Morgunblaðið - 19.12.1978, Síða 24
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978
Akureyri:
Eldur í geymsluhúsi
Akureyri, 18. desember.
SEINT í gærkvöld kviknaði í
Keymsluhúsi við KaldhaksKÖtu í
þeirri þyrpingu timburhúsa af
ýmsu ta){i, sem kölluð er Keldu-
hverfi. Hús þetta cr í eigu
Hafnarbúðarinnar. sem hefur
vöruKeymslu í vesturhluta þess
en í austurhlutanum er bækistöð
bílaklúbbs Akureyrar.
Eldurinn kom upp í vörugeymsl-
unni, þar sem geymdar voru
allmiklar birgðir af matvörum, svo
sem sykri, hveiti og niðursuðuvör-
um. Varningurinn mun vera ónýt-
ur eða fast að því, og miklar
skemmdir urðu á húsinu, enda
varð að rjúfa bæði þak og vegg.
Engar skemmdir urðu í bækistöð
Bílaklúbbsins þó að nokkurn reyk
legði þangað.
Slagbrandur
Plötudómarnir, sem birtust í
blaðinu s.l. sunnudag, áttu að vera
á Slagbrands-síðu, en síðuhausinn
féll því miður niður. Höfundur
greinanna er Halldór I. Andrés-
son.
Leiðrétting
Vegna mistaka féll það niður úr
viðtali við Ingveldi Hjaltested
söngkonu að Þuríður Pálsdóttir
söngkona kenndi henni söng og
tónfræði í Söngskólanum í Reykja-
vík. Eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Slökkviliðið slökkti eldinn á
tiltölulega skömmum tíma.
Skömmu áður en eldsins varð
vart var verið að úða ofna með
— ENNbÁ er fullsnemmt að
segja til um hvort þær kannanir
sem nú standa yfir á Venusi
kunni að leiða eitthvað nýtt í Ijós
sem ekki hefur verið þekkt áður
eða gerbrcytir fyrri kunnáttu
manna. en þó cr það vel hugsan-
legt, sagði Þorsteinn Sæmunds-
son stjarnfræðingur aðspurður.
Hann sagðist ennþá ekki hafa
fengið um það greinilegar skýrslur
hvaða upplýsingar hafa fengizt,
taldi varasamt að treysta frétta-
stofufregnum, en hann sagðist
eiga von á ýmsum upplýsingum
innan fárra daga.
— Mesta athygli hefur vekið að
argon er að finna í gufuhvolfi
Venusar, en ýmislegt annað er
mjög forvitnilegt á ferðinni og
vafalaust á eftir að koma eitthvað
í ljós í sambandi við innri sem ytri
gerð stjörnunnar, eins og yfirleitt
hefur verið í sambandi við þessar
lakki inni í vörugeymslunni og
rafmagnsofn var notaður til að
þurrka lakkið. Talið er að eldurinn
stafi frá þessari málningarvinnu.
—Sv.P.
rannsóknir á því sem er í kringum
okkur og ég tel að tvímælalaust
séu rannsóknirnar réttmætar ef
við viljum fá skýra mynd af þvi
sem í kringum okkur er, sagði
Þorsteinn að lokum.
Harma sölu
Eyjabátanna
SAMÞYKKT var gerð einróma á
aðalfundi Bifreiðastöðvar Vest-
mannaeyja hf. sem haldinn var 11.
desember 1978. Þar er það harmað
að 30 bátar ýr Eyjaflota skuli vera
til sölu og lýsa fundarmenn yfir
fyllsta stuðningi sínum við útvegs-
menn um að knýja á stjórnvöld að
veita útgerð og sjávarútvegi aukið
rekstrarfé ög gera þeim kleift að
reka sín fyrirtæki á eðlilegum
grundvelli.
Of snemmt að segja
til um árangur
kannana á Venusi
— segir Þorsteinn Sæmundsson
MARANTZ
ÓDÝRARI EN FLESTIR HALDA
HÁTALARAR SEM
EKKERT LEGGJA AF
MÖRKUM SJÁLFIR
- ERU BESTIR!
Góðir hátalarar skila tón-
burðinum frá magnara-
kerfinu því sem næst
óbreyttum. Lakari hátalarar
afmynda og bjaga þau
hljóðmerki, sem þeim berast.
Margir falla í þá gryfju að
kaupa ófullnægjandi
hátalara. Láttu þaö ekki
henda þig. Veldu hátalara
sem nær ekkert leggja af
mörkum sjálfir, en eru
ódýrir þó. Veldu MARANTZ.
