Morgunblaðið - 09.03.1979, Síða 12

Morgunblaðið - 09.03.1979, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979 Þórarinn Þórarinsson fyrrverandi skólastjóri: Frekari vitni Þeim ófáu Islendingum sem enn eru vantrúaðir á skýrslur og álykt- anir íslenskra skógræktarmanna skal nú bent á skýrslu sem tæplega verður véfengd eða talin samin af óskhyggju eða með eigin hagsmuúi i huga. Að beiðni íslensku ríkisstjórnar- innar og Skógræktar ríkisins sendi Matvæla- og iandbúnaðarstofnun Sameinuðu Þjóðanna, jafnan köll- uð FAO, skógræktarsérfræðing sinn, R.L. Willan að nafni, hingað til íslands haustið 1971, til þess að gefa skýrslu um núverandi ástand skógræktar á Islandi og jafnframt til að gefa leiðbeiningar um fram- vindu skógræktar þar. Skýrsla þessi, sem er all ítarleg, kom út næsta ár, eða 1972. Höfundur segir í upphafi skýrslu sinnar að hinn takmarkaði tími hafi komið í veg fyrir að unnt hafi verið að ferðast um alla landshluta. Skoðuð hafi verið ýmis svæði á Suðvesturlandi Efri myndin: — Gróðursetning hefst á fyrsta skipulega bændaskógin- um á íslandi 25. júní 1970. Bændurnir á Víðivöilum í Fljótsdal. Rögnvaldur Erlingsson (t.v.) og Ilallgrímur Þórarinsson (t.h.) setja niður fyrstu lerkiplönturnar. (Ljósm.: Halldór Sigurðsson). Neðri myndin: — Ungur lerkiskógur á Víðivöllum í Fljótsdal. vaxinn upp af plöntunum. sem gróðursettar voru 25. júní 1970. Myndin er tekin í október 1978. (Ljósm.: Sig. Blöndal). 1978 44.188,9 tonn af trjáviði og korki og svarar sú þyngd til um 73 þús. m3. Fyrir þetta magn guldu þeir 37,6 milljarða króna, eða sem svarar 169 þús. kr. fyrir hvert mannsbarn í landinu. Við þennan trjávöruinnflutning má raunar bæta vörum sem unnar eru úr úrgangstrjávið, svo sem pappír og pappírsvörum, en fyrir þann inn- flutning borguðu íslendingar eina litla 53 milljarða á því herrans ári 1978. í framhaldi af því sem hér hefur verið sagt um arðsemisútreikning nytjaskógræktar, má til gamans geta þess að í Hallormsstaðaskógi standa nokkur barrtré sem gróð- ursett voru 1905 er hafa náð 16 metra hæð og með um eins ten- ingsmeters viðarmagni. Með nú- verandi verði á óunnu timbri, um 70 þús. kr. pr. m3 mundi eitt slíkt tré leggja sig á 35 þús. kr. miðað við 50% nýtingu eins og Willan gerir í sínum arðsemisútreikning- um og fyrr er getið. Hér er átt við þann hluta trjástofnsins, sem fer til sögunar. Hinn helmingurinn fellur til sem hráefni, fyrir trjá- vöruiðnað. Úr einu slíku tré mætti búa til pappír í 2347 Morgunblöð 142 gr. að þyngd. Upphaf nytja- skógræktar á íslandi Óvíst er að öllum sé um það kunnugt að fyrir níu árum, eða vorið 1970 var hafin nytjaskóg- rækt sem aukabúgrein í einni sveit á íslandi, eftir svokallaðri Fljóts- dalsáætlun. Ný búgrein — nytiaskógrækt Fyrir atbeina skógræktar ríkis- ins og Skógræktarfélags íslands fékkst í fjárlögum fyrir árið 1969 tekin inn fjárveiting til tilrauna með nytjaskógrækt í löndum bænda í Fjótsdal, (í fjárl. 