Morgunblaðið - 09.03.1979, Side 40
L' .
Tillitssemi
kostar
ekkert
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp og hljómtæki.
Skipholti 19
V Buoin sími
^ 29800
FÖSTUDAGUR, 9. MARZ 1979
Ófært um Suður- og Vesturland:
Bílar yfirgefnir og fólk
teppt fjarri heimilum
MJÖG miklir samgönguerfiðleikar urði í gærdag og
-kvöld á Suður- og Vesturlandi vegna snjókomu og
hvassviðris og var búizt við að það myndi færast norður
og austur yfir landið í dag og snúast meir til norðanátt-
ar. Vegagerðarmenn og björgunarsveitarmenn unnu að
því að aðstoða fólk á leið heim og átti t.d. að reyna að
koma starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli til Reykjavík-
ur. Varð að hverfa frá því þar sem Reykjanesbrautin var
ófær og starfsmönnum komið fyrir til gistingar á
Vellinum, m.a. í bíóinu þar.
úr Mosfellssveit sem sóttu skóla
í Reykjavík heim og varð að
útvega þeim gistingu í Reykja-
vík. Félagsstarfi á Reykjavíkur-
svæðinu var að mestu leyti
aflýst.
A Akureyri var ekki teljandi
snjókoma, en hvassviðri og var
veðrið að herða þar í gærkvöldi.
Ekki höfðu orðið þar teljandi
samgönguerfiðleikar.
Sjá Ófærð í Reykjavík
bls. 20-21.
Fíkniefnamálið:
Að sögn vegaeftirlitsmanna
var nánast ófært um allt Vestur-
og Suðurland allt til Kirkju-
bæjarklausturs. Áætlunarbílar á
leið á Snæfellsnes og Dali urðu
að snúa aftur til Reykjavíkur í
Hvalfirði í gærmorgun og sömu-
leiðis bílar frá Borgarnesi á leið
til Reykjavíkur. Ofært var til
Keflavíkur sem fyrr sagði en þar
voru margir bílar fastir og yfir-
gefnir og hættu vegagerðarmenn
aðstoð um kvöldið, og sást vart
úr augum fyrir hríðinni.
Menn úr björgunarsveitinni
Kyndli í Mosfellssveit aðstoðuðu
lögregluna í Mosfellssveit við að
koma fólki heim úr bílum er
stöðvuðust í ófærðinni við Blika-
staði, en Vesturlandsvegurinn
var ófær er þangað var komið úr
Reykjavík.
Þá var illfært austur fyrir'
fjall, en bílalest komst frá Sel-
fossi til Reykjavíkur um
Þrengsli í gærkvöldi með aðstoð,
svo og bílar frá Reykjavík er
lögðu af stað síðdegis. Reyna átti
að leggja af stað á Snæfellsnes
og norður nú í morgun.
Rafmagnslaust varð um tíma
á Snæfellsnesi og í Borgarnesi
og mjög víða á Suður- og Vestur-
landi var skólum lokað einhvern
hluta dagsins og nemendur send-
ir heim. Var nokkrum erfiðleik-
um bundið að koma nemendum
Þungfært var á götum
Reykjavíkur í gær og
bflar vanbúnir til akst-
urs í snjó töfðu víða
fyrir.
Ljósm. Rax.
Lögreglan krefst áfram-
haldandi gæzluvarðhalds
Talið ólíklegt að dómari samþykki
Frá blm. Mbl. Sigtryggi
Sigtryggssyni í Kaupmannahöfn
GÆZLUVARÐHALD fjögurra af
sex fslendingum, sem sitja inni
vegna rannsóknar fíkniefnamáls-
ins, rennur út í dag, föstudag.
Fíkniefnalögreglan í Kaupmanna-
höfn mun gera kröfu um að gæzlu-
varðhald þeirra allra verði fram-
iengt, þar sem rannsóknin sé ekki
það langt á veg komin, að óhætt sé'
að sleppa þeim iausum. Þessar
upplýsingar fékk blaðamaður Mbl.
þegar hann ræddi við Svend Thor-
sted deildarstjóra i fikniefnaiög-
rcglunni. Kvað hann að öðru leyti
ekkert nýtt af málinu að frétta.
Morgunblaðið hefur það hins vegar
eftir áreiðanlegum heimiidum, að
ólíklegt megi telja að dómarinn
Þingrofstillaga Sjálf-
stæðismanna felld
Allir viðstaddir þingmenn Alþýðu-
flokks greiddu atkvæði gegn henni
TILLAGA sjálfstæðismanna um þingrof og nýjar kosningar var felld í
gær með 39 atkvæðum gegn 19 að viðhöfðu nafnakalli. Allir þingmenn
stjórnarflokkanna greiddu atkvæði gegn tillögunni, en þingmenn
Sjálístæðisflokksins með. Fjarstaddir voru Jón G. Sólnes og Árni
Gunnarsson.
Breytingartillaga Braga Sigurjónssonar fékk aðeins eitt atkvæði
hans sjálfs, en aðrir þingmenn Aiþýðuflokksins sátu hjá. Allir aðrir
þingmenn greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Sighvatur Björgvinsson, for-
maður þingflokks Alþýðuflokks-
ins, gerði grein fyrir atkvæði sínu
með því að skýra frá samþykkt
þingflokksins þá fyrr um daginn,
en hún er birt í heild á bls 5. Þar
kemur m.a. fram „að ríkisstjórnin
verði í þessari viku að leiða til
lykta umræðurnar um flutning
stjórnarfrumvarpsins um aðgerðir
í efnahagsmálum. Takist það ekki
telur þingflokkurinn, að frekara
málþóf í ríkisstjórninni sé til-
gangslaust". Þingflokkur sam-
þykkir „að greiða atkvæði gegn
tillögu Sjálfstæðisflokksins um
þingrof og nýjar kosningar en
lýsir því jafnframt yfir, að hann
muni beita sér fyrir slíku úrræði
fari allar samkomulagstilraunir út
um þúfur, þannig að þjóðin geti á
komandi vori kjörið sér nýja for-
ystu“. Með tilvísan til þessa sagði
þingmaðurinn nei.
