Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 34
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 t Eiginmaður minn og faðir okkar GUOBJÖRN HANSSON, fyrrverandi yfirvaröstjóri lögreglu Reykjavíkur, andaöist í Borgarspítalanum 16. desember. Guðfinna Gunnlaugedóttir, Kristinn Guðbjörnsson, Helga Guðbjörnsdóttir, Jóhann Guðbjörnsson. María Thorarensert — Minningarorð + Eiginmaður minn SÆMUNDUR SIGURÐSSON skipstjóri, Smyrlahrauni 17, Hafnarfirði, andaöist í St. Jósepsspítalanum Hafnarfiröi laugardaginn 16. desember. Fyrir hönd barna okkar, móöur hins látna og annarra ættingja. Halldóra Aðalsteinsdóttir. t Móöir okkar MEKKIN EIRÍKSDÓTTIR, andaöist aö Sólvangi, Hafnarfiröi 17. desember. Guðný, Jóhann Petersen + Eiginkona mín SVANHVÍT GUDMUNDSDÓTTIR, Stekkjarflöt 7, Garðabæ, lést þann 17. desember. Hjalti Hansson. Fa dd 26. júní 1897. Dáin 10. desember 1978. Hinn 10 þ.m. lézt í Borgar- spítalanum María Thorarensen, ekkja Ólafs Thorarensen, sem lengi var útibússtjóri Landsbank- ans á Akureyri. Hún var fædd 26. júni 1897 á Akureyri, dóttir hjónanna Frímanns Jakobssonar trésmíða- meistara og Sigríðar Björnsdóttur, sem voru þekktir borgarar á Akureyri á sínum tíma. Hún ólst upp með foreldrum sínum í hópi systkina sinna, en giftist Óiafi Thorarensen hinn 27 sept. 1919. Ólafur var starfsmaður Lands- banka íslands í 53 ár, þar af útibússtjóri á Akureyri í 30 ár. Fyrstu 12 árin bjuggu þau í Reykjavík, en fluttust til Akureyr- ar 1930 og þar var heimili þeirra til 1965. Þau eignuðust þrjú börn. Elzti sonur þeirra lézt kornungur, en tvö börn þeirra eru á lífi, Þórður Frímann, lögfræðingur og Sigríður, húsmóðir, bæði búsett í Reykjavík. Arið 1965 fluttust þau Ólafur og María aftur til Reykjavíkur, en þá hafði Ólafur látið af störfum fyrir nokkrum árum og var heilsa hans á þrotum. Hann lézt 30. jan. 1966 og bjó María eftir það í Reykjavík. Hin síðustu ár var heilsa hennar mjög tekin að þverra og síðustu mánuðina dvaldist hún á sjúkra- húsi, þar til yfir lauk. Jarðneskar leifar hennar verða lagðar við hlið manns hennar og sonar þeirra í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Starfsvettvangur Maríu var heimili þeirra hjóna eins og títt er og þar vann hún ævistarf sitt á hljóðlátan hátt, yfirlætislaus og hógvær, en þó með myndarskap og hjartahlýju, sem henni var gefin í ríkum mæli. Hún var mikil hannyrðakona, hafði lært þær listir sérstaklega og bar heimili hennar þess ljósan vott. Ymsir munu þeir, sem minnast gestrisni þeirra hjóna og margvíslegrar hugulsemi, en um slíkt voru þau mjög samhent og um þau bæði mun ekki ofsagt, að þeir mátu þau mest, sem þekktu þau bezt. María hafði yndi af tónlist og iðkaði hana nokkuð á yngri árum í tómstundum og fram undir hið síðasta las hún mikið af góðum bókum. Þó að líkaminn hrörnaði hin síðustu ár, hélt hún óskertu minni og dómgreind og fylgdist með því sem gerðist ekki siður en þeir sem yngri voru, meðan kraftar hennar leyfðu henni að halda á bók eða blaði. Hún var, í einu orði sagt, mæt kona og góð móðir barna sinna og naumast hafa nokkur barnabörn átt betri ömmu. Þau munu lengi sakna hennar og minnast hennar alla tíð með þakklátum huga. Ástvinir hennar þakka henni samfylgdina og óska henni guðs friðar handan við móðuna miklu. F.S. I dag, 19. desember 1978, verður frú María Frímannsdóttir Thorarensen jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík. + Maöurinn minn, faöir okkar og sonur, HARALDUR