Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1979
Faöir okkar. + ÁRNI ÓLA, rithöfundur,
er látinn. Anna Mjöll, Atli Már.
Minning:
Björn Jónsson og
Guðriín Jónsdóítir frá
Tjarnargarðshorni
+
Eiginmaður minn,
AXEL KRISTJÁNSSON,
framkvæmdastjóri,
Bæjarhvammi 2, Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur mánudaginn 4. júní.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Sigurlaug Arnórsdóttir.
+ Systir okkar,
KRISTÍN EGILSDÓTTIR,
Nokkvavogi 6,
lést 5. júní á Landakotsspítala. Sigurjón Egilsson, Gunnbjörn Egilsson, Jóhannes Egilsson.
t
Móðir okkar,
ÓSK JÓNASDÓTTIR,
Lambastöðum, Mýrum,
lést í sjúkrahúsi Akraness 5. júní.
Jarðaförnin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna, Elín Baldvinsdóttir,
Anna Baldvinsdóttir,
Ragnheiður Baldvinsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faöir okkar,
INGI HARALDSSON,
garðyrkjumaður,
Selásí 8 A, Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum aö morgni 6. júní.
Magna Guðrún Magnúsdóttir,
Guðrún Ingadóttir,
Haraldur Elvar Ingason.
+
GUNNLAUGUR ÓLAFSSON,
bifreiðastjóri,
Keldulandi 11,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. júní kl. 10.30.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Grettir Gunnlaugsson, Þuríður Ingimundardóttir,
Jón Sieinar Gunnlaugsson, Kristín Pálsdóttir,
Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir,
og barnabörn.
Eiginkona mín, +
MARÍA ALBERTSDÓTTIR,
Uröarstíg 3, Hafnarfiröi,
veröur jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi í dag kl. 1.30 s.d. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Kristinn J. Magnússon.
+
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför,
AÐALBJARGAR GUONADÓTTUR KÚLD,
fyrir hönd vandamanna,
Arinbjörn Kúld.
Gagnfræðaskóli var haldinn á
Möðruvöllum í Hörgárdal
1880—1902. Hið sama ár og skól-
inn var stofnaður fæddist 12.
nóvember í Ytra-Holti í Svar-
faðardal sveinn sem skírður var
Björn. Tvítugur að aldri fór Björn
í þennan skóla og lauk þaðan prófj
1902, síðasta árið sem skólinn
starfaði á staðnum. Björn varð
langlífastur Möðruvellinga. Hann
lést 29. maí s.l. og var til moldar
borinn í gær. Margir minnast
hans með aðdáun og þökk.
Foreldrar Björns voru Elísabet
Guðrún Björnsdóttir (1839—1900)
og Jón Baldvin Runólfsson
(1849—1918). Bjuggu þau lengst af
á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal,
og þangað fluttist Björn með þeim
á þriðja aldursári.
Þau Hreiðarsstaðahjón voru
vinsæl og virt í Svarfaðardal,
Elísabet dáð fyrir prúðmennsku,
mannkærleika og margs konar
gáfur, hafði t.d. afar fagra söng-
rödd, en Jón bóndi greindur og
athafnasamur og mikill forystu-
maður í margvíslegum félagsmál-
um sveitar sinnar. Var honum
trúað fyrir flestu sem vanda sam-
ast þótti.
Björn ólst upp með foreldrum
sínum og naut farkennslu að
þeirrar tíðar hætti. Kom brátt í
ljós að hann var ágætlega gefinn
til munns og hánda, og þótti
einsýnt að reyna að veita honum
þá menntun sem helst var við hæfi
og föng voru til. Var það fyrst að
hann fór til náms í orgelleik hjá
Magnúsi Einarssyni organista á
Akureyri 1896 og fékk þar þá
tilsögn að brátt varð hann organ-
isti í Urðakirkju og leysti það
starf af höndum með prýði.
Sem fyrr segir, réðst hann svo
til náms á Möðruvöllum alda-
mótaárið og naut sín þar ágæt-
lega. Var hann þó að eigin sögn að
mörgu leyti illa undirbúinn, kunni
t.d. ekki dönsku, en á því máli voru
þá kennslubækur í sumum hinum
mikilvægustu greinum. En Björn
lét slíkan mótgang ekki draga úr
sér kjark, heldur þvert á móti. Það
var og viðkvæði hans að erfiðleik-
+
Eiginmaöur minn, faölr okkar, afi og bróðir,
GÍSLI PÁLSSON,
mólari,
Stigahlíö 34,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni 8. júní kl. 3.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á hjartavernd.
Svanhvít Siguröardóttir,
Guóný Rósa Gísladóttir, Katrín Gísladóttir,
Sif Björk Hilmarsdóttir,
Ása Pálsdóttir, Ragnhiidur Pálsdóttir.
