Morgunblaðið - 12.12.1978, Side 16

Morgunblaðið - 12.12.1978, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978 Hvernig væri unglingavandamálið ef kvikmyndahúsanna nyti ekki við? Kvikmyndahúsaeigendur verða varla taldir meðal þrýstihópanna í þjóðfélaginu. Þvert á móti hafa Þeir miklu fremur átt yffir höfði sér prýstihópa á borð við listfrömuði sem amast yffír „ómenningunni“, sem ber fyrir augu á hvíta tjaldinu og siðapostula, sem sjá ofsjónum yfir „afsiðuninni“ er ber á að lía á sama stað. En nú er svo komið að kvikmyndahúsaeigendur eða samtök peirra telja ástæðu til að minna á sig. Þeir benda á, að aðsókn aö kvikmyndahúsunum hafi dregizt verulega saman pað sem af er árinu, og kenna forsvarsmenn kvikmyndahúsanna par litvæðingu sjónvarpsins um aö nokkru leyti en viðurkenna um leið að kvikmyndaframboöiö kunni einnig aö hafa par sitt að segja. Þeir vekja hins vegar athygli á pví, að kvikmyndahúsarekstrinum á íslandi sé ípyngt í sköttum langt umfram pað sem gerist í nágrannalöndunum en á sama tíma sé miöaverðið hér langtum lægra en par tíðkaast. Kvikmyndahúsaaösóknin er líka hvergi meiri í Evrópu en hér á landi, um 75% kvikmyndahúsagesta eru innan við 25 ára aldur og paö er pví eölilegt að forráðamenn kvikmyndahúsanna spyrji: — Hvar væru allir pessir 5—7 púsund unglingar er sækja kvikmyndahús borgarinnar að staðaldri ef peirra nyti ekki viö og hvernig væri pá umhorfs t.d. á Hallærisplaninu? MorííunblaðiA hitti á döKunum aá máli 3 stjórnarmonn FélaKs kvikmyndahúsacÍKcnda í Reykja- vík. þá Friófinn Ólafsson. Þor- vald Thoroddsen ok Grétar Hjart- arson ok forvitnaóist um rekstur kvikmyndahúsanna. en þau eru nú átta talsins í Reykjavík. — Eru þetta ekki orðin æði niörn kvikmyndahús miðað við ekki stærri borj;? — Jú, líklena er það nú svo komið að við erum komnir yfir kvikmyndahúsa verið mjög mis- munandi á milli ára, og fer það allt eftir því hversu heppin einstök hús hafa verið með myndir frá stóru dreifingarfyrirtækjunum erlendis, sem einstök kvikmyndahús hér hafa yfirleitt einkaieyfi fyrir. Á þessu ári höfum við greinileg'a lent í heldur slöku ári þegar á heildina er litið hvað þetta varðar, en einnig er það skoðun okkar að tilkoma litsjónvarpsins hafi haft þarna veruleg áhrif, og þegar vel Kvikmyndahúsaeigendur kvarta undan óréttmætri skattlagningu á sama tíma og aðsókn fer aftur dvínandi og minna á að kvik- myndahúsin í Reykjavík hýsi 5—7 þúsund unglinga á kvöldin rússneskra kvikmyndadaga þrjá daga í röð í Laugarásbíói með sýningum á nýjum rússneskum kvikmyndum, og var þetta kyrfi- lega auglýst í fjölmiðlum. Árang- urinn varð þó ekki meiri en svo að 157 sálir keyptu sig inn á þessar sýningar allar. Stundum vill það líka gleymast í umræðum um þetta atriði, að enda þótt kvikmyndahúsin séu menn- ingarfyrirtæki og að sumu leyti sambærileg við leikhúsin, þá er ; oraumabftUHn I ‘The van) - matórt... 1 uil heweni Sfmi 11475 VETRARBÖRN íslenzkur texli. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Fáar sýningar eftir .*s____*:i ». i — gamla bio Klu Klux Klan sýnir klærnar Eyjar hafsins * Poromount Pictures Presencs Islonds in the Streom” ln Color A Poromount Piaure Sýnd kl. 9. Síðasta sýningarhelgi. markið, bíóin eru orðin fleiri en markaðurinn þolir með góðu móti, sérstaklega með tilliti til þess að kvikmyndaframleiðslan hefur dregizt svo saman, sem aftur hefur í för með sér að hvert kvikmynda- hús hefur fyrir bragðið færri góðar myndir úr að moða og neyðumst til að sýna fleiri lélear myndir til að fylla upp í eyðurnar. Hitt ber þó að athuga, að þessi fjöldi kvikmyndahúsa á sér sínar eðlilegu skýringar, þar sem hér á Islandi er líklega hlutfallslega mesta aðsókn að kvikmyndahúsum sem um getur á Vesturlöndum — að minnsta kosti ef við tökum Reykjavík út úr eina sér. Aðsóknin hér er um 3—4 sinnum meiri en á hinum Norðurlöndunum, þar sem láta mun nærri að hér á landi fari hver íbúi 3 sinnum í bíó á ári. — Hversu mikil áhrif hafði sjónvarpið á aðsóknína á sínum tíma? — „Gífurlega mikil, er óhætt að segja. Eftir tilkomu sjónvarpsins hrapaði aðsóknin smám saman úr 1300 þúsund frá því fyrir sjónvarp niður í 850 þúsund árið 1969 en eftir þriggja ára ládeyðu tókum við aftur að rétta úr kútnum og árið 1975 vorum við komnir aftur með sama áhorfendafjölda á ári og fyrir tíð sjónvarpsins sem síðan hefur haldizt alit til þess í ár. Að vísu hefur velgengni hinna ýmsu tekst til hjá sjónvarpinu með „seríuþætti“ t.d. eins og Gæfu og gjörvuleika hafa kvikmyndahúsin yfirleitt verið hálftóm á sunnudög- um. — En