Morgunblaðið - 19.12.1978, Blaðsíða 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1978
Anker Jörgensen kom öllum á
óvart þegar hann útnefndi
Bjerregaard í embætti mennta-
málaráðherra í september
1973. Þessi mynd var tekin af
Bjerregaard og Jörgensen eftir
móttöku hjá Danadrottningu
eftir útnefninguna.
að Bjerregaard yrði í Kfna og
Thailandi fram yfir næstkom-
andi áramót, en hún kom til
Hong Kong í dag á leið sinni til
Kaupmannahafnar, að sögn
AP-fréttastofunnar.
Bjerregaard forðaðist frétta-
menn við komuna til Hong
Kong.
Anker Jörgensen boðaði fyrir
skömmu að efnt yrði til opin-
berrar rannsóknar á því hvers
vegna gistikostnaður ráðherr-
ans, í 13 daga heimsókn til
Parísar, hljóðaði upp á tæplega
49 þúsund danskar krónur, eða
um 3 milljónir íslenzkra króna.
Annar kostnaður við ferðalagið
er talin hafa verið rúmar 10
þúsund krónur danskar. Hefur
mikið verið ritað og fjallað um
þetta mál í dönskum fjölmiðl-
um, en Ritt Bjerregaard hefur
áður valdið hneysklan innan
þings sem utan með framferði
sínu á ferðalögum.
Bjerregaard bjó í lúxus-íbúð á
Ritz-hótelinu í París, sem er eitt
hið allra dýrasta í Evrópu, og
samkvæmt tölunum að ofan
hefur hótelkostnaður hennar á
sólarhring verið rúmlega 3.700
krónur danskar, eða um 230.000
íslenzkar. Upplýsingar þessar
ollu miklu fjaðrafoki í
Kristjánsborgarhöll, en þar eru
ýmsar helztu stjórnstofnanir
Dana hýstar, þ. á m. danska
þjóðþingið og segja danskir að
drottning þeirra leyfi sér ekki
slíkan munað á ferðalögum
sínum.
Ritt Bjerregaard.
hyggni. Sagðist Jörgensen ætla
að kanna málavöxtu og ræða við
ráðherrann þegar hún kæmi úr
ferðalagi frá Kína og Thailandi.
Jörgensen sagði að eðlilegt
væri að ráðherrar lifðu ekki sem
túristar á ferðum sínum, en svo
virtist sem flottræfilsháttur
Bjerregaard gengi fram úr öllu
hófi, og eðlilegt væri að ráðherr-
ann borgaði eitthvað af
kostnaðinum úr eigin vasa.
Það var danska blaðið Ekstra
Bladet sem skýrði frá dvalar-
kostnaði ráðherrans. Upplýsing-
ar hafa ekki verið staðfestar af
hálfu menntamálaráðuneytis-
ins, og ráðherrann hefur ekki
látið neitt frá sér fara varðandi
fregnirnar. Þá hefur hótelið
Dvalarkostnaður
dansks ráðherra
veldur fjaðrafoki
Anker Jörgensen forsætis-
ráðherra Danmerkur hefur nú
kallað Ritt Bjerregaard
menntamálaráðherra heim úr
opinberri heimsókn til Kina og
Thaiiands til að gefa skýringar
á óheyrilega miklum kostnaði
vegna ferðar ráðherrans til
Frakklands í sambandi við
fundi UNESCO og OECO. Upp-
haflega var gert ráð fyrir því
Á Ritz-hótelinu er hægt að fá
eins manns herbergi með baði
fyrir rúmlega 36.000 íslenzkar
krónur á sólarhring, og þykir
Dönum því ráðherra sinn hafa
lifað nokkuð flott. Jörgensen
hefur látið svo um mælt að
reynist orðrómurinn um dvalar-
kostnað ráðherrans réttur hafi
Bjerregaard borið sig heimsku-
lega að og sýnt mikla grunn-
ekki viljað skýra frá dvalar-
kostnaði ráðherrans, og í opin-
berum verðlistum hótelsins er
ekki að finna hvað lúxus-íbúð á
hótelinu kostar á sólarhring.
Talið er að Ritt Bjereegaard
kunni að verða vísað úr embætti
vegna þessa framferðis síns, og
öruggt er talið að hún sér búin
að spilla verulega fyrir sér á
stjórnmálasviðinu.
fp í ■ ■ . ’!
Si 1 ‘ %i 1 3'
Setustofan í lúxus íbúðinni sem Bjerregaard bjó í Ritz-hótelinu í París ásamt ritara sfnum. Að auki er
í íbúðinni stórt svefnherbergi og baðherbergi. Danska konungsfjölskyldan leyfir sér ekki slíkan
munað á ferðum sfnum.
Má ekki skipta í kauphöllinni
Singapore, 18. desember. — Reuter
SEXTÁN ára skólapilti
sem grætt hefur á viðskipt-
um sínum í kauphöllinni í
Singapore hefur verið
bannað að stunda slík
viðskipti. Skólastjóri skóla
þess sem pilturinn, Andr-
ew Kirk, er nemandi við,
hefur bannað Andrew að
stunda þessi viðskipti.
Skólastjórinn hefur gert
Andrew að afturkalla allar
viðskiptapantanir sínar og
ganga frá úmsömdum
samningum.
Andrew, sem verzlaði í
kauphöllinni fyrir allt að
150.000 Bandaríkjadali í
einu, eða um 48 milljónir
króna, brást hinn versti við
ákvörðum skólastjórans.
Hann sagði að yfirstjórn
skólans einkenndist af ein-
valdskennd og valdboði, og
væri breytinga þörf. And-
rew er mjög góðum gáfum
gæddur og af sumum sagð-
ur ofviti.
Mikið snætt á
ráðstefnu OPEC
Abu Dhabi. Sameinaða furstadæminu,
18. desember AP
MEÐ sanni má segja að fulltrúar
á ráðstefnu olíuframleiðsluríkja,
OPEC, hafi í sig látið mörg tonn
af mat á meðan þeir þinguðu um
hækkun olíuverðs.
Samkvæmt upplýsingum yfir-
matreiðslumannsins á
Hilton-hótelinu, þar sem ráðstefn-
an var haldin, hesthúsuðu olíu-
furstarnir og liðsmenn þeirra um
tvær smálestir af marlaxi, 200
kílógrömm af humri sem flogið
var sérstaklega með frá Skotlandi,
96 kassa af belgískum vínberjum á
dag, 400 kílógrömm af risarækju,
sem var pöntuð sérstaklega frá
Indlandshafi, eina smálest af
ferskum ávöxtum, sem sóttir voru
til Lundúna, yfir 100 kílógrömm af
jarðarberjum, krabbafætur frá
Alaska og þrjú kílógrömm af
kavíar á dag.
Símareikningur ráðstefnunnar
sem stóð í átta daga, hljóðaði upp
á rúmlega 230.000 Bandaríkjadali,
eða um 73 milljónir króna. Blaða-
menn frá Kuwait töluðu allt upp í
sjö klukkustundir í síma í einu, og
bandarískur blaðamaður talaði í
fjórar klukkustundir til New York
eitt sinn, og kostaði það samtals
um 3.000 dollara.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
OPEC sagði að það væri venja í
þriðja heiminum að gestgjafi bæri
kostnað sem væri samfara sltkum
ráðstefnum, og kæmi því ekkert af
kostnaðinum í hlut samtakanna.
Stjórn furstadæmisins hafði
áætlað að kostnaður hins opinbera
af ráðstefnunni yrði um 1,7
milljónir Bandaríkjadala, eða um
540 milljónir íslenzkra króna. Það
jafngildir 110 mínútna olíufram-
leiðslu furstadæmisins,
samkvæmt nýja verðinu.
Rændu
bónusnum
Napólí. ftali'u.
18. desember. — AP.
ÞRIR vopnaðir menn réðust inn á
skrifstofur hreinsunardeildar
Napólí í dag og höfðu á brott með
sér andvirði 15,2 milljóna króna.
Peninga þessa, sem þjófarnir
höfðu á brott með sér í tómum
ruslapokum, átti að afhenda
starfsmönnum hreinsunardeildar-
innar, sorphirðumönnum og götu-
sópurum, sem jólaglaðning fyrir
vel unnin störf.
