Morgunblaðið - 09.03.1979, Page 8

Morgunblaðið - 09.03.1979, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979 The Record Helgi Tomasson: City Ballet's diffident dancer By Barbara L. Archar Oancí Writer Helgi Tomasson is a dancer's dancer, the kind of dancer other dancers applaud even in rehearsal — as happened one day not long ago at the New York City Ballet. Under the keen eye of George Balanchine, Tomasson was practicing one of his variations, or solos, from “Coppelia" on the stage of the New York State Theater at Lincoln Center. With an air of complete ease, he performed some arrow-straight turns in the air followed by a precisely executed series of leg beats. When he finished, the rest of the cast lounging around the stage ciapped apprecia- tively. One observer neatly summed up [ Tomasson’s performance with ' the comment, "Helgi has real class." Helgi Tomasson's clear, intelligent dancing style, his impeccable musical phrasing, and his straightforward mannerl have won him the admiration of^ his peers — probably the nicest compfiment a dancer could have - as well as the regard of the ballet-going public. Those who have not yet made plans to see Tomasson during the current New York City Ballet season at Lincoln Center may therefore want to take the opportunity to see him this weekend at Orrie de Nooyer Auditorium in Hackensack, where he will dance “The Nutcracker” with the Classic Ballet Company of New Jersey. For Tomasson, 36, who lives in Demarest with his wife Marlene and his two sons, his appearance with the Classic Ballet is a labor of love. "I live here and I enjoy living here,” he said in a recent interview at his home. "This way I feel I can help promote ballet in the state.” In person, Tomasson is as direct and unaffected as he appears on stage. It’s easy to see why he is not only a dancers dancer, but a choreographer’s dancer as well - one who does not let an overinflated ego interfere with his dancing or with the task of communicating the choreoi intention. One senses from easygoing relationship with his wife ana children that Tomasson is very much a family man who hasn’t let fame go to his head. Tomasson’s unassuming style is not generally the sort that makes frequent See TOMASSON, Page B-12 Tómasson listdansarinn lítilláti hiá New York City Ballet Eftirfarandi grein birtist ný- lega í blaðinu „The Record“, sem gefið er út í New Jersey í Bandaríkjunum. Helgi Tómasson er eftirlaeti annarra dansara, dansari, sem starfsfélagarnir klappa jafnvel fyrir á æfingu eins og gerðist reyndar ekki fyrir löngu hjá New York City Ballet. Helgi var að æfa eitt af dansbrigðum eða einn af ein- dönsum sínum úr „Koppelíu" á sviðinu í New York State Theater við Lincoln Center og fylgdist George Balanchine, dansstjórinn og dansahöfundur- inn frægi, náið með öllu, sem þar fór fram. Leikandi létt tók Helgi hár- fína snúninga í loftinu og hélt síðan áfram með hárnákvæmum og tíðum fótaslætti. Að dansatr- iðinu loknu klöppuðu hinir dans- ararnir, sem þessa stundina stóðu eða lágu iðjulausir hjá sviðinu, honum ákaft lof í lófa. Einn lét eftirfarandi orð falla um frammistöðu hans. „Helgi hefur ósvikna fágun“. Tær og agaður dansstíll Helga Tómassonar, óaðfinnanlegt skyn hans á framvindu tónhendinga og látlaus framkoma hafa ekki aðeins áunnið honum aðdáun jafningja sinna, sem eru senni- lega glæsilegustu gullhamrar, er listdansara verða nokkru sinni slegnir, heldur einnig álit list- dansunnenda. Þeir sem hafa ekki enn haft í huga að sjá Helga Tómasson á þessu dansári New York City-ballettsins við Lincoln Center gætu þess vegna notað tækifærið og séð hann um þessa helgi í Orrie de Noyer Auditorium í Hackensack, þar sem hann mun dansa í „hnetu- brjótnum" með The Classic Ballet Company í New Jersey. Að dómi Helga Tómassonar, 36 ára, sem býr í Demarest ásamt konu sinni, Marlene og sonum sínum tveimur, er þátt- taka í The Classic Ballet í New Jersey kært hugðarefni. „Eg bý hér og nýt þess að búa hér,“ sagði hann nýlega í viðtali heima hjá sér. „Á þennan hátt finnst mér ég leggja eitthvað af mörkum til að stuðla að við- gangi listdans í ríkinu“. Helgi Tómasson er í eigin persónu jafnhreinskiptinn og tilgerðarlaus eins og hann kem- ur mönnum fyrir sjónir á svið- inu. Það er auðsætt, hvers vegna hann er ekki aðeins eftirlæti annarra dansara heldur líka dansahöfunda. Helgi er ekki einn af þeim, sem láta lista- hroka hafa truflandi áhrif á dans sinn eða á það, sem dansa- höfundar ætlast