Morgunblaðið - 09.03.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979
7
Nýr ritstjóri
Suöurlands
Nýr ritstjórí hefur tekið
við Suðurlandi, SteinÞór
Gestsson fyrrum alÞing-
ismaður. í forystugrein
Þessa fyrsta blaðs undir
hans stjórn segir m.a.:
„AlÞýöuflokkurinn og
AlÞýðubandalagið hafa
jafnan verið ósammmála
um flest og aöferðir til
lausnar flestra Þátta
Þjóðmálanna hafa verið
Þeim sífellt deiluefni. En
Þeir voru sammála um
eitt Þegar nær dró kosn-
ingum, Þegar kosninga-
árið rann upp: Þeir beittu
sér af alefli gegn Þeim
efnahagsaögerðum sem
ríkisstjórn Geirs Hall-
grímssonar stóö að í árs-
byrjun 1978. Flestum
heilskyggnum mönnum
er nú Ijóst, að febrúarlög-
in svonefndu ásamt um-
bótum sem gerðar voru á
Þeim í maí var sú aögerð
sem líklega var til að
hamla gegn Þeirri verð-
bólgu sem magnaðist í
kjölfar sólstööusamning-
anna 1977. Eigi að síður
sameinuðust hinir sjálf-
skipuðu „verkalýðsflokk-
ar“ um að magna and-
stööu launpegasamtak-
anna við aðgerðunum og
var Þá ekki horft í Það
Þótt útflutningsbann á
olíu ógnaði atvinnuöryggi
launamanna og stefndi
ríkisfjármálum í hreinar
ógöngur.
Og í framhaldi af Þess-
ari pólitísku misbeitingu
stéttarfélaganna og
háskalegu baráttu, var
svo gengið til kosninga
undir hinu sameiginlega
herópi kommúnista og
krata: Samningana í gildi.
Kaupránsflokkana frá.
Úrskit kosninganna
Þarf ekki aö rifja upp.
AlÞýðuflokkurinn og Al-
Þýöubandalagiö beittu
Þeim blekkingum í kosn-
ingabaráttunni, að Þeir
gerðu lítiö úr vandamál-
um Þjóöarinnar og töldu
allt of mörgum kjósend-
um trú um að landinu
mætti stjórna svo að til
velfarnaðar leiddi, án
bess aö einstaklingarnir
Þyrftu neitt til Þess að
finna, pyngja peirra
myndi pyngjast við stjórn
maður, stjórnmálayfirlit
og kemst Þar m.a. svo að
orði:
„AlÞýðuflokkurinn lof-
aði lækkun tekjuskatts,
ef ekki afnámi Þeirra fyrir
kosningar, en tekur Þátt í
stórfelldri hækkun Þeirra
eftir kosningar, Þannig
aö aldrei í íslandssög-
unni, hvorki fyrr né síðar,
Þ-á m. ekki í tíð einveldis-
Suðurland
Glerverksmiðjan Samverk hl.
á Hellu 10 ára
Þeirra „bræðraflokk-
anna“. En hvernig hefur
nú til tekist? — Verkin
sýna merkin: Þótt fyrsta
verk vinstri stjórnarinnar
væri að afnema febrúar-
lögin og að setja bráða-
birgöalög í september og
síðan lög um bráöa-
birgðaaðgerðir í nóvem-
berlok, pá hafa
samningarnir ekki verið
settir í gildi. Þannig var
hægt og bítandi horfiö frá
einum af hornsteinum
stjórnarstefnunnar ...“
Skattpíning
og stjórnar-
andstaöa
í petta sama blað ritar
Eggert Haukdal, alÞingis-
konunga, hefur dunið yfir
Þjóðina slík skattáÞján
og nú á Þessum mánuö-
um, sem núverandi sið-
bótamenn hafa verið við
völd. Það er ekki aöeins
hremmt til sín hærra
hlutfall af tekjum alls
Þorra fólks, hetdur ráðist
að grundvelli allrar at-
vinnu í landinu með
óheyrilegri skattpíningu
á atvinnuvegina sem
eínmitt átti að bjarga frá
stöðvun með efnahags-
aðgerðunum í septem-
ber, var okkur sagt. í
Þeirri skattpíningu sem
dunið hefur yfir, er m.a.
höggvið að vaxtarbroddi
framtíöarinnar, uppbygg-
ingu iðnaðar- og atvinnu-
húsnæðis með 2% ný-
byggingargjaldi. Einnig
er fyrírtækjum gert erfitt
fyrir meö stórhækkun
tekju- og eignarskatts og
fyrningar stórskattlagðar,
sem er nýtt í dæminu. —
Það virðist eins og slá
eigi atvinnurekstur af í
einu höggi. — Svo Þykj-
ast Þessir menn vera að
bjarga atvinnuvegunum."
