Morgunblaðið - 09.03.1979, Síða 1
40 SÍÐUR
57. tbl. 66. árg.
FÖSTUDAGUR, 9. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Víetnam:
Bardagar í landa-
mærahéruðum en
Kínverjar á útleið
Carter var fagnað innilega
við komuna til Egyptalands
Kairó, 8. marz. AP. Reuter.
TUGÞÚSUNDIR fögnuðu Cartcr Bandarikjaforseta innilega við
komuna til Kaíró f dag, en á fyrsta fundi þeirra Sadats Egyptalands-
forseta komu fram ákveðnar kröfur hins sfðarnefnda um „réttindi og
frelsi“ til handa Palesti'nuaröbum. Áður hafði Khalil forsætisráðherra
Egyptalands lýst því yfir að Egyptar mundu ekki hvika frá kröfum
si'num um að sjálfstjórn Palestínuaraba á vesturbakka Jórdanárinnar,
enda væru Egyptar reiðubúnir að Ieggja fram breytingatillögur við
tillögur Bandaríkjastjórnar um málamiðlun við komu Carters forseta.
Mustafa Khalil, Zbigniw
Brzezinski og Cyrus Vance.
Carter er sagður leggja mikla
áherzlu á að leiða saman þá Sadat
og Begin forsætisráðherra ísraels
meðan á dvöl hans í Miðaustur-
löndum stendur. Enn hefur ekkert
verið látið uppi um hvenær Carter
haldi aftur til Bandaríkjanna, en
til ísraels fer hann á laugardags-
kvöld. Begin hefur lýst því yfir að
undirritun samninga sé á næsta
leiti, en við heimkomuna frá
Washington lýsti hann því yfir að
síðasta vika hefði reynzt ísraels-
mönnum notadrjúg, um leið og
hann hvatti landa sína til að fagna
Carter er hann kæmi til Tel Aviv.
Bangkok, 8. marz. AP.
ENN er barizt á mörgum stöðum í Norður-Víetnam. en heimildum ber
þó yfirleitt saman um að átökin fari minnkandi og að Kínvcrjar séu á
útleið. Spenna er ríkjandi í landamærahéruðunum og telja þeir, sem
helzt hafa tækifæri til að fylgjast þar með gangi mála. að enn kunni að
slá harkalega í brýnu milli Vítnama og kínverska innrásarliðsins.
Athygli vekur mikill vi'gbúnaður beggja vegna landamæranna,
einkum þó Kína-megin, en talið er líklegt að f jölgun í kínverska liðinu
sé varúðarráðstöfun til að greiða fyrir brottflutningi Kínverja.
Að því er næst verður komist eru
um 100 þúsund kínverskir hermenn
innan víetnömsku landamæranna,
en hluti innrásarliðsins er kominn
aftur til Kína, að því er áreiðanleg-
ar fregnir herma
Kafróbúar voru í hátíðarskapi er Carter Bandarfkjaforseti hélt innreið sfna f borgina f opnum vagni ásamt
Sadat. (AP—símamynd).
Hin opinbera fréttastofa Víet-
nams greindi frá hörðum bardögum
við Lang Son á fimmtudagskvöld,
og féllu þar að sögn fréttastofunnar
um 300 kínverskir hermenn.
íran:
Skotið að mót-
mælakonum
í gallabuxum
Teheran, 8. marz. Reuter.
HERSKÁIR múhammeðstrúar-
menn skutu í dag með vélbyssum
að mótmælaþvögu um 15 þúsund
kvenna við aðsetur Bazargans
forsætisráðherra. Konurnar
voru klæddar að vestrænum
hætti, ýmist f gallabuxum eða
pilsum. og kröfðust þær þess að
endi væri bundinn á einræðið í
landinu. Slys urðu engin á fólki
vegna skothrfðarinnar, að því er
næst verður komizt, en atburður
þessi er sagður dæmiger um
vaxandi óánægju f landinu með
einstrengingshátt og öfgar bylt-
ingar- og trúarleiðtogans
Khomeinis. Khomeini ávarpaði í
>gær samkomu kvenna, sem eru f
opinberri þjónustu. og kvaðst
þar ætlast til þess að þær klædd-
ust svörtum kyrtlum við vinnu
sína.
Þrjú hundruð dúfum var sleppt
þar sem þeir Sadat og Carter óku
um á leið sinni til Kubbeh-hallar,
þar sem Sadat býr meðan Carter
dvelst í Egyptalandi og þar sem
fundir þeirra verða. Mannfjöldinn
laust upp fagnaðarópi þegar
friðartáknið flögraði yfir þjóð-
höfðingjunum. Við komuna til
hallarinnar fluttu báðir ræðu yfir
miklum mannfjölda sem þar var
saman kominn. Sadat fór hlýleg-
um orðum um Carter, vegsamaði
hann fyrir framlag hans í þágu
friðar í Miðausturlöndum og
kallaði hann „kæran vin og bróð-
ur“.
