Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978
Þessi vinsæla samstæöa tieitir President
Hún er 40 watta og fylgja henni tveir
stórir og góöir hátalarar.
n i
Kaaiooær n
Ármúla 38, (Selmúlamegin) 105 Reykjavík
Símar 31133, 83177. Pósthólf 1366.
Sumir versla dýrt —
aðrir versla hjá okkur
Okkar verð eru ekki tilboð
heldur árangur af
hagstæðum innkaupum
Ferskir
ávextir
Jaffa
appelsínur
3.kg. 885- 295—pr.kg.
1 kassi 20 kg. 5.780.— 289.-pr.kg.
Epll^rauð Delicious U.S.A.
2kg. 650- 325.-pr.kg.
1 kassi 18 kg. 5.650.- 313 - pr.kg.
Epli «i rauð frönsk Delicious
1 kassi 10 kg. 2.950.-
Ekta Clementínur
1 kassi 10 kg. 4
1 kg. 590.-
STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 1
það um leið vettvang að umræðu
um umhverifismótun og allar
greinar húsagerðarlistar. Eins og
þeirra er von og vísa, munu þeir
gera húsið upp, en það mun mjög
hafa þarfnast gagngerðra lagfær-
inga. Þeim er einnig treystandi til
að breyta ekki útliti hússins að
utan né innan, enda er hér um að
ræða hús teiknað af Sigurði
heitnum Guðmundssyni arkitekt,
einum fremsta arkitekt þjóðarinn-
ar. Þá lízt mér vel á, að þeir
virðast jafnvel hafa fullan hug á
því, að Ásmundar-nafnið tengist'
áfram húsinu.
Þetta var vafalaust langbesta
lausnin, úr því að FIM virðist
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
sé umliðið, síðan þeir fluttu inn,
sér gestur strax mun á, um leið og
hann stígur þar fæti inn og þó
mun þetta aðeins vera byrjunin.
— I Ásmundarsal, sem hefur
verið málaður hátt og lágt, sýnir
fyrstur manna eftir hin sögulegu
kaup Jörundur Pálsson arkitekt,
um 40 myndverk, aðallega þó
vatnslitamyndir. Jörundur er
löngu þekktur fyrir ástfóstur það,
sem hann hefur tekið við Esju og
umhverfi hennar. Fyrir honum er
Esjan sama og Mount St. Victoire
var Cézanne — munurinn er sá, að
Cézanne var vígður málverkinu af
lífi og sál, en hjá Jörundi er þetta
hollt tómstundagaman og hjart-
ans áhugamál. Myndir Jörundar
bera vissulega sterkan svip af Esju
og eru fagmannlega gerðar, að
mínu mati nokkuð misjafnar, en
hinar beztu standa fyrir sínu og
bera listrænum höfundi vitni.
Það er sannarlega tilhlökkunar-
efni að fylgjast með þeirri starf-
semi, er fram mun fara í húsinu.
Asmundarsalur
og arkitektar
Arkitektafélag Islands festi á
þessu ári kaup á Ásmundarsal við
Freyjugötu og Mímisveg, þar sem
Myndlistarskólinn í Reykjavík var
til húsa um árabil. Eins og
kunnugt er byggði Ásmundur
Sveinsson myndhöggvari húsið á
sínum tíma, og munu flestir, er
komnir eru til vits og ára, muna
eftir húsinu eins og það var, er
meistarinn bjó þar og höggmyndir
hans prýddu garðinn, er veit að
Freyjugötu.
Húsið var falt og var það vel að
arkitektar skyldu kaupa það i
þeim tilgangi að virkja húsið í
þágu félagsstarfsemi sinnar. Gera
engan áhuga hafa haft á húsinu og
einstaklingar í myndlistarmanna-
stétt hefðu trauðla haft bolmagn
til að endurnýja húsið og virkja á
sama hátt og arkitektar. Þá hefði
það verið sorglegt, ef þetta fallega
hús hefði lent í höndum „vanda-
lausra" og jafnvel hlotið þau örlög
að verða nýtt til verzlunarreksturs
eða iðnaðar. Til íbúðar stenzt
húsið naumast nútímakröfur —
ekki einu sinni velflestra mynd-
listarmanna, en það er önnur saga.
Það er full ástæða til að óska
arkitektum til hamingju með
húsið og taka ofan fyrir þeim fyrir
framtakssemi þeirra. Þótt skammt
Rall um Island
— Spil fyrir börn
KOMIÐ er á markað svonelnt
Rallyspil og cr það fyrirtækið
Spilaborg sem gefur það út, en það
heíur áður gefið út Útvegsspilið.
Bæði þessi spil eru hugmyndir
forráðamanna Spilaborgar og
kynntu þeir Raliyspilið fyrir frétta-
mönnum nýicga.
Þeir Jón Jónsson, Tómas Tómas-
son, Haukur Halldórsson og Einar
Þorsteinn Ásgeirsson hafa hannað
spilið, sem þeir segja ætlað börnum
og með því kynnast þau landafræði
Islands, en leikurinn er í því fólginn
að láta bíla aka eftir ákveðnum
leiðum, og merktum á íslandskort,
sem keppendur draga um og um leið
er minnt á ýmis atriði í umferðinni,
sem gagnlegt er að vita.
Þeir forráðamenn Spilaborgar
sögðu að spil þetta hefði þegar verið
skrásett á markað á Norðurlöndum
og Englandi ndir nafninu Glopol og
er nú í undirbúningi stofnun fyrir-
tækis í Kaupmannahöfn til að
annast dreifingu þess erlendis.
Þeir hönnuðu rallyspilið og sáu um útgáfu þess f.v.i Jón Jónsson,
Einar Þorstcinn Ásgeirsson. Tómas Tómasson og Ilaukur Halldórsson.
Ljósm. Kristján.