Morgunblaðið - 20.12.1978, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
292. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Indiia Gandhí fangelsuð
og rekin af þingi í gær
Jólin nálgast — Þessi
mynd var tekin í Vest-
ur-Berlín nýlega og sýnir
glöggt að jólasvipur er
kominn á þá gömlu stór-
borg.
Að atkvæðagreiðslunni lokinni
var Indira Gandhi færð út í
lögreglubifreið fyrir utan þinghús-
ið og ekið með hana í fangelsi, þar
sem hún verður í haldi þar til
Nýja Delhi, 19. desember. AP. Reuter.
INDIRA GANDHI fyrrverandi forsætisráðherra Indlands
var tekin föst í þinghúsinu í Nýju Delhi í dag og hneppt í
varðhald skömmu eftir að neðri deild þingsins ákvað að
svipta hana þinghelgi sinni og þingsæti. Var samþykkt í
þinginu með 279 atkvæðum gegn 138 að grípa til þessara
aðgerða gegn Indiru fyrir að hafa misbeitt valdi sínu á
meðan hún var forsætisráðherra gegn embættismönnum,
sem rannsökuðu tiltekin viðskipti Sanjays sonar hennar.
þingi lýkur formlega en það gæti
orðið á föstudag, en gæti einnig
dregist í nokkrar vikur.
Mikið rót kom á þingheim, þegar
í ljós kom að Indira yrði fangelsuð,
hrópuðu stuðningsmenn hennar
„Indira lengi lifi“ en andstæðingar
hennar formæltu henni. Til óeirða
kom í ýmsum hlutum landsins,
þegar fréttist um atkvæðagreiðsl-
una í þinginu og í borginni
Bangalore í Suður-Indlandi notaði
lögregla táragas til að dreifa
mannfjölda, sem safnast hafði
saman til stuðnings Indiru.
Desai forsætisráðherra sagði í
dag, að refsing sú, sem Indira
hefði fengið nú væri smávægileg
miðuð við þann glæp, sem hún
hefði framið. „Enginn getur sett
sjálfan sig ofar lögunum," bætti
hann við.
Indira virtist létt í lund, þegar
hún yfirgaf þinghúsið í fylgd
lögreglu í dag og sagði blaðamönn-
um að bíða og sjá til, þegar þeir
spurðu hana, hvaða áhrif hún teldi
atkvæðagreiðsluna í dag hafa á
flokk Desais, Janata-flokkinn.
Kók
selt
til Kína
Atlanta, Georgia, 19. des. Reuter
COCA Cola verður á boðstólum
í Kína frá því snemma á næsta
ári, að því er talsmaður fyrir-
tækisins tilkynnti í dag í
höfuðstöðvum þess í Atlanta. I
fyrstu verður drykkurinn flutt-
ur til landsins í flöskum og
dósum og seldur í stærstu
borgum Kína en síðar er
ráðgert að koma á fót
áfyllingarverksmiðjum þar í
landi.
Sjá grein um mál þetta á
hls. 14 í dag.
Frakkland:
Öngþveiti vegna
rafmagnsbihinar
París, Róm, 19. des. Reuter — AP
ÞÚSUNDIR manna urðu stranda-
glópar í neðanjarðarlestum og
lyftum í Frakklandi í morgun,
þegar rafmagn fór af landinu
iillu í rúma tvo ti'ma vegna mikils
og óvænts álags á rafmagnskerfi
landsins. Varð mikið umferðar-
öngþveiti víða í borgum landsins,
er rafmagnið fór af, en fjöldi
fólks var þá á leið til vinnu
sinnar. Rafmagn var viða komið
á að nýju að tveimur tímum,
liðnum, en sums staðar í landinu
var þó cnn rafmagnsskortur í
kvöld.
Iðnaðarráðherra Frakklands,
André Giraud, sagði í dag að
rafmagnsbilunin hefði komið upp
um „grundvallarvandamál," sem
varpaði ljósi á nauðsyn þess að
skipuleggja betur orkuneyzlu
landsmanna.
í kvöld voru flestir hlutar
landsins búnir að fá rafmagn að
nýju, en á tveimur svæðum, þar
sem Bafmagn er framleitt í kjarn-
orkuverum, var þó ekki fullur
straumur kominn á, þar sem
lengri tíma tekur að koma slíkum
orkuverum í fulla vinnslu. Upphaf-
lega bilunin í dag varð skammt frá
borginni Nancy í austurhluta
Frakklands en síðan breiddist
rafmagnsleysið út. Hluti af Sviss
sem fær rafmagn frá Frakklandi
varð einnig rafmagnslaus í dag
vegna bilunarinnar.