nú virðist manni sem framboð kvikmyndahúsanna á góðum niyndum hafi fram eftir árinu verið vægast sagt óvenju fáskrúðugt en svo skyndilega nú á haustmánuðum hellasí yfir kvik- m.vndaunnendur hver stórmyndin á fætur annarri, svo að þeir hafa varla undan að sjá allar myndirn- ar. Hvernig stendur á þessu? „Skýringin er einfaldlega sú, að þegar við forsvarsmenn kvik- myndahúsanna fórum að sjá fram á hversu slok útkoman á árinu ætlaði að verða, þá vildum við auðvitað reyna að snúa dæminu við og hlaupum allir til að kaupa alveg glænýjar myndir sem miðast við alla aldurshópa, myndir sem er rétt búið að frumsýna úti, svo sem Grease sem Háskólabíó hefur keypt og þar fram eftir götum. Annars er það mála sannast, að ákaflega erfitt hefur reynzt að fá eldri aldurshópa til að sækja kvikmyndahúsin og niun láta nærri að um 757í kvikmyndahúss- gesta séú á aldrinum 12—25 ára. Aldurshópana þar fyrir ofan er eiginiega varla hægt að draga frá sjónvarpinu að því er virðist og í bíó.“ — Nú er því iðulega haldið fram, að kvikmyndahúsin hér sýni ekki nægilegan metnað í því að bera á borð fyrir áhorfendur hin list- rænni sýnishorn kvikmyndagerð- ar. „Já, kvikmyndagagnrýnendur blaðanna hafa oft deilt á okkur forráðamenn kvikmyndahúsanna að við leiðum hjá okkur ýmsar kvikmyndir. Ef menn hins vegar k.vnna sér hvað á boðstólum er í kvikmyndahúsunum í nágranna- löndunum og bera saman við það sem hér er sýnt, hljóta þeir að sannfærast um að þetta eru alveg sömu myndirnar nema hvað þær kunna að vera lítið eitt seinna á ferðinni hér á landi en ytra, sem aftur hefur sínar eðlilegu skýring- ar. Við reynum yfirleitt að forðast það allra lélegasta sem kvik- myndafélögin láta frá sér fara, en það er að mörgu le.vti erfiðara nú en áður, þegar framleiddar eru svo miklu færri myndir en hér áður fyrr og menn verða því stundum að seilast eftir lélegri myndum en gott þykir — hreinlega til uppfyll- ingar. Varðandi svonefndar listrænar kvikm.vndir getum við ekki fallist á annað en sæmilega sé séð fyrir þörfum þeirra sem slíkar myndir vilja sjá. Sannieikurinn er sá, að þessi hópur er alls ekki stór — kringuni þúsund manns á að gizka, og þeim gefst kostur á að sjá mánudagsmyndir Háskólabíós, sem sýnir á hverju ári 16—20 helztu myndir sem gerðar hafa verið af þessu tagi auk þess sem kvikmyndaklúbbur skólaæskunn- ar,' Fjalakötturinn, byggir starf- semi sína á því að sýna svona myndir. Þessi verkaskipting er ofureðlileg að mati okkar forráða- manna kvikmyndahúsanna, og við höfum þess vegna síður en svo horn í síðu kvikmyndaklúbbsins. Reynsla okkar á liðnum árum sýnir ótvírætt að áhorfendahópur- inn, sem kýs svokallaðár listrænar myndir er of lítill til að það borgi sig að sýna slíkar myndir. Það er til dæmis orðin meginregla í þessum rekstri okkar að láta-texta allar þær myndir sem við sýnum, en staðreyndin er sú að við getum varia vænzt þess að fá nægilega marga áhorfendur á þessar list- rænu myndir til að standa undir textun þeirra. Það er ekki með góðu móti hægt að ásaka okkur fyrir að hafa ekki reynt. Við höfum margsinnis tekið listrænar myndir til sýninga, bæði frá Norðurlöndunum og öðrum fjarlægari löndum, en allt ber að sama brunni. Áhugi fólksins er ekki nægilegur fyrir þessum myndum. Það er t.d. skemmst að minnast, að sovézka sendiráðið efndi fyrir nokkrum dögum til það nú samt svo að bíóin hafa eingöngu aðgöngumiðasöluna, jú, og lítillega sælgætissölu til að standa undir rekstrinum og for- ráðamenn þeirra verða að hegða sér í samræmi við það. Kvik- myndahúsin njóta ekki opinberra framlaga eins og leikhúsin, þvert á móti eru þau skattlögð í mun meira mæli en þekkist í nágranna- löndunum." — í hverju eru þessar skatt- álögur á kvikmyndahúsin hér fólgin. „Þær felast í því að af hverri krónu sem inn kemur fara um 38 aurar beint í skatta, þar sem eru söluskattur, skemmtanaskattur, stefgjald og svo þetta dæmalausa sætagjald sem kvikmyndahúsin í Reykjavík þurfa reyndar ein að bera. Það á sér reyndar nokkuð langa sölu eða allt frá því að slettist upp á vinskap Árna frá Múla og Sjálfstæðisflokksins, og Árni flutti í borgarstjórn tillögu um að bærinn yfirtæki allan kvikmyndahúsareksturinn til að verða sér úti um tekjur með því móti. Þá varð það eins konar málamiðlun að sett var ákveðið gjald á hvern stól í bíóunum — þau voru reyndar aðeins 2—3 í þá daga — en því var síðar breytt og er nú 5% af seldum aðgöngumið- um. Þessi fjárhæð nemur líklega í kringum 30 milljónum króna hjá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.