Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 44
W' i sérverzlun með " litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19, BUÐIN sími 29800 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 Alþýðuflokksmenn bíða tilboðs fjármálaráðheira Lánsfjáráætlun ekki lögð framfyrir jól Jólin nálgast og litlu jólin eru nú víðast hvar haldin í skólum. Þessa mynd tók ljósm. Mbl. Kristján er 8 ára börn í Breið- holtsskóla héldu sín litlu jól. „ÉG REIKNA fastlega með að fjármálaráðherra sé að semja eitthvert tilboð til Alþýðuslokksins, sem verði lagt íram á ríkisstjórnarfund- inum í fyrramálið. Lánsfjáráætlunin hefur verið dregin til baka og verður ekki sýnd fyrr en eftir áramót og spurningin er hvort tilboð fjármálaráðherra varðandi fjárlögin verður þess efnis að við hleypum þeim í þriðju umræðu cða ekki.“ sagði einn af þingmönnum Alþýðuflokksins í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Tómas Árnason sagði í samtali við Mbl. í gærkvöldi að lánsfjár- áætlunin yrði ekki lögð fram á Alþingi fyrir jólin en varðandi afgreiðslu fjárlaganna sagði hann enn stefnt að því að ljúka af- greiðslu þeirra fyrir jól og væri hann vongóður um að það tækist. Spurningu Mbl. um tilboð hans til Alþýðuflokksins svaraði fjármála- ráðherra: „Ég hef sagt að fjárlögin séu í stærstu dráttum svipuð þeirri stefnu, sem Alþýðuflokkur- inn er að boða. Ég segi kannski ekki alveg eins en mér sýnist líklegt að þau beri þann svip, þegar til þriðju umræðu kemur, að samkomulag ætti að nást.“ Um lánsfjáráætlunina sagði Lánsfjár- áætlun 1978: Nýjar láns- fjárheimildir upp á 9030 milljónir kr. FRAM var lagt á Alþingi í gær frumvarp til laga um ábyrgðarheimildir og heimild til lántöku vegna endur- skoðaðrar lár.sfjáráætlunar líðandi árs (1978) samtals að fjárhæð 9030 m.kr. eða samsvarandi upphæðar í erlendri mynt. Þar af er heimilt, skv. frumvarpinu, að taka lán vegna endurskoðaðr- ar lánsfjáráætlunar fyrir árið 1978, allt að 4000 m. kr., vegna þess að lántökur innan- lands hafa reynst 2500 m.kr. minni en áætlað var svo og vegna meiri umsvifa á árinu en ráðgerð voru. — Þá er fjármálaráðherra, f.h. ríkis- sjóðs, heimilað að ábyrgjast allt að 230 m.kr. lán fyrir Lánasjóð íslenzkra náms- manna, svo að unnt verði að veita lán er svöruðu til 85% af svonefndri „umfram þörf námsmanna", til viðbótar heimild í fjárlögum ársins til lántöku að fjárhæð 270 m. kr. Loks er heimildarákvæði í frumvarpinu til að ábyrgjast með sjálfskuldaárábyrgð lán er Akureyrarbær tekur að fjárhæð 4800 m.kr. til fjármögnunar á hitaveitu- framkvæmdum. Tómas að hún væri að mestu unnin og venjan hefði verið síðustu ár að hún væri samþykkt svo í ríkisstjórninni að hægt væri að leggja hana fram á Alþingi fyrir jólahlé. Hins vegar stæðu mál þannig að nú áætlunin yrði trauðla samþykkt í ríkisstjórninni fyrr en eftir jól. „Það má vel vera að Tómas sé að reyna að grafa upp eitthvert bein handa Alþýðuflokknum", sagði einn af þingmönnum Alþýðu- bandalagsins í samtali við Mbl. í gærkvöldi. „Við bíðum bara og sjáum hvað úr þessu verður. Að vísu eru nokkuð skiptar skoðanir um það meðal okkar, hvernig á að taka á þessum málum. Margir eldri mannanna, sem eru vanir öllu samfelldari pólitík en þetta, eru nokkuð þreyttir, en yngri mennirnir eru vanari flugeldasýn- ingum, eins og þessar