Morgunblaðið - 17.02.1979, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1979
Sambandsstjórnarfundur sam-
bands byggingamanna:
Atvinnuhorfur í
byggingaiðnaði
ískyggilegri en áður
Á sambandsstjórnarfundi Sam-
bands byggingamanna sem hald-
inn var 27. janúar s.l. var sam-
þykkt að kjósa 3ja manna nefnd
er kanna skuli grundvöll og
möguleika á stofnun framleiöslu-
samvinnufélaga í byggingariðn-
aði. Skal nefndin skila áliti sínu
fyrir 1. júní n.k. til framkvæmda-
stjórnar sambandsins.
Á fundi þessum var einnig gerð
samþykkt þar sem fundurinn telur
m.a. að atvinnuhorfur í byggingar-
iðnaði séu nú ískyggilegri en verið
Fundur um
nýtt bú-
vöruverð
SEXMANNANEFNDIN kom í gær
saman til síns fyrsta fundar vegna
landbúnaðarvöruverðsins 1. marz.
Sveinn Tryggvason framkvæmda-
stjóri Framleiðsluráðs landbúnað-
arins sagði í samtali við Mbl. í
gær, að hann gæti að svo komnu
ekkert sagt um hækkunina, sem
koma á á landbúnaðarvörurnar 1.
marz.
Fimm dæmd-
ir fyrir ad
svíkja út vörur
DÓMAR hafa verið kveðnir upp í
Sakadómi Reykjavíkur yfir fimm
mönnum fyir að hafa á árinu
1974 svikið út vörusendingar úr
vörugeymslum Flugleiða.
Einn var dæmdur í eins árs
fangelsi, annar í sex mánaða
fangelsi og sviptur leyfi til heild-
verzlunar í 5 ár. Sá þriðji var
dæmdur í 8 mánaða fangelsi, þar
af 5 mánuði skilorðsbundið, og
hinir tveir hlutu 2ja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi, 300 þúsund
króna sektir og voru sviptir heild-
sölu- og verzlunarleyfi í 2 ár.
Dómsforseti var Gunnlaugur
Briem sakadómari og meðdómend-
ur Ragnar Ólafsson hrl. og Garðar
Valdimarsson skattrannsókna-
stjóri.
Nýr hreyfill
í breiðþotuna
„Rekstur breiðþotunnar hefur
gengið ágætlega og þeir örðug-
Ieikar, sem fyrst voru í samhandi
við fragt og farangur, hafa nú
verið leystir,“ sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi Flug-
leiða í samtali við Mbl. í gær.
Á miðvikudaginn var settur nýr
hreyfill í þotuna í New York og
sagði Sveinn, að hreyflaskiptin
hefðu komið til vegna þess að áður
en Flugleiðir fengu þotuna var
skipt um hreyfil í henni í París og
þá settur eldri hreyfill í vélina,
þannig að önnur skipti hefðu alltaf
verið fyrirhuguð til að fá vélinni
nýjan hreyfil, en ekki hefði verið
um neinar bilanir að ræða.
INNLENT
Sjálfstæðisflokkurinn;
Miðstjóm og þingflokk-
ur ræða ef nahagsmál
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi á fundi í gær tillögur efnahagsmálanefndar flokksins um
aðgerðir í efnahagsmálum og í dag verður sameiginlegur fundur miðstjórnar og þingflokks, þar sem
málin verða rædd frekar. Þessa mynd tók Kristján af miðstjórnarfundinum í gær.
Dráttur á að Óli Óskars
fái haffærisskírteinið
hefur um langt skeið. Einnig
áréttar fundurinn kröfur S.B.M. á
hendur stjórnvöldum um að staðið
verði að fullu við áður gefnar
yfirlýsingar um byggingu íbúðar-
húsnæðis á félagslegum grund-
velli, jafnframt því sem hann
heitir áframhaldandi stuðningi
samtakanna til fjármögnunar
slíkra framkvæmda.
Fundurinn telur að aðgerðir
stjórnvalda sem nú hafa verið
ákveðnar til stuðnings innlendum
húsgagna- og tréiðnaði vera spor í
rétta átt en hvetur þó stjórnvöld
til þess að endurskoða stuðnings-
aðgerðir sínar og grípa hiklaust til
ákveðnari aðgerða í þeim tilgangi
að minnka raunverulega innflutn-
inginn og efla þannig innlendu
framleiðsluna.
Að lokum áréttar fundurinn þá
skoðun 8. þings S.B.M. að ríki og
bæjarfélög hafi forgöngu um kaup
á íslenzkri framleiðslu og telur
óverjandi að ríki og sveitarfélög
kaupi fullunna iðnaðarvöru er-
lendis frá á sama tíma og umtals-
vert atvinnuleysi er í þessum
greinum.
40 flöskur
fundust í
Reykjafossi
TOLLVERÐIR fundu 40
flöskur af sterku áfengi við
leit í m.a. Reykjafossi í fyrra-
dag. Áfengið var falið milli
þilja í fbúðum skipverja.
KRISTINN Guðbrandur
Ilarðarson opnar myndlistar-
sýningu í dag, laugardag 17.
febrúar kl. 16.00 í Galleríi
Suðurgötu 7 og er það jafn-
framt fyrsta einkasýning hans.
