Morgunblaðið - 19.12.1978, Page 5

Morgunblaðið - 19.12.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 5 Gunnar Thoroddsen; Meðferð fjárlaga- frumvarps með óvenjulegum hætti - þingmenn Sjálfstæðisflokks sátu hjá *"*'"'** * Hestar hurfu úr girðingu FJÓRIR hcstar hurfu úr girð- ingu við Keldnaholt á sunnu- dagsmorguninn eða aðfarar- nótt sunnudagsins og er helst haldið að hestarnir hafi verið teknir í misgripum. Af þessum fjórum hestum voru fjögur tryppi, eitt jarpt merartryppi, 2 vetra, tveir brúnir hestar, annar 2 vetra en hinn 3 vetra og loks 6 vetra reiðhestur, ljósrauður, glófext- ur, vindóttur á fótum og lærum og með blésu. Mark hestsins er vaglskorið framan vinstra og stýft og biti aftan hægra. Þeir, sem veitt geta upplýs- ingar um hestana eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar í Arbæjarhverfi. Ritgerð um þróun kristindóms á íslandi — Gefin út á mikrófilmum Fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn- arinnar var í gær vísað til 3ju umræðu í Sameinuðu þingi, að viðhöfðu nafnakalli, með 39 at- kvæðum Alþýðuflokksins. Þing- menn Sjálfstæðisflokksins, 20 að tölu, sátu hjá. Einn þingmaður var fjarverandi. Áður höfðu atkvæði fallið um rúmlega 130 breytingar- tillögur við fjárlagafrumvarpið, sem flestar vóru fluttar sameigin- lega af fjárveitinganefnd og sam- þykktar. Breytingartillögur frá einstökum þingmönnum vóru örfá- ar og yfirleitt teknar aftur til 3ju umræðu. Áður en atkvæði vóru greidd um að vísa fjárlagafrumvarpinu til annarrar umræðu kvaddi Gunnar Thoroddsen, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sér hljóðs og sagði m.a.: „Mcðferð frumvarps til fjárlaga fyrir árið 1979 er á margan hátt með alveg óvenjuleg- um hætti. Fulltrúar eins stjórnar- flokksins, Alþýðuflokksins, í f jár- veitinganefnd skrifa undir nefnd- arálitið með fyrirvara. Alþýðu- flokkurinn hefur lýst því yfir að þingmenn hans vilji ekki að Flugumferðar- stjórar tefja Danmerkurflug TAFIR hafa orðið á Norðurlanda- fluginu undanfarna daga vegna seinagangs í störfum flugumferð- arstjóra í Kaupmannahöfn, sem tefja störf vegna launabaráttu sem þeir standa í. Hefur SAS m.a. orðið að fella niður flug til Óslóar og Hamborgar og tafir hafa orðið á flugi Flugleiða milli íslands og Norðurlanda, samkvæmt upplýs- ingum Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiða. fjáriagafrumvarpið og tekjuöfl- unarfrumvörp, sem eru því ná- tengd, verði afgreidd fyrr en Alþýðubandalagið og Framsókn- arflokkur hafi tckið afstöðu til tillagna Alþýðuflokksins um jafnvægisstefnu o.fl. Það liggur því ekki fyrir á þessari stundu, hvort fjárlagafrumvarpið nýtur stuðnings meirihluta alþingis- manna. Þingmenn Sjalfstæðis- flokksins telja skylt að vekja athygli á þessum einstæðu vinnu- brögðum stjórnarflokkanna og munu ekki taka þátt í atkvæða- greiðslu um að visa frumvarpinu til 3ju umræðu“. Þá var og nafnakall um 4. gr. fjárlagafrumvarpsins, sem samþ. var með 39 atkv. gegn 1, 18 sátu hjá og 2 vóru fjarverandi. Enn- fremur um þá till. fjárveitinga- nefndar að fella niður fjárveitingu úr fjárlagafrumvarpi til bænda- skóla í Odda. Tillagan var sam- þykkt með 