Morgunblaðið - 28.02.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.02.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979 + MOðlr okkar og fósturmöölr 8IQURJÓA QUÐMANN8DÓTTIR frá Haggastððum, andaölst á sjúkrahúslnu & Hvammstanga 27. febrúar. Ragnhildur Anna Kriat|ánadóttir AgnarJðnaaon Páll Jónsaon Lavf Ármann Jónsson Í Utför móöur mlnnar og tengdamóöur HAN8ÍNU HANSDÓTTUR, Vesturgðtu 20, veröur frá Fossvogsklrkju f dag 28. febrúar kl. 3. e.h. Gunnar Þorkalsson Eria EyjóHsdóttir. t Konan mín og móölr okkar, LAUFEY VILMUNDSDÓTTIR, Eskihllð 18, Reykjavfk, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, flmmtudaginn 1. marz n.k. kl. 3 sfödegis. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra. Gfsli Þorgeirsson, Þorgair Gfslason, Vilmundur Þór Gíslason. + Útför eiginkonu minnar, móöur og tengdamóöur, KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR, Satási 3, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1. mars kl. 15. Þeir, sem vildu minnast hennar er bent á kirkjubyggingarsjóö Árbæjarsóknar. Filippus Guðmundsson, Hslgi Filippusson Sigrfður Einarsdóttir, Hulda Filippusdóttir, Ámi Kjartansson, Pátur Filippusson, Guðjóna Guðjónsdóttir, Þóra Filippusdóttir, Þórmundur Sigurbjarnason, Þórhallur Filippusson, Þóray Sigurbjörnsdóttir. + Hjartkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GEORG LÚÐVÍKSSON, framkvæmdastjóri, Kvisthaga 23, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 1. marz ki. 1.30. Guölaug L. Jónsdóttir, Margrát Gaorgsdóttir, Lúðvfk S. Georgsson, Sonja Garðarsdóttir, Ingibjðrg Georgsdóttir, Reynir Jónsson, Gfsli Gsorgsson, Erla Sólvaig Óskarsdóttir og barnabörn. + Okkar beztu þakkir sendum viö öllum þeim sem vottuöu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför LAUFEYJAR BÆRINGSDÓTTUR, Granaskjóli 5, Hinrik J. Svoinsson, Ólafur Ólafsson, Dagbjðrt Guðjónsdóttir, Guðrún Hinriksdóttir, Jónas Runólfsson, Margrát I. Hinriksdóttír, Ágúst Guðmundsson. + Okkar innilegustu þakkir fyrir vottaöa samúð og hlýhug viö andlát og útför HALLOÓRU ÁRNADÓTTUR Blönduhlíð 23. Aðstandandur. + Þökkum auösýnda samúö vlö andlát og jaröarför mágs míns og fööurbróður okkar, LÚÐVÍKS MAGNÚSSONAR frá Borgarhöfn. Sérstakar þakkir færum viö hjúkrunar- og starfsfólkl í Hátúni 10 B fyrir góöa umönnun. Guðný Jónsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Rðgnvaídur Sigurðsson, Kristfn Þórhallsdóttir, Sigurborg Sigurðardóttir, Jóhann Kristmunosson. Bandalag kvenna mótmælir nið- urlagningu Fæðingarheimilisins Eftirfarandi samþykkt var gerð á aðalfundi Bandalags kvenna á mánudag: Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík, haldinn dagana 25. og 26. febrúar 1979, er andvígur ölium hugmyndum um að leggja niður fæðingarheimili Reykjavfkur. í greinargerð segir: Fæðingarheimilið var stofnsett árið 1960 af Reykjavíkurborg að tilhlutan Bandalags kvenna í Reykjavík. Heimilið leysti þá mikinn vanda, sem skapast hafði í borginni vegna skorts á rými fyrir verðandi mæður, og má segja að neyðarástand hafi ríkt í aðstöðu til fæðingarhjálp- ar. Fæðingarheimilið bar ekki aðeins gæfu til þess að tryggja ásamt Fæðingardeild Landspítalans öllum konum pláss á fæðingarstofnun sem þess þurftu með, heldur var stofnun- in frumkvöðull að ýmsum nýjungum í fæðingarhjálp og mæðravernd. Ekki alls fyrir löngu var Fæðingar- heimilið stækkað og þar bætt stór- lega öll aðstaða til fæðingarhjálpar og umönnunar kvenna í sængurleg- unni. Nú eru þar 30 rúm fyrir sængurkonur — þar af 4 fæðingar- rúm. Síðast liðið ár voru þar 750 fæðingar, en á fæðingardeild Land- spítalans voru 1872 fæðingar. Sérstök ástæða er til að geta þess að dánartala ungbarna hér á landi er ein hin lægsta í heiminum, — um 16% á öllu landinu, en um 3% á Fæðingarheimilinu, enda þótt lh þeirra kvenna er þar fæða séu frumbyrjur. Á aðalfundi Bandalags kvenna í nóv. 1968 var einróma samþykkt tillaga sem send var öllum alþingis- mönnum og skorað á heilbrigðisyfir- völd að hefja án tafar undirbúning að byggingu kvensjúkdómadeildar við Fæðingardeild Landspítalans, þar sem skapast hafði hróplegt neyðarástand í þeim efnum, þannig að konur með illkynja kvensjúkdóma þurftu að bíða langan tíma eftir sjúkrahúsdvöl eða aðgerðum. Þessari samþykkt var sterklega fylgt eftir af kvennasamtökunum í landinu og hlutu þau liðstyrk ýmissa góðra manna innan þings og utan. Nýja kvensjúkdóma- og fæðingar- deildin var formlega