Morgunblaðið - 09.03.1979, Side 10

Morgunblaðið - 09.03.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979 Guðmundur Daníelsson: Rissað eftir lestur, Ramma slags Einars Pálssonar „Er pabbi þinn nú farinn að gráta með Einari Pálssyni?" spurði einn sögukennarinn í Reykjavík dóttur sína eftir að fyrsta grein mín um Rætur íslenskrar menningar birtist í Morgunblaðinu 19. febr. 1977. Þetta minnir mig á spurningu Gunnars Lambasonar meðan Njálsbrennu var að ljúka: „Hvort grætur þú nú, Skarp- héðinn?" „Eigi er það,“ segir hann, „en hitt er satt, að súrnar í augunum. En hvort er sem mér sýnist, hlær þú?“ „Svo er víst,“ segir Gunnar. Við munum hvurnin þeim hlátri lauk og er óþarft að rekja þá sögu lengra. En ég ráðlegg sagnfræðingnum og sögu- kennaranum að tala sem fæst um „grát“ okkar Einars, hætta að hlæja og gæta framvegis auga síns — að það liggi nú ekki út á kinn einhvurn daginn. Ennþá hefur kennarinn tíma til að endurskoða með auganu barnalærdóm sinn um menningararf okkar — um söguna bak við söguna. Það er ré„t, að mér og mjög mörgum öðrum súrnar í augum menningarsögulegt uppeldi ís- lendinga. Fram til þessa dags hefur hlutur Heimspekideildar Háskóla Islands í því uppeldi verið svo heimaalningslegt, grunnfært og sjálfumglatt, að þegar maður á borð við Einar Pálsson kemur fram á svið norrænna fræða með mörg- þúsund blaðsíðna fræðirit um rætur íslenskrar menningar og sviptir tjaldinu frá leiksviði hugmyndafræði og heims- myndar fornaldar og miðalda og sannar með óteljandi rökum og dæmum, að menning landnáms- manna Islands: trúarbrögð, stjórnskipan og skáldskapur, er í órofa tengslum og samhengi við hámenningu allra helstu og kunnustu menningarsamfélaga heims svo langt aftur sem menningarsagan verður rakin aftur í aldirnar, þá setur alla lærifeður okkar steinhljóða. Þeir loka jafnvel augunum og neita að sjá. Hugskot sumra þeirra fyllist blygðunarfullri reiði. Kannski er þeim nokkur vorkun. Fallið hjá þeim sem hæst hafa trónað meðal skýrenda fornbókmennta okkar og þjóðfélagssköpunar á lands- námsöld, það er hátt og líklega sársaukafullt. Það er stórum hrikalegra en þegar stalínist- unum okkár var allt í einu tilkynnt það frá sjálfu háaltari Kremlarmusteris, að messías þeirra hefði verið blekking, — hin dýrðlegi súperguð þeirra hefði enginn guð verið, heldur blóðþyrstur valdaræningi og beinlínis andstæða alls, sem þeim hafði áður verið kennt að hann væri. Bækur Einars Pálssonar eru mestu byltingarrit, sem prentuð hafa verið á Islandi, og þau hafa heimssögulegu hlutverki að Guðmundur Daníelsson gegna, þar sem þau ljúka upp ótal dyrum, sem fram til þessa hafa verið læstar og innan þeirra dyra geymst ráðning eða lausn á mjög mörgum óráðnum gátum varðandi hámenningu fyrri alda víða um heim. Fyrir okkur íslendinga er þetta þeim mun merkilegra fyrir þá sök, að lyklana hefur Einar fundið í fornritum okkar, svo sem Njálu, Snorra-Eddu og Landnámu. En þó að rit Einars séu byltingarrit, þá er ekki þar með sagt, að þau muni valda neinum aldahvörfum í heimspólitískum skilningi. „Mitt ríki er ekki af þessum heimi," gæti Einar sagt, Einar Pálsson éins og annar byltingamaður sagði við andstæðinga sína fyrr á tíð, menn sem ekki vildu skilja og ekki sjá, af því það var andstætt því, sem gert hafði þá að lærifeðrum lýðsins. Og eitt er víst: Einar Pálsson hefur ekki skrifað sínar mörg- þúsund blaðsíður um rætur ís- lenskrar menningar — hug- myndafræðina að baki menningarinnar — í þeim til- gangi að gera einn eða annan doktor eða prófessor okkar að viðundri, tilgangur hans er að bregða ljósi á það sem myrkri var hulið. Hann er ekki kominn til að niðurbrjóta „lögmálið", heldur til að fullkomna það. Vera má, að mörg ár líði þar til upp vaxa í norrænni hug- myndafræði og menningarsögu íslands lærdómsmenn, sem kjark hafa til að viðurkenna þann sannleika, sem Einar hefur leitt