Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978 39 ég væri ekki leystur út með gjöfum, sem venjulega voru plögg ýmiss konar unnin af Maríu frænku af fádæma smekkvísi og fallegu handbragði. Síðar, er ég var við nám í Menntaskólanum á Akureyri, naut ég umhyggju henn- ar, sem ég mun seint gleyma. María var gædd einstökum dýggðum, sem lýstu sér í fölskva- lausri hjartagæzku og mannkær- leik. Hún mælti ógjarnan styggðaryrði og hallmælti engum, enda var hún dáð af öllum, sem henni kynntust. Þegar ástvinir falla í valinn, eru minningarnar um hinn látna það dýrmætasta sem eftir stendur. Það er ekki lítil eign í þeim ljúfu minningum, sem sú góða kona, María Thorarensen, eftirlætur ástvinum sínum. Eg vona að þær minningar verði þeim huggun í harmi, sem um sárast eiga að binda. Andrés Svanbjörnsson. 40 ár. Sambúð Þórunnar við tengdaforeldrana var með afbrigð- um góð. Er því söknuður þessara öldruðu hjóna mikill við fráfall ástríkrar tengdadóttur. Samband okkar Tótu rofnaði aldrei. Við höfðum alltaf nóg um að tala, en báðar eignuðumst við 5 börn, sem voru öll á líkum aldri. Það kom fyrir að við gátum ekki heimsótt hvor aðra vikum saman, að iðulega átti sér stað hugsana- flutningur milli okkar, og hentum við þá frá okkur því sem við vorum að gera, og hringdum í hvor aðra. Eg á ógleymanlegar minningar frá heimsóknum mínum til Tótu, sérstaklega í sambandi við undir- búning jólanna. Það var fastur liður í þessum undirbúningi að koma við hjá Tótu viku fyrir jól, Mig langar til að minnast Maríu frænku minnar með örfáum orðum í þakklætisskyni fyrir árin mörgu, þar sem hún var ævinlega eins og sjálfsagður hluti af lífi mínu, allt frá því ég steig fyrstu sporin og fram á þennan dag. Eg minnist hennar með söknuði eins og ég minnist löngu liðinna bernsku- og æskuára. Ára sem aldrei koma aftur nema í minning- unni einni. Heimili Maríu frænku og Olafs í Brekkugötu 11 var mitt annað heimili í mörg ár. Alltaf finn ég ilminn af nýbökuðu brauði og einhvers konar yl, þegar ég hugsa til þeirra tíma. Á vetrum var gott að leita skjóls hjá henni, ef veður voru vond og erfitt fyrir litla fætur að feta sig upp brekkuna. Um sumur var ævintýri næst að koma í stóra trjágarðinn, sem okkur Dodda og Diddu þótti eins og frumskógur. Og alltaf var María frænka eins og haldreipi okkar barnanna. Hún var hljóðlát en sterk. Aldrei man ég eftir því öll þessi ár, að hún hafi hækkað róminn eða skipt skapi. Hins vegar man ég glöggt dillandi hlátur hennar, nú síðast snemma í sumar. Hún bar ekki þjáningar sínar á torg. María var frábær húsmóðir og myndarleg í öllum sínum verkum. í gamla fallega húsinu, sem faðir hennar byggði af sinni alkunnu snilld, bjó hún fjölskyldu sinni og móður einstaklega hlýlegt og aðlaðandi heimili. Og nú, þegar jólin fara í hönd, hlýt ég að rifja upp öll þau liðnu jól á heimili Maríu frænku minnar, þar sem gleði og kátína ríkti yfir kræsing- unum hennar og kærleikurinn réð húsum. Ég er sannfærð um, að nú munu henni verða haldin jól. Bryndís Jakobsdóttir. drukkum við þá kaffi og prófuðum nýbökuðu kökurnar hennar. Tóta kveikti þá á aðventukertunum og við töluðum um jólagjafir og jólahald, og héldum okkar „litlu jól“. Þessar hljóðlátu stundir í notalegu stofunni hennar voru okkar sálubót. Þórunn var mjög glæsileg kona, einstakleg heilsteypt og greind, allt látbragð hennar var fágað og fíngert. Hún var vinaföst og trygglynd og vildi hvers manns böl bæta, en algjörlega óhrædd að láta í ljós skoðanir sínar, ef henni mislíkaði. Börnum sínum var hún fyrir- myndarmóðir. Ást hennar og umhyggja gagnvart þeim var takmarkalaus, heimilislíf allt einkenndist af festu og reglusemi, sem leiddi til mikils barnaláns. Börn Þórunnar og Runólfs eru Einar fulltrúi, kvæntur Þórunni Guðbjörnsdóttur, Guðrún Kristín, gift Dale N. Campell-Savours, Þorgeir rafvirki, kvæntur Jóhönnu M. Guðnadóttur, Guðni Framkv. stjóri, og Katrín, sem er nemandi í 6. bekk í Menntaskóla. Hjónaband Þórunnar og Runólfs var einstaklega farsælt, enda byggt á traustum grunni. Okkur hjónunum leið alltaf svo undurvel í návist þeirra. Ég votta Runólfi, börnum þeirra og allri fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning þín, elsku vinkona. Guðrún Pétursdóttir. Afmœlis- og minningargremar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. Greiösluskilmálar til dæmis: 100 Þús kr. út og rest á 4 mánuðum eða helmingur út, og rest á 6 mánuðum Staðgreiðsluafsláttur TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR PLÖTUSPILARI: Full stærð, 33 og 45 snúninga hraðar. Belt-drifinn, DC-rafeindastýrður mótor. Hálfsjálfvirkur. Mótskautun og magnetískur tónhaus. SEGULBAND: Hraði 4,75 cm/sek. Dolby System. Bias filterar. Tíðnisvörun venjul. kasettu er 40-10.000Hz. Tíðnisvörun Cr02 kasettu er 40-12.000Hz. Tónflökt og blakt er betra en 0,3% RMS. Upptökukerfi AC bias 4 spora 2-rása sterio. Afþurrkunarkerfi AC afþurrkun.^^^^^ \ MAGNARI: , I 5-IC. 47, transistorar. 23 díóður 80 musikwött (2x25 RMS) Með loudness. I f FM. LW. MW. SW. « HÁTALARAR: \ ■ ■. ■ 20 cm bassahátalari af kónískri gerð. Mið- og hátíðnihátalari 7,6 cm '-Á t/ I af kónískri gerö. Tínisvörun 50—20.000 Hz 4 Ohm. f sendum I postkröfu Skipholti 19, sími 29800 Þau minnstu læra líka meÖ Duplo -stóruLEGO kubbunum LEGORinýtt leikfang á degi hverjum Það er vandi að velja þroskandi leikföng við hæfi yngstu barnanna. Þau þurfa að vera sterk, einföld, litrík og þrifaleg. Og gefa tækifæri til að móta eftir eigin höfði þó að fingurnir hafi ekki öðlast fulla fimi, vagna, bíla, flugvélar og aðra einfalda hluti. Þannig eru LEGO Duplo. Nú eru komnir fylgihlutir sem auka möguleikana og ánægjuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.