tekin í notkun 1976 og er hún hin glæsilegasta stofnun, vel búin og með vel menntað fólk til þjónustu. Gegnir deildin mikilvægu hlutverki sem slík auk þess sem hún er kennslustofnun. Nú hafa mál þróast svo að Fæðingardeildin er yfirkeyrð á kostnað kvensjúkdómasjúklinga og bið kvenna eftir plássi frá 6 mán. upp í ár, þurfi þær aðgerða með og biðin er nú lengri en fyrr. Af þessu er ljóst að vandamálið er nógu stórt nú þegar og engan veginn hægt að ætla fæðingardeild Land- spítalans það viðbótarálag sem því myndi fylgja ef Fæðingarheimili Reykjavíkur yrði lagt niður, en eins og fyrr segir var það hálft áttunda hundrað kvenna sem fæddu á heimil- inu árið 1978. Hin nýja reglugerð um ófrjósemis- aðgerðir og fóstureyðingar hefur valdið stórauknu álagi á fæðingar- deildina, t.d. má nefna þau 60 tilfelli fóstureyðinga um þessar mundir vegna faraldurs „rauðra hunda". Með þessar staðreyndir í huga teljum við þá hugmynd fráleita að leggja niður Fæðingarheimili Reykjavíkur — en ætla því fremur að létta af fæðingardeildinni meira en verið hefur að undanförnu, þannig að fæðingar skiptust jafnar niður á þessar tvær stofnanir eins og áður var. Þá gæfist meira rými á Kvenna- deildinni fyrir kvensjúkdómasjúkl- inga, sem er brýnt að auka hið bráðasta með öllum tiltækum ráðum. Neyðarástand ríkti í málum kven- sjúkdómasjúklinga árið 1969 og konur börðust þá fyrir nýrri kven- sjúkdómadeild fyrst og fremst, en nú á því herrans ári 1979 virðist sami voðinn liggja æði nærri þar sem biðin er svona löng. Því er brýnt að bregðast skjótt við með úrbætur, en síst má það henda að teknar verði ákvarðanir, sem aðeins mundu auka vandann og það svo að skapast gæti sama ástand og var 1969. Fæðingarheimili Reykja- víkur hefur því mikilvægu hlutverki að gegna — er rekið með miklum myndarbrag og nýtur viðurkenning- ar þeirra sem þar hafa dvalið. Fyrri reynsla er víti til varnaðar. Sagan má ekki endurtaka sig. Magdalena Bjamadótt- ir—Fáein kveðjuorð Fædd 18. apríl 1904 Dáin 6. febrúar 1979. Magdalena var félagslynd og viljasterk þótt engum dyldist að hún gekk ekki heil til skógar. Þrátt fyrir sjóntapið sem hún hafði strítt við í mörg ár, þá sinnti hún sínum heimilisstörfum og starfaði einnig hér hjá Blindraiðn í mörg ár og sannaðist þá hið fornkveðna: viljinn dregur hálft hlass. Hún var góður starfsfélagi og kom miklu í verk. Við sem unnum með henni þökkum henni samveruna og þá hugulsemi og tryggð sem hún sýndi okkur og félagsskapnum á margan hátt. Magdalena var gift Runólfi Runólfssyni steinsmið, sem var hagleiksmaður og prúðmenni mikið. Þessi hjón höfðu bæði lokið sínum vinnudegi og voru orðin heilsulaus síðustu ár ævi sinnar. Þau áttu fjögur börn, öll upp- komin og gift, flest hér í bæ. Við þökkum Magdalenu margar góðar stundir hér á vinnustaðnum og einnig á heimili hennar. Kærar þakkir fyrir allt. Sesselía og Jónína og aðrir starfsfélagar að Ingólfsstræti 16. Lokað á morgun fimmtudag, vegna jaröarfarar KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR. Heildverzlun Helga Filippussonar h.f. Selásí 3 R. Skrifstofan veröur lokuð éftir hádegi fimmtudaginn 1. mars n.k. vegna útfarar Georgs Lúövíkssonar, framkvæmdastjóra. Skrifstofa ríkisspítalanna. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall og jaröarför konu mlnnar, móöur og ömmu, frú VALBORGAR ELÍSABETAR GRÖNDAL. Ólafur G. Jónsson, Ragnhoiöur Fríöa Ólafsdóttir Fulmer, og barnabörn. Þökkum innilega öllum sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og RÁÐHILDAR GUDJÓNSDÓTTUR Vorhúsum og heiöruöu minningu hennar. Guójón Sigurgeirsson, Elín Þorvaldsdóttir Jón Sigurgeirsson, Úrsúla Sigurgeirsson, Gunnar Sigurgeirsson, Sigurrós Benediktadóttir, barnabórn og barnabarnabarn. + Alúöarþakkir færum viö öllum þeim sem vottuöu okkur samúö viö andlát og útför fööur okkar, HALLGRÍMS BJÖRNSSONAR, Issknia, Akranesi. Hallgrímur Hallgrímsson, Gfsli Kvaran. + Alúöarþakkir til allra þeirra sem vottuöu okkur samúö viö andlát og jaröarför föður okkar, tengdafööur og afa SÆMUNDAR G. SVEINSSONAR, Vallargótu 25, Keflavik. Jóhanna Sæmundsdóttir, Valdimar Gunnarsson, Anna Vilhjálmsdóttir, Sveinn Sæmundsson og barnabórn. + Innilega þökkum vlö auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför GUÐBJARTAR ÞORGILSSONAR, Sóriaakjóli 92 Fyrir hönd dætra, stjúpbarna, tengdasona, barnabarna og systkina. Unnur Þorsteinadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.