Morgunblaðið - 20.12.1978, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978
Geir Gunnarsson, form. fjárveitinganefndar:
Aukin áherzla á hag-
ræðingu og eftirlit
í ríkisbúskapnum
12% hækkun á raungildi framkvæmdafjár 1979
Gcir Gunnarsson (Abl), formað-
ur fjárveitinganefndar, mælti sl.
laugardag fyrir nefndaráliti
meirihlutans um frumvarp til
fjárlaga og breytingartillögum
við það. Nefndarálitið undirrita
fulltrúar stjórnarflokkanna í
fjárveitinganefnd, fulltrúar
Alþýðuflokksins þó með fyrir-
vara.
Viðmikið starf
í máli Geirs Gunnarssonar kom
fram að fjárveitinganefnd hefur
haldið 38 fundi, auk fjölmargra
funda í undirnefndum, er sinnt
hafa einstökum málaflokkum.
Nefndinni bárust erindi í hundr-
aðatali og fjölmargir aðilar hafa
fengið áheyrn hjá nefndinni. Þó
nefndin skili nú sem áður tveimur
nefndarálitum sagði Geir að sam-
starf í nefndinni hefði verið gott,
sem þakka bæri, og næði það álit
sitt ekkert síður til fulltrúa
stjórnarandstöðunnar, er unnið
hefðu störf sín af alúð og dreng-
skap. Þá þakkaði Geir og starfsliði
fjárlaga- og hagsýslustofnunar og
starfsmanni nefndarinnar.
Þá vék Geir Gunnarsson að
starfsaðstöðu nefndarinnar,
viðræðum við forstöðumenn ríkis-
stofnana, sveitarstjórnarmenn og
aðra aðila, er láta sig fjárlög
varða. Þessi viðtöl, þó nauðsynleg
væru, tækju upp mikið af tíma
nefndarinnar, og væri það skoðun
sín að tímasetja þyrfti þessi viðtöl
öll fyrir þingsetningu, a.m.k. viðtöl
við sveitarstjórnarmenn, til að
nýta tímann betur. Þá þyrftu og
erindi send fjárveitinganefnd að
berast mun fyrr en nú væri. Koma
þyrfti á hliðstæðum umsóknar-
fresti varðandi fjárlög og gilti um
störf annarra aðila er úthluta
fjármagni, t.d. Húsnæðismála-
stjórnar.
Ákvaröanir
í tíma teknar
Geir Gunnarsson sagði að ríkis-
stjórnir, sem hverju sinni móta
stefnuna í ríkisfjármálunum,
þyrftu að taka þær ákvarðanir í
tíma, sem varða fjárlagagerðina,
þann veg að önnur umræða geti
farið fram fyrr og tímanlegar en
nú væri og verið hefði hin síðari
ár. Nokkur afsökun væri í því
fólgin að stutt sé síðan stjórnar-
skipti urðu en samt sem áður hefði
hann gert sér vonir um að
umræðan yrði fyrr á ferð. Hann
benti á að frumvörp, sem vera
ættu grundvöllur tekjuhliðar fjár-
iaganna, hefðu verið lögð fram á
Alþingi degi fyrir aðra umræðu
frumvarpsins, sem væri að vísu
skárra en stundum áður. Að því
ber að stefna, sagði Geir Gunnars-
son, að breyting verði á til
batnaðar í þessu efni i framtíð-
inni.
Hagræðing
og eftirlit
Geir Gunnarsson sagði nauðsyn-
legt að fjárveitinganefnd, eða
undirnefnd hennar, starfaði meir
en verið hefði milli þinga, ekki sízt
að ýmsum hagræðingarmálum í
ríkisbúskapnum og eftirliti með
ráðstöfun fjárveitinga. Til greina
kæmi verkaskipting í nefndinni á
þeim vettvangi og njóta þyrfti hún
fulltingis sérhæfðra aðila í því
efni. Taka þyrfti ýmsa þætti
ríkisrekstrar til gagngerrar skoð-
unar, s.s. heilbrigðismálaþáttinn,
fræðsluþáttinn, löggæzluna, land-
helgisgæzluna og annan skipa-
rekstur ríkisins, Póst og síma,
Rafmagnsveitur ríkisins, Orku-
stofnun, Framleiðslueftirlit
sjávarafurða og rannsóknar-
stofnanir ýmsar. Við það verður
MMnGI
Gleðileg
jólagjöf
Nú gefur Happdrætti Há-
skólans þér kost á skemmti-
legri og óvenjulegri jólagjöf.
handa vinum og vanda-
mönnum.
