Morgunblaðið - 11.03.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1979
15
Kirkjuvika í
Akureyrar-
kirkju
Akureyri, 9. marz.
KIRKJUVIKA verður í Akureyrar-
kirkju dagana 11. —18. marz og er
það í ellefta sinn, sem slík vika er
haldin á vegum kirkjunnar. For-
maður undirbúningsnefndar kirkju-
vikunnar er Jón Kristinsson. Guðs-
þjónusta eða samkoma verður í
kirkjunni alla dagana nema laugar-
daginn 17. marz og mikill fjöldi
fólks kemur þar fram og flytur
ýmislegt efni í orðum eða tónum.
Við guðsþjónustu 11. marz prédik-
ar sr. Birgir Snæbjörnsson, við föstu-
messu 14. marz sr. Pétur Þórarinsson
og sunnudaginn 18. marz sr. Kristján
Róbertsson. Aðra daga hefst sam-
koma kl. 21 og eru orgelleikur,
almennur söngur og samlestur prests
og safnaðar fastir dagskrárliðir og
sr. Bolli Gústavsson svarar spurning-
um kvöldsins. Eftir samkomurnar
annast konur í Kvenfélagi Akur-
eyrarkirkju kaffiveitingar.
Ræðumenn verða: Á mánudags-
kvöld Hulda Jensdóttir forstöðukona,
á fimmtudagskvöld Kristinn
Jóhannsson skólastjóri og á föstu-
dagskvöld Steingrímur Hermannsson
dóms- og kirkjumálaráðherra. Ávörp
flytja í sömu röð nemarnir Þorgeir R.
Finnsson, Rúna Halldórsdóttir,
Björk Bjarkadóttir og Jón G. Aðal-
steinsson.
Kirkjukór Akureyrarkirkju,
stjórnandi Jakob Tryggvason, syngur
á mánudag, kirkjukór Lögmannshlíð-
arkirkju, stjórnandi Áskell Jónsson,
á fimmtudag og Passíukórinn,
stjórnandi Roar Kvam, á föstudag. Á
þriðjudagskvöld verður æskulýðs-
samkoma, sem félagar í Æskulýðs-
félagi Akureyrarkirkju sjá um að
mestu leyti. Þar syngja barnakórar á
Akureyri og Jóhann Baldvinsson
leikur á orgel, en endranær annast
Jakob Tryggvason allan orgelleik.
Félagar í Kiwanisklúbbnum Kald-
bak munu aðstoða gamalt fólk eða
fatlað við að komast til kirkju.
Einkunnarorð kirkjuvikunnar eru
að þessu sinni úr Jóhannesarguð-
spjalli. „Börnin mín, elskum ekki með
orði og ekki heldur með tungu, heldur
í verki og sannleika". ■ Sv.P.
Málverk
Ásgeir Bjarnþórsson heldur yfirlitssýningu á verkum
sínum á Kjarvalsstööum dagana 1. —17. apríl n.k. Þeir
sem,eiga verk eftir hann og eru reiðubúnir að lána þau
á sýninguna vinsamlegast hafið samband við Jónas
Sveinsson í síma 26869 eða 18592.
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
□ Laugavegur 1—33
□ Ingólfsstræti
VESTURBÆR:
□ Skerjafj. sunnan
flugvallar 11.
□ Hávallagata
□ Garöarstræti
□ Faxaskjól
□ Lindargata
Véladeild
Sambandsins
Ármúla3 Reykjavik Simi 38900
Loðnuskófla
I.H. 500
Til afgreiðslu strax
--:--------------\
Utgerðarmenn
fyrirlicjcfjaracli:
Eingirni — 7“ og 7'A“— garn 0,52 (nr. 11) 32 md.
Væntanlegt í mars
Eingirni — 7“ — garn 0,50 og 0,48 — 32 md.
Jón Ásbjörnsson, heildverslun.
Tryggvagötu 10, Rvk. Símar 11747 og 11748.
Stjórnunarfélag íslands
Stjórnunarkvikmyndir
Stjórnunarfélagið gengst fyrir sýningu á sex kvikmyndum um
stjórnun sem fengnar eru til landsins um stundarsakir á
vegum Menningarstofnunar Bandaríkjanna. Myndirnar eru í
kvikmyndaflokknum „Stjórnandinn og fyrirtækiö“ og eru
þær gerðar árið 1977 af stjórnunarfræðingnum Peter
Drucker. Myndirnar verða sýndar í ráðstefnusal Hótels
Loftleiða þriðjudaginn 13. og fimmtudaginn 15. mars og
hefjast sýningar kl. 16.30 báöa dagana.
Fyrri daginn veröa sýndar myndirnar „How to manage the
boss“, „How to work with your fellow managers“ og
„Helping people perform“. Síöari daginn verða sýndar
„Planning and goal setting", „The manager as
decision-maker" og „How to make the organization work
for you“. Prófessor Þórir Einarsson flytur inngang um efni
myndanna að lokinni sýningu verður rætt um efni þeirra.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Stjórnunarfélags íslands,
sími 82930.