Morgunblaðið - 24.05.1979, Side 48
Al!(íLVSIN(• ASÍMINN EK:
22480
JWarfjunblnöiti
-r Síminn á afgreiðslunni er
83033
2X«r0unb(ntiit>
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1979
„Töpum viðskipta-
vinum ef við faum
ekki fisk frá íslandi”
segir Þorsteinn Gíslason framkvæmdastjóri Coldwater
„VIÐ SJÁUM íram á mikil vand-
ræði áður en langt um líður eí við
fáum ekki fisk frá íslandi til þess
að standa við gerða samninga við
viðskiptavini okkar og í sliku
ástandi tapast sölur og sölumögu-
leikar í framtíðinni, sem gerir
okkur mun erfiðara fyrir að fá
hátt verð fyrir hráefnið," sagði
Þorsteinn Gíslason framkvæmda-
stjóri Coldwater í Bandarikjun-
um í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
„Við slörkum ennþá, en það er
misjafnt eftir tegundum," sagðí
Þorsteinn. „Ef ekki rætist úr
innan tíðar kemur til tjón sem
ekki verður bætt. Þá munum við
tapa mörgum viðskiptavinum okk-
ar og margir þeirra munu ekki
koma til baka vegna þess að þetta
er harðsóttur markaður. Bæði
myndu aðilar finna aðra seljendur
sem þeim kann að líka vel við og
einnig missa menn trú á ábyggi-
legheitum okkar ef við getum ekki
afgreitt umsamið hráefni. Allt
yrði það til tjóns fyrir Islendinga.
Við birgðum okkur upp fyrir
verkfallið, en salan hefur verið
góð að undanförnu og það er farið
að kreppa að.“
Eyjólfur ísfeld forstjóri SH
sagði í samtali við Morgunblaðið
um þessar mundir væru frysti-
húsamenn að fylla í síðustu hol-
urnar í frystigeymslum sínum.
Hann kvað frystihúsnæði slátur-
húsa og annarra kjötgeymsla hafa
bjargað nokkru, en hins vegar
væri það miklu alvarlegra mál ef
ekki væri hægt að koma vörunni á
markað til kaupenda erlendis."
Slíkt myndi valda varanlegu tjóni
á mörkuðum," sagði Eyjólfur, “og
eftir mánaðamótin förum við að
lenda í vanskilum í þeim efnum.
Ef til slíks kemur fáum við ekki
aftur alla okkar viðskiptavini og
allir vita hvað það þýðir fyrir
þjóðarbúið í heild."
Þingmenn kveðjast eftir þing-
slit í gær. Frá vinstri eru m.a.
Halldór E. Sigurðsson, Bene-
dikt Gröndal, Matthías Á.
Mathiesen og Ólafur Jóhannes-
son.
Opiö hús
í Valhöll
í TILEFNI af 50 ára afmæli
Sjálfstæðisflokksins á morgun
hefur flokkurinn ákveðið að hafa
opið hús fyrir sjálfstæðisfólk og
aðra þá, sem minnast vilja afmæl-
isins í Valhöll Háaleitisbraut 1, á
morgun, 25. maí kl. 16—18.30.
Mæling á innanbæjarsímtölum:
Dagskrefið verð-
ur þrjár mínútur
„ÆTLUNIN með þessu er að gera bæjarsímagjöld alls staðar á landinu
dýrari en langlinugjöldin aftur á móti ódýrari, þannig að þetta á ekki að
verða til tekjuauka fyrir okkur,“ sagði Þorvarður Jónsson yfirverkfræð-
ingur Pósts og síma, er Mbl. spurði hann f gær um tækjabúnað þann, sem
Póstur og sfmi hefur pantað til að mæla tfmalengd sfmtala á
höfuðborgarsvæðinu. „Við bíðum nú eftir tiiboðum varðandi tæki í aðrar
símstöðvar og ég reikna með að þetta komi í notkun á miðju ári 1981.“
Þorvarður sagði, að byrjað yrði
með 3ja mínútna símtöl innanbæj-
ar, en nú er hvert símtal talið eitt
skref án tillits til tímalengdar þess.
Síðan verður „skrefið" lengt í 6
mínútur frá Mukkan 19 á kvöldin
til klukkan 8 A morgnana og frá
klukkan 15 á laugardögum til
klukkan 8 á mánudagmorgnum.
Þorvarður sagði að notkun svona
tækja væri nú m.a. í Noregi og
Danmörku og í undirbúningi í
Svíþjóð. „Þessi mæling ætti að
leiða til réttlátari gjaldtöku, þegar
gjaldið verður miðað við tíma,“
sagði Þorvarður. „Og einnig ætti
hún að skapa aðhald og minna álag
á símakerfið."
Þessi þróun er til komin vegna
þess, að ýmis ný þjónusta er nú
kominn inn á símalínur, eins og til
dæmis myndsendingar og tölvu-
sendingar alls konar og öll þessi
þjónusta býður upp á tímamæl-
ingu. Hér hjá okkur er þessi búnað-
ur nú fyrst og fremst hugsaður til
að jafna út kostnaðinn milli bæjar-
símtala og langlínusímtala."
Einn af skipverjum varðskipsins Óðins með Eyrugluna sem hefur
dvalið um borð sfðustu vikur. Ljósmynd Mbl. Emilía.