*
Þú getur fengið sérstakt.
gjafakort hjá næsta
umboðsmanni HHÍ. Gjafa
kortið er gefið út á nafn, eft
eigandi þess getur svo.va
sér miða í HHI ’79 stráx*eft^
hátíðar hjá hvaða umböðSjlfL
manm sem er! • ' >:
Gjafakort HHÍ getur óváenþ;
orðið að gleðilegri jólagjof," :?
ef vinningur fellur á
miðann, sem valinn er. .
Vinningur er alls ekki ólík--
legur — vinningshlutfall
HHÍ er það hæsta í heimi!
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
Menntun í þágu atvinnuveganna
ekki unað til frambúðar að fjár-
veitingar til þessarra stofnana eða
annarra hækka einfaldlega með
hverju nýju fjárlagafrumvarpi í
samræmi við verðlagsbreytingar,
ef þá er ekki um frekari útþenslu
hjá þeim að ræða, heldur verður að
grandskoða útgjaldaþörfina frá
grunni. En til þess þarf tíma og
aðra starfsaðstöðu.
Geir Gunnarsson sagði enn-
fremur að koma þyrfti á meiri
festu í framgang fjárlagaákvarð-
ana og tryggja betur að eftir þeim
sé farið.
Óheimilaðar stöður
— utanlandsferðir
Geir Gunnarsson sagði fjárveit-
inganefnd, að beiðni fjármála-
ráðuneytis, hafa fjallað um svo-
kallaðar óheimilaðar stöður í
ríkisgeiranum. Nefndin hafi unnið
þetta verk af gaumgæfni og gert
tillögur um, hvaða stöður skyldu
leyfðar og hverjar ekki. Gallinn
væri hins vegar sá að „síðan
virðist lítið hafa verið gert með
þessar niðurstöður". Nefndi hann
dæmi um ríkisstofnun, sem verið
hefði með 3 óheimilaðar stöður, er
fjárveitinganefnd gerði tillögur
um að leggja niður. Þegar viðkom-
andi forstöðumaður kom til viðtals
við nefndina í haust, hafi hinar
óheimiluðu stöður verið orðnar 4,
og erindi hans hefði verið að sækja
um frekari fjölgun starfsmanna.
Þetta sýnir að það er ekki nóg að
fjárveitinganefnd geri tillögur um
sparnað í ríkiskerfinu, heldur
verður líka að sjá svo um að
eitthvert tillit sé til þeirra tekið en
ekki farið þveröfugt að.
Geir kom víöar við í ábending-
um um það, sem hann taldi betur
mega fara, vék m.a. að utanlands-
ferðum ríkisstarfsmanna, sem
kostað hefðu nær 300 m. kr. 1977.
Hjá 2 bönkum væri um að ræða
um 50 utanlandsferðir — hjá
hvorum um sig — og hjá öðrum
þeirra hefði verið að ræða um nær
200 dvalardaga erlendis. Hjá enn
öðrum banka hefði ekki verið um
eina einustu utanlandsferð að
ræða. „Forstöðumenn veigamikilla
ríkisstofnana geta dvalist erlendis
samtals í 2—3 mánuði ársins,"
sagði hann. „Ég er þeirrar skoðun-
ar að takmarka eigi þennan
kostnað með þeim hætti að sækja
þurfi fyrirfram og sérstaklega til
fjármálaráðuneytis um greiðslur
og kostnaður við utanlandsferðir
verði greiddur af sérstökum lið hjá
ráðuneytinu."
Geir Gunnarsson, form. fjárveit-
inganefndar Alþingis.