ÓLAFSSON, Skaftahlíö 7, varö bráökvaddur aö heimili sinu sunnudaginn 17. desember. s.l. fyrir hönd vandamanna, Bára Magnúsdóttir og tynir, Sólveig Stefánsdóttir, Ólafur F. Ólafsson. Þórunn Einarsdótt- ir — Minningarorð + Elsku maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÁGÚST SVEINBJÖRN SVEINSSON SIGURÐSSON, málarameistari, Ásgarði 69, Reykjavík, andaöist 17. þessa mánaöar, Elín Sigurösson Ágúst Ágústsson, Ingólfur Ágústsson, Kristján Ágústsson Guöbjörg Ágústsdóttir Helgi Ágústsson Jóhanna Ágústsdóttir, Halldóra Ágústsdóttir tengdabörn og barnabörn Hjartkær vinkona mín, Þórunn Einarsdóttir, er farin frá okkur til æðri heimkynna. Hún lést 9. des. s.l. Sterkur þáttur i lífi hennar var trúin á almættið og bænina til guðs. Ef eitthvað amaði að hjá mér og mínum, sagði hún ætíð: „ég skal biðja fyrir ykkur, Dúna mín“. Og margir leituðu hjá henni huggun- ar. Við spyrjum í fáfræði okkar, „af hverju fengum við ekki að hafa hana lengur hjá okkur“? en segjum um leið, miskunnsamur ertu drottinn að veita langþjáðum hvíld. Sjálf bar hún sjúkdóm sinn með þeirri hógværð og stillingu sem henni var meðfædd. í langri baráttu við óvininn skiptust á skin og skúrir, þar til í marz s.l. að hún lagðist á Landspítalann og átti þaðan ekki afturkvæmt. Þórunn var fædd 24. marz 1916 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru þau Kristín Sigurðardóttir og Einar Ólafsson gullsmiður. Einar lést úr spönsku veikinni 1918. Þau hjón eignuðust 3 börn og var Þórunn þeirra næst eist. Hinn giftist Runólfi Þorgeirssyni skrifstofustjóra. Elstur þeirra systkina var Ólafur framkv. stjóri, + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, BJÖRG EINARSDÓTTIR, Brekkutanga 34, Mosfellssveit, andaðist að Borgarspítalanum 17. desember. Fyrir hönd vandamanna. Asmundur Arnason, Júlía Ásmundsdóttir, Benedikt Steingrímsson, og barnabörn. + Eiginmaður minn og laðir okkar FRED JENSEN Hétúni 10, Keflavík sem lézt af slysförum 12. desember veröur jarösunginn frá Keflavíkurkirkju, miövikudaginn 20. desember kl. 1.30 Aðalheiður Friöriksdóttir. og börn + Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóðir, ÞÓRUNN EINARSDÓTTIR, Lokastíg 24 A, sem lést á Landspftalanum 9. p.m. verður jarösungin frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudag, kl. 13.30. Runólfur Þorgeirsson, Einar Runólfsson, Þórunn Guðbjörnsdóttir, Guðrún K. Campell-Savours, Dale N. Campell-Savours, Þorgeír P. Runólfsson, Jóhanna M. Guðnadóttir, Guðni Kr. Runólfsson, Katrín Runólfsdóttir. Útför GUÐNÝJAR H. GUDJONSDOTTUR, Sjafnargötu 12, sem andaöisf 12. þ.m., fer fram frá Dómkirkjunni miövikudaginn 20. desember 1978 kl. 13.30. Blóm afþökkuö. Fyrir hönd vandamanna. Guörún Jón,dótt|r Helga S. Ólafsdóttír, Halldóra Sigurjónsdóttir, Hanna Guðjónsdóttir, Vilborg Guðjónsdóttir, Kristinn Guðjónsson. + Útför systur okkar, Móöir okkar og tengdamóöir, SIGURLÍNAR INGVARSDÓTTUR, ÁSTRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR hérgreiðslumeistara, fré Óspakseyri, Barónsstíg 31, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 20. des. kl. 13.30. fer fram frá Fossvogskirkju, á morgun miövikudaginn 20. desember kl. 3 e.h. Sigurgeir Þorkelsson, Freygerður Pélmadóttir, Fyrir hönd vandamanna. Hu|da |ngvar,dó|tjr Gylfi Þorkelsson, Sigríður Kalldórsdóttir, Einar B. Ingvarsson, Stefén Þorkelsson, Gunnar A. Ingvarsson, Ingimar Þorkelsson. Garðar Ingvarsson, Maria fæddist á Akureyri 26. júní 1897, dóttir