Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 Margir muna eftir kvik- myndinni Brúin yfir Kwai-fljót. Dauöabúðirnar viö Kwai-fljót hafa sama baksviö. Hér er þó ekki um skáldsögu aö ræöa heldur frásögn af raunveruleg- um atburðum. Höfundurinn segir frá því sem hann og félagar hans í breska hernum þurftu aö þola í fangabúöum Japana við Kwai-fljót í seinni heimsstyrjöldinni. Dauöabúöirnar viö Kwai-fljót er í senn spennandi og hrífandi frásögn. í fangabúöunum strituðu menn frammi fyrir byssukjöftum og hættu lífi sínu á flótta. Þeir örmögnuöust, tortryggni og fjandskapur fór vaxandi. Skyndilega uröu umskipti; Menn tóku aö fórna lífi sínu hver fyrir annan og hjálpa hver öörum... Hvaö gerðist viö Kwai-fljót? Verö kr. 5880. Fast i öllum bokaverzlunum. Flottadrengurinn Hassan er 12 ára. Hann á heima í helli nálægt Jerúsalem. Hann er fátækur og oft svangur og veröur aö leggja hart aö sér til að útvega sér og tveimur litlum telpum mat. Hassan lendir í mörgum spennandi ævintýrum. Hann flækist m.a. inní óaldaflokk, sem honum gengur erfiölega aö losna úr. Hann finnur einnig fööur sinn, sem hann haföi vilíst frá. Flóttadrengurinn Hassan er raunsönn og hrífandi bók. Um leiö og lesandinn fylgist meö spennandi ævintýrum Hassans kynnist hann kjörum og vandamálum flóttafólks nú á dögum. Sænsk verðlaunabók — kjörin fyrir börn og unglinga. Verö kr. 3240. Bókautgáfan Salt, s. 18188 Tíu böm hlutu bókar- verðlaun Nærri 2.500 börn tóku þátt í yorölaunagetraun bókaútgáfunn- ar Arnar og Örlygs sem hún efndi til í sambandi við sjónvarpsaug- lýsingu. í gær voru dregin út 10 nöfn að viðstöddum fulltrúa borgarfógeta og hlutu þessi verðlaun. sem eru bækur að verðmæti 25 þúsund kr. og verður hringt í vinningshafat Björg Helgadóttir, Lálandi 12, Reykjavík Guðni Sigurbjarnason, Haukshól- um 5, Reykjavík, Jón og Gunnar Árnasynir, Kirkju- teig 29, Reykjavík, Laufey Jón Höggnadóttir, Hraun- bæ 10, Reykjavík, Lilja Jónasdóttir, Njarðvíkurbraut 4, Keflavík, Margrét Árnadóttir, Hraunbæ 106, Reykjavík, Margrét Valsdóttir, Laxárvirkjun, Þingeyjarsýslu, Sigríður Oladóttir, Löngubrekku 11, Kópavogi, Valdimar Björnsson, Ásbraut 21, Kópavogi, Þórunn Pétursdóttir, Ásabraut 7, Keflavík. Umframfjár- þörf verði brúuð að fullu BLAÐINU hafa borist ályktanir frá SÍNE-deildunum í Ósló, Lundi og Kaupmannahöfn þar sem það er harmað að íslenska ríkisstjórn- in hyggist halda áfram skerðingu á kjörum námsmanna. Deildirnar krefjast þess m.a. að fullt tillit verði tekið til fjölskyldu náms- manns við útreikning láns og að umframfjárþörf verði að fullu brúuð. Leiðrétting í MINNINGARGREIN um Jón Ögmundsson verkstjóra á Brún í blaðinu á sunnudaginn urðu prent- villur, sem leiðrétta þarf: ... á sumrin var hann yfirleitt við boranir í óbyggðum. — Hér læddist prentvillupúkinn að og stóð við dorganir. — Þá stóð árið 1976, þar sem standa átti 1967, í sambandi við samstarf Jóns heit- ins og greinarhöf. Lítið barn hefur lítið sjónsvið Wli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.