Morgunblaðið - 28.02.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979
19
Þjóðleikhúsið:
5 verk nálg-
ast fjalirnar
FIMM verk eru nú í undirbún-
ingi í Þjóðleikhúsinu um þessar
mundir, en sjö verkefni eru á
verkefnaskránni. Mikil aðsókn
hefur verið að sýningum leik-
hússins í vetur eins og undan-
farna vetur og er tala leikhús-
gesta nú komin upp í samtals
60.649 (á stóra sviðinu 58.194
gestir og litla sviðinu 2.455
gestir). Otaldir eru þá sýn.gest-
ir í leikferðum.
Næsta verkefni á stóra svið-
inu er Stundarfriður eftir Guð-
mund Steinsson og fjallar um
streitu og lífsgæðakapphlaup
nútímans, upplausn fjölskyld-
unnar, neysluþjóðfélagið og
tískuna. Leikstjóri er Stefán
Baldursson en leikmynd gerir
Þórunn Sigríður Þorgrímsdótt-
ir og meðal leikenda eru Helgi
Skúlason, Kristbjörg Kjeld,
Þorsteinn 0. Stephensen og
Guðbjörg Þorbjarnardóttir.
Þá er og í æfingu bandaríski
söngleikurinn Prinsessan á
bauninni eftir Mary Rogers,
sem verður vorverkefni leik-
hússins. Danya Krupska
stjórnar þessari sýningu, en
leikmynd er eftir Sigurjón Jó-
hannsson. Meðal leikenda eru
Sigríður Þorvaldsdóttir, Bessi
Bjarnason, Róbert Arnfinnsson
og Ólöf Harðardóttir. Sigurður
Rúnar Jónsson er tónlistar-
stjóri.
Þá er Brynja Benediktsdóttir
að vinna að hópverki sem ekki
hefur verið gefið nafn ennþá.
Erlingur Gislason og Þórunn
Sigurðardóttir eru meðal leik-
enda og Karl Sighvatsson sér
um tónlistarhliðina. Æfingar
eru svo nýhafnar á rússneskum
gamanleik eftir Arbúzov, Göm-
ul saga. Benedikt Árnason leik-
stýrir þar þeim Herdísi Þor-
valdsdóttur og Rúrik Haralds-
syni. Leikmynd: Jón Benedikts-
son. Hugsanlegt er að frumsýn-
ing þessa leiks verði utan
Reykjavíkur.
Loks er svo í undirbúningi ný
danssýning. Finnski dansahöf-
undurinn Marjo Kuusela, sem
m.a. samdi ballettinn um Sölku
Völku, sem Raatikko-flokkur-
inn sýndi hér í fyrra við mikla
hrifningu, hefur verið hér að
undanförnu að semja leikdans
fyrir Islenska dansflokkinn og
er efni hans sótt í smásögu eftir
Guðmund Hagalín. Þessi nýi
ballett verður frumsýndur 8.
mars n.k.
Sonur skóarans og dóttir
bakarans eftir Jökul Jakobsson
hefur nú verið sýnt sleitulaust
síðan í haust. Eru sýningar
farnar að nálgast 50 og er
ekkert lát á aðsókn. Sýningum
fer senn að fækka á Máttar-
stólpum þjóðfélagsins eftir Ib-
sen og hefjast þá aftur sýning-
ar Á sama tíma að ári, sem
varð að víkja um skeið vegna
þrengsla. Barnaleikritið
Krukkuborg eftir Odd Björns-
son er sýnt fyrir fullu húsi í
hvert skipti. Fimmta verkefni
stóra sviðsins er svo leikritið
um Goya, Ef skynsemin blund-
ar, sem frumsýnt var nýlega og
hefur vakið mikla athygli.
Sýningum fer að fækka á
Heims um ból á litla sviðinu, en
þá hefjast að nýju sýningar á
Fröken Margréti, sem að und-
anförnu hefur verið sýnd utan
Reykjavíkur og í skólum. Sýn-
ingar á Margréti eru nú orðnar
yfir 80.
MYNDAMÓT HF.