37 atkv. gegn 6, 15 sátu hjá og 2 vóru fjarverandi. Sighvatur Björgvinsson, form. þingflokks Alþýðuflokksins, gerði munnlega grein fyrir afstöðu þingmanna Alþýðuflokks. Sagði hann þingmenn Alþýðuflokks telja að ýmislegt af því, sem hér væri nú verið að samþykkja, þyrfti e.t.v. endurskoðunar síðar með hliðsjón af tillögum Alþýðuflokks í frum- varpsformi um efnahagsmál, sem nú væri til athugunar hjá ríkis- stjórninni. Þeir hefðu þó ekki viljað tefja þinglega meðferð fjárlagafrumvarpsins við aðra umræðu, né breytingartillögur frá fjárveitingarnefnd. Þeir væntu þess hins vegar að samstarfsflokk- ar Alþýðuflokks í ríkisstjórn taki afstöðu til tillagna hans í efna- hagsmálum áður en fjárlagafrum- varpið og hliðarfrumvörp um ríkissjóðstekjur verði endanlega afgreidd í þinginu. KOMIN cr út hókin „Útstöðvar kristindóms og menningar“, sem á ensku ber heitið „Outposts of Christianity and Civilization“ eftir John M. J. Langelyth fyrrum fulltrúa í alþjóðadeild danska menntamálaráðuneytis- ins. Bókin er gefin út í sérstakri tækni, sem kallast Microfiche, og er þá handrit höfundarins ljós- myndað í míkrótækni. Bækur, sem gefnar eru út með þessum hætti, eru ætlaðar þröngum hópi sérfræðinga á því sviði, sem bókin fjallar um, og þarf að lesa handritið með sérstökum stækk- urum, sem fáanlegir eru í bóka- söfnum. Langelyth, sem er sérfræðingur í sögu og trúarbragðafræðum Gyðinga og hefur auk þess lagt stund á fornaldar- og miðalda- sögu, fékk áhuga á kristnitöku íslendinga á árunum 1960 til 1970, er hann dvaldist á íslandi. í fyrstu rannsakaði hann þróun kristin- dóms frá árinu 1000, en rannsókn- ir hans tóku síðar einnig til tímabilsins áður en kristni var lögleidd á íslandi. Sýnir hann fram á að kirkjuleg þróun í Norður-Evrópu skýrði þá þróun, sem varð hérlendis á sama tíma. Ritgerð Langelyth er skipt í tvo kafla. í fyrri kaflanum er fjallað um keltnesk áhrif frá írskum munkum, undirbúningsrannsóknir og í síðari kaflanum er fjallað um upphaf og þróun kristindóms á Islandi. Langelyth var kvæntur íslenzkri konu, Dagbjörtu Jónsdóttur, sem lézt í desember 1974. Hann býr nú í Kaupmannahöfn. Jólatónleikar í Landakirkju: Sigríður Ella og Simon með heima- mönnum Söngvararnir Sigríður Ella Magnúsdóttir og Simon Vaughan halda tónleika í Landakirkju í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 20. des. kl. 20.30 ásamt Guðmundi H. Guðjónssyni organleikara og kirkjukór Landakirkju. Á efnis- skránni eru þekkt jólalög eftir innlenda og erlenda höfunda. 446 króna meðal- verð í Grimsby STÁLVÍK frá Siglufirði fékk að meðaltali 446 krónur fyrir kólóið er skipið landaði 108,5 tonnum í Grimsby í gær. Samtals seldi skipið fyrir 48,4 milljónir króna. Tvö önnur íslenzk skip lönduðu erlendis í gær, í Hull og í Cuxhaven á laugardag. Helga RE seldi 38 tonn í Hull fyrir 13,7 milljónir, meðalverð 362 krónur. Erlingur GK seldi 92 tonn í Hull fyrir 39,4 milljónir, meðalverð 430 krónur. Loks seldi Sandafellið í Cuxhaven á laugardaginn 57,5 tonn fyrir 15,2 milljónir króna, meðalverð 264 krónur. FALLEGUi Aufturstræti 22 't •N ! / ( 1 ■ £

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.