Hátalararnir hér til hliðar,
MARANTZ HD-440
(60 wött), kosta t. a. m.
aðeins kr. 63.600 (stk ).
MARANTZ'^Q
MARANTZ PLÖTUSPILARAR.
NÝJA LÍNAN 1979.
STÖÐUG ÞRÓUN.
MARANTZ er i stöðugri þróun,
bæði hvað varðar innri og ytri
hönnun. Þetta sannar nýja 1979
MARANTZ plötuspilaralínan. 1978
gerðirnar stóðu vissulega vel fyrir
sínu, en 1979 línan gerir enn betur.
(Verðfrákr. 103.600).
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.
Hansína Gísladóttir í verzluninni Hornabæ. (Ljósm. Jens).
Hornabær — útibú
frá Kamabæ á Höfn
OPNAÐ hefur verið á Höfn í
Hornafirði útibú frá verzlun-
inni Karnabæ í Reykjavík. Hin
nýja verzlun ber nafnið Horna-
bær og verzlunarstjóri er
Ilansína Gísladóttir. Hornabær
hefur á boðstólum kven- og
karlmannafatnað samkvæmt
nýjustu tízku á hverjum tíma.
— Jens.
Hafnarfjörður:
Ami Grétar formáð-
ur fulltrúaráðsins
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðis-
félaganna í Hafnarfirði hélt
aðalfund þann 7. desember sl. Á
þeim fundi var m.a. kosið í stjórn,
nefndir og önnur trúnaðarstörf.
Formaður fulltrúaráðsins, Jón
Kr. Jóhannesson, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs og var í hans
stað kjörinn Árni Grétar Finns-
son, ha“staréttarlögmaður.
Aðrir í stjórn voru kosin þau
Sólveig Eyjólfsdóttir, Magnús
Þórðarson, Trausti Ó. Lárusson og
Sverrir Kaaber. Auk þess eru
tilnefndir fulltrúar félaganna í
stjórn fulltrúaráðsins. Að lokinni
kosningu var fráfarandi stjórn og
formanni hennar þakkað sérstak-
lega fyrir vel unnin störf.
Fram kom á fundinum sérstak-
ur áhugi á öflugu starfi að bæjar-
og landsmálum, og heitir fulltrúa-
ráð sjálfstæðisfélaganna á Hafn-
firðinga til öflugrar samvinnu um
framgang mála er varða heill
Hafnarfjarðar og þjóðarhag.
Menntamálaráó:
Þrír af fimm
fulltrúum gefa ekki
kost á sér áfram
MENNTAMÁLARÁÐ hélt síðasta
fund sinn í síðustu viku og að því
er Hrólfur Halldórsson fram-
kvæmdastjóri þess sagði í samtali
við Mbl. er við því búist að nýtt
ráð verði kjörið af Alþingi í
þessari viku. Sagði Hrólfur að
umboð gamla ráðsins stæði þó
þar til nýtt ráð yrði kjörið, en
talið væri að fundurinn sem
haldinn var sl. fimmtudag va*ri sá
siðasti.
Af því tilefni sneri Mbl. sér til
fulltrúa er setið hafa í mennta-
málaráði að undanförnu og spurði
hvort þeir myndu gefa kost á sér
aftur. Björn Th. Björnsson sagði
að það væri óráðið, ekki hefði verið
rætt við hann né hefði hann rætt
við nokkurn um það. Jón Sigurðs-
son sagðist hafa ákveðið að gefa
ekki kost á sér, sagðist ekki hafa
áhuga á því eftir að hann lét af
starfi framkvæmdastjóra þar.
Kristján Benediktsson fráfarandi
formaður ráðsins, sagðist einnig
hafa ákveðið að gefa ekki kost á
sér og svo var einnig um Baldvin
Tryggvason, er Mbl. ræddi við
hann og Matthías Johannessen
sagði, að rætt hefði verið um að
hann héldi áfram, hvað sem yrði.
Fyrsta hár-
greiðslu-
stofan opn-
ar á Höfn
FYRSTA hárgreiðslustofan á
Höfn í Hornafirði tók til starfa í
byrjun mánaðarins. Stofan ber
nafnið Sirrý og er eigandi
Sigríður Hjörvarsdóttir.
Hárgreiðslustofan er til húsa að
Svalbarði 9. Á meðfylgjandi
mynd greiðir Sirrý Karen
Karlsdóttur símadömu eftir
kúnstarinnar reglum. (Ljósm.
Jens).