Morgunblaðið - 09.03.1979, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 09.03.1979, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979 17 Fjármálaráðherrar EBE vilja EMS í næstu viku Washington, 8. marz, AP. Fjármálaráðherrar ríkja Efnahagsbandalagsins (EBE) hafa lagt til við ríkisstjórnir sínar, að gjaldeyriskerfi Evrópu, EMS, fari af stað í næstu viku, að því er Hans Matthöfer, fjármála- ráðherra Vestur-Þýzka- lands, tilkynnti eftir fund ráðherranna sem staddir eru í Washington. Talið er nær öruggt, að farið verði að ráðum fjár- málaráðherranna á fulltrúa- fundi EBE í París á mánudag og þriðjudag. Matthöfer sagði, að EMS yrði formlega tekið í notkun í næstu viku, nákvæm dagsetning skipti ekki máli, og að seðlabankar ríkjanna miðuðu viðskipti sín nú þegar við að kerfið væri í notkun. Eftir er að ganga frá nákvæmum gengisskráning- um milli gjaldmiðla EMS. Einstökum gjaldmiðlum, öðr- um en ítölsku lírunni, verður leyft að „flökta“ um 2,5 af hundraði til og frá hinni eiginlegu skráningu. Stefnt er að því, að í fyllingu tímans hafi ríkin öll einn og sama gjaldmiðilinn, en það getur ekki orðið að raunveruleika fyrr en gengis„flöktið“ hættir. McNamara vill aukna aðstoð við þróunamki Bonn, 8. marz. Reuter. ROBERT McNamara for- seti Alþjóðabankans skor- aði í dag á Bandaríkin, Japan og Vestur-Þýzka- land að auka aðstoð sína við þróunarlönd heims. Þetta geróist 9. marz 1977— Aflétt banni við ferðum Bandaríkjamanna til Kúbu, Víet- nams, Norður-Kóreu og Kambódíu. 1971 — John Gorton, forsætisráð- herra Ástralíu, segir af sér. 1970 — Bandaríkin loka ræðis- mannsskrifstofu sinni í Salisbury. 1969 — Forseti egypzka herráðs- ins, Riad hershöfðingi, fellur við Súez. 1963 — Bidault, andstæðingur De Gaulles, handtekinn í Þýzkalandi. 1956 — Makarios erkibiskup flutt- ur frá Kýpur til Seychelles-eyja. 1942 — Japanir leggja undir sig Jövu. 1932 — Japanir stofna leppríki í Mansjúríu — De Valera kosinn forseti írlands. 1916 — Árás Pancho Villa á Columbus, Nýju Mexíkó. 1905 — Japanir sigra Rússa við Mukden. 1876 — Fjöldamorð Tyrkja á Búlgörum hefjast. 1862 — Fyrsta orrusta brynvar- inna skipa: viðureign „Monitor" og „Merrimac" við Hampton Roads. Virginíu. 1860 — Fyrsti sendiherra Japana kemur til San Francisco. 1846 — Fyrra Síkha-stríðinu lýkur með Lahore-samningnum. 1796 — Napoleon kvænist Jósefínu. 1566 — David Rizzo, ritari Maríu Skotadrottningar, myrtur. Afmæli: Amerigo Vespucci, ítalsk- ur sæfari (1451—1512) — V.M. Molotov, rússneskur stjórnmála- leiðtogi (1890----) — Samuel Barber, bandarískt tónskáld (1910---). Andlát: Mazarin kardináli, stjórn- skörungur, 1661. Innlent: Landhelgissamningur við Breta samþykktur á Alþingi 1961 — Þrjú hús brenna í Lækjargötu og Iðnaðarbankahúsið stórskemm- ist 1967 — Útför Davíðs Stefáns- sonar frá Fagraskógi 1964 — d. sr. Friðrik Friðriksson 1961 — Símon Dalaskáld 1916 — Björn Markús- son lögmaður 1791 — Sjö skip frá Stafnesi með 70 mönnum fórust 1685 — d. Snorri Narfason lög- maður 1332 — Sverrir konungur 1202. Orð dagsins: Hugsaðu ranglega, ef þér sýnist, en umfram allt hugs- aðu sjálfstætt — Gotthold Less- ing, þýzkt leikritaskáld (1729-1781). McNamara sagði að framlag ríkjanna þriggja á síðustu níu árunum væri undir þeim takmörk- um sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hefði sett á sínum tíma. Þar var kveðið á um að iðnaðarríki heims verður 0,7 af