Morgunblaðið - 12.12.1978, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978
29
Dræmur
afli Ólafs-
víkurbáta
Olaísvík 11. dcscmhor
ÁTTA bátar róa héóan mcð línu.
en afli þeirra hefur verið fremur
dræmur, íjórar til sjö lestir í
róðri. Tveir bátar eru á netum og
hefur fiskast treglesa í þau. Einn
bátur er svo nýbyrjaður með
troll.
Gæftir hafa verið góðar og
atvinna jöfn. Togarinn Lárus
Sveinsson er nú á veiðum, en
brælur á Vestfjarðamiðum hafa
dregið úr afla. Þeir Ólafsvíkurbát-
ar sem voru á reknetum í haust
fiskuðu yfirleitt vel.
/ llolKÍ
AIÞJOÐLEG .
VÖRUSÝNING
INTERNATIONAL
iBMR=T=1979
Alþjóðleg vöru-
sýning haldin
hér næsta sumar
KAUPSTEFNAN í Reykjavík mun
gangast fyrir alþjóðlegri vöru-
sýningu í Laugardalshöll næsta
sumar eða nánar tiltekið dagana 24.
ágúst til 9. september.
Kaupstefnan hefur áður haldið
fimm slíkar sýningar, þá fyrstu 1970
og hafa gestir orðið flestir 80 þúsund
að tölu en það var sumarið 1977
þegar sýningin Heimilið ’77 var í
Laugardalshöll. Auk almennrar
vörusýningar verða sérsýningar á
vörum tengdum sjávarútvegi,
heimilisrekstri, skrifstofutækni,
heilsurækt og fatatízku.
Fært eins og
á sumardegi í
Mývatnssveit
\l>\atiismoit 11. dosomhor.
HER hefur verið einstök veðurblíða
síðast liðinn hálfan mánuð miðað við
árstíma. Varla orðið úrkomu vart og
allir vegir nánast eins og á sumar-
degi.
Fyrir nokkru var nýja hráefnis-
þróin Kísiliðjunnar tekin í notkun.
Þró þessi var byggð á sl. sumri í
svokallaðri Kringlu nokkurn spöl
norðvestur af gömlu þrónum. Nýja
þróin er geysimikið mannvirki svo og
allur búnaður í sambandi við hana.
Margir unnu við þessa framkvæmd
sem viröist hafa heppnast vel. Hún
er vestan aðalsprungusvæðisins í
Bjarnarflagi og er vonast til að hún
standist allar náttúruhamfarir sem
geta orðið hér í náinni framtíð.
Leiðrétting
I Reykjavíkurbréfi sl. sunnudag
var haft eftir Sir Andrew Gil-
christ, að íslendingar hefðu stutt
bandarísku sáttatillöguna á
Genfarráðstefnunni í apríl 1958.
Þetta er misminni hjá honum, en
hitt stendur eftir, að ef hún hefði
fengið % atkvæða í stað einfalds
meirihluta, hefði landhelgismálið
orðið okkur þyngra í skauti en ella.
Það sáu Bretar ekki fyrir. Aftur á
móti studdum við kanadísku til-
löguna í Genf.
En þetta sýnir, að nauðsynlegt
er að treysta varlega á heimildir.
Skýzt, þó að skýr sé.
ihnii'íhið^J
/"Sn
27750
27150
ij<
Ingólfsstrsti 18. Sölustjóri Benedikt Halldórsson
Vélbátur til sölu
3,6 smálestir með stýrishúsi og lúkar, vel
búinn. Smíðaöur 1975.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
Petter bátavélar
Eigum enn óráöstafaö
á gamla veröinu:
1 stk
Petter bátavél
16.5 hestöfl.
1 stk.
Petter bátavél
6 hestöfl.
Einnig eigum viö fyrirliggjandi nýjar og notaöar
landvélar.
Vélar og skip h.f.
Grandagarði 1B, sími 27644.
Kaupmenn —
Innkaupastjórar
Vorum aö taka upp síöustu sendingar af
leikföngum fyrir jól. Vinsamlega lítiö inn.
S. Óskarsson og Co. h.f.
Sundaborg 35.
Sími 81822.
Stefán Aóalsteinsson KlemenZ á SálTISStÖðum Esbjorn Hiort og Helge Finsen
Svarfdælingar sigiaugurBrynieifsson skráði Steinhúsin gömlu á íslandi
Þetta er seinna bindi mikils ritverks um Svarf-
dælinga, þar sem gerð er grein fyrir bændum og
búaliði sem setið hefur Svarfaöardal, svo og
niðjum þeirra, eins langt aftur í aldirnar og
heimildir hrökkva til með sæmilegu móti.