1979 er upphæðin 4.5 millj.) Fjárveiting þessi var byggð á áætlun skógræktar ríkisins, um skipulega skógrækt og búskap í einum hreppi eða byggðarlagi á Fljótsdalshéraði, t.d. íN Fljótsdal. Fyrstu girðingunni var lokið 1970 og þar hafin gróðursetning lerki- plantna, en sú viðartegund ber af um vöxt, og viðgang á þessum slóðum svo sem sjá má af skýrslu Sig. Blöndals hér að framan. Alls hafa nú verið girtir um 120 ha. á fimm bæjum og er í áætlum girðingar á fleirum. Girðingar þessar eru frá 3 til 58 ha. á bæ og í þær hafa verið settar nær 250 þús. plöntur og hafa elstu trén nú náð um 3.5 m. hæð, sum hver. Skóg- ræktarmenn, sem fylgst hafa með girðingum þessum telja árangur- inn frábæran, síst veíri en í Hallormsstaðaskógi. Skógrækt þessi fer fram með þeim hætti að Skógrækt ríkisins, með atbeina fjárveitingarinnar frá Alþingi, sem fyrr er nefnd, kostar girðingar og plöntun að fullu en fær fyrir, þegar þar að kemur, 10% af brúttóarði. Bændur sjá hins vegar um allt eðlilegt viðhald. Svo gæti virzt í fljótu bragði að fyrirkomulag þetta væri væntan- legum skógarbændum mjög í hag, þar sem þeir hirða 90% af væntan- legum arði án nokkurs stofnfram- lags, annars en þess að leggja til land undir skógræktina, þá ber að hafa í huga, að auk þess að skerða land sitt til venjulegrár búvöru- framleiðslu, taka þeir á sig skuld- bindingar um viðhald girðinganna. Þá ber einnig þess að gæta að þessir bændur geta ekki vænst neinna afurða fyrr en eftir 10—15 ár og ekki fullra fyrr en eftir 40—50 ár eða jafnvel lengur. Þeir alheimta ekki daglaun sín að kvöldi og sumir máski aldrei. Með það í huga sem hér hefur verið sagt, er sjálfsagt að þessum mönn- um sé veitt aðstoð og því meiri, sem þeir leggja meira fram af löndum sínum, eins og ráð er fyrir gert í Fjótsdalsáætluninni. Þess og mestur hluti skógræktarinnar á Hallormsstað. Verða hér á eftir rakin nokkur atriði úr skýrslu þessari sem koma sérstaklega inn á það mál sem hér er til umræðu, nytja.skógrækt á Islandi. Tilvitnanirnar eru orð- réttar en merkt með ... ef sleppt er úr. „Notagildi birkiviðar er tak- markað. Hann var áður notaður til eldiviðar, en eftirspurn eftir hon- um er úr sögunni, en er nú notaður til girðingastaura og renni-smíði. Mestur hluti viðarnotkunar er barrviður, og öll ræktun innlends barrviðar mun verða verðmætt framlag til þjóðarframleiðslunnar og spara erlendan gjaldeyri. Á Hallormsstað hafa hinar fyrstu 30 ára grisjanir af lerki og furu verið sagaðar borðvið. Þetta svæði lofar nú mestu um samfellda nytjaskóg- rækt í framtíðinni. — Lerkið hefur vaxið að meðaltali 6,9 m3 /ha á ári í þau 33 ár, sem liðin eru frá gróðursetningu þess á Hallorms- stað, en sá staður, sem það vex á er talin í betra meðallagi. I saman- burði við vaxtatöflur frá Norr- landi og Dalarna í Svíþjóð (Edlund 1966) sést að hæðarvöxtur Hall- ormsstaðasvæðisins er jafn vaxt- arflokknum 18 (hæð 18 m við 50 ára aldur) í Svíþjóð sem er mjög nálægt meðaltali fyrir sænska tilraunafleti norðan 64. breiddar- gráðu...