Morgunblaðið - 07.06.1979, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.06.1979, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1979 Stærsti hver í heimi—Deildartunguhver: Samningar, leigu- nám eða eignamám Iloimild til cÍKnarnáms ríkisstjórnarinnar á hluta jarðarinnar DeHdartungu í Reykholtsdalshreppi, ásamt jarðhitaréttindum, var samþykkt sem lög frá Alþingi fyrir þinglausnir. Mikill meirihluti þingmanna, úr öllum flokkum, studdi eignarnámsheimildina. Rökstudd dagskrá, þess efnis að vísa frumvarpinu frá, þar sem enn væru ekki fullreyndir frjálsir samningar um nýtingu varmans, var felld. Sömuleiðis athygiisverðar tillögur um leigunám í stað eignarnáms. Deildartunguhver er talinn stærsti hvcr í heimi. Ilann gefur 180 sekúntulítra af sjálfrennandi 100°C vatni. Aflið er 45,2 MW. Orkan 396 Gwh. Þessi varmi, umreiknaður í olíuverð, er gulls ígildi. Mbl. hefur reynt að láta gagnstæð sjónarmið í þessu máli, sem öðrum þingmálum, koma fram í fréttafrásögnum á þingsíðu. Ilér á eftir gefst lesendum Mbl. kostur á að kynnast sjónarmiðum Ólafs G. Einarssonar. þingmanns Reyknesinga, sem mælti gegn eignarnáminu, og fer ræða hans í heild hér á eftir. beint við eigendur og án milli- voru sveitarfélögin tilbúin að Hitaveita sjálf- stæður aðili — ekki í ríkisklóm Það var mikil hrifning ríkjandi í fyrri viku, þegar hæstv. iðnaðarráðherra mælti fyrir þessu frv. Þetta framtak hæstv. ráðherra var lofað mjög í ræðum hæstv. þm. Vesturlands. Við 1. umr. var aðeins ein undantekning frá þessum lofsöng, en það var ræða hv. þm. Einars Ágústssonar. Er mér sýnist nú, að hrifningin yfir þessu framtaki ráðherra fari nokkuð dvínandi. Hv. iðnn., þess- arar deildar varð ekki sammála um afgreiðslu frv. Að vísu var öflugur meiri hl. í n., sem vildi samþykkja frv., þó einstakir nm. hefðu á því fyrirvara. En þessi öflugi meiri hl. sýnist þó eitthvað vera farinn að riðlast. Það er kominn þegar fram brtt. frá ein- um hv. nm., Gunnari Thoroddsen (leigunám) og það er vissulega veigamikil brtt., sem þar er flutt. Minni hl., hv. þm. Ingvar Gísla- son, leggur hins vegar til, að frv. verði vísað frá með rökst. dagskrá. Þm. gerði ítarlega grein fyrir máli sínu hér á laugardag, þar sem hann rakti í ljósu máli hvernig raunverulega hefur verið staðið að samningaumleitunum af hálfu rn. Þm. hefur verið send grg. um málið frá talsmönnum eigenda Deildartunguhvers. Sú grg. er prentuð sem fskj. með áliti minni hl. á þskj. 817, og raunar er þar um tvær grg. að ræða. Það er fróðlegt að kynna sér, hvernig að þessum samningaumleitunum hefur verið staðið. Mér sýnist að einkenni þeirra hafi verið úrslita- kostir einir af hálfu rn. I þessu sambandi er einnig fróðlegt að sjá, hvern mælikvarða menn leggja á verðmæti sem þessi, hvernig við- horf manna til verðmæta getur brenglast gersamlega eftir því hver eignin er, eða kannske eftir því hver á viðkomandi eign. Dæmi um þetta sýnist mér vera tilboð Akraness og Borgarness frá því 1977, þar sem boðnar eru 20.5 millj. kr. fyrir tvo hektara lands og allan hverinn og jarðhitarétt- indin. Það eru miklir spaugarar, sem láta sér svona fáránleg þoð til hugar koma. En þetta er dæmi um