Morgunblaðið - 16.02.1979, Síða 1
32 SlÐUR
39. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1979 _______Prentsmiðja Morgunblaðsins.
borgarar
Bankíírúst
Carter forseti veifar sombrero-hatti sem hann fékk að gjöf í
Mesíkóborg í gær. Rosalynn kona hans er hjá honum.
Erfidar
viðræður
í Mexikó
Mcxíkóborg, 15. febrúar. Reuter. AP.
JIMMY Carter forseti hóf í dag
f jögurra klukkutíma erfiðar við-
ra’ður við forseta Mexíkó, Jose
Lopez Portillo. sem hefur sagt
honum að hann verði að viður-
kenna að staða Mexíkana hafi
breytzt þar sem þeir séu orðnir
olíuauðug þjóð eða taka þá
áhættu að hagnast ekki á olíu-
auðnum.
Blöð í Mexíkó lofa Portillo
óspart fyrir að segja að Mexíkan-
ar hafi fengið sig fullsadda á
hroka Bandaríkjamanna, en
bandarískir embættismenn urðu
undrandi og reiðir. Einn þeirra
sagði að ræðan væri fyrir innan-
landsneyzlu.
Stærsta blaðið í Mexíkó,
Excelsior, sagði að orð Portillos
væru í tíma töluð, rétt og skýr.
ísprengingu
Varsjí, 15. febrúar. Reuter. AP.
BANKI í miðborg Varsjár gereyðilagðist í dularfullri sprengingu í
dag og að minnsta kosti 32 biðu bana og 78 slösuðust.
Sjónarvottar segja, að um 300 viðskiptamenn og 100 bankastarfs-
menn hafi verið inni í bankanum sem er á tveimur hæðum og stendur
þar sem tvær aðalgötur borgarinnar mætast. Þeir telja að miklu fleiri
hafi beðið bana og slasazt en segir í frétt opinberu pólsku
fréttastofunnar, PAP.
Fréttastofan segir, að ókunnugt sé um orsök sprengingarinnar, en
kunnugir segja að engin gastæki hafi verið í byggingunni sem er í rúst
Pólskur ljósmyndari sá mann
nokkurn þeytast út úr bankanum
og detta niður dauðan á götuna 15
metra frá byggingunni. Aðrir
sjónarvottar kváðust hafa séð fólk
koma alblóðugt út og börn borin út
í sjúkrabörum.
Borgarstjórinn í Varsjá skipaði
strax nefnd til að rannsaka
sprenginguna sem þyrlaði banka-
seðlum út í loftið og varð til þess
að rúður brotnuðu í nærliggjandi
byggingum. Skemmtistöðum verð-
ur lokað í borginni á morgun.
deild pólsku sparibankanna í Var-
sjá.
Sprengingin varð um miðjan
dag og bankinn var fullur af
viðskiptavinum sem margir hverj-
ir voru sennilega að greiða afborg-
anir af ríkislánum til kaupa á
húsum og bifreiðum samkvæmt
kerfi sem bankinn sá um.
Bandarískir
fluttir á brott frá Iran
Lögreglan notaði hátalara til að
skora á fólk að gefa blóð og bað
um að þaggað yrði niðri í væli frá
sírenum sjúkrabíla svo að heyra
mætti hvort einhver hrópaði á
hjálp úr rústunum.
Seint í kvöld kom fólk enn í
sjúkrahús til að gefa blóð. íbúar í
Varsjá segja að þetta sé mesta slys
af þessu tagi sem hafi orðið í
höfuðborginni árum saman. Erfitt
var að bera kennsl á líkin.
Byggingin er alþekkt af því hún
er einkennileg í laginu, hringlaga
úr gleri og stáli. Þetta var aðal-
Teheran. 15. febrúar. AP. Reuter.
BANDARÍSKA sendiráðið í Te-
heran sagði í dag að það gæti
ekki verndað líf Bandaríkja-
manna í borginni og kunngerði
fyrirætlanir um brottflutning
bandarískra borgara á laugar-
dag. Harðir bardagar geisuðu
enn í Tabriz í norðvesturhluta
írans og vopnaðir borgarar
réðust inn í sendiráð Marokkó í
Teheran.
Diplómatar segja að minnst
700 hafi fallið í meiriháttar upp-
reisn, sem stuðningsmenn keisar-
ans munu standa að og nýju
valdhöfunum hefur ekki tekizt að
bæla niður í Tabriz, höfuðborg
Austur-Azerbaijdan, sem liggur
að Sovétríkjunum. Getum er að
því leitt að aðskilnaðarsinnar
reyni að nota sér veikleika nýju
valdhafanna. Samkvæmt óstað-
festum fréttum taka skæruliðar
og kommúnistar þátt í
bardögunum.
Ókyrrðar gætir líka að sögn dipló-
mata í Vestur-Azerbaijdan sem ligg-
ur að Tyrklandi, Irak og Sovétríkj-
unum og meðal Kúrda lengra í suðri.
Atök svipuð þeim sem geisa í Tabriz
virðast hafa átt sér stað í fylkishöf-
uðborginni Rezaiyeh. I odda mun
hafa skorizt í höfuðborg fylkisins
Kurdistan og í Kermanshah nálægt
landamærum Iraks. Kúrdar eru
sagðir hafa lagt undir sig opinberar
byggingar nálægt landamærunum
og dregið fána sinn að húni.