+
Kveöjuathöfn um
HELGU SOFFÍU BJARNADÓTTUR,
frá Drangsnesi,
fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 8. júní kl. 13.30
Jarösett veröur frá Kapellunni á Drangsnesi laugardaginn 9. júní
kl11' Jóhanna Einarsdóttir,
Guóbjörg Einarsdóttir, Hallfreöur Bjarnason,
Bjarnfríöur Einarsdóttir, Bjarni Guömundsson,
Ingunn Einarsdóttir, Guöjón Benediktsson,
Helga Bjarnadóttir, Magnús Þorbergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö og hluttekningu viö fráfall
og jaröarför móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu okkar,
KRISTINAR BJARNADÓTTUR,
Hrafnistu,
Pálína Guójónsdóttir, Sigurður Ágústsson,
Jón Hermannsson, Inga Ruth Olsen,
Hermann Hermannsson, Erla Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför bróöur okkar,
SÆMUNDAR HALLDÓRSSONAR,
Syóri-Rauöamel,
Sérstakar þakkir sendum viö læknum og hjúkrunarfólki Akraness-
spítala sem önnuöust hann í veikindum hans.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna.
Guömundur Halldórsson.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
+
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröaför
mannsins míns, fööur , tengdaföður og afa,
JÓNS EINARSSONAR,
Núpi V. Eyjafjöllum,
Auöbjörg Siguröardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
ar væru til þess að sigrast á þeim,
en ekki til að kikna undir þeim.
Eftir námsvistina á Möðruvöll-
um hélt Björn heim til átthaga
sinna og lét þá njóta menntunar
sinnar. Hann gerðist farkennari
og hafði gaman af að kenna, en
börn löðuðust að yfirlætislausri
ijúfmennsku hans. Hann vann og
að jarðabótum, sjósókn og í al-
mennri kaupavinnu. Lék honum
hvert verk í höndum, enda í senn
sterkur og hagur með yfirburðum,
mikill að vexti og vallarsýn.
Hinn 17. október 1905 kvæntist
Björn Guðrúnu Jónsdóttur (f.
23.10. 1878, d. 19.9.1973) frá Hóls-
húsum í Eyjafirði, dóttir hjón-
anna þar, Þórunnar G. Sigurðar-
dóttur og Jóns Jónssonar bónda.
Guðrún var væn kona og vel á sig
komin. Hún hafði lokið fullgildu
ljósmóðurnámi hjá Jónasi Jónas-
sen landlækni og fluttist út í
Svarfaðardal til starfa 1903.
Búskap hófu þau Björn og Guð-
rún 1908 og þá á Sökku. Síðan
bjuggu þau í Syðra-Holti
1909 — ’12, Ytri-Másstöðum
1912—’27 og síðast í Tjarnar-
garðshorni (nú Laugahlíð) til árs-
ins 1947 að þau fluttust til Akur-
eyrar og áttu þar heima síðan.
Lítið var bú þeirra í fyrstu og
aldrei stórt, enda voru mikil um-
svif þeirra á öðrum vettvangi.
Guðrún gegndi ljósmóðurstörfum
við ágætan orðstír, en á Björn
hlóðust svipuð trúnaðarstörf, og
enn meiri en faðir hans hafði
gegnt. Þannig var hann hrepps-
nefndarmaður lengi, og um hríð
oddviti, sáttanefndarmaður, í
sóknarnefnd og fræðslunefnd, for-
maður nautgriparæktarfélags
Svarfdæla, virðingamaður Bruna-
bótafélags Islands, endurskoðandi
hreppsreikninga og ýmissa stofn-
ana. Var meiri hluti þessara
starfa unnin endurgjaldslaust. Þá
er mér kunnugt um að Björn
sýslaði ýmislegt fræðakyns, vann
t.d. að gerð bændatals í Svarfaðar-
dal. Sé ég þá fyrir mér, afa minn
og Björn, að þessu starfi og man
sérstaklega eftir skrift Björns sem
svo var fögur og stílhrein að ekki
verður miklu lengra komist.
Björn í Tjarnargarðshorni var
maður ákaflega traustur og ósvik-
ull. Hann var trúr byggð sinni,
hugsjónum sínum og ástvinum.
Hvert það starf, sem hann tók að
sér, var svo vel af hendi leyst, að
ekki mátti að því finna. Honum
var ekki gjarnt að rasa um ráð
fram og rýmdi engum úr vegi.
Hina megnustu andstyggð hafði
hann á flysjungshætti hvers kon-
ar, fumi, óvandvirkni, sóðahætti
og trassaskap. Regla og reiða var
á öllu í kringum hann. Snyrti-
mennska hans og þrifnaður, og
þeirra hjóna beggja, er enn annál-
að í Svarfaðardal. Kom það jafnt
fram í stóru og smáu. Björn gat
bókstaflega ekki gert nokkurn
skapaöan hlut illa. í Tjarnar-
garðshorni voru fornar dygðir
íslensku þjóðarinnar í heiðri hafð-
ar, og þótti hverjum mannbót að
komast í sem nánasta snertingu
við fólkið og heimilið þar.
Björn og Guðrún áttu sjö börn.
Þrjú hin elstu létust í frum-
bernsku úr farsóttum sem menn
kunnu þá ekki að lækna. Upp
komust 1) Þórunn Elísabet, f.
1910, gift Sigurði Jónssyni kenn-
ara og kaupmanni á Akureyri. Hjá
þeim dvöldust gömlu hjónin alla
tíð, eftir að þau brugðu búi, við þá
umönnum sem best má verða. 2)
Hallgrímur, f. 1912, efnaverkfræð-
ingur í Reykjavík, kvæntur
A fmœlis- og
minningar-
greinar
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu mcð
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grcin, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendihréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
línubili.