hjónanna Frí- manns Jakobssonar, trésmíða- meistara, og Sigríðar Björnsdóttur frá Syðra-Garðshorni í Svarfaðar- dal. Hún var elst fjögurra syst- kina, Jakobs, f.v. kaupfélagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri, Svanbjörns, f.v. bankastjóra Landsbanka Islands í Reykjavík, og Lovísu, búsettrar í Kaup- mannahöfn. Mér er ljúft að minnast frænku minnar og föðursystur með fáein- um orðum, því margar á ég endurminningar frá yngri árum, þegar heimili þeirra Maríu og Ólafs Thorarensen á Akureyri var mér sem annað foreldrahús. Þar bjó einnig amma mín, Sigríður, til dauðadags, en hún lézt 27. maí 1963. Það var mikill kærleikur með þeim systkinum, börnum Sigríðar g Frímanns, og tíð samskipti, enda þótt haf og land skildi sum þeirra löngum að. í bernsku minni var það næstum árlegur viðburður að ferðast var til Akureyrar og venzlafólkið sótt heim. Voru þær ferðir jafnan mikiö tilhlökkunar- efni okkur systkinum, og hvergi leið okkur betur en í vinalega timburhúsinu í Brekkugötu 11, umvafin hlýju og ástúð Maríu frænku. Var það ekki sízt vegná dálætis á föðurfrændfólki mínu að ég fór í sveit á sumrum í Syðra-Garðshorn í Svarfaðardal til þeirra sæmdar- hjóna, Önnu Jóhannsdóttur og Daníels Júlíussonar, en Daníel og Maria voru systrabörn, komin af kunnum bónda og sjósóknara, Birni Jónssyni í Garðshorni. Þá lá leiðin einatt um Brekkugötu 11, þar sem mér var tekið opnum örmum. Aldrei fór ég svo þaðan, að en hann lést fyrir nokkrum árum. Eftirlifandi kona hans er Gyða Jónsdóttir. Yngst þeirra systkina er Margrét, gift Ásbirni Jónssyni gjaldkera. Mikill kærleikur var milli þeirra systra og var Margrét hjá systur sinni svo til daglega á spítalanum þar til yfir lauk. Kristín móðir þeirra giftist síðar Stefáni Jóhannssyni bifreiðakennara, og eignuðust þau 3 börn, þau Ingibjörgu, Einar og Friðrik. Þórunn ólst upp hjá hjónunum Kristínu Guðnadóttur og Guðna Helgasyni í Vorhúsum við Brunn- stíg í vesturbænum, en Kristín var afasystir Þórunnar. Sem barn var Þórunn strax mjög hænd að Guðna og vildi hún helst alltaf vera í fanginu á honum, þegar hann kom í heimsókn á heimili Kristínar og Einars. Hann tók ástfóstri við telpuna, og mun það hafa ráðið úrslitum, að þau tóku hana til sín, þegar faðir hennar dó. Þau hjón áttu eina dóttir, Krist- ínu, sem dáin er fyrir mörgum árum. Þá ólu þau einnig upp frænku Kristínar, Guðrúnu Eiríksdóttur. Þórunn naut mikils ástríkis hjá fósturforeldrum sín- um og hún var þeim einnig góð dóttir. Við Tóta, sem hún var-kölluð af vinum sínum og fjölskyldu, vorum jafnöldrur og þekktumst frá barn- æsku. Eg, sem þessar línur rita, var fædd og uppalin á Vesturgötu, skammt frá heimili Tótu. En kynni okkar urðu ekki náin fyrr en við vorum orðnar 16 ára. Við störfuðum báðar á skrifstofum í miðbænum, og hittumstdaglega eftir vinnutíma, og urðum sam- ferða heim. Brátt urðum við óaðskiljanlegar. Um þetta leyti kynntumst við Runólfi og Birni, sem síðar urðu okkar eiginmenn. En þeir voru beztu vinir og bekkjabræður úr Verzlunarskólan- um. Það var oft glatt á hjalla hjá okkur fjórum. Beztu stundir okkar voru heima hjá Runólfi á Lokastíg. Þangað vorum við alltaf velkomin, og var þá spilað á píanó og sungið. Undraðist ég oft þolinmæði Guðrúnar og Þorgeirs að þau skyldu ekki hasta á okkur, en þau voru mjög skilningsrík og frjáls- lynd. Þórunn og Runólfur bjuggu í sama húsi og foreldrar Runólfs í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.