Morgunblaðið - 12.12.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
27
uglýsur til sölu
Grein: Árni Johnsen
Myndir: Sigurgeir Jónasson
línumiðum vegna þess að aðkomu-
bátar lögðu þau undir sig. Þessi
þróun hefur átt sér stað með
aukinni tækni og stærri skipum,
en kallar á skynsamlegri stjórnun
og nýtingu hinna ýmsu veiðisvæða,
þannig að möguleikar séu á
arðbærri atvinnu í hinum ýmsu
byggðum.
Að nýta hvern atvinnu-
Þátt sem vera ber
Sá bóndi, sem gengur of nærri
jörð sinni, tapar nytjunum, og
sama er að segja um þá þjóð sem
gengur of nærri undirstöðunni í
fjárhagslegu sjálfstæði landsins.
Þetta hefur verið gert fyrst og
fremst á kostnað sjávarútvegsins
með þeim afleiðingum, að arðbær
bátafloti er nú á hausnum, og að
auki spila inn í dæmið ýmis
sérstök vandamá! bundin við
Vestmannaeyjar. Og er þar númer
eitt vanskil og svik ríkissjóðs
vegna eldgossins 1973.
Menn hafa ýmsar hugmyndir til
úrbóta. Betur skipulagða nýtingu
fiskimiða, hagkvæmari lánafyrir-
greiðslu, læga verð á olíu og fleira
og fleira, sem stjórnvöld komast
vart hjá lengur að kanna til hlítar.
Útvegsbankinn í Eyjum er eins og
flest önnur útibú fjarstýrður úr
Reykjavík að miklu leyti, og þar
kemur til áhrifa valdapólitík
landshluta og duttlungar stjórn-
enda. Þetta eru vinnubrögð, sem
tilheyra sumum Afríkuþjóðum og
við þurfum að losna við þau. Það
þarf að taka upp vinnubrögð, sem
sýna sjávarútvegi Islendinga þá
virðingu, sem hann á skilið. Og þar
er það lágmarkskrafa að þeir
menn, sem skila eðlilegum afla og
sýna hagsýni í rekstri sitji ekki á
hakanum á meðan kerfið hossar
þeim, sem aldrei þurfa að taka
neina áhættu í fjáröflun fyrir
rekstur þjóðarinnar.
„Þó ekki væri
nema upp á núllið“
Þeir útvegsbændur, sem hafa
auglýst báta sína í Eyjum nú, eru
tilbúnir til þess að halda baslinu
áfram, þó ekki væri nema upp á
núllið. En mínusinn vilja þeir ekki
til lengdar á bakið, þótt þeir séu
haldnir þeim „ólæknandi sjúkdómi
að gera út“, eins og Oskar
skipstjóri á Frá orðaði það.
„Þá er mál að
bretta upp ermarnar
Vestmannaeyjar, sem húsa tæp-
lega 2% landsmanna, hafa um
áratuga skeið skilað 10—13% af
þjóðartekjunum. Jafnvel á sjálfu
gosárinu skiluðu þeir sínum hlut
og e.vddu sínum tíma í það, en
treystu á sanngirni og stjórnvizku
ráðamanna landsins í sambandi
við það áfali sem dundi yfir
byggðina, sem var rifin upp með
og án róta. Þetta traust var
mistök. En staða útvegsins í
Eyjum nú er meiður á því máli og
meiðar af öðrum vandamálum,
sem vinna verður bug á. Það þarf
að endurnýja leikreglur stjórn-
mála- og embættiskerfis í grunn-
byggingu sjávarútvegsins. í kili
skal kjörviður. Og menn eiga að fá
að njóta þess, ef þeir gera vel.
Hagkvæm langtímalán, lægra
olíuverð og fleira getur orðið til
þess að draga úr tímabundnum
vanda. En til lengri tíma þarf að
einfalda kerfið og tryggja rétt
útvegsins. Útgerð á landinu er
misvel stödd og sumar útgerðir*í
Eyjum standa ágætlega, þótt ekki
sé saman að jafna t.d. við ísfirzku
skuttogarana, sem geta lánað
frystihúsum þar hundruð milljón-
ir króna. En þegar helmingur
útvegsbænda í Eyjum, gullkistu
landsins, þarf að leika þann leik að
auglýsa báta sína til sölu, þá er
mál að bretta upp ermarnar.
