ótti, sultur og kuldi
nísti merg og bein þessarar
hröktu, fátæku og umkomulausu
þjóðar og dauðinn knúði frostnar
dyr.
Athvarfið var trúin á hjálp og
kærleika Jesú Krists. í ljósi hans
þraukaði og þreyði lítil þjóð og
þjökuð. Ljósið var Kristur
kærleikurinn frumverund tilver-
unnar einingarmáttur Alverunnar
hjartsláttur Guðs.
Án þessa bindiafls færi tilveran
úr reipum, andi sem efni yrði
sáldur eitt.
Því er það, að engin þjóðfélags-
stefna á sér lífs von, án uppistöðu
og ívafs þessa einingarmáttar. Án
hans rynni framvindan úr greip-
um lífsins.
r
Asmundur
og Hjalti
Reykjavík-
urmeistarar
ÁSMUNDUR Pálsson og Iljalti
Elíasson sigruðu örugglega í
Reykjavíkurmótinu í bridge. tví-
menningi sem lauk um helgina.
Hlutu þeir 299 stig yfir meðal-
skor eða að meðaltali 11 stig í
hverfi umferð en þær voru alls 27.
28 pör tóku þátt í úrslitakeppn-
inni en í fyrra mánuði hafði farið
fram undankeppni þar sem 27 pör
höfðu öðlast þátttökurétt í úrslit-
um ásamt fyrrverandi Reykja-
víkurmeisturum Erni Arnþórssyni
og Guðlaugi R. Jóhannssyni.
í öðru sæti urðu Jón Baldursson
og Sverrir Ármannsson með 216
stig og Hörður Blöndal og Páll
Bergsson þriðju með 167 stig.
Höfðu þessi pör vermt efstu sætin
mest alla keppnina og má segja að
Ásmundur og Hjalti hafi tekið
forystu strax í fyrstu umferðunum
og haldið henni til loka.
Iðja:
Metur aðrar kjara-
bætur en bein-
ar kauphækkanir
FUNDUR í trúnaðarmannaráði
Iðju hefur lýst óánægju sinni vegna
afskipta ríkisvaldsins af gildandi
kjarasamningum og minnir á fyrri
samþykktir verkalýðshrcyfingar-
innar um að framlenging kjara-
samninga byggist á því að núvcr-
andi kaupmáttur haldist.
Segir í ályktuninni að trúnaðar-
mannaráðið sé sem fyrr reiðubúið að
meta aðrar kjarabætur en beinar
kauphækkanir og skuli verkalýðs-
hreyfingin meta þær, en ekki ríkis-
valdið.
Lítið barn hef ur
lítið sjónsviö