Morgunblaðið - 20.12.1978, Page 32
dag
til jóla
(^ull & #>ilfttr
Laugavegi 35
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
fM
Skipholti 19
V. BUOIN sími
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1978
Mikil verðhækkun þorskflaka
á Bandaríkjamarkaði í gær
ÞORSKFLÖK HÆKKUÐU í gær á Bandaríkjamarkaði
allverulega eða um 11,5% og allt upp í 14,3%, stærstu
flök. Einnig varð hækkun á ýsuflökum, en hún var ekki
eins mikil eða frá 6,7% í 10,7%. Mikilvægasta hækkunin
er 11,5%, þar sem um er að ræða 5 punda pakkningar
þorskflaka en þar fór verðið úr 130 sentum í 145 sent.
Coldwater Seafood Corporation, söiufyrirtæki Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, titkynnti þessar hækkanir á
flökum í gær.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Þorstein Gíslason, for-
stjóra Coldwater Seafood Corpor-
ation, sem staðfesti þessar hækk-
anir. Þorsteinn kvað fyrirtækið
hafa tilkynnt 15 senta hækkun á
þorskflökum í 5 punda pakkningu,
í 145 sent, en 20 senta hækkun
varð á stærstu þorskflökum, sem
nú fóru í 160 sent hvert pund.
Hækkunin þar nemur 14,3%.
18 milljarða kr.
aukaútgjöld á
atvinnurekstur
SAMKVÆMT áætlun vinnuveit-
enda hafa þau frumvörp, sem
ríkisstjórnin er að undirbúa og
lögð verða fram á Alþingi á
næstunni, í för með sér 18
milljarða króna viðbótarútgjöld
fyrir atvinnuvegina á ári. Hér er
um að ræða 6 frumvörp um
vinnutímastyttingu, þ.e.a.s.
breytingu á eftirvinnu í nætur-
vinnu, breytingar á uppsagnar-
fresti og veikindarétti o.fl. Frá
þessu er skýrt í frétt, sem birt er
á miðsíðu Morgunblaðsins í dag.
Þorsteinn Gíslason sagði, að því
miður væri ekki mjög mikil
framleiðsla á slíkum þorskflökum,
þar sem fiskurinn væri oft of smár
til þess. Þá hækkaði þorsk-
flaka-hnakkastykki úr 160 sentum
í 180 sent eða um 12,5%.
Einnig varð hækkun á ýsuflök-
um. Ýsuflök í 5 punda pakkningu
hækka úr 140 sentum í 155 sent
eða um 10,7% og ýsuflök í
tólfpunda öskjum úr 150 sentum í
i60 sent eða um 6,7%.
Þorsteinn Gíslason sagði, að
nokkur óvissa væri framundan um
það, hvort tækist að halda uppi
nægilegum sölum á þessu nýja
verði og enginn vafi væri á því, aö
margir viðskiptavina Coldwater
yrðu að draga verulega úr kaup-
um, „en það reynir á það á næstu
mánuðum og getur auðvitað verið í
samræmi við hugsanlegan sam-
drátt í framleiðslu fiskflaka á
næsta ári. Vissulega þarf enginn
að efast um nauðsyn þess að reyna
að hækka söluverð afurðanna frá
Islandi, en það er því miður ekki
hægt að ákveða verðið frá því
sjónarmiði eingöngu," sagði Þor-
steinn Gíslason.
Óvissa um útborg-
un húsnæðislána
— ÞAÐ ER skemmst frá því að
segja, að óvissa ríkir um greiðslu á
550 milljón króna fjárframlagi
ríkissjóðs sem við höfðum samið um
við fjármálaráðuneytið að kæmi nú
f desember, sagði Sigurður E.
Guðmundsson framkvæmdastjóri
Húsnæðismálastofnunar ríkisins f
samtali við Mbl.
— Af þessum sökum höfum við
orðið að halda nokkuð að okkur
höndum um útborgun lána sem lofað
hafði verið og kemur það aðallega
niður á húsbyggjendum, en einníg
þeim sem fengið höfðu lán til kaupa
á eldri íbúðum. Þessi óvissa kann að
valda því að við verðum að fella
niður greiðslu lána, en félagsmála-
ráðherra hefur unnið að lausn
málsins og stend ég persónulega í
þeirri meiningu að úr rætist. Eg hefi
miklar áhyggjur, ef ekki rætist úr
þessu, að þetta muni koma niður á
fjölda húsbyggjenda og öðrum
íbúðarkaupendum vegna skuld-
bindinga þeirra, sagði Sigurður að
lokum.