Frumvarpið og
breytingartillögur
Geir Gunnarsson gerði í ítarlegu
máli grein fyrir störfum fjárveit-
inganefndar varðandi fjárlaga-
frumvarp 1979. Breytingartillögur
nefndarinnar á þingskjali 168
gerðu ráð fyrir 200 m. kr. hækkun
framkvæmdafjár, sem svaraði til
12% hækkunar á raungildi miðað
við núv. fjárlög. Fulltr. stjórnar-
andstöðunnar tóku ekki þátt í
þessari breytingu, þar eð þeir
töldu að ekki hefði verið sýnt fram
á, hvern veg þessum útgjaldaliðum
yrði mætf.
Geir sagði að í fjárlagafrv. væri
miðað við verðlagsgrundvöll
desembermánaðar, og þá gert ráð
fyrir 7 'A % hækkun verðbótavísi-
tölu 1.12. Sú hækkun næmi í reynd
6.12%. Launaliðir frv. væru því um
700 m. kr. og almannatrygginga
um 100 m. kr. hærri en verðlags-
grundvöllurinn í desember.
Miðað við óbreytta tekjustofna
er talið að tekjuliðir frv. séu
ofmetnir um 1500 m. kr., að mestu
vegna þess að reiknað er með lægri
tekjum af ÁTVR.
Til að mæta útgjaldaaukningu
skv. tillögum nefndarinnar þarf
um 3300 m. kr. Ríkisstjórnin hefur
nú lagt fram tekjuöflunarfrum-
vörp sem miða að því að sjá fyrir
þessum útgjaldaþörfum. Þau eiga
jafnframt að tryggja að ríkissjóð-
ur verði rekinn hallalaust.
Loks rakti Geir Gunnarsson
einstakar breytingartillögur fjár-
veitinganefndar en ekki er rúm til
að rekja þger hér að sinni.
Haukur Morthens
með breiðskífu
DÆGURLAGASÖNGVARINN Ilaukur Morthens, sem skcmmt hefur
hér í Reykjavík með söng sínum í mörg mörg ár, var á þönum í
miðbænum á mánudaginn. — Ég er að bardúsa í því að koma nýrri
plötu minntá markaðinn í jólaösinni, sagði Haukur. — Það er stífasta
trimm. skal ég segja þér, bætti hann við.
Það eru mörg ár síðan Haukur er sá sami Jón sem á sínum tíma
gaf sjálfur út plötu. — En þessi
plata, sem var tekin upp í
Kaupmannahöfn í nóvember
síðástl. er 14 laga breiðskífa og er
plötutitillinn: „Nú er Gyða á
gulum kjól“. Þetta er kvæði eftir
Þorstein Gíslason við lag Friðriks
Bjarnasonar. í þessu lagi aðstoðar
Hauk kór 20 stúlkna 8—13 ára úr
Snælandsskóla í Kópavogi. — Ég
fór með söng þeirra á segulbandi í
stúdíóið, — sagði Haukur. Hann
sagði að lögin á plötunni væru
dægurlög mörg klassísk sem hann
hefði sungið hér á árum fyrr í
Sjálfstæðishúsinu, í „Bláu Stjörn-
unni.“ Síðan koma lög sem hann
söng ýmist á Hótel Sögu eða Hótel
Borg. Það má nefna það að þar er
t.d. að finnna Prinsessan mín og
Fjórlaufa smári. — Lög frá
árunum 1950—55, t.d. Mona Lísa
og lag sem heitir Þú ert yndisleg
og ítalska lagið Volare. — Af nýrri
lögum er t.d. lagið Manstu
(Feelings).
Ég fór eiginlega beint úr bað-
herberginu mínu i upptökustúdíóið
í Kaupmannahöfn með topplagið í
dag; Love is in the air — sem Jón
Sigurðsson hefur íslenzkað undir
nafninu Ást er allsstaðar. — Þetta
gerði hið vinsæla lag Lóa litla á
Brún, sem ég er líka með á þessari
plötu, sagði Haukur.
Upptaka píötunnar fór fram í
Metronome-stúdíói og stjórnaði
góðkunningi Hauks útsetningu og
upptöku, en sá góði maður heitir
Poul Godski og er píanóleikari.
Hljómsveit annast undirleik fyrir
Hauk, nema í titillaginu um Gyðu
á gula kjólnum.
Unga stúlkan á forsfðu albúmsins
er Verzlunarskólamær, Sigrún
Kristjánsdóttir, — trompetleik-
ara Jónssonar og Guðrúnar konu
hans.