það, hvernig mat manna á bótum, ættum við kannske að segja eðli- legum bótum, fer eftir því hver eignin er, eins og ég sagði áðan. Ef almannaheill krefðist þess, að eitthvet tiltekið íbúðarhús væri tekið eignarnámi, þá býst ég ekki við að það væri mikill vafi á því að eðlilegt markaðsverð fengist greitt fyrir húsið. En ef taka á hins vegar orkulind, sem nægir til að hita upp 6500 manna byggð um fyrirsjáanlega framtíð. þá er allt annað uppi á teningnum. Ég get ekki séð að afskipti rn. af þessu máli hafi verið til góðs. Mér sýnist þvert á móti og að þau hafi reyndar frá byrjun verið óþörf og í alla staði óeðlileg, en um það ætla ég ekki að deila sérstaklega við hæstv. iðnrh. Ég veit, að af hálfu aðila hitaveitunnar var beðið um þennan erindrekstur, en mér sýn- ist það ekki hafa verið skynsam- legt. Miklu skynsamlegra hefði verið fyrir hitaveituna að semja göngu rn. Raunverulega sé ég ekki nema eina skýringu á því, hvers vegna aðilar hitaveitunnar hafa óskað eftir milli göngu rn. og óskað eftir því, að ríkið tæki hverinn eignarnámi. Skýringin hlýtur að vera sú, að hitaveitan losnaði þar með við að snara út eignarnámsbótunum. En þar hef- ur ekki verið horft alveg til enda málsins. (Iðnrh: Eigendur óskuðu hins sama). Já, það bætir þá ekkert málið það er jafnóskyn- samlegt af þeirra hálfu. Þetta er óskynsamleg leið frá sjónarmiði hitaveitunnar, vegna þess að ríkið kemst þar með með klærnar inn í málið allt og hitaveitan er ekki lengur sá sjálfstæði aðili, sem hún ætti að vera. Reyndar er búið að taka af öll tvímæli um þetta með brtt. meiri hl. iðnn. á þskj. 814. Þar er orðið alveg ljóst, hver fyrirætlun ríkisins er að þessu leyti. Þar er talað um, að ríkissjóði sé heimilt að afhenda HAB hin eignarnumdu verðmæti til afnota eftir því sem almenningsþörf kref- ur og um semst, enda greiði hún ríkissjóði eignarnámsbætur og allan kostnað hans af gerðum þessum. Sem sagt, nú er leiðin opnuð til að krefja Hitaveituna um eitthvað allt annað en eignar- ganga, án þess að það kæmi reyndar til þess að þau svöruðu því formlega, végna þess að þáv. iðnrh., Magnús Kjartansson, stöðvaði málið. Hann neitaði að samþykkja það, að þessu tilboði yrði gengið. Það hljóðaði þá upp á rúmar 50 millj. kr. Ástæðan fyrir því var sú, að þá var á ferðinni hér í þinginu frv., flutt af þáv. hæstv. iönrh., og það frv. gekk út á það, að jarðhitaréttindi á háhitasvæð- inu skyldu tekin til ríkisins, ríkið skyldi eiga þau og án þess að nokkrar bætur kæmu fyrir til eigenda. Þetta frv. fór að vísu aldrei í gegnum þingið. Það hlaut hér verulega andstöðu, en það var þó flutt margsinnis. Magnús Kjartansson flutti frv. einnig eftir að hann var hættur sem iðnrh. Mér er mjög minnisstætt, að meðan stóð í samningum við eigendur jarðhitaréttindanna, þá voru ýmsir orðnir óþolinmóðir og höfðu uppi ákveðinn þrýsting á þm. að fá þetta frv. samþ. í þinginu. Það voru þeir aðilar, sem ég kallaði þá og kalla enn skamm- sýna. Þeir töldu betra fyrir fram- gang málsins að höggvið yrði strax á þessa hnúta og auðveld- asta leiðin var auðvitað sú að hlaupa til ríkisins og láta það taka Þingræða Ólafs G. Einarsson- ar, sem mælti gegn eignamámi stendur: GE, það mun vera Gísli Einarsson, upplýsir, að HAB muni ekki hafa umtalsvert svigrúm til endurskoðunar á tilboði sínu, enda séu þeir háðir starfsleifi rn. Upp- lýsir Gísli, að tilboð HAB sé mjög tekið að þrengja að þeim ramma, sem líklegt er að hljóti brautar- gengi rn.