Tillaga Olafs Jóhannessonar forsætisráðherra:
Ráðherranefnd semji
efnahagsmálafrum-
varp til tveggja ára
ÓLAFUR Jóhannesson forsætisráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun tillögu um skipan
3ja manna ráðherranefndar, sem á að kanna rækilega tillögur Alþýðuflokksins í efnahagsmálum, og semja
síðan með hliðsjón af þeim og greinargerðinni með 1. desemberlögunum um ráðstafanir í efnahagsmálum
frumvarp um efnahagsmálastefnu til tveggja ára, sem lagt verði fram á Alþingi eigi síðar en í febrúar n.k.
í tillögu forsætisráðherra er lögð áherzla á samráð við aðila vinnumarkaðarins.
Alþýðubandalagsmenn hafa lýst
sig jákvæða gagnvart slíkri ráð-
herranefnd, en eru hins vegar
óánægðir með að nafn Alþýðu-
flokksins eins skuli nefnt í henni.
Benedikt Gröndal formaður Al-
þýðuflokksins hefur kvatt flokk-
stjórn flokksins til fundar í kvöld,
þar sem tekin verður ákvörðun um
hvort þessi tillaga Ólafs og þær
breytingar, sem Tómas Árnason
hefur gert á fjárlagafrumvarpinu,
eru nægjanlegar til að Alþýðu-
flokkurinn standi að afgreiðslu
fjárlaga fyrir jólin. Á fundi neðri
deildar Alþingis í gærkvöldi fengu
Alþýöuflokksmenn frestað loka-
atkvæðagreiðslu um tekjuöflunar-
Seðlabankinn:
Óskar upplýsinga um nafn-
lausa sparisjóðsreikninga
BANKAEFTIRLIT Seðlabanka íslands hefur sent viðskiptabönkunum og öðrum innlánsstofnunum bréf
þar sem beðið er um upplýsingar um fjölda og heildarinnstæðu svonefndra nafnlausra sparisjóðsbóka.
Þórður Ólafsson forstöðumaður bankaeftirlitsins staðfesti í samtali við Mbl. að bankinn hefði farið fram á
að þessar upplýsingar yrðu teknar saman, þessi mál hefðu annað veifið borið á góma og menn vildu vita
hversu stór hluti innlána þetta væri. Fyrirspurn kom fram á Alþingi um þessi mál, en nafnlausar bækur
eru þær þar sem ekki getið er fullnægjandi upplýsinga um lögaðila.
frumvörp og mun þessum málum
því frestað fram yfir flokks-
stjórnarfundinn í kvöld.
Þær breytingar, sem orðið hafa
á niðurstöðutölum í fjárlagadæm-
inu eru annars vegar, að sölu-
skattstekjur ríkisins voru í frum-
varpinu vanáætlaður um 1500
milljónir króna og hafa bæði
Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur
fallizt á þá útreikninga. Þá kallaði
fjármálaráðherra eftir sparnaðar-
tillögum hjá ráðuneytisstjórum og
hljóða þær samtals upp á 5—600
milljónir króna. I þriðja lagi hefur
Tómas Árnason gert tillögu um
eins milljarðar króna niðurskurð,
sem verði tekinn af rekstri,
framkvæmdum og niðurgreiðslum
í þessari forgangsröð.
Mbl. ræddi við bankastjóra í
tilefni af þessu og sagðist Helgi
Bergs bankastjóri Landsbanka
íslands ekki vita til að bréf þetta
hefði borizt bankanum, en hann
taldi að hjá Landsbankanum væri
um óverulegar upphæðir að ræða
og þessir reikningar væru ekki
vandamál t.d. í sambandi við
skattsvikamál.
Hann sagðist vera
heldur andvígur þessum reikning-
um, en að hann væri þeirrar
skoðunar að ekki væri hægt að
breyta þessum reikningum nema
samfara öðrum breytingum á
bankalögunum og sagðist hann
vera meðmæltur því að allir
sparisjóðsreikningar yrðu skráðir
á nafn og nafnnúmer.
Jónas Rafnar bankastjóri Út-
vegsbanka Islands sagði að hann /| dagar til jóla
hefði beðið deildarstjóra í spari- sjóðsdeildum Útvegsbankans að hefja umrædda könnun, þar sem bréf Seðlabankans hefði borizt
nýlega.
Jónas áleit upphæðir og fjölda þessara reikninga ekki vera svo miklar sem menn héldu, en upplýsingarnar eiga að hafa borizt til Seðlabankans eigi síðar en 15. janúar.