Morgunblaðið - 08.04.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1979
27
nokkrar frummyndir er norskir
listamenn gerðu við Heims-
kringlu Snorra Sturlusonar.
Þetta er lítil en þó mjög
merkileg sýning sem ánægjulegt
er að fá hingað til íslands. Hér
getur að líta teikningar eftir
ýmsa þekktustu listamenn
Noregs á síðari hluta fyrri aldar
og fram á þessa öld. Teikningar
sem hafa greypst inn í hugskot
okkar sem erum á miðjum aldri
og haft ómæld áhrif á aðra
listamenn, m.a. íslenzka,
varðandi myndskreytingar forn-
sagna.
Hér eru teikningar eftir Erik
Werenskiold (1855—1938),
Cristian Krogh (1852—1925),
Halfdan Egedius (1877—1899),
Eilif Petersen (1852-1928) og
Gerhard Munthe (1849—1920).
Þær eru allar frekar litlar en
búa þó yfir miklum þrótti í
útfærslu og þurfa vandlega
skoðun til að þær skili sér,
einkum vegna þess að þær njóta
sín naumast í steinsteyptum,
hráum og þunglamalegum gang-
inum.
Það er mikill fengur að þess-
ari sýningu og mikill lærdómur í
því fólgin að skoða hana vand-
lega og ættu því áhugamenn um
teikningu að fjölmenna í Mynd-
listarhúsið meðan á sýningunni
stendur og þá ekki síst list-
nemar. Fróðlegt er að sjá frum-
teikningu Cristian Krogh af
Snorra Sturlusyni — mynd sem
telst fyrirmynd þeirrar myndar
er gat að líta í íslenzkum
kennslubókum er undirritaður
var í barnaskóla og gerir máski
enn. Þetta er hressilega útfærð
teikning og sannkallaður forn-
mannabragur á henni en þó
engin yfirdrifin hetjurómantík.
Það er stíll yfir manninum og
einhvern veginn er maður sáttur
við þá tilhugsun, að þannig hafi
Snorri litið út, mikilúðlegur í
sjón og raun.
Listamaður, sem mikla
athygli vekur, er hinn bráð-
þroska Halfdan Egedius sem
var efni í mikinn snilling, einnig
sem málari, en dó langt fyrir
aldur fram 22 ára að aldri.
Hann var yngstur þessara
manna og fæddist beint inn í
þetta merkilega tímabil bóka-
skreytingar fornsagna og jafn-
framt frjósamt umbrotatímabil
norskrar myndlistar er m.a.
fæddi af sér menn líkt og
Edvard Munch, frægasta mynd-
listarmann Norðurlanda fyrr og
síðar. Þetta er enn ein sönnun
þess hve jarðvegurinn hefur
mikið að segja og að slíkur
árangur verður ekki til fyrir
tilviljun, sprettur ekki fram
fyrirvaralaust heldur er
afleiðing undangenginnar
þróunar.
Það er mikil menning og
þokki yfir þessari litlu sýningu
og hún er stórum merkilegri en
gæti virst við fyrstu sýn.
Norræna menningarmiðstöðin á
þakkir skilið fyrir að hafa
skipulagt sýninguna og fjár-
magnað að frumkvæði norsku
deildar Norræna listabanda-
lagsins.
Þrír í Suðurgötu 7
Þrír ungir listnemar úr Mynd-
lista- og handíðaskólanum þeir
Myndlist
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
ómar Stefánsson, Kristján
Valsson og Sigurður Ármanns-
son hafa ráðist í það fyrirtæki
að setja upp samsýningu í
sýningarhúsinu að Suðurgötu 7.
Þeir eru fullir hugmynda um
lífið og tilveruna, en sem
eðlilegt er þá koma þessar
hugmyndir manni kunnuglega
fyrir sjónir því að hér er um að
ræða aðfengnar hugmyndir
reyndari listamanna hérlendra
sem erlendra. Það mætti nefna
hér ýmis nöfn en skal þó látið
ógert því að það þjónar engum
tilgangi að svo komnu máli.
Allir eru hinir ungu menn
óskrifað blað og sýningin virkar
á mig sem leikur í Nýlistardeild
skólans en þar kemur ósjaldan
ýmislegt skemmtilegt frá þótt
ekki sé ástæða til að hlaupa
strax með það á opinberan
vettvang. Teikningarnar á
sýningunni bera þess vott að
ennþá eigi þeir margt ólært í
skólanum og þeir mættu gjarn-
an skoða vandlega sýninguna er
ég fjallaði um hér að framan.
Ýmislegt á sýningunni er þó í
svipuðum gæðaflokki og hefur
sést þarna eftir eldri listamenn
og ljósmyndirnar eru tiltölulega
þokkalegar.
Þá vil ég koma hér að þeirri
skoðun minni, að ég álít myndir
ekki öðlast meiri gildi fyrir það
að heimspekilegur texti er rit-
aður á erlendu tungumáli —
íslenzkan finnst mér nógu góð
og ekkert „lummó“.
Hinum ungu mönnum óska ég
velfarnaðar á listabrautinni.
Kristján
Guðmundsson
Nýlokið er sýningu í
rammaverzlun Guðmundar
Árnasonar á BeFgstaðastræti er
nokkra athygli vakti, og þótt
henni sé lokið munu ennþá
nokkrar myndir hanga uppi.
Var hér um að ræða ljóðrænar
afstraksjónir Kristjáns
Guðmundssonar (Árnasonar).
Listamaðurinn er svo sem
kunnugt er búsettur í Amster-
dam og mun þar vel þekkt nafn.
Hann var einn ellefumenning-
anna er sýndu í Malmö nýverið
og seldi mynd sína „Þjóðskráin"
til Moderna Museet í
Stokkhólmi. Sú mynd vakti
mikla athygli er hún var sýnd í
Galerie SUM á sínum tíma og
minntist ég m.a. á það í um-
fjöllun um sýninguna, að Lista-
safn íslands þyrfti að festa sér
hana. Hér missti þó Listasafnið
af strætisvagninum eins og oft
áður og sem er óhjákvæmilegt
við núverandi skipan mála og
fjársvelti.
Það vakti einkum athygli
varðandi sýningu Kristjáns, að
hann skyldi nota aftur klassísk
efni í myndir sínar í stað ljós-
myndavélarinnar en skyldi það
ekki fyrr en varir verða þróunin
í einhverri mynd yfir alla lín-
una?
Fram kom í myndum
Kristjáns fáguð ljóðræn
tilfinning fyrir litum ásamt
fundvísi á sannfærandi
stemmningar. En annars met ég
listamanninn meira sem lista-
mann í myndum líkt og fyrr-
nefnd „Þjóðskrá" þar sem mér
finnst meiri alvara í vinnu-
brögðum. En þrátt fyrir allt var
bæði óvenjulegt og forvitnilegt
að fá þessa sýningu frá hendi
Kristjáns.
0 Kaupmenn — verslunarstjórar! 0 . N
AVEXTIRIÞESSARI VIKU
Til afgreiðslu úr ávaxtageymslum okkar:
Bananar Appelsínur Jaffa Vínber græn
Epli rauö U.S.A. Sítrónur Vínber blá
Epli rauö frönsk Grape-aldin Perur
Epli græn Honduras
ÁVEXTIR ALLA DAGA
Eggert Kristjánsson hf
Sundagöröum 4, sími 85300
V
ÞARFTU AÐ K AUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
VANTARÞIGVINNUQ
VANTAR ÞIG FÓLK í
M Al'tiI.YSIR l'M ALI.T I.AND ÞEC AR
ÞL AIGLYSIR I MORGlNBLAÐINt