í ljós. Þó mun sá tími vissulega koma. Þá verður Völu- spá og önnur Edduljóð gefin út með öðrum og æði frábrugðnum skýringum þeim sem nú eru prentaðar úti á spásíum skóla- útgáfunnar á þessum gullaldar- arfi okkar. Skýringarnar með skólaútgáfum Njálu munu einn- ig breytast. Einar Pálsson hefur gert Njálu margfalda í roðinu, ef ég má taka svo óguðlega til orða. Sesam Snorra-Eddu mun ljúkast upp. Rammislagur heitir síðasta bindið, sem birst hefur til þessa í ritsafninu Rætur íslenskrar menningar. Það er hið 5. í röðinni, það er á 5. hundrað blaðsíður. Lesið hef ég öll bindi verksins. Ég get vel ímyndað mér að sumum finnst ýmsir þættir þess flóknir, ekki síst tölvísin forna. Stærðfræðingur þarf maður þó ekki að vera til að skilja hugmyndakerfið sem hún er byggð á, öðru máli gegnir um það hvurnin gömlu mennirnir fóru að því að beita henni við gerð ákveðinna mannvirkja og mælinga. Um það efni leiði ég hjá mér öll heilabrot. Ég býst við að töluverð einbeiting hugans sé nauðsynleg til þess að týna ekki þræðinum og villast í því mikla hugmyndafræðilega og goðfræðilega völundarhúsi, sem rit Einars eru orðin. Það verður enginn lærður í þessum fræðum með því að hraðlesa þau einu sinni, kinka kolli og leggja þau síðan frá sér. En trúlegast þykir mér, að margir ís- íendingar muni síðar meira verja doktorsritgerðir um efni úr ritum Einars Pálssonar. Og Ríkharður Kristjánsson verkfræðingur: Um viðgerðir á steypuskemmdum í Morgunblaðinu 24.02. er grein eftir Jón J. Fannberg, þar sem hann lýsir viðgerðaraðferð, sem hann beitti til að þétta lekt hús. Jón skrifar greinina vegna sjón- varpsviðtals, sem haft var við undirritaðan vegna umfangsmik- illar skýrslu, sem Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins gaf út og fjallar um skemmdir á steyptum mannvirkjum. I viðtal- inu svo og skýrslunni var m.a. rætt um aðgerðir til að stöðva alkali- efnahvörf, þar sem þau hafa komið fram og var sagt að stofnunin teldi loftræsta klæðningu einu lausn- ina, sem hægt væri að álíta örugga út frá þeirri vitneskju, sem við höfum í dag. Þar með á ekki að vera sagt, að við teljum enga aðra lausn koma til greina heldur ein- göngu það, að við höfum ekki nógu mikla reynslu af öðrum aðferðum til að geta mælt með þeim. Engu að síður leitum við að fleiri aðferð- um og fylgjumst með viðgerðum og njótum aðstoðar ýmissa aðila þ.á m. byggingadeildar Reykjavík- urborgar. Stofnunin er öllum þakklát fyrir upplýsingar um viðgerðaraðferðir, sem menn kunna að hafa beitt og hvaða árangri þeir hafi náð, ekki síður þó hann hafi verið neikvæð- ur. Við viljum því hvetja alla, sem yfir slíkum upplýsingum búa að koma þeim á framfæri annað hvort opinberlega eða við undirrit- aðan einkum ef menn telja sig hafa verið að glíma við alkali- skemmdir. Stofnuninni er því mið- ur ekki gert kleift að stunda nema brot af þeim rannsóknum, sem sinna þyrfti, og því liggja brýn rannsóknaverkefni óhreyfð. Þó margir telji ofvöxt hlaupinn í ríkiskerfið hefur sá vaxtakippur ekki megnað að gera meðalmann úr þeim dvergi sem byggingar- rannsóknir hafa verið. Líti menn á þær fjárupphæðir, sem árlega eru festar í steinsteypu og það tjón, sem menn hafa þegar orðið fyrir hljóta allir að sjá, að vart verður gengið áfram í blindni á sömu hraut. Ég mun nú reyna að taka af- stöðu til þeirrar viðgerðaraðferð- ar, sem Jón lýsir í grein sinni þann 24.02., en vil byrja á nokkrum almennum orðum um skemmdir á steyptum mannvirkjum. Orsakir skemmdanna geta verið mjög margvíslegar og grundvallar- munur er oft á þeim viðgerðarað- ferðum, sem við eiga í hvert sinn. Lekar sprungur geta stafað af rýrnun í steypunni. Sé eengin hætta á hreyfingu á sþrungunni getur nægt að bursta sementsefju inn í sprunguna með hörðum bursta Sprungum, sem stafa af hitaþenslum verður að loka með teygjanlegum efnum. Sprungur sem stafa af jarðskjálfta, spreng- ingum