Jafnframt ríkir upplausn í Teher-
an þar sem hermenn hafa hvað eftir
annað fengið skipun um að hverfa til
búða sinna. Vopnaðir marxistar
réðust í kvöld á byggingu þar sem
þeir sögðu að starfsmenn leynilög-
reglunnar Savak hefðust við. Sendi-
herra Marokkó, E1 Ghali Benhima,
sagði að 50 vopnaðir menn, sem
hefðu haft sig í haldi meðan þeir
leituðu í bústað sínum að vopnum
eða mönnum Savak, hefðu verið
kurteisir og ekki valdið meiðslum
eða tjóni. Sveitir Khomeini trúar-
leiðtoga tóku sér stöðu við moskur og
aðra staði í kvöld.
I Washington er sagt að minnst
1700 af 7.000 Bandaríkjamönnum í
Iran verði fluttir burt á laugardag og
staðfest að stjórn Khomeini hafi
heitið fyrirgreiðslu. Leyfi hefur
fengizt hjá Tyrkjum til að fimm
þyrlur og sex Hercules-vélar geti
lent í Incilik og góðar heimildir
herma að þær séu þegar komnar
þangað. Carter forseti hefur kallað
Walter Mondale til Washington úr
skíðaferðalagi vegna atburðanna.
Jafnframt kom Iranskeisari og
kona hans til hallarinnar Dar Es
Salaam (Friðarhússins) í Rabat í
Marokkó, þar sem þau munu dveljast
framvegis, frá gistihöllinni, sem þau
hafa dvalizt í skammt frá
Marrakesch.
Árás
á Zaire
Kinshasa, 15. febrúar. Reuter — AP
FRÉTTASTOFAN í Zaire (Azap)
sagði í dag.að'lið 18 málaliða hygð
ist ráðast inn í Kivu-hérað frá
grannríkinu Rwanda og þrír
menn hefðu verið handteknir
fyrir að smygla vopnum inn í
landið. þar af einn Evrópumaður.
Vestrænar leyniþjónustur stað-
festu að hópur málaliða hefði
farið flugleiðis til Rwanda frá
Belgíu. Þeir voru sagðir játa að
þeir hefðu í hyggju að ráðast á
Zaire.
Neyðarástand í Evrópu
vegna mikils fárviðris
Amsterdam, 15. febrúar.
Reuter. AP.
GRÍSKT vöruflutningaskip sökk
við strönd Portúgals og óttazt er
að 15 danskir fiskimenn hafi
farizt í Norðursjó í miklu fár-
viðrri .sem geisaði í Evrópu í dag.
Brezka herskipið Jupiter
bjargaði 10 af 28 manna áhöfn
vöruflutningaskipsins Iris og
fann sjö lík. Þýzkt skip bjargaði
sex mönnum og rússneskt skip
bjargaði f jórum.
Dönsku fiskimennirnir voru í
fjórum bátum sem talið er að hafi
sokkið vestur af Jótlandi vegna
ísingar.
í Svíþjóð bcitti lögregia
þyrlum og snjóbilum til að
bjarga fólki sem einangraðist í
suðurhluta landsins og víðar
vegna snjóbyls sem lamaði flug-
samgöngur, lokaði vegum og
járnbrautarlínum og stöðvaði
siglingar til mcginlandsins. Dan-
mörk var einangruð frá umheim-
inum um tíma í dag.
Tveir frusu í hel í snjósköflum í
Vestur-Þýzkalandi og hermenn
voru kallaðir út til að bjarga fólki
úr bílum sem festust og húsum
sem einangruðust. Akstur var að
mestu bannaður í
Slésvík-Holstein.
í Hollandi var herlið kallað út
til að hreinsa járnbrautir og vegi
eftir mestu snjókomu þar í 16 ár.
Bæirnir Assen, Groningen og
Leeuwarden einangruðust.
I Bretlandi lokuðu þriggja
metra háir skaflar vegum og
járnbrautarlínum og hafnarbæ-
irnir Folkestone, Great Yarmouth
og Felixstow einangruðust. Spáð
er meiri snjókomu.
Félög bifreiðaeigenda líkja sum-
um sveitahéruðum í Bretlandi við
síberíska eyðimörk og lögreglan
sagði að þetta væri eitt versta
veður í manna minnum.
í Kent festust tvær járn-
brautarlestir og 100 farþegar
þeirra voru einangraðir í níu tíma.
Aðeins tókst að halda uppi 30 af
200 áætlunarferðum járnbrauta-
lesta frá Kent til London. Sums
staðar fór frostið niður í sjö stig
og margir bílar voru skildir eftir
við helztu vegi.
I Frakklandi fór kuldabylgja
yfir norðurhluta landsins, færðist
suður eftir og olli ísingu og um-
ferðartruflunum. Þúsundir
Frakka sem óku heimleiðis frá
Ölpunum og Suður-Frakklandi að
loknu skólaleyfi urðu að hafast við
í bílum sínum í nótt. En í Sviss
var aukinni snjókomu fagnað
skíðamannabæjum.
í Portúgal var ráðstafað 40
milljónum dollara til viðgerða
vegna skaða af völdum mestu
flóða í landinu í hálfa öld. Tíu
daga verkfall símamanna hamlar
björgunarstörfum.
Á Spáni biðu tveir bana í mikl-
um rigningum á vesturströndinni
og vatn flæddi inn í íbúðarhús.
Vegir lokuðust og flóðvarnar-
garðar hrundu.
En í Belgrad voru seld vorblóm
á götum í óvenjumiklu góðviðri
sem nær líka til Grikklands.
Hermenn á skriðdreka hreinsa snjó af götu í höfninni í Hamborg fyrir lest vörubíla með mikiivægan
farm. Skriðdrekinn sem notaður er gegnir venjulega því hlutverki að hreinsa snjó af götu sem liggur
til raforkuvers sem er í baksýn.