“ Ég veit ekki hvað þetta er annað en verið sé að setja þak á það, sem til greina komi frá sjónarhóli rn. Ef hér er rétt frá skýrt, sem ég hef í sjálfu sér enga ástæðu til þess að draga í efa, , þá sýnist mér, að rn. hafi ekki beitt sæmilegum vinnu- brögðum í þessu máli. Ég veit ekki hvar verður stöðvað viö, ef um- boðsmönnum ríkisvaldsins, ráöh. eða ráðuneytisstarfsmönnum, á að líðast það að halda uppi svona vinnubrögðum í samningum. Ég minnist þess, að fyrir mörgum, mörgum árum var Hótel Borg tekin leigunámi cina kvöldstund til þess að halda uppi fagnaði á vegum ríkisstj. Það kynni svo að fara, eð einhverjum hæstv. ráðh. dytti í hug, að nú væri kominn tími tii að taka Hótel Borg ekki leigunámi heldur bara eignar- námi. Það má nýta það hús með ýmsum hætti. Mér dettur í hug t.d., að hæstv. heilbrrh. kynni að þykja koma til greina að nýta þetta húsnæði sem dvalarheimili fyrir aldraða, það vantar alltaf húsnæði fyrir þá. Og hann vildi fyrst reyna samningaleið um kaupin. Hann hittir Aron hérna úti á Austurvelli og spyr hann, hvað hann vilji fá fyrir Borgina. Hann segði kannski eins og einn milljarð, ég hef ekki hugmynd um hvað svona hús kostar ég tak það fram. En ráðh. segir: Nei, ég ætla ekki að borga þér nema hálfan milljarð. Og ef þú ert með eitt- hvert múður, þá fer ég hérna inn í Alþ. og flyt frv., þar sem ég fæ eignarnámsheimild að þessu. Þetta er nákvæmlega sama. Það er svona, sem hefur verið að gera og er staðið að þessu máli og það er ekki sæmilegt. Sjónarmið hreppsnefndar Reykholtsdalshrepps Ég þarf í sjálfu sér ekki að hafa námið sagði til um, auk þess, sem það verður í valdi ríkisins, hvaða réttindi það verða, sem afhent verða Hitaveitunni. Það þarf alis ekki að verða það, sem tekið var eignarnámi heldur eitthvað miklu minna. Reynsludæmi um Hitaveitu Suðurnesja Sú skoöun mín, að ríkið eigi raunverulega ekki að vera þarna aðili, hvorki að þessum samning- um né að eigninni sjálfri, byggist á nokkurri reynslu. Ég tók þátt í samningum á sínum tíma um jarðhitaréttindin í Svartsengi. Ég gerði það sem stjórnarmaður í Hitaveitu Suðurnesja. Þetta var árið 1975, en sú hitaveita var stofnuð með 1. frá Alþ. í des. 1974 og stjórn tók til starfa í því fyrirtæki í ársbyrjun 1975. Áður en sú stjórn tók til starfa, höfðu farið fram samningsumleitanir við eigendur hitaréttindanna þar, og þeir samningar höfðu farið fram af hálfu sveitarfélaganna á Re.vkjanesi. Tilboð frá eigendum jarðhitaréttindanna í Svartsengi hafði borist sveitarfélögunum árið 1974, áður en hið eiginlega fyrir- tæki var stofnað. Að þessu tilboði þessi réttindi eignarnámi og síðant aö fá ríkið til þess að afhenda Hitaveitunni réttindi yfir þessum gæðum. Menn áttuðu sig ekki á því, a.m.k. sumir hverjir, að með því móti yrði þetta fyrirtæki, Hitaveita Suöurnesja, háð ríkinu um aldur og ævi og yrði að borga því árlegan skatt fyrir þessi