Á sama stað kl. 17.00 heldur
Magnús V. Guðlaugsson einnig
sína fyrstu einkasýningu í Gall-
ery “ “. Gallery “ “, sem var
stofnað sumarið 1977, er hvít-
máluð trétaska, sem hafa má
Loðnuskipið Óli Óskars
RE-175, áður síðutogarinn
Þormóður goði, sem nýlega
kom til landsins eftir mikl-
ar breytingar í Finnlandi,
hefur enn ekki fengið haf-
færisskírteini frá
Siglingamálastofnuninni.
Að sögn Hjálmars Bárðarsonar,
forstöðumanns Siglingamálastofn-
unarinnar, er ástæðan sú að
starfsmenn stofnunarinnar hafa
talið nauðsynlegt að athuga ýmis
atriði um borð í skipinu betur áður
en það fengi vottorð stofnunarinn-
ar til að geta stundað fiskveiðar
hér við land, en mestu máli skipti
þó, að ekki hefði verið unnt að
koma við fullnægjandi hallaprófun
hvar sem vera skal eftir hent-
ugleikum sýnenda hverju sinni.
Verk Kristins á sýningunni
eru tólf, flest ljósmyndir í sam-
héngi við texta og unnin á
síðastliðnu ári.
Kristinn Guðbrandur er
fæddur 1955. Hann stundaði
nám í Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1973—77 og síðar
framhaldsnám í Hollandi.
Kristinn Guðbrandur hefur áð-
í Finnlandi vegna íss og yrði því að
gera þessa prófun á stöðugleika
skipsins af hálfu Siglingamála-
stofnunarinnar. Veður hefði hins
„Málin skýrast meir og meir,
en meira get ég ekki sagt,“ sagði
Ilallgrímur Dalberg formaður
sáttanefndar í flugmannadeil-
unni, er Mbl. ræddi við hann í
gærkvöldi eftir fund sáttanefnd-
ar með stjórn F.Í.A. Sáttanefndin
ur tekið þátt í samsýningum svo
sem í Galleríi Súm og víðar.
Magnús, sem lýkur námi við
Nýlistadeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands á þessu
ári, er fæddur 1954. Hann hefur
einnig tekið þátt í samsýningum
áður; í Galleríi Súm, Suðurgötu
7 og Austurstræti 8.
Sýningarnar munu standa til
25. febrúar og eru opnar alla
virka daga frá kl. 16.00—22.00
og frá 14.00—22.00 um helgar.
vegar staðið í veginum fyrir því að
þessi prófun hefði enn getað farið
fram, þar sem lygnt þyrfti að vera
er hún færi fram.
ætlar að koma saman klukkan
13.30 ídag.
Hallgrímur sagði að á fundinum
með stjórn FÍA, sem stóð frá
klukkan 17.30—19.30 í gær, hefðu
málin verið rædd vítt og breitt. í
fyrradag kynnti sáttanefndin ráð-
herrum stöðuna í málinu og átti
sama dag fund með fulltrúa Flug-
leiða. Stjórn F.Í.A. hafði afhent
sáttanefndinni „hugmyndir", en
Hallgrímur sagði að undirtektir
Flugleiða við þær hefðu ekki verið
jákvæðar.
Tilflutningur
á flugliðum
„ÞESSIR flugmannaflutningar
eru á umræðustigi og ég á von á
því að samkomulag takizt eftir
helgina,“ sagði Sveinn Sæmunds-
son blaðafulltrúi Flugleiða í sam-
tali við Mbl. í gær, en í bígerð er
að flytja flugliða Loftleiða yfir á
flugvélar Air Bahama og Flug-
félagsþotur og Fokker-flugliða
yfir á vélar Arnarflugs.
Ætlunin er að 5 Loftleiðaflug-
liðar, 1 flugstjóri, 1 aðsetoðarflug-
maður og 3 flugvélstjórar, fljúgi
hjá Air Bahama fram að ára-
mótum. Flugstjórar verði fluttir af
Fokker Friendship yfir á Boeing
707 þotur Arnarflugs og flug-
stjórastöðurnar í innanlandsflug-
inu fái menn sem nú eru aðstoðar-
flugmenn á Boeing 727 þotum
Flugfélagsins. í þeirra sæti komi
svo flugliðar sem nú eru á DC-8
þotum Loftleiða.
Kópavogur:
Lýst eftir vitnum
LÖGREGLAN í Kópavogi lýsir
eftir bifreiðinni Y-2359, sem var
stolið frá Hamraborg aðfaranótt
14. febrúar. Þetta er Ford Cort-
ina árgerð 1970, ljósblá að lit.
Einnig lýsir lögreglan í Kópa-
vogi eftir sjónarvottum að
árekstri, sem varð á Smiðjuvegi, á
móts við Útvegsbankann, um
klukkan 14:50 hinn 9. febrúar sl.
Þarna rákust á Toyota Corolla og
Scout-jeppi.
Kristinn Guðbrandur við eitt verka sinna.
Ljósm. Ó1.K.M.
MAGNÚS V. Guðlaugsson við Gallery “ “. Þegar
nýr sýnandi tekur við, er taskan máluð aftur og
hugmyndum listamannsins komið á framfæri að
utan jafnt sem innan. Þetta verk nefnist Áttir:
Þegar allar benda í eina og enga þó.
Gallery ” ” og ljósmyndasýn-
ing í Galleríi Suðurgötu 7
Málin skýrast í
flugmannadeilmmi