Ikurkýr*
grundvöll þeirra sem skila sínum
h%ut fyllilega í þá lífsgæðatertu,
sem íslenzkt þjóðfélag er í dag.
Nythæsta mjólkurkýr
Útvegsbankans
niðurreyrð
Staða Útvegsbanka Islands í
Vestfnannaeyjum er mjög slæm
gagnvart aðalbankanum í Reykja-
vík og hefur útibúið þó um áratuga
skeið verið langtraustasta og
nythæsta mjólkurkýr bankans.
Útvegsbanki Islands í Vestmanna-
eyjum hefur um langt árabil haft
umsvif, sem nema um 1/3 af öllum
útibúum Útvegsbanka Islands á
landinu. Enda er velta útibúsins í
Eyjum 10—15 milljarðar króna á
þessu ári. Það fjármagn, sem
útibúið í Eyjum skilar til aðal-
bankans, hefur að sjálfsögðu
aldrei skilað sér allt aftur. En nú
er útibúið í u.þ.b. 1500 millj. kr.
skuld við aðalbankann og það
veldur því m.a., að aðalbankinn
stendur mjög illa gagnvart Seðla-
bankanum. Og hefur það ekki bætt
úr skák fyrir bankann í því
bankastríði, sem fram fer á bak
við tjöldin.
Fjárhagsgrundvöllur sjávarút-
vegsins í landinu er nú slíkur, að
enginn banki vill raunverulega
skipta sér af þeim höfuðverk, því
það kostar ekkert nema vandræði.
Bankar útvegsins eru hornrekur í
kerfinu á meðan ekki er tekin
pólitísk ákvörðun um samræmdar
aðgerðir og úrbætur. Útlánahlut-
fall Útvegsbanka íslands til
sjávarútvegs nemur allt að 60% og
síðan kemur Landsbankinn með
35—40%. Umsvif Útvegsbanka
Islands í Vestmannaeyjum í starfi
aðalbankans eru svo mikil, að rétt
er að tala um þau sem stóran hluta
af bankanum. Heildarútlán útibúa
bankans á landinu voru liðlega 6
milljarðar króna í október sl. og
þar af voru 27% frá bankanum í
Eyjum, samkvæmt áreiðanlegum
upplýsingum.
Til marks um verri stöðu útibús-
ins og útvegs í Eyjum nú má þó
benda á, að fyrir nokkrum árum
var þetta hlutfall 33—35%
Eldgosið er bak-
grunnur vandamála
Eldgosið á Heimaey árið 1973 er
að mörgu leyti upphaf þeirra
fjárhagsvandræða, sem við er að
glíma í Eyjum nú. Vanefndir og
svik stjórnvalda í bótagreiðslum
végna tjóns af völdum eldgossins
hafa verið slíkar, að einsdæmi er
og vandræðin hafa magnazt vegna
þeirrar blússverðbólgu, sem geisað
hefur. Það er skýlaus krafa
Vestmannaeyinga, að stjórnvöld
þessa lands taki við þessum
málum með alvöru og geri hreint
fyrir sínum dyrum, þannig að sú
byggð sem verið hefur og er mesta
aflaskip landsins fái lagfærð þau
mistök, sem stjórnvöldum hefur
orðið á.
Ekkert samræmi í
aðgerðum stjórnvalda
Það hefur aldrei verið gengið frá
peningauppgjöri á öllu því tjóni,
sem eldgosið olli. Og það hefur
verið treyst á það, að menn gæfu
sér ekki tíma til þess að kanna
afstöðu sína ofan í kjölinn. Það
hefur verið treyst á það, að
athafnamenn eyddu öllum sínum
tíma í að afla sér, sínum og
þjóðarbúinu eins og þeir hafa
mátt, og það hefur verið treyst á
það, að útvegsmenn og aðrir
framkvæmdamenn gerðu sér ekki
grein fyrir sínu hlutfalli í heildar-
dæminu. Ef þeir hins vegar kanna
málin og bera saman bækur sínar,
kemur berlega í ljós, að ekkert
samræmi er í aðgerðum stjórn-
valda gagnvart þeim og öðrum.