Eyrugla á Óðni
eftir björgun úr sjó
„ÞAÐ ER komið töluvert á annan mánuð sem eyruglan hefur verið
um borð hjá okkur á Óðni eftir að við björguðum henni úr sjónum um
40 mflur fyrir sunnan Ingólfshöfða,“ sagði Kristinn Árnason
skipherra á óðni f samtali við Mbl. f gær.
„Það var dumbungsveður þegar uglan væri að drepast, hún væri
við urðum varir við ugluna og hún farin að reyta af sér fjaðrirnar.
reyndi að setjast á skipið, en það Við fórum og gættum nánar að en
endaði með því að hún datt í sjóinn þá sá ég að hún var með smáfugl í
og þá settum við bát á flot og kjaftinum og var búin að tæta
björguðum henni. Hún var hrein- hann í sig. Við höfðum skömmu
lega að drepast og hélt ekki einu áður séð smáfugl flögra við skipið,
sinni höfði. Við byrjuðum á því að en að hann skyldi álpast inn í
troða ofan í hana smáum nauta- þyrluskýlið og ofan í gúmmíbátinn
kjötsbitum og eftir 6—8 klukku- sem uglan var í með net strengt
stundir var hún farin að hressast, yfir, er með ólíkindum. Eftir þetta
líklega bæði vegna fæðunnar og sáum við hvað gera skyldi til að
hvíldarinnar sem hún fékk en hún afla fæðu fyrir gest okkar svo við
var að þrotum komin þegar hún skutum bæði ritur og máfa til
var að flögra kring um skipið. Við matar fyrir ugluna. Hún borðar
komum uglunni fyrir í þyrluskýl- yfirleitt á nóttunni þegar hún er
inu og daginn eftir kom undarlegt ein og er öll hin hressasta, en við
atvik fyrir. Einn af skipverjunum reiknum með að sleppa henni
kom til mín og sagðist telja að þegar fer að hlýna meira í veðri."
Vandi vegnavorharðindaer eitt —
vandi vegna offramleiðslu annað
Rítísstjómin og landbúnaðarráðherra hafa brugðizt í málefnum bænda
Geir Hallgrímsson um landbúnaðarmálin:
„VIÐ erum tilbúnir til að veita liðsinni okkar til þess að leysa vandamál bænda, en við teljum, að
rækileg könnun verði að fara fram áður en frekari ábyrgðir verða lagðar á ríkissjóð,“ sagði Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á blaðamannafundi í gær er efnt var til vegna 50 ára
afmælis Sjálfstæðisflokksins á morgun, er fyrirspurn var beint til hans um afstöðu flestra þingmanna
Sjálfstæðisflokksins til 3,5 milljarða króna lántöku vegna útflutningsbóta til bænda. í svari Geirs
Hallgn'mssonar á blaðamannafundinum kom eftirfarandi fram:
• í gildi er verðtryggð ábyrgð
ríkissjóðs á útfluttum land-
búnaðarafurðum allt að 10%
af heildarverðmæti afurða og
er um 50—60 milljarða verð-
mæti að ræða á þessu ári. í
fjárlögum er gert ráð fyrir um
5 milljarða króna framlagi til
útflutningsbóta en jafnvel
talið að þessi ábyrgð muni
kosta 1 milljarð til viðbótar.
• Farið er fram á að auka þessa
ábyrgð í 16%. Áður en það er
gert með almennri skatt-
heimtu á landsmenn verðum
við að gera okkur grein fyrir,
hvernig á að ráða við offram-
leiðsluna svo vandamálið verði
ekki varanlegt og skattheimt-
an varanleg. Þetta hefur ríkis-
stjórnin ekki gert. Ríkisstjórn-
in og landbúnaðarráðherra
hafa brugðist í málefnum
bænda.
• Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í landbúnaðarnefnd neðri
deildar fluttu tillögu, sem gat
verið grundvöllur heimildar til
lausnar á þessu máli áður en
gengið var frá lánsfjáráætlun
yfirstandandi árs. Allt stjórn-
arliðið rétti upp höndina til
þess að fella tillöguna. Þá var
ekki talað um ofstæki í garð
bænda.
• Sjálfstæðismenn hafa ekki
fengið svör við því hverjum
þessir 3,5 milljarðar koma til
góða. Er það bændum eða
sölusamtökum þeirra? Fer
hiuti þessarar upphæðar til að
greiða sölulaun SÍS? Er þá
ekki hægt að leysa vanda
bænda á ódýrari hátt?
• Um leið og slík ábyrgðarheim-
ild er veitt verðum við að vita
hvernig á að borga. Er það með
aukinni skattheimtu eða ann-
arri tekjuöflun?
• Sjálfstæðismenn gera greinar-
mun á vanda bænda vegna
vorharðinda og vanda þeirra
vegna offramleiðslu.
• Vegna ásakana formanns
Stéttarsambands bænda er
rétt að komi fram, að hann
sýndi ekki lit í tíð fyrrverandi
stjórnar til að leysa vanda
offramleiðslu með nægum
fyrirvara. Hann neitaði að
taka þátt í störfum nefndar
vegna þess að fulltrúi ASÍ átti
þar sæti. Með þessu tafði hann
störf nefndarinnar óhæfilega
mikið.
• Það er ekki hlutverk stjórnar-
andstöðu að leysa ágreining
milli stjórnarflokka. Annað
hvort verða þeir að una ágrein-
ingi og aðgerðarleysi eða segja
af sér.
Sjá nánari frásögn á miðopnu og
viðtöl við þrjá þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins um þetta mál á
bls. 26.