Morgunblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 30
30 • MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DÉSEMBER 1978 í „Nýtt“ íslenskt landslið | reynir sig gegn Dönum — ÉG get ekki lofað sigri þó ég feginn vildi, en einu skal ég þó lofa, og það er, að allir leikmennirnir munu gera sitt besta og berjast til hins ýtrasta. Enda er við Dani að etja. íslenskir áhorfendur vilja sjá landann vinna Dani og f jölmenni fólk í Höllina, getur það skipt meira máli heldur en margan grunar, við erum með nýtt lið og það gæti komið Dönum í opna skiöldu, sagði Jóhann Ingi Gunnarsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi sem HSI hélt í gær, en við það tækifæri var íslenska liðið tilkynnt. Jóhann notaði einnig tækifærið og kynnti fyrir fréttamönnum hægri hönd sína. Það er Jóhannes Sæmundsson íþróttakennari. Hann verður liðsstjóri, aðstoðarþjálfari og tæknilegur ráðunautur Jóhanns við hið erfiða verkefni sem framundan er. s s Stefnan hefur verið sett á B-keppnina á Spáni í febrúar. Kom fram á fundinum, að næsta mánuðinn fara fram eigi færri en 10 landsleikir, tveir heima gegn Pólverjum 6. og 7. janúar, tveir gegn Bandaríkjunum 28. og 29. janúar og síðan 4 landsleikir á Baltic Cup sem fram fer í Dan- mörku dagana 9.—14. janúar. Sagði Jóhann Ingi, að berlega hefði komið í ljós í Frakklandi á dögunum, að liðið skorti tilfinnan- lega samæfingu og til að kippa því í liðinn, dygði ekkert annað en að leika sem flesta landsleiki. Þá kom einnig fram á fundinum, aö Víkingarnir í hópnum munu ná siðari leiknum, en í byrjun var talið að þeir gætu alls ekki leikið með vegna Evrópuleiksins gegn Ystad. En lítum á hópinn. landsleikir Jens Einarsson ÍR 6 Gunnar Einarss. Arhuus KFUM54 Stefán Gunnarssn Val 47 Þorbjörn Jensson Val 14 Þorbjörn Guðmundsson Val 39 Bjarni Guðmundsson Val 34 Steindór Gunnarsson Val 16 Gústaf Björnsson Fram 1 Atli Hilmarsson Fram 0 Axel Axelsson Dankersen ? Ólafur H. Jónsson Dankersen 104 Hörður Harðarson Haukum 3 í síðari leiknum koma síðan inn í hópinn þeir Arni Indriðason Víkingi 45 Páll Björgvinsson Víkingi 31 Ólafur Jónsson Víkingi 8 Viggó Sigurðsson Víkingi 36 Ólafur Benediktsson Val 81 Danska liðið skipa eftirtaldir leikmenn: Kai Jörgensen Odense Ole Sörensen AGF Arhuus Lars Bock Holte IF Heine Sörensen Arhuus KFUM Karsten W. Petersen Saga Iver Grunnet FIF Morten S. Kristensen Saga Carsten Haurum Holte IF Mikel Kold Aalborg HK Erik Bue Pedersen Skovbakken Kim Vestergaard AGF Arhus Jesper Petersen Arhus KFUM Bjarne Jeppesen Fredricia KFUM Per Skarup HG Það verður mikið álag á islensku leikmönnunum, Axel og Ólafur koma ekki til leiks fyrr en um 3 klst. áður en fyrri leikurinn hefst og bæði Víkingarnir og Valsararn- ir verða vafalaust ferðalúnir eftir Evrópuleiki sína. í danska liðið sem hér leikur vantar nöfn eins og Anders Dahl Nielsen og Michael Berg. Því er til að svara, að í íslenska liðið vantar nöfn eins og Geir Hallsteinsson, Björgvin Björgvinsson o.fl. Jóhann Ingi sagði, að nú væru tímamót í íslenskum handknattleik, gömlu andlitin væru að hverfa og ný tækju þeirra stað. Danir væru hins vegar með sama kjarna og varð í 4. sæti á HM síðastliðið vor. Þá má geta þess, að Gunnar Einarsson, markvörður hjá Arhus KFUM, mun bera heim með sér mikið af upplýsingum um dönsku leik- mennina. • Gunnar Einarsson kemur heiml frá Danmörku og leikur báða iandsleikina á móti Dönum. Axel Axelsson hefur átt’ við meiðsl að stríða að undanförnu, en ástæða er til að ætla að meiðsl hans hafi ekki verið alvarleg og hann geti leikið báða leikina. Stefán Gunnarsson verður fyrir- liði í fyrri leiknum, en Árni Indriðason í þeim síðari. ísland hefur leikið 23 leiki við Danmörk, unnið 4, gert eitt jafntefli og tapað 18. Markatalan er 422—361, Dönum í vil. Dómarar verða nú sænskir. Þá má loks geta þess, að HSÍ mun hafa minjagripasölu á leikj- unum, seldar verða könnur og diskar merkt IHF-þinginu, sem haldiö var í Reykjavík í sumar. Forsala aðgöngumiða hefst á sunnudaginn kl. 13.00, en fyrri leikurinn hefst þá um kvöldið klukkan 21.00. Síðari leikurinn verður á mánudagskvöldið á sama tíma. — gg Haukastúlk- urnar náðu að jafna á móti UBK ÞÆR voru óheppnar Breióabliks- stúlkurnar að ná ekki í bæði stigin í leik sínum á móti Haukum í 1. deild kvenna á sunnudag í ípróttahúsinu Asgarði. Þegar aðeins ein mínúta var eftir at leiktímanum höfðu pær eitt mark yffir 10—9, og hófu sókn. Ekki tókst peim pó aö leíka yfirvegað og halda knettinum eða skora. Þegar 25. sek. voru eftir var reynt skot úr slæmu færi og Haukastúlk- urnar brunuöu upp og Halldóra Mathiesen ein aðaldriffjöörin í leik Haukaliösins jafnaöi leiklnn þegar aðeins 15 sek: voru eftir. Úrslit í leiknum uröu því 10—10. Hauka- stúlkurnar höföu yfirburöastööu í hálfleik, 7 mörk gegn þrem. Leikurinn var allþokkalega leikinn af báöum liöum, og mikil spenna var í stöari hálfleiknum þegar Blikastúlk- urnar voru aö minnka muninn. Þaö var ekki fráleitt aö kæruleysi gætti hjá Haukum og varö þaö þeim dýrkeypt. Bestar í liöi Hauka voru þær Halldóra Mathiesen og Svanhildur Guölaugsdóttir. Hjá Breiöabliki voru Hrefna og Alda Helgadóttir, sem hédlu leik liðsins vei gangandi, bestar. MÖRK HAlJKAi Svanhildur Guðlaugsdóttir 3, Margrít TheAdðrsdðttir 3, Halldóra Mathiesen 2, Kolbrún Jónsdóttir 1, Guðrún Gunnarsdðttir 1. MÖRK UBKi Hrefna Snæhðlm 4. Hulda Halldðrsdðttir 2, Alda Helgadðttir 2, Sigurborg Daviðsdðttir 1, Ása Alfreðsdðttir 1. þr. TVÍBYTNAN UBVALS UNGUNGABÆKUR E.W Hildick FANGARNIR í KLETTAVÍK Þetta er einhver skemmtilegasta og viðburöaríkasta unglingasaga metsöluhöfundarins Edmund W. Hildick. Hann er breskur höfundur sem hefur hlotiö margvíslega við- urkenningu fyrir bækur sínar. Sag- an um Fangana f Klettavík mun falla öllum vel í geð, sem hafa ánægju af spennandi og dularfull- um atburðum. Andrés Kristjáns- son þýddi. Sven Wernström LEIKHÚSMORÐIÐ Fyrir nokkrum árum kom út hjá Iðunni bókin Ævintýraleg útilega eftir Sven Wernström, þennan víð- fræga og umdeilda höfund. Sú bók hlaut veröskuldaöar vinsældir. Leikhúsmorðið segir frá því þegar Barbro og Tommi gera hópverkefni um Litla leikhúsið. Þar er eitthvað meira en lítið dularfullt á ferðinni. Smám saman átta þau sig á að það er veriö aó undirbúa morð að tjaldabaki — moröiö á Litla leik- húsinu. Þórarinn Eldjárn þýddi. Bent Haller TVÍBYTNAN Tvíbytnan er verðlaunabókin í sam- keppni sem bókaforlagiö Borgen í Kaupmannahöfn efndi til árið 1976 um bækur handa börnum og ung- lingum. Verólaunaveitingin og bókin ullu strax gífurlegum umræðum og deilum, sem hafa m.a. snúist um, hvort bókin ætti yfirleitt nokkurt erindi til unglinga. Tvíbytnan á því ekki síst erindi til foreldra og annarra sem fullorönir eru. Guðlaugur Arason þýddi. Gunnel Beckman ÞRJÁR VIKUR FRAM YFIR Maja er nýbyrjuð í menntaskóla. Örvænting grípur hana þegar hún gerir sér grein fyrir, aó kannski á hún von á barni. Margvíslegum lausnum skýtur upp í kolli hennar. Gunnel Beckman er meöal virtustu barna- og unglingabókahöfunda Svía og hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir bækur sínar, m.a. Nils-Holgersonsverölaunin. Jóhanna Sveinsdóttir þýddi. Evi Bogenæs DRAUMAHEIMUR KITTIJ Kitta er kyrrlát, feimin og hlédræg. Móðir hennar er fræg leikkona sem hefur lítinn tíma til að sinna dóttur sinni, föður sinn þekkir Kitta ekki. Það sem hjálpar Kittu að sigrast á erfiðleikunum er draumaheimur hennar. Þar skipar Sveinn æsku- vinur hennar, mikið rúm. Evi Boge- næs er meðal virtustu barna- og unglingabókahöfunda Norðmanna. Andrés Kristjánsson þýddi. ■Shv m i|íilF-' ■ r Bræðraborgarstig 16 SínH 12923-19156

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.