Morgunblaðið - 16.12.1978, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978
23
„Himnaríki má bíða”
Sýningar heflast í Háskólabíói í kvöld
HÁSKÓLABÍÓ hefur í kvöld
sýningar á kvikmyndinni
„líimnaríki má bíða“ (Heaven
hwx«ob»*<*»wbeativ
CWCTTID BV BtATTV ANO ÍUCR MC WTV * MMMOUMT nCTUB
Can Wait). Þetta er bandarísk
bíómynd byggð á leikriti
Davids Gurshin, „Here Comes
Mr. Jordan“, er var kvikmynd-
að árið 1941.
Framleiðandi, leikstjóri og
aðalleikari myndarinnar er
. Warren Beatty en hann skrifaði
einnig handritið ásamt Elaine
May. Myndin er tekin hjá
Paramount Picture Corp. í pana-
vision og Movielab-litum.
Aðalhlutverk ásamt Beatty
, leika Julie Christie, James
Mason, Charles Grodin, Dyan
Cannon, Buck Henry, Vincent
Gardenia og Jack Warden.
Myndin var frumsýnd í Banda-
ríkjunum í júlí í sumar og segir
frá íþróttamanni sem verður
fyrir því að deyja 50 árum fyrir
tímann. Er það kemst upp, á að
flytja hann til jarðar á ný en það
er of seint, því búið er að brenna
líkið. Er þá hafin leit að nýjum
„bústaö" handa kappanum.
Köku- og
kertasala á
útimarkaðnum
FORELDRAFÉLAG skólalúðrasveitar Árbæjar og Breiðholts var
stofnað nýlega. Tilgangur félagsins er að efla og styrkja starfsemi
lúðrasveitarinnar en stjórnandi hennar er Ólafur L. Kristjánsson.
Félagið mun hafa köku- og kertasölu í dag laugardag 16.
desember, á útimarkaðnum á Lækjartorgi. Ef veður leyfir leikur
lúðrasveitin jólalög.
Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts ásamt stjórnanda.
Hamrahlíðarkórinn á æfingu ásamt stjórnanda sínum. Vegna prófanna vantaði nokkra meðlimi.
Ljósm. RAX.
rijmjfjt,1, f%U *W'
*X' > WáJ&H Wmm:' Jk m, Mf,* " ,. ýÆ itfna Mi
MM JjÉ v.' ■
i* Ig
i m í . i ^ S i 4\ Ljf ^mXz,m- Iík wœxm ■ .JWr 9
Hamrahlíðarkórinn
gefur út plötu
Hamrahlíðarkórinn hefur
sent frá sér hljómplötu sem á
eru jólalög og helgisöngvar. 21
lag er á plötunni þar af 6
orgelverk (forspil) eftir Bach
leikin af Ilerði Áskelssyni.
Stjórnandi kórsins er Þorgerð-
ur Ingólfsdóttir.
Platan var tekin upp í
Háteigskirkju af Ríkisútvárpinu
og eru upptökurnar safn frá
síðustu tveimur árum. Mynd á
plötuumslagi er eftir Barböru
Árnason. Umslagið er fvöfalt og
er þar að finna texta við flest öll
lögin en nokkrir textanna eru
samdir sérstaklega handa kórn-
um. 3000 eintök af plötunni
koma á markaðinn fyrir jólin og
mun hvert þeirra kosta 5980 kr.
út úr búð.
Kórinn var stofnaður haustið
1967 á öðru starfsári Mennta-
skólans við Hamrahlíð og hefur
Þorgerður Ingólfsdóttir stjórn-
að honum frá upphafi.
Fyrstu árin söng kórinn á
sjúkrahúsum og líknarstofnun-
um og hefur þeirri hefð verið
haldið síðan. Síðar hefur kórinn
ferðast víða vegar um landið og
einnig erlendis. Fyrsta utanför
— jólálög og
helgisöngvar
kórsins var árið 1971 er haldið
var á alþjóðlegt kórmót í Wales.
Síðan hefur kórinn 5 sinnum
haldið utan, síðast til Israels í
fyrra. Kórnum hefur nú verið
boðin þátttaka alþjóðasambandi
æskulýðskóra, fyrstum
íslenskra kóra.
Næstu vekefni kórsins eru
jólasöngur í Háteigskirkju á
morgun og söngur við jólaguðs-
þjónustu í sjónvarpssal á að-
fangadag.
I Hamrahlíðakórnum eru 54
nemendur Menntaskólans við
Hamrahlíð.
„Vitnað fyrir manninn,,
— Fjölvi gefur út ritgerðir eftir Jón Óskar
FJÖLVAÚTGÁFAN hefur sent á
markaðinn nýja bók eftir Jón
Óskar og nefnist hún „Vitnað fyrir
manninn".
( tilkynningu frá útgáfunni segir
m.a.i
„Jón Óskar skáld, sem var fremst-
ur í röð atómskáldanna, þegar þau
voru að ryðja sér braut, hefur sent
frá sér stórt ritgerðasafn, sem
kallast Vitnað fyrir manninn. I því
eru 19 ritgerðir og erindi, sem Jón
Óskar samdi, þegar baráttan var
hörðust og sótt var að atómskáldum
úr öllum áttum og þeir máttu þola
fordóma, misskilning og andúð. En
nú hefur breyting orðið á, atóm-
skáldskapurinn nýtur nú viðurkenn-
ingar og þessar ritgerðir þar með
orðnar að mikilvægum heimildum í
íslenskum bókmenntum.
Margar ritgerðanna eru vörn fyrir
hinn nýja skáldskap og ádeila á hinn
hefðbundna skáldskap, sem Jón
Óskar taldi staðnaðan og steingerð-
an. Sérstaklega eru athyglisverðar
greinar hans er hann gerði uppreisn
gegn Kristni Andréssyni. Athuga-
semd við undarlega ritsmíð og
Bókmenntir og kreddur."
Ritgerðasafn þetta tengist minn-
ingabókum Jóns Óskars. Af þeim eru
komin út 5 bindi. Síðan kom út Borg
drauma minna, en síðasta bindi
þeirra er nú í smíðum. Bókin Vitnað
fyrir manninn er gefin út af
Fjölvaútgáfunni er myndskreytt, 190
bls. á stærð. Hún er sett og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar, en
bundin í Örkinni."
TWEED &
AFTUR TWEED
ADflmjon
frá Kóróna
BANKASTRÆTI 7. SIMI 29122. AÐALSTRÆTI 4. SÍM115005.