Stuttar rafmagnstruflanir urðu
í Róm og Napólí og nokkrum
öðrum stöðum á Ítalíu í dag,
einnig vegna mikils álags sem
skapaðist vegna mikils kulda er
leiddi til stóraukningar rafmagns-
notkunar til húshitunar. Var
rafmagnslaust í Napólí í um hálfa
klukkustund en skemur annars
staðar.
Kínverjar hlynntir
viðskiptum við Taiwan
Pekinj?, Taipei, 19. desember
AP — Reuter
GEFIÐ VAR í skyn af opinberri
hálfu í' Feking 1 dag að stjórnvöld
þar kynnu að hafa áhuga á
viðskiptum við þjóöcrnissinna-
stjórnina á Taiwan og e.t.v.
öðrum efnahagslegum tengslum.
Ilsin-hua. hin opinbera frétta-
stofa í Peking, hafði í dag eftir
viðskiptaráðherra landsins, Li
Chiang, að „Taiwan væri hluti af
Kína og ekkert væri óeðiilegt við
viðskipti milli Taiwans og megin-
lands Kína.“
Ráðherrann mun
hafa látið þessi orð falla í
heimsókn í Hong Kong.
Li sagði einnig á fundi með
blaðamönnum í Hong Kong, að til
greina kæmi að stjórn Kína tæki
lán erlendis hjá öðrum ríkisstjórn-
um eða einkaaðilum, en fram til
þessa hafa kínverskir ráðamenn
verið mjög andvígir erlendum
lántökum.
Staðfest var í Taipei á Taiwan í
dag, að samband eyjarinnar og
Bandaríkjanna á efnahagssviðinu
yrði enn mjög náið og að stjórn-
völd myndu halda áfram að hvetja
bandarísk fyrirtæki til að fjár-
festa á eynni.
Albaníustjórn fordæmdi í dag
mjög harðlega fyrirhugað stjórn-
málasamband Kína og Bandaríkj-
anna og sagði að fjármálamen« í
Bandaríkjunum hygðust með
þessu „læsa klónum“ enn dýpra í
efnahagskerfi Kína.
Pravda, málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, sakaði Kín-
verja í dag um að reyna að koma á
bandalagi með vestrænum ríkjum
gegn Sovétríkjunum. Pravda hefur
ekki áður sagt neitt um væntan-
legt stjórnmálasamband Banda-
ríkjanna og Kína og í grein
blaðsins í dag er ekki beint
gagnrýni að Bandaríkjunum fyrir
þessa þróun mála heldur einungis
að Kínverjum.
Alþjóðadómstóllinn í Haag:
Hefur ekki lögsögu í
deilu Grikkja og Tyrkja
Haag. 19. des. Reuter — AP
Alþjóðadómstóllinn í Haag
úrskurðaði í dag. að hann hefði
Israelsþing fordæmir
afetöðu Bandaríkjanna
Jorúsalrm. 19. desember. AP. Reuter.
ÍSRAELSKA þingið samþykkti í
kvöld ályktun, þar sem Bandarík-
in eru harðlega fordæmd fyrir
„einhliða, ósanngjarna afstöðu í
garð ísraels og jafnframt er lýst
yfir stuðningi við ákvörðun Beg-
ins forsætisráðherra um að hafna
siðustu friðartillögum Egypta.
Þingið samþykkti ályktunina
með 66 atkvæðum gegn 6 en 27
þingmenn sátu hjá og segir þar
m.a., að mjög ósanngjarnt hafi
verið af hálfu Bandaríkjamanna
að kenna Israelsmönnum einum
um að samningaviðræðurnar hafi
farið út um þúfur.
Begin forsætisráðherra sagði í
ræðu við umræður um ályktunina
að öryggi landsins hefði verið
hætta búin, ef gengið hefði verið
að egypzku tillögunum.
ekki lögsögu í deilumáli Grikkja
og Tyrkja um yfirráð á Eyjahafi
og var málinu þar með vísað frá.
Grikkir vísuðu málinu til dóm-
stólsins árið 1976. en Tyrkir hafa
jafnan neitað að fallast á að
dómurinn hefði nokkra lögsögu í
málinu. Tólf af fjórtán dómurum
í dómstólnum stóðu að þessum
úrskurði.
Deila Grikkja og Tyrkja snýst
um skiptingu landgrunnsins á
Eyjahafi og þar með réttindi
ríkjanna til olíuleitar og olíu-
vinnslu á þessu svæði. Grikkir
hafa gert tilkall til stórs hluta
svæðisins, vegna þess að margar
eyjar þeirra eru skammt undan
ströndum Tyrklands, en Tyrkir
hafa vísað þeim kröfum á bug.
Hefur mál þetta með öðru mjög
stuðlað að stirðri sambúð ríkjanna
undanfarin ár.