Amin
kvænist
Nairobi, 18. desember. — AP
BLÖÐ í Uganda skýrðu frá því í
dag að Idi Amin Ugandaforseti
hefði fyrir skömmu gengið í
hjónaband. Hin nýja eiginkona
Amins er sögð vera 20—25 ára
gömul dóttir kaupsýslumanns.
Amin hefur áður kvænst fimm
sinnum. Um hríð hefur hann búið
með tveimur eiginkonum, en hann
hefur fengið skilnað frá þremur.
Amin er sagður vera 34 barna
faðir.
Sértrúarsöfnuður Jim Jones:
Anafnaði milljarði á
kommúnistaflokk
Georgetown, Guyana,
18. desember. Reuter. AP.
Embættismaður í Guyana
skýrði frá því við rannsókn á
sjálfsmorðum yfir 900 manna í
sértrúarsöfnuði Jim Jones fyrir
skömmu, að leiðtogar safnaðarins
hefðu skömmu fyrir sjálfsmorðin
fyrirskipað yfirfærslu á yfir sjö
milljónum Bandaríkjadala, eða
um 2,2 milljörðum króna, á
reikning sovéska sendifulltrúans
í Georgetown.
Peningana ánafnaði Musteris-
reglan, sértrúarflokkur Jim Jones,
Kommúnistaflokki Sovétríkjanna.
Skjölin undirritaði Maria
Katsaris, en þau fundust í tösku
fullri af peningum sem þremur
eftirlifandi meðlimum safnaðarins
var ætlað að afhenda sendiráði
Sovétríkjanna í Georgetown.
Peningana átti að yfirfæra úr
svissneskum bönkum í Panama og
Venezuela og var dagsetning og
upphæð hverrar yfirfærslu
nákvæmlega tilgreind í áheitun-
um.
Þetta gerðist 19. desember
1977 — PLO hafnar friðartil-
lögum ísraelsmanna.
1972 — Mannaferðum Banda-
ríkjanna til tunglsins lýkur með
lendingu Apollo 17 á Kyrrahafi.
1971 — Yahya Khan segir af sér
eftir ósigur Pakistana fyrir
Indverjum*.
1970 — Thalidomide-réttar-
höldum lýkur í Þýzkalandi.
1965 — De Gaulle sigrar í
forsetakosningum.
1961 — Goa fellur.
1946 — Stríð brýzt út í Indókína
með árásum hersveita Ho Chi
Minhs á Frakka.
1942 — Sókn Breta og Indverja
í Burma hefst.
1941 — Bretar hörfa frá Pen-
ang, Malaya — Hitler tekur við
yfirstjórn þýzka hersins í kjöl-
far ósigra.
1934 — Japanir fordæma
Washington-samningana frá
1922 og 1930.
1913 — Brottflutningur Breta
frá Sulva og Anzac á Gallipoli
hefst.
1902 — Þjóðverjar, Bretar og
ítalir setja hafnbann á Venezú-
ela.
1885 — Deila Þjóðverja við
Spánverja um Karólínueyjar
leyst Spánverjum í vil.
1795 — Austurríkismenn semja
vopnahlé við Frakka.
1793 — Napoleon tekur Toulon.
1668 — Innreið Vilhjálms af
Óraníu í London.
Afmæli dagsinsi Karl Wilhelm
Scheele, sænskur efnafræðingur
(1742-1786) = Leonid I.
Brezhnev, leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins (1906 —) =
Sir Ralph Richardsson, brezkur
leikari (1902 —).
Innlenti Eldgos í Eyjafjallajökli
1822 = 12 hús brenna á Akureyri
1901 = Snjóflóð á Siglufirði 1973
= Magnús Guðmundsson fv.
ráðherra sýknaður í Hæstarétti
1932 = Víðtæk kjaradeila leyst
1952 = F. Þórarinn Björnsson
skólameistari 1905 = D. Björn
Halldórsson prófastur 1882 = F.
Kjartan Jóhannsson 1939.
Orð dagsinsi Ég hef aldrei
fengið meltingartruflanir af því
að éta ofan í mig það sem ég hef
sagt — Sir Winston Churchill,
brezkur stjórnskörungur
(1874-1965).