Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978
13
Hrafn Gunnlaugsson fráfarandi
framkvæmdastjóri Listahátíðar:
Listahátíð græddi
14 milljónir
„Ég ætla mér ekki að munn-
höggvast á opinberum vettvangi
við forstjóra Norræna hússins um
hagnað af Listahátíð ‘78, en vegna
rangfærslna hans og dylgna í Mbl.
laugardaginn 16. des. undir fyrir-
sögninni, Milljón króna halli á
Listahátíð, tel ég rétt að sann-
leikurinn sé leiddur í ljós.
Þegar talað er um hagnað af
Listahátíð eða tap, er alltaf átt við
bæði starfsárin sem umboð fram-
kvæmdastjórnar nær yfir, því
hátíðin er haldin annað hvert ár.
Erik Sönderholm verða hins vegar
á þau mistök að einblína á annað
árið, þ.e. árið 1978, er skilaði
7.003.340,- króna hagnaði, en
sleppa árinu 1977. Hagnaður af
Listahátíð ‘78 sundurliðaður ná-
kvæmlega er 12.315.534.- krónur í
hreinum peningum, eignaaukning:
keypt skrifstofuáhöld 544.462.-
krónur, innrétting á húsnæði
Listahátíðar 1 milljón króna.
Samanlagt eru þetta tæpar 14
milljónir króna og stendur því
fullyrðing mín um umgetinn
hagnað óhögguð.
Nú þegar ég læt af störfum
framkvæmdastjóra er peningaeign
hátíðarinnar um 20 milljónir í
lausafé, auk skrifstofuáhalda og
innréttinga á húsnæði Listahátíð-
ar í Gimli. Þessi hagnaður er
þannig til kominn, að við 12
milljónir í hréinum peningum frá
þessari hátíð bætast um 8 milljón-
ir frá hátíðinni 1976.
Þá vil ég benda á að reikningar
Norræna hússins hafa aldrei verið
teknir inn í uppgjör Listahátíðar
frekar en annarra stofnana sem
eiga aðild að hátíðinni svo sem
Ríkisútvarps, Þjóðleikhúss og
Listasafns íslands. Það er ekki
hægt að ætlast til að fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar beri
ábyrgð á rekstri Norræna hússins.
Varðandi óánægju Norræna
hússins vegna 1 milljónar króna
gjafar Listahátíðar til Söngskól-
ans í Reykjavík og Bandalags
íslenzkra listamanna, sem sam-
þykkt var einróma á fulltrúaráðs-
fundi Listahátíðar í síðustu viku,
vil ég ekkert segja, það er
framkvæmdastjórnar að svara því,
en bendi þó á að Erik sat á þeim
fundi og þagði þunnu hljóði, þegar
þessi tillaga var samþykkt.“
0RT0F0N PICK-UP
gera goö hljomtæki
enn betri.
Kynmö ykkur gæöi og
eiginleika ORTOFON.
Athugiö
MC 10 og MC 20
pick-upin eru komin.