Það er gild ástæða til að reikna með meðalársvexti, sem svari til 4 m3 fyrir öll svæði á Hallormsstað, og minnsta kosti 6 m3 á bestu svæðunum ... Vaxtatöl- ur fyrir stafafuru, eru ekki eins ýtarlegar, en mesta hæð og meðal- þverml um 30 ára aldur eru mjög nálægt vaxtarflokki 4 í Stóra-Bretlandi (Bradley et. al., 1971), þar sem vænta má í mesta lagi um 4 m3 meðalársvaxtar á 70 árum.“ Síðari hluti Skógar til tímburframleiðslu — áætlanir til fárra ára (Kaflafyrirsögn skýrsluhöf.) Sem stendur er Hallormsstaður og nágrenni það svæði, þar sem auka má plöntun nú þegar í þessum tilgangi með öruggri vissu um góðan árangur. Að áætlaðri plöntun í einka-eign (Fljótsdals- áætluninni) ætti að vera vandalít- ið að fá 1000 ha. af landi sem hæft er til skóggræðslu á Fljótsdalshér- aði milli Egilsstaða og Hallorms- staðar ... Sá íbúafjöldi sem vænt- anlega er hægt að sjá fyrir viðar- afurðum frá þessu svæði, yrði sem hér segir: Ár Gróöur- Meðal Efni til setningar ársvöxtur sögunar (ha) (m^/ha/ár) (stofnar) 1990 750 4 3000 2000 1000 4 4000 Þótt skýrsla þessa sérfræðings FAO-stofnunarinnar verði ekki rakin frekar, ætti mönnum að vera orðið ljóst hvaða skoðun þessi maður hefur á framtíð íslenskrar nytjaskógræktar. Benda má á, í því sambandi, að skýrsluhöfundur virðist vera afar varfærinn í álykt- unum sínum sínum og arðsemisút- reikningi. Hann reiknar t.d. aðeins með 4 m35 ársvéxti á ha. þótt, eftir því sem hann segir sjálfur, hafi hann um 33 ára bil verið 6.9 m3 á Hallormsstað. Þá er það og athug- andi að þegar Willan ætlar 2 m3 sögunarvið af hverjum ha. eru aðrir tveir nothæfir sem hráefni til trjávöruiðnar. Hvað pýða pessar tölur Svæði það sem skýrsluhöf. talar um og segir hæft til ræktunar nytjaskógar, milli Egílsstaða og Hallormsstaða, er af kunnugum talið um 21 þús. ha. Við þá tölu má bæta 6 þús. ha. í Fljótsdal, því viðurkennt er að skógræktarmögu- leikarnir verða því meiri sem ofar dregur á Héraði. Verða það því samtals 27 þús. ha. neðan 150 m. hæðarlínu sem til nytjaskógrækt- ar eru fallnir á Fljótsdalshéraði að mati hins erlenda sérfræðings. Við þessa 27 þús. ha. má, að dómi Hákonar Bjarnasonar, bæta öðr- um 32 þús. hö. í Árnessýslu og Borgarfjarðardölum, sem muni henta enn betur til nytjaskógrækt- ar en nokkurntíma Hallorms- staðasvæðið. Samtals yrðu það því um 59 þús. ha. á landinu öllu að dómi þessara tveggja skógræktar- Sagað Meðal ár- íbúar efni m Vi leg notkun alls árlega m'Á árlega á íbúa m Vi 1500 0,25 6000 2000 0,25 8000 manna, sem hæfir eru til þessarar ræktunar. I viðauka við skýrslu Willans, sendimanns FAO, er sagt að með- alviðarnotkun íslendinga á árun- um 1965—69 hafi verið 54,4 þús- und teningsmetrar á ári og með hans arðsemisútreikningi, 4 m3 á ári af hverjum hektara, mætti fá þetta viðarmagn af 26 þús. hö. lands, en það þýðir að á þeim 59 þús.-hö. sem til nytjaskógræktar eru taldir hæfir, mætti framleiöa rúmlega tvisvar sinnum það viðar- magn sem flutt var inn fyrir tíu árum síðan. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar fluttu Islendingar inn Tré í 10 ára gömlum lerkiskógi í landi llafursár. Krókstafurinn, sem hangir í trénu til hægri er rúmur einn metri á lengd. (Ljósm.: Sig. Blöndal).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.