hundraði þjóðarframleiðslunnar til aðstoðar við þróunarríki. Iðnaðarríki heims hafa að jafn- aði aðeins veitt um 0,35 af hundr- aði þjóðarframleiðslu sinnar til aðstoðar við þróunarlönd. Fram- lag Bandaríkjanna, Japans og Vestur-Þýzkalands hefur aldrei 'náð því hlutfalli, heldur verið lægra, að sögn McNamara. Eiga ad storka sovézkum herskipum? Tókýó, 8. marz, AP. KÍNVERSKUM fiskibátum hefur fjölgað mjög upp á síðkastið í Tsushima-sundi milli syðstu eyju Japans, Kyushu, og Suður-Kóreu. í gær voru þeir orðnir 221 og hafði fjölgað úr 180 næsta dag á undan. Talsmaður japönsku siglinga- málastofnunarinnar sagði, að bát- arnir væru allir á reki á sundinu, en ekki við veiðar. Hann sagði að þeir hefðu byrjað að venja komur sínar í sundið um miðjan síðasta mánuð. Það væri þó ekki á valdi stofnunarinnar að segja um hvort tilvera þeirra á sundinu væri eitt- hvað tengd stríði Kínverja og Víet- nama sem braust út 17. febrúar. Talsmaðurinn sagði hins vegar, að kínversku fiskiskipin hefðu látið reka á siglingaleið rússneskra her- skipa, þegar þau héldu til Suð- ur-Kínahafs og Austur-Kínahafs eftir að stríð Kínverja og Víetnama brauzt út. „Okkur kemur ekkert við hvað bátarnir eru að gera þarna," sagði talsmaðurinn. en bætti við, að japanskir varðbátar hefðu þó eftir- lit með þeim til að ganga úr skugga um að kínversku bátarnir færu ekki í óleyfi inn í japanska landhelgi. Kínversku fiskveiðiskipin eru flest frá Shanghai og nálægum eyjum. Brandt að skilja Bonn, Vestur-Þýzkalandi, 8. marz. AP WILLY Brandt, fyrrverandi kanzlari Vestur-Þýzka- lands, og eiginkona hans Rut, hafa nú sótt um skilnað, að því er skrifstofa Brandt tilkynnti í dag. Þau hafá verið gift í 31 ár og eiga saman þrjá syni, Peter, Lars og Matthias. Engar ástæður voru gefnar fyrir skilnaðarumsókn- inni. Brandt hitti konu sína árið 1944 í Svíþjóð og giftust þau þremur árum seinna í Berlín. Árið 1944 skildi Brandt við fyrri konu sína, sem einnig var norsk. Eina dóttur átti Brandt við fyrri konu sína, sem einnig var norsk. Eina dóttur átti Brandt með þeirri konu og starfar hún sem kennari í Noregi. Brandt er leiðtogi vestur-þýzkra jafnaðarmanna. Hann tók upp þráðinn að nýju við flokksstörfin í síðustu viku, eftir fjarveru frá því í nóvember sl., en þá fékk hann aðkenningu að hjartaslagi. Gagnkvæmt traust Sparilánakerfi Lands- bankans hefur frá byrjun árið 1972, byggst á gagn- kvæmu trausti bankans og viðskiptavinarins. Ef þú temur þér reglu- semi í viðskiptum, sýnir Landsbankinn þér traust. Landsbankinn biður hvorki um ábyrgðarmenn né fasteignarveð. Einu skilyrðin eru reglu- bundinn sparnaður, reglusemi í vióskiptum, - og undirskrift þín og maka þíns. Biðjið Landsbankann um bæklinginn um sparilánakerfið. Sparifjársöfnun tengd rétti til kui i rtJ P Sparnaður þinn eftir 12 mánuöi 18 mánuði 24 mánuði Mánaðarleg innborgun hámarksupphæö 25.000 25.000 25.000 Sparnaður í lok tímabils 300.000 450.000 600.000 Landsbankinn iánar þér 300.000 675.000 1.200.000 Ráðstöfunarfé þitt 1) 627.876 1.188.871 1 912.618 Mánaðarleg endurgreiðsla 28.368 32.598 39.122 Þú endurgreiðir Landsbankanum á 12 mánuðum á 27 mánuðum á 48 mánuðum 1) í tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta breytzt miðað við hvenær spamaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma. LANDSBANKINN Sparílán - tiygging í framtíð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.