Morgunblaðið - 08.04.1979, Page 20

Morgunblaðið - 08.04.1979, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1979 Með rígaþorsk og ísland í myndum á önglínum Skuldin á útlcið gegnt Bjarnarey. Grein: Árni Johnsen Myndir: Sigurgeir Jónasson Jóel hellir nýlöguðu kaffinu á brúsann í lúkarsopinu. Bensi heitir báturinn eftir þessum glæsilega Vestfirðingi, en þaðan kom báturinn til Eyja og myndin hangir í lúkarnum. Gunni f Svanhól, áður en hann missti þann stóra. Fram hjá tímaskekkjunni Við renndum út höfnina í Eyjum einn góðviðrisdaginn fyrir skömmu, unnið í öllum frysti- og fiskvinnsluhúsum þar sem liðlega 1000 manns vinna aflann dags daglega, bræðslurnar báðar á fullri ferð með yfir 2000 tonna afköst á sólarhring. Og það er sama hvað menn geta verið fjári dauðyflislegir í hversdagslífinu, aflahrota í verstöð hleypir blóðinu út í yztu háræðar á öllum sem einum. í heimakletti röflaði fýllinn við bjargbrúnir og sólsporin spröng- uðu um móbergið, þessa listsýn- ingu almættisins. Eilífðarsinfónía hafnarinnar var í algleymingi, sinfónía sem er byggð upp á reglum reynslunnar, en leiðir hjá sér tímaskekkju skólanna sem eru farnir að éta bókvitið. Það er skítt að í þessu landi skuli vera talað tvenns konar mál vegna misstigs skólanna, mál menntamanna ann- ars vegar, fólksins í landinu hins vegar. Það verður væntanlega að ganga yfir eins og hver önnur tízka. Honor á bæði borð Beggi á Skuldinni og Elli í Varmadal dóluðu út Víkina til þess að leita sér að togbleiðu. Þeir hafa aldrei gefist upp þótt þeir hafi þurft að semja við austanáttirnar. Þær voru í leyfi þennan dag og þá er líka bezt að gefa huganum algjörlega frí frá þeim. Gunni í Svanhól var við stýrið á Bárunni, sem við Sigurgeir ljós- myndari höfðum tekið traustataki í leiðangur til þess að skondra á miðin. Við fundum hann niðri í trillu að gera klárt fyrir dýptar- mælinn og þegar við spurðum hvort hann væri ekki á útleið var svarað um hæl: Hvers vegna ekki? Skelfing er gott að komast af færibandinu og hitta svona eilífðarverur sem þekkja ekki snaga tímans. Við renndum fram úr Skuldinni og það var gefinn honor á báða bóga, beygt fyrir Klettsnefið og kóssinn tekinn inn á Ál. „Velkomnir um borð strákar“ Við eygðum skjótt netabátinn Árntý á sandgrunninu skammt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.