Morgunblaðið - 12.12.1978, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
íkveikjurnar að undanförnu
hafa vakið óhug fólks og
áhyggjur lögregluyfirvalda
• Óvonju mikið hofur vorið um
íkvoikjur í höfuðhorKÍnni að
undanförnu ok hofur það vakið
óhu(í fólks ok miklar áhyKKjur
löííroKluyfirvalda. okki síst vcsna
þoss að það þvkir nokkurn
vesinn sannað að oldur hafi
tvívcKÍs vorið kveiktur í hoil-
hrijíðisstofnunum. þar sem fjöldi
sjúklinga lá. LöKrosluyfirvöld
lojíKja allt kapp á að hafa hendur
í hári bronnuvarKanna því að
on(finn vcit hvar þoir kunna að
reyna íkvoikjur næst. Eru það
oindroKÍn tilmæli lögreglunnar
að fólk láti vita af því ef það
hefur minnsta Krun um að
einhver. sem það þokkir til, sé
haldinn þoirri áráttu að bcra eld
að húsum. Slíkar upplýsinjíar
Kætu komið lögregluyfirvöldum
að miklu Kagni við rannsókn
þessara erfiðu mála.
Mbl. ræddi þessi mál í vikunni
við þá Arnar Guðmundsson deild-
arstjóra hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins og Helga Daníelsson
lögreglufulltrúa, sem öðrum frem-
ur hefur annast rannsóknir bruna.
Þeir upplýstu að allar líkur bentu
til þess að orsakir a.m.k. fjögurra
bruna mætti rekja til íkveikju.
í fyrsta lagi væri um að ræða
íkveikju í fæðingadeild Landspít-
alans 18. nóvember s.l. Þar var
kveikt í eldri álmu deildarinnar,
sem er í endurbyggingu og vildi
svo heppilega til að engar sængur-
konur né kornabörn voru í þessari
álmu. Samt þótti rétt að flytja alla
af fæðingadeildinni á meðan unnið
var að slökkvistörfum. Mikil hætta
var á því að reykur bærist um
loftræstikerfi hússins inn á aðrar
deildir en sem betur fer höfðu
iðnaðarmenn límt fyrir op loft-
ræstikerfisins í gömlu álmunni svo
að ryk bærist ekki í aðrar deildir
og kom það í veg fyrir að reykur
bærist um bygginguna.
Skömmu áður eða 10. nóvember
var kveikt ú kaffiskúr sem stendur
hjá gamla flugturninum á Reykja-
víkurflugvelli. Þar skammt frá var
einnig næsta íkveikja því aðfarar-
nótt 17. nóvember var kveikt í
verkstæði, sem stendur við Mikla-
torg.
Loks var íkveikja í Bergiðjunni
við Kleppsspítala 4. deesember s.l.
en þar er vinnustofa sjúklinga á
Kleppi. Mátti ráða af vegsum-
merkjum að brotizt hefði verið inn
í vinnustofuna og eldur kveiktir
þar.
Ekki liggúr fyrir hve mikið tjón
varð á þessum fjórum stöðum en
það skiptir mörgum milljónum
króna.
Þá hafa fleiri brunar verið upp á
síðkastið í Reykjavík og nágrenni,
þar sem líklegt má telja að kveikt
hafi verið í. Eldur kom upp í
geymslu nýs íbúðarhúss við Stelk-
hóla í Breiðholti en þar er talið að
börn hafi óvart kveikt í. Sömuleið-
ist er talið að börn eða unglingar
hafi kveikt í skúr, sem stendur á
bak við hið umdeilda hús Skóla-
vörðustígur 14. Reynt var að
kveikja í húsinu Njálsgata 16 en sá
sem þar var að verki var handtek-
inn og slökkviliði tókst að ráða
niðurlögum eldsins áður en um-
talsvert tjón varð. Loks brann
sumarhús ,við Rauðavatn og var
talið að unglingar hefðu kveikt í
húsinu. Það brann til grunna.
Þeir Arnar og Helgi tóku
sérstaklega fram að umtal um
brennuvarga gæti verið tvíbent því
það gæti „kveikt í“ brennuvörgum
og orðið til þess aö þeir færu á
stjá. Hitt væri staðreynd að
óvenju mikið hefði borið á íkveikj-
um upp á síðkastið og væri
nauðsynlegt fyrir Rannsóknarlög-
regluna að njóta allrar hugsan-
legrar hjálpar almennings við að
upplýsa þessi mál.
Verkstæðið við Miklatorg.
Skemmdirnar í Bergiðjunni við Kleppsspítala.
Skólavörðustígur. Þarna var kveikt í skúr að húsabaki.
Talið er að börn eða unglingar hafi verið þar að verki.
Slökkviliðsmenn að störfum í fæðingadeild
Landspitalans. Ljósm. rax.
Njálsgata 16. Hér var gerð tilraun til að kveikja í en húsið
sviðnaði aðeins að utan eins og sjá má.
Stelkhólar. Þar kviknaði í geymslu í kjallara.