Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979 59 Einar (t.v.) og Gísli Pálssynir frá Aðalbóli við farartæki sín á toppi Snæfells. Á vélsleðum upp Snæfell Egilsstöðum, 6. apríl. HINN 20. marz sl. fóru þrír ungir menn á vélsleðum frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal á Snæfell og hugðust þeir gera tilraun til að aka alla leið upp á fjallið. Er skemmst frá því að segja að ferð þeirra tókst með ágætum. Röktu þeir sig upp eftir hjarnröndum upp bröttustu brekk- urnar, en það var nauðsynlegt til að ekki spólaði. Á tindinum var hið fegursta útsýni í sólskini og heiðríkju eins og sjá má af mynd- um. Þetta er í fyrsta skipti sem ekið er á Snæfell, en farið var upp með norðausturhrygg fjallsins. Steinþór Ferðaskrifstofan Útsýn: Skipuleggur tvær 19 daga Israelsferðir FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn hefur skipulagt tvær ferðir til ísraels og er hin fyrri ráðgerð 27. maí og hin siðari 18. september og standa háðar í 19 daga. Rúmur áratugur er liðinn frá því Útsýn bauð viðskiptavinum upp á Austurlandaferðir og verður að þessu sinni boðið uppá ferðir til ísracls. í frétt frá Ferðaskrifstofunni Útsýn segir að í ferðum sem þessum megi koma á helgustu staði þriggja útbreiddustu trúar- bragða heims, Gyðingdóms, krist- indóms og Islams svo sem að Grátmúrnum, Via Dolorosa, í Grafarkirkjuna, Moskuna á bjarg- inu þar sem musteri Salómons stóð forðum, en auk þessa megi kynnast ísrael nútímans. Ferðatil- högun er í stórum dráttum þannig: Flogið með Flugleiðaþotu til London að morgni, haldið þaðan síðdegis með þotu E1 A1 og lent á Ben Gurion-flugvelli um kvöldið. Þá er eftir um klukkustundar akstur til Jerúsalem og verður dvalið þar fyrstu dagana. Á öðrum degi verður farin kynnisferð um gömlu borgina, byrjað á Zíons-fjalli, komið í herbergi síð- ustu kvöldmáltíðarinnar og grafar Davíðs, farið um Gyðingahverfið að Grátmúrnum og síðan um Via Dloroosa, leið Krists með krossinn til Golgata og numið staðar við hinar 14 stöðvar krossgöngunnar. Síðan verður farið um markaðs- svæðið og frjáls tilhögun síðdegis. Daginn eftir verður farið um nýju borgina, komið í Kidron-dalinn, Getsemane-garðinn, hverfi rétt- trúnaðar Gyðinga, skoðað þjóð- minjasafnið, þing ísraels, Knesset, og endað í samkomuhúsi Hadassa-sjúkrahússins. Fjórði dagur verður til frjálsrar ráðstöf- unar og á fimmta degi verður farið til Betlehem og Hebron og til baka um kvöldið til Jerúsalem, sjötta daginn verður ekið um Retaníu og að Dauðahafinu þar sem farþegum gefst kostur á að baða sig og ekið aftur til Jerúsalem þar sem aftur verður frjáls dagur daginn eftir. Næstu fjóra daga verður síðan ekið frá Jerúsalem og m.a. til Tabor-fjalls, Nazaret, gist tvær nætur í Safed, ekið til Tiberías á bökkum Galíleuvatns, ekið til Haifa og Acco og Tel Aviv þar sem dvalið verður þar til ferðinni lýkur. Verður m.a. boðið þar uppá kynnisferð um borgina, en tilhög- un að mestu leyti frjáls þar og á 19. degi verður haldið heimleiðis frá Ben Gurion-flugvelli gegnum London til Keflavíkur. Innifalið í verði ferðarinnar sem er 389.000 kr. eru auk flugfars gisting og morgunverður á 4 stjörnu hótelum, allar kynnisferð- ir og íslenzk leiðsögn. ** V > i’ pm -m '• . • Handlaugarkrani Nr. 45821 Fallegur - vandaður - Þægiiegur Byggingavörur Sambandsins Suðurlandsbraut 32 • Símar 82033 • 82180 IMV EIIMIIMGAHÚS Sameinið fjölskylduna undir þaki frá SAMTAK HF. - SAMTAK HF. Selfossi hefur hafið framleiðslu á nýrri gerð einingahúsa fyrstu húsgerðina köllum við ÓÐALHÚS - Nýungf hönnun, þaulhugsuðbyggingaraðferð - Forframleiðslastaðlaðratréeininga sem tryggir vandaðan og varanlegan frágang - Sparartíma, lækkar byggingarkostnað - Hallandi furuloft með bitum inni - I út- og innveggjum eru falin rafmagnsrör og dósir þar sem við á - Staðlaðir Funaofnar á hagkvœmu verði frá OFNASMIÐJU SUÐURLANDS. Allar lagnir verða auðveldar í uppsetningu þar sem gert er ráð fyrir þeim í einingum. Óskin rætist í húsi Upplýsingar hjá Samtak hf. Austurvegi 38, sími: 99-1350 SAMTAK h/f SELFOSSI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.