Morgunblaðið - 28.02.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.02.1979, Blaðsíða 14
MXtmrAypm 14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1979 1973 — Bandarískir Indíánar leggja undir sig þorpið Wounded Knee, Suður- Dakota, og taka 10 gísla. 1946 — Gæsagangur lagður niður í svissneska hernum. 1942 — Landganga Japana á Jövu. 1933 — Mannréttindi takmörkuð í Þýzkalandi. 1924 — Bandarískir hermenn ganga á land í Honduras. 1922 . — Brezkri verndarstjórn lýkur í Egyptalandi. 1920 — Ungverjar fá stjórnarskrá. 1919 — Henry Cabot Lodge hefur baráttu sína gegn aðild Bandaríkjanna að Þjóðabanda- laginu. 1900 — Ladysmith leyst úr umsátri í Suður-Afríku. 1877 — Friðarsamningur Tyrkja og Serba undirritaður. 1876 — Karlistastríðinu lýkur á Spáni með flótta Don Carlos. 1868 — Disraeli verður for- sætisráðherra í stað Derby lávarðar. 1825 — Samningur Breta og Rússa um réttindi á Kyrrahafs- svæðinu. 1813 — Prússar samþykkja að berjast með Rússum í Saxlandi og Slésíu. 1808 — Austurríkismenn ganga í lið með Napoleon= Frakkar taka Barcelona. 1653 — Enski flotinn sigrar Hollendinga út af Portland. Afmæli: Michel de Montaigne, franskur rithöfundur (1533—1592)= G. Rossini, italskt tónskáld, (1792—1868).Sir John Tenniel, brezkur listmálari (1820 —1914)= Linus Pauling, bandarískur efnafræðingur (1901 — )= Raphael, ítalskur málari (1483-1520). Andlát: Alphonse de Lamartine, skáld, 1869= Henry James, rit- höfundur, 1916= Alfonso XIII Spánarkonungur 1941. Innlent: 27 kínverskir og brezkir sjómenn drukkna við Reykjanes 1950= f. Sigurður Eggerz 1875= d. Klængur Þorsteinsson biskup 1176= Guðmundur Johnsen prófastur 1873= Flóð í Ölfusá og 100 hrossum bjargað við Elliðaár 1968= d. Ingimundur Árnason 1964= V.R. verður launþegafélag 1955. Orð dagsins: Herrar mínir gleymið ekki að þið eruð Portúgalar — Portúgalskur hershöfðingi í Pýreneastríðinu. Fjölbreytt úrval eldhúsinnréttinga undir b/ómaheiturn okkar býður upp á óteljandi möguleika. Til þess að gefa þér hugmynd um úrvalið — þá getur þú til dœmis valið spóntagðar hurðir í mörgum viðartegundum — eða plasthúðaðar hurðir í mörgum litum — hurðir úr ,,massívum“ viði - eða jafnvel hurðir með lituðu gleri. Svo getur þú líka valið ýmsar gerðir af útdregnum skápum — fyrir potta, pakkavöru, eða hrœrivél, svo eitthvað sé nefnt. Þú velur það sem þér hentar best — við uppfyllum óskir þínar. HAGIr Sýningarsalur/verslun Suðurlandsbraut 6, Reykjavík. Sýningarsalur/verslun Glerárgötu 26, Akureyri. / Masaka í höndum herja Amins áný? Nairobi, 27. febrúar, Reuter. ÚTVARPIÐ í Uganda skýrði frá því í dag að sveitir Ugandahers hefðu náð borginni Masaka f sfnar hendur á ný eftir harða bardaga. Ilerir Tanzanfu náðu borginni. sem er mikilvæg héraðsmiðstöð, á sitt vald í síðustu viku. Miklir bardagar geisa enn í og við borgina. Féttir útvarpsins í Kampala þykja benda til þess, að herir Amins hafi nú snúið vörn upp í sókn. Þó var ekkert minnst á gang mála við borgina Mbarara, en í fregnum í gær var borgin sögð í björtu báli vegna bardaga sem þar stæðu yfir. Kúrdar fá sjálfs- forrædi Teheran, 26. febrúar Reuter BLÖÐ í Teheran skýrðu frá því í dag að samkomulag hafi tekist um að veita Kúrdum í Kúrdistan sjálfsforræði, en ættflokkurinn hefur löngum orðið að þola yfirgang ann- arra íbúa héraðsins sem er við landamæri íraks. Samkomulagið kveður á um að í framtíðinni fari Kúrdar með stjórn héraðsins, öllum tekjum sem fást af framleiðslu á héraðinu verður veitt til uppbyggingar í héraðinu og tungumál Kúrda verður kennt í skólum samhliða persnesku. í síðustu viku bárust fregnir af óeirðum í Kúrdistan og sendi stjórnin þá nefnd undir forystu atvinnumálaráðherra landsins til að jafna ágreining. Samkomulagið, sem nefndih gerði, hefur ekki verið staðfest enn opinberlega. Loðn- irþola meira Vínarborg. 26. febrúar. Reuter. Heribert Thaler yfirlæknir fullyrti í' dag á ráðstefnu um áhrif áfengisneyzlu á heilsu- far, að loðin bringa væri eindregin vísbending um að eigandinn kynni sér hóf í meðferð áfengra drykkja. Læknirinn kvaðst með rann- sóknum hafa komizt að þeirri niðurstöðu að áfengi svifi síður á karla með hærðar bringur en hina, auk þess sem hann lagði fram niðurstöðutölur um að kvenfólk þyldi aðeins þriðjung þess áfengismagns sem karl- fólk mætti neyta án þess að eiga á hættu alvarlega lifrar- skemmd. ‘Þannig gætu karlar rólegir veitt sér þann munað að drekka þriggja pela flösku af léttu víni dag hvern, en konur skyldu hins vegar láta sér nægja einn pela, ef vel ætti að fara. Ástæðuna fyrir þessu misrétti kynjanna kvað lækn- irinn sér ókunna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.