Morgunblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978 Nemendur IKI komu í bæinn til að krefj- ast hærri fjárveitinga NEMENDUR íþróttakennaraskóla íslands aö Laugarvatni, 48 aö tölu, bruKÖu sér í höfuðborgina á mánu- daginn til þess að leggja áherzlu á kröfur sínar um betri aðstööu til íþróttaiðkunar á Laugarvatni, sem þeir segja að sé til háborinnar skammar. Nemendurnir voru allir klæddir íþróttabúningum. Lögðu þeir fyrst leið sína í fjármálaráðuneytið og ætluðu að hitta Tómas Árnason. Ráðherra var ekki við en Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri veitti við- töku undirskriftalista nemenda og annarra íbúa Laugarvatns, alls rúmlega 360 manna, þar sem skorað var á fjármálaráðherra og aðra frammámenn að auka stórlega fjárveitingar til mannvirkjagerðar við ÍKÍ strax. Næst gengu nemendur fylktu liði í menntamálaráðuneytið og hugðust hitta að máli Ragnar Arnalds menntamálaráðherra. Hann var ekki í ráðuneytinu en nemendurnir hittu hann niðri í Alþingi, en þangað lögðu þeir næst leið sína. Auk þess að ræða við Ragnar ræddu nemendur við nokkra alþingismenn, þar á meðal þingmenn úr fjárveitinganefnd. Var öllum hópnum boðið í kaffi í Alþingishúsinu. Fulltrúar nemenda sögðu að þessi aðgerð hefði heppnast vel og kváðust þeir vona að hún bæri þann árangur að þingmenn bættu myndarlega fyrir vanrækslu við íþróttakennara- skólann á liðnum árum með því að stórhækka framlagið til hans á fjárlögum. Húsakaupamálið fer til saksóknara á morgun RANNSÓKNARLÖG- REGLA ríkisins mun á morgun senda til ríkissak- sóknara mál það, sem spratt af sölu á húseigninni Skólavörðustígur 14. Sak- sóknari tekur síðan ákvörð- un um það hvort rannsókn verði framhaldið eða málið fellt niður en seljandi eignarinnar hefur sem kunnugt er dregið til baka kæru sína á kaupandann. Segulstál Tilfitssemi kostur ekkert Vigtar 1 kíló. Lyftir 60 kílóum. Stærð 8x9x3 sentimetrar. Gott til aö „fiska“ upp járnhluti úr sjó, ám, vötnum, gjám, svelg, tönkum. Líka til aö halda verkfærum og smíöahlutum. Sendum í póstkröfu. ' I SiliyiirOgKuigjiyiiF <J§xni®®<3>in) <®t ©®. Vesturgótu 16, sími 13280. Skemmtilegir austfirskír paettir um menn og málefni. SKUGGSJÁ Hér er að finna skemmtilega þætti um menn og málefni. Þáttur er um Blöndalshjónin á Hallormsstað og hið merka Iífsstarf þeirra, um séra ólaf Indriðason, skáldklerkinn í Kolfreyjustað, föður þeirra Páls alþingismanns og skálds og Jóns ritstjóra, um hagleiks- manninn Karl Guðmundsson myndskera, langur þáttur um Sigfús Sigfússon þjóðsagnarit- ara og sérstæða háttu hans, um Sigurjón í Snæhvammi, um Fransmenn á Fáskrúðsfirði, um vin málleysingjanna, séra Pál Pálsson á Hörgslandi, um Magnús Guðmundsson frá Star- mýri o.fl. Af Héraði og úr Fjörðum er þjóðleg bók og hún er líka bráðskemmtileg. Jóna Sigríður, sem hér segir sögu sína, er kjarnakona og engri annarri konu lík. Hún lenti snemma í hrakningum og átti oft eríiða vist, en bugaðist aldrei þótt á móti blési, bauð erfiðleikunum birginn og barðist ótrauð sinni hörðu baráttu. Það var ekki fyrr en góðhestarnir hennar, Gullfaxi og Ljómi, komu til sögu, að lífið fór örh'tið að brosa við Jónu Sigríði. Á þessum hestum ferðaðist hún um iandið þvert og endilangt, um byggðir og öræfi, og lenti í margvíslegum ævintýrum og mannraunum. Frægust er hún fyrir útilegur sínar á Stórasandi, Kili og Kaldadal, og sú var mannraunin mest er hún átti átta daga útivist, matarlaus og svefn- laus, í hríð og foraðsveðri norðan undan Langjökli, — og þegar hún bjargaðist hélt hún blaðamanna- fund í Álftakróki. Það er öllum hollt að kynnast lífsreisu Jónu Sigríðar, frægustu hestakonu landsins. HAROLD SHERMAN Nytsöm, uppðrvandi og hjálpleg bók, sem kennlr pér aö nýta þann undrakraft, sem innra með þór býr. til aö endurheimta líkamlegt og andlegt heilbrlgði þltt. Þú hefur þann mátt, innra með þér, að geta læknað sjálfan þig, hæði á sál og líkama. Þetta er stórfróðleg bók og nytsöm og hverjum manni hollt að kynna sér efni hennar. Ilún segir frá undraverðum tilraunum á lækningamætti hugans, en rannsóknir hafa staðfest trú höfundarins á það, að Guðs- krafturinn er til staðar í hverjum manni til að endurvekja og styrkja hug og likama. Rannsóknir Harold Sherman eru taldar merkustu sannanir fyrir þcirri undraorku, sem í huga mannsins býryog hann segir frá þessum rannsóknum sinum, birt- ir sögur af árangursríkum lækningum og gefur þeim, sem lækninga þarfnast, holl og nyt- söm ráð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.