Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 Nói bátasmiður Erlinsur Davíðssoni NÓI BÁTA- SMIÐUR. 182 bls. Bókaforl. Odds Björnssonar. Akurcyri. 1978. »Hlýr er hann í viðræðum, þegar hann segir frá gömlum starfs- bræðrum. Gestum fagnar hann vel, er ætíð hreinn og beinn, hefur gamansögur jafnan tiltækar og telur orð jafngild skriflegum samningum.« Svona lýsir höfundur, Erlingur Davíðsson, sögumanni sínum, Kristjáni Nóa Kristjánssyni — Nóa bátasmið. Erlingur er natinn og þýöur ævisöguritari. Enginn kafli þessarar bókar er æsispenn- andi. En bókin er nú samt notaleg aflestrar, verulega notaleg. Frá- sögnin er skýr og greinagóð. Og þar sem nú sögumaður sýnist vera fremur dulur maður — að minnsta kosti ekki mjög opinskár, og sagan segir mest frá hversdagslegum viðburðum og daglegu lífi á hún því meir undir ritleikni skrásetj- arans. Nói er vestfirðingur að uppruna, fæddur fjórum árum fyrir aldamót, missti foreldra sína á ómagaaldri og ólst upp hjá vandalausum, hvarf þaðan þegar hann hafði aldur til og lærði skipasmíði en brá sér þó á sjóinn við og við, meðal annars í siglingar og kynntist þá flestum hliðum farmennskunnar. Þannig rekur -hann kynni sín af gleðikonum í erlendum höfnum án þess að fara út í þá sálma í smáatriðum. Síðustu áratugina hefur Nói verið búsettur á Akureyri og þar hefur hann unnið meginævistarf sitt. Lífshlaup Nóa er ekki giska frábrugðið fjölda annarra af kynslóð hans. Hann er minnugur og vel hefur hann tekið eftir. Hins vegar virðist hann sjaldan hafa orðið uppnæmur um ævina og ekki verið gjarnt að láta tilfinningarn- ar hlaupa með sig í gönur og því lætur hann að mestu hjá líða að gerast dómari yfir samferðamönn- um sínum á lífsleiðinni. Minningar hans um æskuheimilið eru fremur bjartar þó svo hann ælist þar upp sem tökubarn. Að því leyti sver hann sig í ætt við kynslóð sína sem taldi hvorki karlmannlegt né Bókmenntir eftir ERLEND JÓNSSON kristilegt að sætta sig ekki við hlutskipti sitt. Gamli tíminn var samt ekki eintómur dans á rósum. Þrúgandi húsbóndavald og vinnu- kergja einkenndu margt sveita- heimilið fyrr á tíð. Gagnrýni var forboðin, börnunum innrætt að allt væri gott sem að þeim var rétt. Þetta verður þó naumast lesið nema óbeinlínis út úr ævisögum þeirra sem ólust upp við svipuð kjör og Nói og nú eru komnir á efri ár, og svo er að sjá að Nói hafi átt sæmilega daga hjá fósturforeldr- um sínum. Líkast til hefur hann verið heppinn miðað við það sem almennt gerðist á uppvaxtarárum hans. En gagnstætt því sem gengur og gerist í mörgum ævisögum þykir mér fyrsti hlutinn, þar sem Nói segir frá bernsku sinni og æsku, daufastur, en skemmtilegastur miðhluti sögunnar þar sem hann segir frá förumannslífi sínu, hérlendis og erlendis. Þar er mörg ferðasagan. Og ferðasögur segir Nói vel. I heimahögum varð hann hugfanginn af stúlku. Hún hélt til Reykjavíkur, þangað var leiðin farin að liggja; hann á eftir! Hann hélt hún mundi bíða sín, bíða þar til hann yrði tilbúinn að stofna með henni heimili. En hann ofbauð biðlund hennar, hún gafst öðrum, og þó það sé kannski ekki sagt berum orðum í sögunni, má af frásögninni ráða að þá hafi komist nokkurt los á sögumann, hann gerðist kunningi Bakkusar þótt aldrei yrði hann handgenginn honum. Og því aðeins greip hann til gleðikvenna í hafnarborgum erlendis að hann taldi sig eiga með sig sjálfur! Ég hygg að margur ævisöguritari hefði hyllst til a ð gera þessa sögu að aðalatriði. En svo er ekki gert hér. Erlingur Davíðsson er ekki að skrá ástar- sögu og því síður gleðisögu heldur ævisögu. Þess vegna sópar hann endurminningagólfið hjá sögu- manni sínum eins og það leggur sig. Og þá kemur vitanlega í ljós að Nói hefur varið flestum dögum ævi sinnar til — vinnu! Og þegar bókinni er lokað og titillinn blasir við á kilinum rennur upp fyrir manni að heiti bókarinnar segir dagsatt um innihaldið: þetta er saga iðnaðarmanns, saga manns sem hefur unnið hörðum höndum langa ævi og á því flestar minning- ar um ævistarf sem honum er Glompinn nt. SUÐURLANDSBRAUT 6 SÍMI 83215 60016 nýja línan i lompum mikið úrvalr 60012 einkar kært þegar hann horfir til baka. Kynslóð Nóa ólst upp við strit og var innrætt að trúa á blessun vinnunnar. Vinnan hélt henni frá freistingum — tíminn til frílyst- inga var svo naumur! En þá varð líka að leita lífsfyllingar í hinu daglega lífi, finna hamingjuna í starfi sínu, sjá fegurðina í ásangri þess. »Góður bátur á hvítfextum öldum,« segir Nói bátasmiður, »er nær því en flest annað, sem maðurinn hefur smíðað með huga sínum og höndum, að vera lif- andi.