Morgunblaðið - 20.12.1978, Side 7

Morgunblaðið - 20.12.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978 7 Þýöingarsjóö- urinn kross- festur? Svarthöföi skrifar grein í Vísi í g»r, sem nefnist: „Þýðingarsjóöurinn krossfestur?", sem er athyglisvert innlegg í þær umræður, sem undanfarið hafa oröið um Norræna Oýðingar- sjóöinn. Grein Svarthöfða er svohljóðandi: Með tilkomu norræna Þýðingarsjóðsins var búist viö stóraukinni út- gáfu á Þeim skáldverkum norrænum, sem skipta máli í menningu Norður- landaÞjóða. Sjóðurinn hefur nú starfað í Þrjú ár, en á Þeim tíma virðast útgáfufyrirtæki ekki hafa áttað sig á Því, hver ávinningur er að Þeim fjárveitingum til Þýðinga, sem sjóðurinn veitir. Bækur, sem áður Þótti of mikil áhætta að gefa út, eru nú miklu auðveldari í meðförum, og varla skortír Noröurlöndin viöurkennd skáld og rit- höfunda. Mætti ætla að æskileg skipting milli sígildra bókmennta nor- rænna fyrsta kastið og Þess sem kemur út nú um stundir ætti aö vera tveir á móti einum, Þangað til búið er að koma á íslensku Því viöurkenndasta og besta, sem völ er á meðal frændÞjóðanna, og eitt hvert erindi á íslenska tungu. Deilurnar út af norræna Þýöingarsjóðnum nú stafa m.a. af Þeirri áráttu frá síðari árum að vilja engu sinna nema dægur- bókmenntum, serr: eru lítið annað en innlegg í dægurÞras og ríg, eins og hann hefur hingað til birst í dagblöðum og öðrum fjölmiðlum. Vel má vera aö styrkja beri dreifingu slíkra bók- mennta út fyrir hlaðvarpa heimalandsins, en varla á meðan íslendingar eru svo að segja ólesnir í verkum fjölda stórrithöf- unda hinna Norðurland- anna. Þótt mestar umræður hafi orðið um útkomu Félaga Jesú að Þessu sinni, skortir ekki að fleiri bækur frá sömu rótum runnar hafa í haust komiö út hérlendis vegna fjár- veitinga úr norræna Þýöingarsjóðnum. Má í Því efni nefna bókina Járnkrossinn eftir norska kommúnistann og andófsmanninn Jon Michelet í Þýðingu Guðmundar Sæmunds- sonar og HafÞórs Guðjónssonar. Útgefandi er Prenthúsið, sem áreiðanlega hefur látið slag standa með Þessa útgáfu vegna umtals- verös útgáfustyrks frá Þýöingarsjóðnum. Andinn i Þessari bók skýrir að nokkru Þá heift fámenns hóps norskra öfgamanna, sem mætt hefur bókinni um réttar- höldin yfir Knut Hamsum, enda er meö einstæðum hætti reynt að halda lífi í Þeirri grýlu, og nýnasist- ar í Noregi haldi við ofbeldisverkum í Þágu Þeirra Þjóðfélagsafla, sem höfðu járnkrossinn að æðsta heiðursmerki í átökunum út af síðasta stórveldisdraumi Þjóð- verja. Þessi bók er sögð hafa fengið verðlaun hjá Gyldendal í Ósló, og einhver maður nafn- greindur í verkinu hefur farið í mál. Allt geta Þetta verið mikil tíðindi í Noregí, en hér á landi er aðeins hægt að líta á bókina sem enn einn reyfarann um járnkross- inn á borð við Þá sem Sven Hazel skrifar og selur fágæta vel. Þó er sagt aö Sven Hazel hafi aldrei í stríð komið. Nú vill svo einkenni- lega til, Þótt Noregur sé næsti granni okkar í austurvegi, að hingað hefur ekkert frést af ódæðisverkum nýnasista í Noregi. Morð Þeirra hafa ekki orðið til frásagnar og ofbeldisverk Þeirra og íkveikjur hafa fariö Það leynt, að Þær eru varla á vitorði annarra en Jon Michelet og bræðra hans í öfgunum. Aftur á móti hafa oft birst fréttir af heldur óhrjálegum at- höfnum nýnasista í Þýskalandi. Við lok heims- styrjaldarinnar settist Terboven á dynamitkist- una og kveikti í tundrinu, og fannst aldrei neitt af honum nema annar upphandleggurinn. Fáar fréttir eru af Því að norskir nýnasistar hafi í Þann tíma komist til Suöur-Ameríku. Þó má Þaö vel vera. í bókinni er látið svo vera að maður af nýrri kynslóð sé snúinn heim til að gerast nýnasisti í föðurlandi foreldra sinna. Allt er Þetta heldur ótrúlegt. En auðvitað er mönnum frjálst aö skrifa reyfara. Það getur hins vegar verið spurning hvort ekki sé betra að nota Þýöingarsjóðinn til að styrkja útgáfur á bókum Agötu Christie, hafi bækur hennar áður komiö út á einhverju Norðurlandamála, í stað Þess að flytja inn slappan áróður frá Noregi, eins- konar tröllaukna smíð utan um loft. Svarthöfði. Hvaóa sem er, raitarsj vel af þér Skeggrót þín er sérstök, hver húð hefur sín einkenni. Þess vegna hefur nýja Philishave 90- Suþer 12,dýptarstillingu. Handhægur repnistiUir velur réttu stillinguna,sem best hentar þinni húð og skeggrót. Veldu 1—9og ein þeirra hentar þér. .______________ Þéss vegna velur þú llka PhiTTsHave.' Eitt handtak og bartskerinn af stað. Snyrtir barta og skeggtoppa á augabragði. Hraðari og betri rakstur. Það er kostur nýja Philishave 90-Super 12,kerfis ins. Teldu hnífana í gömlu Philips rak- vélinni, þeir eru 18. Nýja Philishave 90-Super 12,hefur 36 hnífa.Auk þess hefur þrýstingur sjálfbrýnandi rakhnífanna á rakhausinn.verið aukinn. Árangurinn er hraðari og betri • rakstur en áður. öll hár hverfa á svipstundu.Finndu bara muninn Löng og stutt hár i sömu stroku. Nýja Philishavc 90-Super 12,kerfið hefur aúðvitað hina þrautreyndu hringlaga rakhausa með 270 rakraufum (90 á hverjum haus). Arangurinn lætur ekki á sér standa: Löng og stutt hár hverfa i sömu stroku og rakhausarnir haldast eins og nýir árum saman. PHILIPS Finndu muninn. Philishave 90-Super 12,er rennileg og nýtískuleg. Hún fer vel 1 hendi og er þægileg 1 notkun. Rak- flöturinn hallast ögn, til aukinna þæginda. Reyndu hilishave * 0-Super 12,og þú velur Philishave. P 1121 — Stillanleg rak- ýpt.sem hentar hverri 'skeggrót. Bartskeri og þægilegur rofi. Auðvitað gormasnúra og vönduð gjafaaskja. Fullkomin þjónusta tryggir yðar hag. Pilips kann tökin á tækninni. Nýja Philishave 90-Super 12 3x12 hnlfa kerfið. Verö kr. 62.900- RR BYGGINGAVÖRUR HE Suöurlandsbrau t 4. Sími 33331. (H. Ben. húsiö) BflOMOTTUSETT Glæsilegt ú |rrbyggingavörur hf| Suöurlandsbrau t 4. Simi 33331. (H. Ben. húsiö)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.