eða og miklu álagi, sem ekki er hætta á að endurtaki sig, er hægt að líma saman með epoxiefn- um. Sprungur, sem stafa af alkali- efnahvörfum verður að gera við á þann hátt að rakinn í steypunni fari niður fyrir það magn, sem þarf til að halda efnabreytingunni gangandi og það er mergurinn málsins. Það vandamál, sem Jón lýsir í grein sinni er leki í gegnum út- veggi og þak í rigningu, á ekkert skylt við alkaliskemmdir sem er fremur hægfara niðurbrot á steyp- unni og veldur yfirleitt ekki leka fyrr en tiltölulega seint. Spurning- in er, hvort sú aðferð sem Jón lýsir gæti einnig dugað hér. Aðferðin var fólgin í því að bera asfalt- eða tjöru-emulsion á veggi og þök. Með þessu tókst að þétta húsið algjör- lega gegn regni og Jón telur að með þessu móti séu veggirnir þéttir að utan þ.e. að þeir hleypi ekki heldur í gegnum sig vatns- gufu innan frá. Að vísu gat höf- undur ekki fengið upplýsingar um gufuþéttleika efnisins en að öllum líkindum er hann hár og við skulum líta svo á sem efnið hleypi hvorki vatni né vatnsgufu í gegn- um sig. s Ég vil því fjalla um tvær spurn- ingar: a: Er hægt að gera við alkali- skemmdir með því að mála húsin með algjörlega þéttu efni. b: Er ráðlegt að þétta húsin gegn regni með algjörlega þéttu efni þ.e. efni sem hefði álíka eiginleika og epoxyefni). Fyrri spurningunni svara ég afdráttarlaust neitandi og álít aðferðina fremur hættulega en hitt. Að vísu álít ég, að meirihluti rakans í útveggjum húsa stafi af slagregni, ýmiss konar lekum sprungum og oft lélegum frágangi á þakköntum og brúnum. Ef alkaliefnabreytingar eru í gangi er alla vega nógur raki til staðar. Ef við lokum veggnum kemst þessi raki ekki burt jafnvel þó ekkert bættist við utan frá og efnabreyt- ingin gæti haldið áfram. Hins vegar er hætta á að raki bætist við utan frá. Sprungur gætu komið í þétta lagið t.d. yfir alkalisprung- um í steypunni. Þessar sprungur sjúga í regni vatn inn með hár- pípukrafti. Útþornunin fer hins vegar fram með útgufun (diffusion), sem er mjög hæg og nær engin, ef yfirborðslagið er gufuþétt. Því er hætta á að rakinn í veggjunum aukist jafnvel, án rakans innan frá. Hvað síðari spurningunni við- kemur þá stöndum við þar frammi fyrir því vandamáli hvort hættu- laust sé að loka veggnum algjör- lega að utan. Eins og áður sagði þá er hætta á að vatn geti komist inn í vegginn gegnum sprungur en komist erfiðlega í burtu aftur og auki þannig smam saman rakann í veggnum. Við þetta bætist síðan rakinn innan frá. Eins og Jón segir í grein sinni er kennt í fræðibókum, að ytri áferð útveggja íbúðarhúsa þurfi að vera þannig að vatnsgufa geti komist út og er þá sagt að veggurinn geti andað. Vegna mismunandi gufuþrýst- ings inni og úti á sér stað stöðugt streymi á milli sem leitast við að jafna út þennan þrýsting. Yfirleitt er þetta gufustreymi út á við en getur þó snúist við á einstaka sumardögum. Það er hins vegar háð ýmsum þáttum hversu mikið þetta streymi er og hvaða leið það fer. Ef lágt rakastig er inni og loftræsting góð er lítið raka- streymi út í gegnum vegginn og ekkert ef rakaþétt lag er innan á veggnum. Ef rakaþétt lag er utan á veggnum er hins vegar hætta á að þétting eigi sér stað í veggnum líkt og innan á köldum rúðum, og hann mettist hægt og hægt af raka. Það getur hins vegar tekið langan tíma uns einhver merki fara að sjást um þann raka innan á veggnum. Fyrr gætu menn veitt því athygli að einangrunargildið minnkar og hitakostnaður eykst, vegna raka í einangrun, einnig eykst hættan á frostskemmdum í yfirborði útveggsins, svo og flögn- un rakaþétta lagsins frá steyp- unni. Það er óþarfi að skapa sér slíka hættu ef komast má hjá því, enda eru lek hús ekkert náttúru- lögmál heldur tæknilegt vanda- mál, sem oftast á orsök í rangri hönnun eða útfærslu. Ríkharður Kristjánsson, verkír. Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.