Og Eggert segir enn-
fremur:
„Sjálfstæðisflokkurinn
hefur e.t.v. farið sér of
hægt í stjórnarandstöö-
unni, en Þess ber Þó að
gæta að eðlilegt er talið
aö ríkisstjórn á hverjum
tíma fái frið til að sýna
hvers hún er megnug.
Eftir Því sem betur hefur
komið í Ijós, hve mikil
ráöleysisstjórn Þetta er,
Þá er Þjóðarnauðsyn aö
hún víki sem fyrst.
Sjálfstæöisflokkurinn
hefur verið að endur-
skoða og fastmóta stefnu
í öllum meginmálum á
grundvelli Þeirrar stefnu,
er hann setti sér í upp-
hafi. Meðal Þeirra mark-
miða er flokkurinn setti
sér, er að afnema alla
nýju skattana sem ríkis-
stjórnin hefur lagt á á
sínum stutta ferli...“
Áfengisböl
meirihlutans
Fylkir, málgagn sjálf-
stæöismanna í Vest-
mannaeyjum, hefur bor-
izt okkur hér á Stakstein-
um. Á forsíðu blaðsins er
Þessi skemmtilega frétt
úr pólitík Þeirra Vest-
^iannaeyinga:
„Meðal breytingatil-
lagna við Fjárhagsáætlun
1979, sem meirihlutinn
felldi á síðasta bæjar-
stjórnarfundi var tillaga
um lækkun á liðnum
„Annar kostnaður", en
undir Þessum lið er m.a.
áfengisgjafir bæjarins til
nokkurrra starfsmanna
fyrir hver áramót.
í umræöu kom fram að
starfsmönnum er mis-
munað í Þessum áfengis-
gjöfum, og voru bæjar-
fulltrúar sem tóku til
máls sammála um að láta
bæinn hætta Þessum
gjöfum.
Er kom að atkvæða-
greiöslu um liðinn stóð
Þó meirihlutinn saman og
felldi tillöguna."
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Gjafír í Sundlaugar-
sjóð Sjálfsbjargar
Hér með fylgir listi yfir njafir
sem borist hafa í „Sundlaugasjóð
Sjálfsbjargar“ frá 4.12.
1978-23.1.1979.
Sjálfsbjörg, landsamband fatl-
aðra færir öllum gefendum alúð-
arþakkir fyrir þessar gjafir.
Anna Sigurbjörnsdóttir kr. 6.000.-,
Þorbjörg Ingimundardóttir 1.500.-,
Ónefnd kona 50.000.-, Ragnhildur
10.000., Elín Jósefsdóttir, Hafnar-
firði 15.000.-, 3 gamlar konur
10.000.-, Minningargjöf frá Ó.G.
24.000.-, Árelíus Nielsson 5.000.-,
Starfsfólk Brauðbæ 35.000..-, Í.K.
4.000.-, Jenný og Jón Skagan 50.000,
Finnur Kári Sigurðsson 3.000.-, Lilja
Þorgeirsdóttir 15.000.-, Gísli Vagns-
son 20.000.-, R.Á. 10.000.-, Kvenfélag
Háteigssóknar 100.000.-, Fastagestir
og starfsfólk Sundlaugar Vesturbæj-
ar 478.700.-, Guðmundur Guðmunds-
son 15.000.-, S.Ó. 3.750.-, Kvenfélag
Bústaðasóknar 50.000.-, n —15
15.000.-, Sigríður Jónsdóttir 40.000.-,
Gunnar Smith 20.000.-, Ónefndur X
15.000.-, Ón efndur X 15.000.-,
Rebekkustúkan nr. 1 Bergþóra
I.O.O.F. Rvk. 50.000.-, Sveinn
Jóhannsson 200.000.-, Starfsfólk
Samvinnutrygginga 130.000.-, A.B.