Svarfdælingar I—II er mikiö ri.t að vöxtum, um
eitt þúsund bls., og mannamyndir rúmlega sex
hundruð talsins. Eftir lát höfundarins hlaut að
koma í annarra hlut að ganga að fullu frá verki
hans. Ýmsir góðir menn hafa lagt því máli lið í
samstarfi við dr. Kristján Eldjárn, sem i öllum
greinum hafði forystu um að búa ritiö til prent-
unar.
Endurminningar eins helsta brautryðjanda og
frumherja í íslenskum ræktunarmálum á þess-
ari öld sem hefur margs að minnast frá ævi-
starfi sínu og kynnum af miklum fjölda sam-
tíöarmanna. Auk þess segir hér frá bernsku-
árunum í Grunnavíkurhreppi, Reykjavíkurár-
unum á öndveröri öldinni, vinnumennsku hjá
Guómundi bónda á Stóra-Hofi og Einari Bene-
diktssyni skáldi. Og síöast en ekki sist minn-
ist hann á eftirminnilegan hátt bróður slns,
Sverris sagnfræðings, en með þeim bræðrum
var ávallt mjög kært, þótt ólikir væru um margt.
Tveir arkitektar segja hér í stuttu og læsilegu
máli hina merkilegu sögu sem liggur að baki
elstu húsa á íslandi, steinhúsanna gömlu sem
reist voru á seinni htuta 18. aldar og eru Iðngu
oröin hiuti af íslenskri menningararfleifö. Enn á
vorum dögum eru þetta veglegar byggingar og
tvær þeirra hýsa æðstu stjórn landsins: Stjórn-
arráðshúsið í Reykjavík og forsetasetriö að
Bessastöðum. Bókin er prýdd myndum og upp-
dráttum, sem auka mjög gildi hennar og hún er
grundvölluö á nákvæmri heimildakönnun og
rannsókn á húsunum. — Dr. Kristján Eldjárn
íslenskaöi.
Jón Espólín og Einar Bjarnason
Saga frá Skagfirðingum
Þetta er þriðja og næst síðasta bindi viðamikils
heimildarrits i árbókarformi um tiðindi, menn
og aldarhátt í Skagafiröi 1685—1847, en jafn-
framt nær frásögnin í og með til annarra héraða. í
þessu bindi ritsins hefur sögunni miöað fram
til ársins 1842. Einar Bjarnason heldur á penna
mjög í þeim anda sem Espólín haföi gert og
segir margt frá nafnkunnum mönnum og minn-
isverðum tíðindum í Skagafirði.— Útgáfuna
annast Hannes Pétursson, Kristmundur
Bjarnason og Ögmundur Helgason.
Jóhann Hjálmarsson
Lífið er skáldlegt
Lifið er skáldlegt — tífið í kringum okkur, fólkið
sem okkur þykir vænt um, árstiðirnar, stundir
dags og nætur, hversdagslegar athafnir. Skáld-
ið sér hversdagslífið sínum augum — fyrir
okkur hin sem erum að týna okkur í amstri
dægranna og gefum okkur ekki tíma til að sjá
að lífið er skáldlegt! Þetta er ellefta Ijóðabók
Jóhanns og er hún mjög í anda síöustu Ijóða-
bókar hans.
Bræðraborgarstig 16 Sími 12923-19156
Haraldur Jóhannsson
Pétur G. Guömundsson
og upphaf samtaka alþýðu
Á fyrsta skeiði verkaiýöshreyfingarinnar vann
Pétur G. Guðmundsson bókbindari manna ötul-
legast að stofnun landssambands verkalýðs-
félaga og stjórnmálasamtaka þeirra. Hann var
einn stofnenda Verkamannafélagsins Dags-
brúnar 1906 og formaður þess nokkur ár. Fyrsti
bæjarfulltrúi verkamanna í Reykjavík var hann
kjörinn 1910, ritstjóri Atþýðublaösins gamla var
hann 1906—1907 og Verkamannablaðs 1913—
1914. í bókinni er fylgt frásögn sonar Péturs,
Þorsteins, sem í hálfan sjötta áratug hefur
unnið í þágu verkalýðshreyfingarinnar.
-rm»i\í .íiJífi tJiííá • öiavuiúvurl .ilp/í .If.jíJsjIí! i'rXiíí eibrroLi