til. Af ljúf- mannlegri sambúð hjónanna og barnanna skynjar maður fljótt, að Helgi Tómasson er góður fjölskyldufaðir og hefur ekki látið frægðina stíga sér til höfuðs. Á þessari stórstjörnuöld list- dansara á lítillæti Helga Tómassonar og hógværð ekki beinlínis upp á pallborðið hjá blaðamönnum. Fregnir um hann hafa engu að síður komizt á forsíður stórKlaða. Fregnin, sem mesta athygli og hrifningu vakti meðal listdansunnenda var fregnin um, að hann hefði unnið silfurverðlaun á fyrstu alþjóð- legu listdanshátíðinni, sem I haldin var í Moskvu árið 1969. Eftir á að hyggja telur Helgi, að Moskva hafi markad þátta- skil í Iifi hans sem listamanns, en í þann tíð gerði hann sér litla grein fyrir því, sem hann átti í vændum. Hann var þá í Harkness Ballet og tók þátt í keppninni aðallega fyrir áeggj- an velgjörðarmanns síns Rebekah Harkness. „I hreinskilni sagt ætluðum við bara að fara þangað og fylgjast með og svo vitanlega að stíga nokkur dansspor", sagði Helgi um leið og Marlene kink- aði kolli til samþykkis. „Jæja, það kom á daginn, að allir aðrir höfðu komið með þjálfara sína með sér og píanó- leikara og í sumum tilvikum heilt lið til að skipuleggja æf- ingar og annað“. Helgi var með Marlene og segulbandstæki. Marlene, sem einu sinni hafði verið listdans- ari, var eina manneskjan, er hann hafði sér til halds og trausts. Hún var allt í öllu, þjálfari og ljósameistari í senn. Þarna voru 89 þátttakendur frá 19 löndum, og Helga og konu hans var ljóst, að sumir dans- endanna höfðu æft árum saman undir þessa keppni. En Helgi tók nú til við æfingar af sinni eðlislægu viljafestu og einbeitni í því skyni að fága dansa sína og slípa. Sem fulltrúi bandarískrar danslistar valdi Helgi fyrst og fremst verk samin af bandarísk- um dansahöfundum eins og t.d. eindans úr „Rómeó og Júlíu“ eftir Norman Walker, eindans úr „Dönsum á samkomunni“ eftir Jerome Robbins og eindans úr „Sylvíu" eftir Balanchine. Hann dansaði líka tilbrigði úr tvídansi (pas de deux) úr „Svarta svaninum", þótt bæði sovézkir sem aðrir listdansarar Austur-álfu væru nákunnugir því sígilda listdansverki. Þótt Helgi væri að keppa við færustu listdansara í heimi, vakti hann fljótt verðskuldaða hrifningu glöggskyggnra áhorf- enda, sem fylgdust jafnt með hverju velheppnuðu spori sem víxlspori. Að danskeppninni lok- inni fékk Helgi silfurverðlaunin og lof Maya Plisetskaya, hinnar miklu listdansstjörnu Bolshoi-leikhússins. Sem einn af listdómendum sagði ungfrú Plisetskaya „í hvert skipti, sem hann dansaði, gaf ég honum tólf“ (hæst einkunn, sem hægt er að fá). Gullverðlaunin féllu hins veg- ar Mikhail Baryshnikov í skaut. Velgengni Helga í Moskvu jafngilti í rauninni viðurkenn- ingu heimsins á bandarískum listdansi, sem var þá tiltölulega ung listgrein þar í landi, og um leið var undirstrikuð sú stað- reynd, að þeir ættu listdansara á heimsmælikvarða. Fyrir Helga voru silfurverð- launin viðurkenning á hæfileik- um hans og möguleikum á sviði listdans. Innan árs var hann ráðinn til New York City Ballet sem aðaldansari og þar með hófst glæsilegt tímabil í listsögu hans. Um tíma hélt Helgi, að draumurinn um að komast í New York City Ballet mundi aldrei rætast. Borinn og barn- fæddur á Islandi byrjaði hann að stunda listdans um það bil 10 ára gamall eftir að hafa séð listdanssýningu í Þjóðleikhúsi íslendinga. Dönsk hjón ráku þá dansskólann þar og Helgi var upphaflega eini drengurinn í skólanum þ.e.a.s. eini drengur- inn í öllu landinu, sem var að læra listdans. „Listdans var óþekkt listgrein á íslandi, þegar ég byrjaði," segir Helgi og bætir því um leið við, að sér hafi verið strítt heilmikið. „En ég hugsa, að það hafi bara stappað í mig stálinu og þrjózkunni og ég ákvað að gefast ekki svo auðveldlega upp.“ Skólinn var aðeins rekinn á veturna vegna þess að kennara- hjónin fóru til Kaupmannahafn- ar á hverju sumri vegna samn- inga, sem þau höfðu gert um listdanssýningar þar í borg. Helgi var því vanur að leika knattspyrnu á sumrin og taka svo aftur til við listdansæfingar á haustin, sem tæplega getur talizt heppilegur undirbúningur fyrir þann, sem ætlar sér að komast langt í listinni. En í þá daga segist Helgi ekki hafa sett markið svo hátt. Það var ekki fyrr en hann var orðinn 15 ára gamall og dönsku hjónin tóku hann með sér til Danmerkur um sumarið og hann fór að dansa með listdans- flokknum í Tivoli í Kaupmanna- höfn, að hann fór að hugsa um það fyrir alvöru að gerast list- dansari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.