innanflokks- deilur kratanna eru“. Verzlunarráð telur nýjar álögur á atvinnuvegi nema 7,4 milljörðum Eiga um að velja að fækka starfsfólki eða hætta rekstri VERZLUNARRÁÐ íslands hef- ur látið frá sér fara ályktun þar sem þeirri skattheimtu sem í vændum er, er lýst sem ógnvæn- legri, því að auknir skattar á atvinnuvegina nemi um 6 millj- ónum króna auk fyrirhugaðrar hækkunar Reykjavíkurborgar á fasteignásköttum og aðstöðu- gjöldum um 1400 milljónir króna. Segir ennfremur í álykt- uninni að framhjá þeirri stað- reynd verði ekki komizt að atvinnurekendur eigi nú um það að velja að draga saman rekstur fyrirtækja sinna og fækka starfafólki eða hætta rekstri fyrirtækjanna alveg. í ályktun Verzlunarráðsins um horfur í atvinnumálum á árinu 1979, sem gerð var á fundi stjórnar og varastjórnar ráðsins í gær, var mótmælt harðlega þessum nýju álögum stjórnvalda á atvinnulífið í landinu, þar sem færu saman stórhækkaðir skatt- ar samfara minnkandi tekjum vegna hertra verðlagshafta. Tel- ur Verzlunarráðið að verði boð- aðar skattaálögur staðfestar sé atvinnuöryggi lar.dsmanna stefnt í bráða hætt.u. Varðandi áform Reykjavíkur- borgar um að hækka fasteigna- skatta og aðstöðugjöld um 1400 milljónir kemur fram að af hálfu borgaryfirvalda virðist núna horfnar áhyggjur af framtíð atvinnulífsins í borginni, sem allir stjórnmálaflokkar höfðu áhyggjur af fyrir kosningar, og varðandi aukningu skatta ríkis- ins á atvinnuvegina um 6 millj- arða króna bæði í formi hækk- unar tekju- og eignaskatts og álagningar nýrra skatta, er bent á að ekki sé langt um liðið síðan H af skipsm álið: Stjórnarformaður- inn í gæzluvarð- hald til 17. janúar stjórnvöld álitu atvinnuvegina ófæra um að greiða umsamið kaup. í niðurlagi ályktunarinnar I segir síðan að Verzlunarráð Islands hveti atvinnurekendur og samtök þeirra til að standa þétt saman og hefja virka baráttu til varnar framtíð ísl. fyrirtækja. Atvinnurekendur geti ekki lengur setið aðgerða- lausir og horft á efnahagslíf landsins lagt í rúst, og lýsir ráðið allri ábyrgð á yfirvofandi stöðvun fyrirtækja og atvinnu- leysi á hendur stjórnvöldum vegna stefnu þeirra í verðlags- og skattamálum. MAGNÚS Magnússon stjórnar formaður og fyrrverandi forstjóri Hafskips hf. var í gær úrskurðað- ur í gæzluvarðhald allt til 17. janúar n.k. að kröfu Halivarðs Einvarðssonar rannsóknarlög- reglustjóra. Dvelst Magnús í Síðumúlafangelsinu þar sem yfir- heyrsiur fara fram. Eins og fram kom í Mbl. um helgina kærði stjórn fyrirtækisins Magnús fyrir meint fjármálamis- ferli, skjalafals og misbeitingu. Hallvarður Einvarðsson sagði að kæruefnið beindist að ýmis konar meintu misferli í sambandi við framkvæmdastjórn hins kærða hjá Hafskipi hf. árið 1977 og ’78 og varðaði m.a. skipakaup, skipasölur og viðskiptabréfamisferli. Kvað Hallvarður rannsóknina á frum- stigi en nauðsynlegt hefði þótt í þágu rannsóknar málsins að krefjast gæzluvarðhalds yfir hin- um kærða manni. Magnús var handtekinn á laugardaginn og gæzluvarðhalds var óskað á sunnudag í sakadómi Reykjavíkur og var úrskurður uppkveðinn í gær. Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl. er lögmaður Hafskips hf. og í gær lagði hann fram mjög ítarlegt yfirlit með kærunni að sögn Hallvarðs. 5 dagar til jóla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.