« Að lokum segist Nói vera að velta því fyrir sér hvort hann ætti ekki »að smíða utan um mig og hafa gripinn tilbúinn þegar á þarf að halda. Helst vildi ég hafa ofurlítið bátslag á kistukrýlinu mínu ef ég mætti það.« Af lestri þessar bókar dreg ég þá ályktun að sálarskip þessa æðru- lausa manns sé ekki síður vel viðað en happafleytur þær sem hann hefur bestar smíðað um ævina. Erlendur Jónsson. Hótel, félags- heimili o. fl. Fréttabréf frá Stykkishólmi Stykkishólmi, 15. des.i AÐALFUNDUR Hótelfélagsins Þórs í Stykkishólmi var nýlega haldinn en félagið er aðili að rekstri hótelsins í Stykkishólmi en það hefir verið rekið s.l. tvö ár og er nú opið allt árið. Á þessum tíma hafa verið talsverðir örðugleikar í rekstri hótelsins en nú er unnið markvisst að því að reksturinn komist á það stig að han'n geti skilað fjárhagslegum árangri og í þeim tilgangi var reksturinn skipulagður að nýju í vor og tók þá við hótelstjórn Guðrún Þorsteins- dóttir sem hefir síðan verið rekstrarstjóri hótelsins. Eins og áður hefir verið sagt frá hefir hótelið 26 tveggja manna herbergi á leigu og einnig ágæta aðstöðu til veitinga- og gistihúsreksturs. Á þessum árum hafa margir gist hótelið og eru allir sammála um gæði þess og gagn. Formaður hótelfélagsins var kjörinn Gissur Tryggvason. Hótelið sér nú ásamt því að hafa matsölu opna, um mat til dvalarheimilis aldraðra sem nýlega hóf störf í Stykkishólmi. Þá var einnig haldinn aðalfund- ur eigendafélags félagsheimilisins og gerð grein fyrir starfi þess og árangri. Það hefir nú verið opið til afnota í rúm tvö ár og þar farið fram margs konar starfsemi, svo sem leikstarfsemi, félagsstarf- semi, dansleikir, fundarhöld o.fl. Hefir þetta félagsheimili komið að miklum notum í menningarstarf- semi á Snæfellsnesi. Stærri hópar með leikrit hafa nú heimsótt Hólminn vegna þess að félags- heimilið hefir getað tekið á móti þeim og salurinn rúmar 250—300 manns. Þá hafa fundarhöld og ráðstefnur verið haldnar í félags- heimilinu í samráði við hótelið og hefir sú þjónusta aukist og þeir sem hennar hafa notið verið á einu máli um að ákjósanlegri stað og aðstöðu sé ekki hægt að fá. Er því reiknað með vaxandi ráðstefnu- haldi í framtíðinni í sambandi við félagsheimilið. Umsjónarmaður félagsheimilis- ins er Þórður Þórðarson, en formaður stjórnar eigendafélags- ins var kosinn Gunnlaugur Lárus- son. Einn bátur stundar nú fiskveið- ar frá Stykkishólmi, en það er Þórsnes S.H. 108 og hefir hann verið með línu og aflað ágætlega og er búinn að fá í þessum mánuði rúm 50 tonn af ágætum fiski, þorski og ýsu. Fer aflinn til neyslu og í salt. Verður hann að veiðum til 20. en þá byrjar fiskveiðibannið. Aðrir bátar eru í höfn síðan skelveiði var stöðvuð en gert er ráð fyrir að byrja upp úr áramótum að óbreyttum aðstæðum. Seinustu áætlunarferðir rútunn- ar til Stykkishólms verða föstu- daginn 23. des. og verður þá farið á Snæfellsnes og til baka til Reykja- víkur. Sama dag fer flóabáturinn kl. 9 frá Stykkishólmi úm Flatey til Brjánslækjar á Barðaströnd. Steypa í einbýlishús hækkaði um 240 þús. VERÐ á steypu frá steypu- stöðvunum hækkaði að meðaltali um 10% af völdum sementshækkunar- innar eða hver rúmetri um 1600 krónur, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk. Rúmetrinn af steypu hækkaði úr 17.565 kr. í 19.179 kr. og steypu- kostnaður húsbyggjanda sem t.d. er að reisa um 150 fm einbýlishús hækkaði þannig á einum degi um 240 þúsund krónur. Eftir hækkunina á sementinu um 20% kostar nú tonnið af t.d. Portlands- sementi 32.300 kr. með söluskatti en kostaði áður 26.900 kr. en hraðsement hækkaði úr 30.960 krónum með söluskatti í 37.200 kr. Lítið til beggjaighliða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.