Ekkert samræmi í möguleikum,
rekstrarkostnaði og tekjum, og
úrbætur í þeim efnum eru lykill-
inn að vandamálinu.
Klemmdir í kerfinu
Þeir u.þ.b. 40 útvegsbændur í
Vestmannaeyjum, sem nú hafa
auglýst skip sín til sölu og hyggja
á framhald aðgerða til þess að fá
mál skynsamlega unnin, vilja
allflestir starfa áfram að útgerð.
En sumir eru þannig klemmdir í
kerfinu, að þeir eiga vart nokkurra
kosta völ. Einn af Eyjabátunum,
sem smíðaðir voru innanlands
fyrir 2 árum, kostaði 175 millj. kr.,
en hann er 150 tonn að stærð.
Hann var fyrsti báturinn, sem
lenti í nýja lánafyrirkomulaginu
með gengistryggð lán. Og nú
skulda eigendur hans 300 millj.
króna í bátnum, sem segja má að
hækki um 100 millj. kr. á ári. Þó er
þetta skip í hópi þeirra Eyjabáta,
sem skila einna mestum aflaverð-
mætum, og á þessu ári eru þau um
100 millj. kr. en t.d. aðeins gjöld af
tryggingum á þessu tímabili eru 10
millj. kr. Það sjá allir, að þetta er
engin glóra.
Eyjamiöin eini „al-
menningurinn“ ffyrir
bátaflota landsmanna
Þeir útvegsbændur, sem hafa
kannað þessi mál að undanförnu á
löngum umræðufundum í Eyjum
eru nú að vinna að greinargerð og
rökum fyrir máli sínu, þar sem
þeir fjalla m.a. um uppbyggingu
útvegs í Eyjum og þróun hans,
fjárhagsstöðu, kostnað, breytingar
á liðnum árum, lánafyrirgreiðslu,
mið Eyjabáta, bæði hefðbur\din og
önnur. Þá munu þeir gera grein
fyrir aflahlutfalli á Eyjamiðum og
leggja fram tillögu til úrbóta.
Sú sérstaða er á miðum Vest-
mannaeyja, að þau eru eini
raunverulegi almenningurinn
fyrir bátaflota landsmanna. Um
árabil hafa þau verið ofsótt, því að
þau verja sig ekki sjálf, eins og
flest mið annarra landshluta gera
vegna legu og örðugleika á að
sækja á þau. Þetta hefur þýtt mun
færri tonn á hvern róður fyrir
Eyjabátana, og er einn liðurinn í
vandanum. Þá eru þess t.d. dæmi,
að sumar veiðiaðferðir, sem lands-
flotinn svokallaður stundar, hafa
sópað upp humar með skítfiski í
bræðslu á miðum Eyjanna. Og
þegar komið hefur verið að humar-
bátunum að veiða, þá er búið að
bræða humarinn. Engin veiði.
Þega ákveðin svæði á Eyjamiðum
hafa verið opnuð hefur svo brugðið
við, að tugir aðkomubáta hafa
verið tilbúnir á þrcskuldinum og
aðkomubátar hafa lagt undir sig
fyrir vertíðarbyrjun hefðbundin
mið, bæði neta- og línumið. A
síðustu vertíð gátu línubátar t.d.
ekki stundað línu á rótgrónum
Upplýsíngar hjá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja, milli kl. 2—5 e.h., sími
98-1330, eða útgerðarmönnum viðkomandi skipa.
Gandi VE 171,131 amál.
Ver VE 200,70 amét.
Dan«ki-Pét«r VE 423,103 »mál.
Fiskiskip til sölu
■afcú'
' 4’K
8urBt«teII VE 35,48 *mál.
Árntýr VE 115 51. #mél.
trltngur VE 295,23 smál.
Glöfaxi. VE 300,105
Óiefur Vestmwm VE180,63 *mél.