gæði. Þetta leystist hins vegar allt farsællega og þarna tókust samningar um hin miklu réttindi, sem þar var um að ræða. Þar var ke.vpt land, 100 hektarar, réttindi til að afla hins kalda vatns, sem þurfti, hitaréttindin öll, réttur til lagna og umferðar um landið, að sjálfsögðu utan þessara 100 hekt- ara, sem keyptir voru. Það var samið um allt nema verðið, það skyldi ákveðið af gerðardómi. Ég held, að það sé gagnlegt fyrir menn að hafa þetta í huga vegna þess að hér er ýmislegt hliðstætt á ferðinni. En það þótti sjálfsagt ýmsum hátt verið greitt fyrir þessi réttindi, þ.e. 87.7 millj. kr. í ársbyrjun 1976. En allir aðilar sættu sig þó við þessa niðurstöðu. Ef menn á annað borð eru þeirrar skoðunar, að náttúrugæði eigi að lúta reglum eignarréttar- ins, eða öllu heldur, að við eigum að búa við það þjóðskipulag, sem við höfum gert, þá er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að borga verður eðlilegt verð fyrir þau verðmæti, sem falast er eftir. Mér sýnist, að þeir sem um þetta mál hafa fjallað, hafi ekki gert sér grein fyrir þessu. Eða hvaða hug- myndir eru það, sem hafa verið settar fram um verð? Við sjáum það í grg. með frv., hvað þar er um að ræða. Ekki sæmileg vinnu- brögð stjórnarvalda í fskj. 1 með minni hl.-álitinu segir svo: „Af bókunum í fundar- gerðum mátti ráða, að rn. hafði í upphafi viðræðna ákveðið hvert hámark árlegrar greiðslu fyrir vatnið skyldi vera og ekkert lík- legra en það hafi einmitt verið síðasta greiðslutilboðið eða 12.5 millj. kr. sem lengst var staðið á. Leyfi rn. til starfrækslu Hita- veitunnar fengist ekki, ef yfir nefnt mark væri farið.“ Hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að þetta þýddi ekki að neitt þak væri verið að setja á verðið af hálfu ríkisstjórnar. Hann sagði þó hér í ræðu sinni áðan, að þeim hefði verið gert ljóst, viðmælendum rn., að engan veginn væri sama, hver niðurstaöan yröi. Ég er hér með bókun frá því 5. maí í fundargerð, sem starfshópur rn. hélt, og þar þessi orð mín öllu fleiri, en ég vil þó leggja áherslu á það, að þótt hér séu miklir hagsmunir í húfi fyrir Akranes og Borgarnes, þá hafa fleiri aðilar hér hagsmuna að gæta. Fyrir utan sjálfa eigend- urna er um að ræða sveitarfélagið sjálft, þar sem eignin er. En með þessum fyrirhuguðu aðgerðum eru þeir sviptir möguleikum, sem í því sveitarfélagi búa, möguleikum, sem kunna að koma upp síðar og kunna að ráða miklu um framtíð sveitarfélagsins. í því sambandi vil ég vitna hér í bréf, sem ég hygg að öllum þm. hafi borist í dag. Það er bókun frá fundi hreppsnefndar Reykholts- dalshrepps 20. maí, þ.e. í gær. Og þar segir svo með leyfi hæstv. forseta: „Hreppsnefnd Reykholtsdals- hrepps mótmæiir algerlega fram- komnu frv. til 1. um heimild fyrir ríkisst. að taka eignarnámi hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum og varar alvar- lega við aðgerðum, sem kunna að leiða til erfiðari samskipta HAB og íbúa Reykholtsdalshrepps, sem líta á þetta sem sitt landhelgismál eins og undirskriftir íbúanna sýna glöggt. Hreppsnefndin ítrekar þá skoðun sína, að samningar milli eigenda Deildartunguhvers og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.