Enda þótt ljóst sé að enn standi
ýmislegt í vegi fyrir endanlegu
samkomulagi og Carter hafi tekið
það skýrt fram áður en hann lagði
upp í ferð sína að brugðið gæti til
beggja vona, eru bandarískir
fylgdarmenn forsetans yfirleitt
bjartsýnir á að hann hafi árangur
sem erfiði. Af hálfu bandarísku og
egypzku sendinefndanna hefur lít-
ið verið látið uppi um gang
viðræðna í dag, enda er mikil
áherzla á það lögð að ekkert síist
út af fundunum. Carter og Sadat
ræddust við í einrúmi í klukku-
stund, en síðan var haldinn fundur
þar sem meðal annarra voru
3 þúsund Kúbanir og
Sovétmenn til N-Jemens
Kuwait, 8. marz. AP.
Á UNDANFÖRNUM þremur dögum hafa um 2.700 kúbanskir
hermenn og 300 sovézkir hernaðarráðgjafar komið til Suður-Jemens
frá Eþíópíu til styrktar kommúnistastjórninni í stríðinu gegn
Norður-Jemen, að því er segir í fregnum frá Kuwait. Bardagar á
landamærum Norður- og Suður-Jemens halda áfram, þrátt fyrir
vopnahléssamkomulagið á laugardaginn var og áskorun Arababanda-
lagsins frá því á þriðjudag um að herir ríkjanna legðu niður vopn en
freistuðu þess í staðinn að jafna ágreining sinn við samningaborð.
Suður-Jemenar hafa haft
Saudi-Araba að bakhjarli í tíðum
árekstrum við Suður-Jemena, sem
Sovétstjórnin hefur hið mesta
dálæti á. Sumir hafa leitt að því
líkur að þessi flutningar á Kúbön-
um og Sovétmönnum úr einu
kommúnistaríki í annað standi í
sambandi við komu bandarískrar
flotadeildar í Arabíska hafið, — en
haft er eftir háttsettum embættis-
manni í Washington að með þeirri
ráðstöfun vilji Bandaríkjastjórn
sýna vanþóknun á árás Suð-
ur-Jemena á Norður-Jemen á
dögunum.
Amin umkringdur
— innrásarliðið að komast í skot-
færi við Kampala og Entebbe
Nairobi, 8. marz. AP.
KAMPALA-ÚTVARPIÐ skýrði frá því í kvöld að árásarher Tanzaníu-
manna nálgaðist nú óðum borgina Mpigi, cn þaðan er aðeins 40
kílómetrar leið til Kampala og Entebbe-flugvallar. Er talið að
innrásarherinn eigi auðvelt með að ná borginni á sitt vald, en þá er
hann kominn í skotfæri við höfuðborgina og flugvöllinn, en um hann
liggja nánast allar samgöngur Úganda við umheiminn. Þá var því lýst
yfir í útvarpinu að Tanzaníumenn hefðu sigrað hersveitir Amins í
Masaka og Lukaya, en enda þótt ástandið væri mjög alvarlegt hefðu
Úgandamenn enn sem komið væri ekki snúið vörn í sókn.
Þessar yfirlýsingar Kampala-
útvarpsins eru staðfesting á fregn-
um heimildarmanna í Nairobi um
að Tanzaníumenn og útlagar frá
Úganda sæktu nú fram til
Kampala. Að sögn þessara
heimildarmanna þurfa innrásar-
menn ekki að tefja sig á því að
berjast við menn Amins þar sem
andspyrna er nánast engin. Talið
er að ekki séu nema um sjö þúsund
manns í innrásarliðinu, en að því
er talið er hefur Amin jafnfjöl-
mennt lið til að verja höfuðborg-
ina er bardagar um hana hefjast.
Að sögn Vesturlandabúa, sem
dveljast í Kampala, er lítið um að
Amin „lífstíðarforseti“ í Úganda
vera í höfuðborginni, en helztu
vísbendinguna um ástandið í land-
inu segja þeir þá að erfitt sé orðið
að fá bensín. Brottflutningur
Vestur-Þjóðverja frá Kampala var
fyrirhugaður nýlega, en hætt var
við þær ráðagerðir þar sem næg
þátttaka í ferðina fékkst ekki. Um
130 Bandaríkjamenn eru í
Kampala og hafði þeim verið
ráðlagt að forða sér við fyrsta
tækifæri, en á þeim er enn ekkert
fararsnið. Flestir eru þeir kristni-
boðar, sem margsinnis, hafa feng-
ið áskoranir um að fara úr landi,
en hafa samt sem áður setið sem
fastast.
Af Idi Amin Dada 'er það helzt
að fregna að hann hefur tekið að sér
embætti heilbrigðismálaráðherra í
landinu og er önnum kafinn við
undirbúning opnunar nýrrar
skurðstofu í sjúkrahúsi í Kampala.
Hann hefur látið boð út ganga um
að „hinn mikli sigurvegari brezka
heimsveldisins og yfirmaður her-
aflans" hafi ekki ýkja miklar
áhyggjur af ástandinu í landinu,
enda muni hann verða síðastur til
að renna af hólmi og ætli sér að
berjast til síðasta manns.