50.000.-, Anna Þorláksdóttir 1.000.-,
S.R.K. 25.000.-, Ingibjörg Jónsdóttir
5.000.-, Deild A-4 starfsfólk Borgar-
spítala 70.000-, Guðlaug Guðlaugs-
dóttir 4.000.-, Ásbjörn Guðmundsson
5.000.-, N.N. 2,500.-, Grímur Norð-
dahl 100.000.-, Söfnun Jóns Sigurðs-
sonar á vegum Maríu Skagan
433.500.-, íslenskir Aðalverktakar
Keflavíkurflugvelli 300.000.-, S.S.
50.000.-, S.S. 5.000., Guðmundur og
María 5.000.-, Aagot Vilhjálmsson
10.000.-, Hrönn Huld og vinkonur
5.000.-, Sigríður Ársælsdóttir
5.000.-, P.P. 50.000.-, Óskar 3.000.-,
M-5 10.000.-, Björn Guðmundsson
10.000.-, Eiríkur Stefánsson 10.000.-,
Guðjón og Marta 10.000.-, Ragnheið-
ur Björnsdóttir kr. 10.000.-, Ásta
Björnsdóttir 10.000.-, Tryggvina og
Hrólfur 5.000.-, Guðbjörg Pálsdóttir
5.000.-, Salome Pálmadóttir 5.000.-,
Sigriður & Ingólfur 5.000.-, Auður og
María 15.000.-, Erna P. Einarsdóttir
750.-, Sigga og Guðmundur Þór
10.000, Unnur Júlíusdóttir 10.000,
Þórdís Davíðsdóttir 10.000.-, Björg
Kristjánsdóttir 1.500.-, G.S. 1.500.-,
Magnús Sigurðsson frá Miklaholti
100.000.-, Margrét Þórðardóttir,
Svava Skúladóttir Gunnar og Skúli
Guðjónsson 13.100.-, Teitur Daniels-
son 5.000.-, Sigríður Gunnarsdóttir
50.000.-, María Guðmundsdóttir
6.500.-, Heiða 3.000.-, Ragna Guð-
mundsdóttir 20.000.-, Katrín Björns-
dóttir 5.000.-, Ónefnd kona 40.000.-,
Hreinn Eyjólfsson 5.000.-, Ásbjörn
Guðmundsson 50.000.-, Sólveig
15.000.-, Sigríður Kristjánsdóttir
5.000.-, Guðborg Einarsdóttir
50.000.-, Elín Jósefsdóttir 15.000.-,
Guðrún Steingrímsdóttir 10.000.-,
Kristján Þórðarson 5.000.-, J.K.Þ.
15.000.-, Helga Þorleifsdóttir
100.000.-, Ingigerður Sigurðardóttir
5.000.-, Soffía 1.000.-, Indriði Jóns-
son 1.000.-, Guðbjörg Vilhjálmsdótt-
ir 5.000.-, Ástríður Þóra 5.000.-,
Ólafur F. Hjartar 5.000.-, n.n. Akur-
eyri 25.000.-, Sesselja og Margrét
10.000.-, Starfsfólk Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar 150.000.-, N.N. 100.000.-,
Þóra Klein 2.000.-, A.F. 5.000.-, H.F.
1.200.-, Vignir Norðdahl og fjöl-
skylda 10.000.-, Friðrikka Sigurðar-
dóttir 5.000.-, N.N. 10.000.-, Guðrún
Brandsdóttir 15.000.-, Áheit 1.000.-,
Guðrún Ingvarsdóttir áheit 1.000.-,
M. áheit 2.000.-, S. áheit 5.000.-,
Minningargjafir um Gunnar
Jóhannsson 28.000.-.
iVu&i
OÖGO
Oryggi
íbak
og fyrir
Öryggisgrind Audi byggist á víötœkum
rannsóknum og tilraunum sem miðuðu
að því að hún stæðist þyngstu skelli
frá ölhun hliðurn. Hemlakerfið er tvöfalt,
þaulprófaður öryggisbúnaður í stýrissúlu,
sjálfstillt tannstangarstýri og hlífðar-
panna undir vél og bensíngeymi.
Allt til að vernda þig og þína í bak
og fyrir. SÉRHÆFÐ VARAHL UTA - OG
VIÐGERÐAÞJÓNUSTA.
HCIfl A,
|r^ Ul^lMtk MB
Laugavegi 170-172 Sími 21240
|»
'm' 1
1 {m? i éJM I
k sWhS!ií
82.19