Stefán Jónsson sagði, að ekki
hefði brugðist í vetur, þegar for-
maður þingflokks Alþýðuflokksins
hefði gert grein fyrir atkvæði sínu,
gerði hann það til þess að segja frá
því, hvers vegna hann greiddi ekki
atkvæði eftir samvizku sinni. —
Þetta sýnir, sagði hann, að okkur
hefur ekki tekizt að göfga hann né
gera fróman og ekki gleðileg til-
hugsun að þurfa að vinna með
honum framvegis og þess vegna
segi ég nei.
Sverrir Hermannsson sagði, að í
greinargerð Sighvats Björgvins-
sonar kæmi fram, að líklegt væri
að tillögugreinin yrði samþykkt á
mánudag. — Það eflir mig í að
greiða atkvæði með tillögunni og
eflir mig einnig með hliðsjón af
því sem Stefán Jónsson sagði, að
ég hlakka til að vinna með Sig-
hvati Björgvinssyni og segi því já.
Albert Guðmundsson sagði: Með
tilvísun til rúmrusks í stjórnar-
sænginni segi ég já.
Bragi Sigurjónsson vísaði til
greinargerðar sinnar fyrir breyt-
ingartillögu sinni og sagði nei.
verði við kröfunni um að fram-
lengja gæzluvarðhald allra, þar
sem þáttur sumra í málinu mun
óverulegur, samkvæmt sömu heim-
ildum.
Samkvæmt því, sem Svend Thor-
sted upplýsti Mbl. um í gaer, hefur
rannsókn þessa máls gengið hægt og
er um að kenna gífurlegum önnum
fíkniefnalögreglunnar, sem fæst nú
við mörg stórmál. Það var fyrst á
miðvikudag, að yfirheyrslur hófust
fyrir alvöru í málinu og var þá
íslenzk kona kölluð fyrir. I gær
fimmtudag, stóðu yfirheyrslur frá
því klukkan 9:30 til kl. 17. Þá
staðfesti fyrrnefnd kona skýrslu sína
og ennfremur kom til yfirheyrslu
kona, sem sleppt hafði verið á
þriðjudag, og tveir karlmenn. Ekkert
er byrjað að yfirheyra þá, sem
úrskurðaðir voru í 27 daga gæzlu-
varðhald, enda kvaðst Svend Thor-
sted nægan tíma til þess, þar sem
gæzluvarðhald þeirra rynni ekki út
fyrr en 30. marz.
Eins og áður segir rennur gæzlu-
varðhald Islendinganna fjögurra út
á föstudagsmorgun. Verða þeir
leiddir fyrir dómara kl. 9:30 í
„Dommervægten" í lögreglustöðinni.
Þar gerir lögreglan grein fyrir
ástæðum frekara gæzluvarðhalds en
réttargæzlumaður íslendinganna,
Henrik Kástrup-Larsen, mun bera
fram mótmæli við lengingu gæzlu-
varðhaldsins, samkvæmt því sem
hann tjáði Mbl. í gær.
Eftir því sem bl. Mbl. hefur fregn-
að mun lögreglan nú sérstaklega
kanna samband þriggja íslendinga
við Ungverjann, sem einnig vár
tekinn vegna þessa sama máls með
mikið af kókaíni og peningum. Ung-
verjinn mun vera margfaldur af-
brotamaður. íslendingarnir hafa til
þessa neitað alfarið þeim sakargift-
um, sem á þá eru bornar, nema hvað
einn Islendinganna hefur viðurkennt
að hafa átt tæp 20 gr. af kókaíni, sem
hann kveðst sjálfur hafa ætlað að
neyta.
Eins og áður hefur komið fram
hefur ein tveggja kvenna, sem inni
sitja, fengið 5 mánaða stúlkubarn
með sér í fangelsið. Þar sem aðbún-
aður mun ekki vera sem beztur í
fangelsinu mun nú í athugun að litla
telpan og níu ára gamall bróðir
hennar verði flutt heim til íslands en
foreldrar konunnar hafa óskað eftir
því að börnin verði send til íslands
hið fyrsta.
Foreldrar
og skólafólk
athugið
Foreldrar á höfuðborgar-
svæðinu eru beðnir að hlusta
eftir tilkynningum í morgunút-
varpinu í dag um það hvort
skólahald verði fellt niður í dag
vegna veðurs. Að því er
Kristján J. Gunnarsson,
fræðslustjóri í Reykjavík tjáði
Mbl. í gærkvöldi átti að taka
afstöðu til þess árla í dag hvort
skólahald á Reykjavíkur-
svæðinu yrði fellt niður, þegar
séð væri hvernig veður og færð
væri. Ef ákveðið verður að fella
niður skóla í dag mun það verða
tilkynnt í morgunútvarpinu en
að öðrum kosti hvatti Kristján
til þess að foreldrar sendu ekki
lítil börn einsömul í skólann ef
færð væri erfið. Gera má ráð
fyrir að svipaður háttur verði
hafður á í nágrannabæjunum
en Morgunblaðinu tókst ekki að
ná tali af fræðslustjóra Reykja-
neskjördæmis í gærkvöldi til að
fá það staðfest.
i