Morgunblaðið - 12.04.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979'
75
Balkanskaga gegn „óæskilegum
vegsauka þýzka ríkisins vegna
innlimunar Austurríkis." Innlim-
un Albaníu var þar meö ráðgerð og
hún var áformuð til að hamla á
móti þýzkum áhrifum eins og
stríðið í Eþíópíu hafði verið hugs-
að í upphafi. Ciano taldi að þetta
gæti orðið „áhrifarík ráðstöfun"
sem gæti „aukið baráttuhug Itala.“
Tilræði við Zog var talið hugsan-
legt hliðarskref. í október fór
Ciano að múta albönskum höfð-
ingjum. Hernaðarundirbúningur
ítala leyndi sér varla og fór ekki
fram hjá Zog konungi sem sendi
ítölum um svipað leyti brjóstum-
kennanlega áskorun um að ráðast
ekki inn í Albaníu þar sem þeir
ættu landið.
Mussolini var í raun og veru
mjög hikandi eftir ráðstefnuna í
Múnchen. Þýzki utanríkisráðherr-
ann, Joachim von Ribbentrop,
ítrekaði tilboðið um hernaðar-
bandalag 28. október, en Mussolini
fór undan í flæmingi. Einum
mánuði síðar talaði Mussolini um
vonir ítala um yfirráð yfir Nizza,
Túnis, Savoy og ef til vill Korsíku.
Hann fékk það svar frá franska
utanríkisráðherranum,
Francois-Poncet, að ítalir kæmust
að raun um að „vegurinn til
Túnisborgar lægi yfir lík 45
milljóna Frakka “ Þannig fjar-
lægðist „sáttasemjarinn frá
Múnchen“ vesturveldin sem þarna
höfðu ef til vill tækifæri til að
dreifa athygli Mussolinis frá Balk-
anskaga og lokka hann jafnvel frá
bandalaginu við Hitler.
Litlum sögum fór af árangri af
slíkum titraunum þegar Neville
Chamberlain, forsætisráðherra
Breta, og utanríkisráðherra hans,
Halifax lávarður, voru gestir
Mussolinis í Róm í byrjun janúar
1939. Mussolini sagði þeim að
hann vildi „frið af innanlands-
ástæðum og eins af utanlands-
ástæðum" og brezku ráðherrarnir
trúðu honum.
A meðan hélt Ciano áfram
laumuspili sínu á Balkanskaga.
Hann fór til Búdapest skömmu
fyrir jól í boði Horthys ríkisstjóra
til að ræða aðild Ungverjalands að
Öxulbandalaginu og fullvissa Ung-
verja um stuðning ítala ef Þjóð-
verjar réðust á þá. Sigur ítalsks
skriðdrekaliðs við Ebro, í síðustu
meiriháttar orrustunni á Spáni, og
samkomulag Frakka og Breta um
hernaðarsamvinnu varð til þess að
Mussolini féllst á tillögu Þjóðverja
um að Andkomintern-bandalaginu
yrði breytt í Þríveldabandalag og
þar með hernaðarbandalag. Samn-
ingaviðræður töfðust meðan Ciano
fór til Belgrad 19. janúar 1939 til
að fullvissa sig um að Júgóslavar
legðust ekki gegn því að ítalir
hertækju Albaníu.
Stoyadinovic samþykkti áformin
og sagði, að þótt hann sæi ekki
fram á andstöðu Þjóðverja væri
hann sannfærður um að innst inni
mundi Nazistum gremjast að
ítalir hertækju Albaníu. Ciano
virðist hafa gefið í skyn að ítalir
kynnu að hertaka Saloniki. Ciano
og Stoyadinovic virðast líka hafa
rætt um skiptingu Balkanskaga
þannig að Júgóslavar fengju
Búlgaríu og hluta grísku Make-
dóníu, en ítalir Króatíu og
Dalmatíu.
Aðeins hálfum mánuði síðar var
Stoyadinovic steypt af stóli. Þá
loksins tókst Ciano að fá Mussolini
til að samþykkja tímasetningu
fyrirætlananna um hertöku
Albaníu. Brýna nauðsyn var talin
bera til að hefjast handa um
innrásina í aprílbyrjun og ákveðið
að það skyldi gert. „Á meðan ætla
ég að hitta Ribbentrop og kannski
minnast á þetta við hann,“ skrifaði
Ciano í dagbók sína.
Frestað
En Mussolini óttaðist að hann
gæti gert stjórninni í Belgrad h^ða
Þjóðverjum og ákvað að fresta
innrásinni.
Sjá næstu síðu
JANE
HELLEN
kynnir nýja hárnæringu
JANE’S RINSE
mýkir hárið án þess að fita þa,ð.
Jane’s Shampoo + Jane’s Rinse = Öruggur árangur. x
■IW”;'c&merióka ?
Tunguhálsl 11, R. Sími 82700
(Bauknecht
Frystiskápar
og kistur
Fljót og örugg frysting.
Örugg og ódýr í rekstri.
Sérstakt hraðfrystihólf.
Einangrað að innan með áli.
Eru með inniljósi og læsingu.
3 öryggisljós sem sýna
ástand tækisins.
Greiðsluskilmálar eða
staðgreiðsluafsláttur.
Utsölustaóir DOMUS
og kaupfélögin um land allt
Véladeild
Sambandsins
Ármúla3 Reykjavík Simi 38900
Hver annar en BINA TONE getur boðið
stereoútvarpstæki með kassettuseguibandi
á svipuðu verði og mono.
Þú ættir að kynna þér
þetta stórgiæsi/ega stereoútvarpstæki með kassettubandi.
ER TÍL BETRIFERMINGARGJÖF?
D
i- . i
íxaaio
j r
ÁRMÚLA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVtK
SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF1366