PRINTMYNDAOIRS
AÐALSTRMTI • - SlMAR: I71S2-17355
Stjórn Félags járniðnaðarmanna:
Mótmælir skerdingarákvæðum
frumvarpsins á vísitölunni
STJÓRN Félags járniðnaðar-
manna hefur sent ólafi Jóhannes-
syni forsætisráðherra umsögn
sfna um frumvarp hans. Ályktun-
in er samþykkt með tilliti til
viðhorfa í atvinnu- og kjaramál-
um, eins og það er nefnt í inn-
gangi að ályktuninni. Þar mót-
mælir Félag járniðnaðarmanna
sérstaklega hugmyndum um
breytingu á umsömdum reglum
um verðbætur á laun, sem settar
eru fram í frumvarpinu og grein-
argerð með því. Einkum mótmæl-
ir félagið takmörkun verðlags-
bóta, sem eru ekki f samræmi við
raunverulegar verðlagshækkanir
nauðsynjavara.
Síðan segir í umsögn Félags
j árniðnaðarmanna:
„Með afstöðu sinni til efnahags-
aðgerðanna 1. des. s.l. og ábend-
ingum fulltrúa launafólks í vísi-
tölunefnd hafa samtök launafólks
sýnt samstarfsvilja varðandi að-
gerðir sem dregið gætu úr verð-
bólguþróun, þrátt fyrir að verð-
bætur vinnulauna komi á eftir
verðlagshækkunum og valdi því
ekki verðbólgu.
Jafnframt mótmælir stjórn Fé-
lags járniðnaðarmanna því sem
kemur fram í 9. gr. III. kafla
frumvarpsdraganna um afnám
lögbundinna fjárframlaga, sem
verkalýðssamtökin hafa samið um
til sjóða, svo sem Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs og Byggingarsjóðs.
Markmið og verkefni þessara
sjpða er félagsleg trygging og
félagslegar íbúðabyggingar sem
ekki má draga úr.
Atvinna í málmiðnaði er nú
mjög ótrygg, einkum eru verkefni í
stálskipasmíði óljós. í janúar og
febrúar 1979 hafa nokkrir járn-
iðnaðarmenn verið skráðir at-
vinnulausir, en slíkt hefur ekki
komið fyrir í áratug.
Af þessum ástæðum m.a. varar
stjórn Félags járniðnaðarmanna
við ráðstöfunum sem gætu leitt til
samdráttar í atvinnu, svo sem
bindingu fjárframlaga til fjárfest-
ingar í atvinnuvegum langt fram í
tímann, t.d. fyrir árið 1980 og
aukið vald Seðlabankans eða ann-
arra stofnana til takmörkunar
rekstrarfjár.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna telur að III. kafla frum-
varpsdraganna varðandi kjara-
málaráð beri að endurskoða eða
fella brott.
Hinsvegar er brýnt að endur-
bæta og efla það samráðsform sem
viðgengist hefur m.a. með því að
taka upp samráð og umræður um
afmarkaða málaflokka með frek-
ari þátttöku fulltrúa frá ýmsum
starfsgreinasamböndum og með
því að skapa svigrúm til að kynna
og ræða frumvörp og tillögur um
markmið og leiðir, a.m.k. í stjórn-
um og/eða trúnaðarmannaráðum
verkalýðsfélaga.
Vér teljum einnig að IX. kafla
frumvarpsdraganna þurfi að
breyta og auka, og erum andvígir
54. gr. um að flýta gildistöku laga
um frjálsa verðiagningu o.fl.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
telur frekar nauðsyn á róttækum
ráðstöfunum til að aflétta tug-
milljarða viðbótarálögum heild-
sala af innfluttum nauðsynjavör-
um, sem verðlagsjstjóri upplýsti
um nýlega.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna telur að ótímabært hafi
verið að leggja fram frumvarps-
drögin með ýmsum þeim tillögum
sem þar eru og að ekki hafi verið
haft nægilegt samráð við samtök
launafólks um efni þess, einkum
að því er varðar verðbótavísitölu
og tryggingu fyrir fullri atvinnu.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna væntir þess að frumvarps-
drögin verði endurskoðuð og þeim
breytt í samræmi við ábendingar
frá verkalýðssamtökum og að
framhald verði á samstarfi núver-
andi ríhisstjórnar og samtaka
launafólks um lausn efnahags-
vandamála, með þau markmið í
huga að tryggja fulla atvinnu við
arðbæra framleiðslu og uppbygg-
ingu atvinnuveganna og að kaup-
máttur vinnulauna haldist."
r \
Flug og gisting
Ein heild á lækkuðu verði.
Víð
uða um land eru vel búin hótel.
Þú getur farið í helgarferð með flugfélaginu
í hópi, með fjölskyldunni, eða bara þið tvö.
Hringdu og spurðu um verð á helgarferð.
FLUCFÉLAC /SLAJVDS
tNNANLANDSFLUG
J
V.