Morgunblaðið - 07.06.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 1979
35
KA bæfír
við sfígum
!<a i.n
IBV I.U
KA frá Akureyri, liðið sem marg-
ir urðu til þess að spá falli áður
en íslandsmótið í knattspyrnu
hófst í vor, virðist heldur betur
ætla að hrekja þær spár. í gær-
kvöldi lögðu KA-menn Vest-
mannaeyinga að velli norður á
Akureyri, sigruðu þá með einu
merki gegn engu í líflegum leik.
Knattspyrnan sem liðin sýndu
í gærkvöldi var ekki rishá, enda
leikið á einum lakasta velli sem
um getur í sögu 1. deildar knatt-
spyrnu, svonefndum Sanavelli.
Völlurinn var grjótharður og
grófur og því vart hægt að ætlast
til að snilldarbrögð væru þar
sýnd eða framin.
Fyrri hálfleikurinn var lengst af
afar jafn og skiptust liðin á um að
sækja. Fyrsta hættulega tækifær-
ið átti Gunnar Blöndal á 6.
mínútu, en skot hans geigaði og
Ársæll átti ekki í vandræðum með
að verja. Á 31. mínútu sluppu
KA-menn með skrekkinn. Gústaf
Baldvinsson átti þá skot á markið,
en Aðalsteini í KA-markinu tókst
ekki að halda boltanum og Tómas
Pálsson kom aðvífandi, skaut á
markið í þverslánni og þaðan fór
boltinn í stöngina og bjargað var í
horn. Skömmu fyrir lok hálfleiks-
ins átti Haraldur Haraldsson mið-
vörður KA skot af löngu færi.
Ársæll handsamaði knöttinn en
rann til og inn í markið, en náði að
stöðva boltann áður en hann fór
allur yfir línuna, svo að Vest-
mannaeyjahjörtu héldu áfram að
slá óáreitt.
í upphafi síðari hálfleiksins
voru Vestmannaeyingarnir öllu
grimmari. Besta færið átti Óskar
Valtýsson á 53. mínútu, þegar
hann komst einn inn fyrir vörri
KA og skaut af stuttu færi, en
Aðalsteinn varði mjög vel.
Skömmu síðar átti Þórður
Hallgrímsson hörkuskot, en yfir
markið. Það var síðan á 62.
mínútu, sem KA skoraði eina
mark leiksins. Elmar Geirsson lék
þá upp kantinn, lék á Snorra
Rútsson, sendi fyrir markið, en
boltinn hrökk í hönd Friðfinns
Finnbogasonar og ágætur dómari
leiksins, Rafn Hjaltalín, dæmdi
umsvifalaust víti. Óskar
Ingimundarson skoraði úr vítinu,
en minnstu munaði, að Ársæli
tækist að verja. Við markið varð
aukin þungi í sókn Vestmannaey-
inga, en varnarmenn KA, með
Aðalstein markvörð í miklum
ham, bjargaði ávallt. Næst skall
hurð hælum á 71. mínútu, þegar
KA-menn björguðu tvívegis á línu,
fyrst skalla frá Ómari Jóhanns-
syni og síðan frá Óskari Valtýs-
syni.
Baráttan sat í fyrirrúmi hjá
báðum liðum, enda erfitt um vik
að leika góða knattspyrnu eins og
fyrr getur. í liði KA, stoð Aðal-
steinn markvörður sig mjög vel og
fer honum fram með hverjum leik.
Þessi 18 ára piltur á án efa eftir að
vekja mikla athygli. Miðverðirnir
Einar Þórhallsson og Haraldur
Haraldsson voru og sterkir.
í liði Vestmannaeyinga bar
mest á Erni Óskarssyni og Óskari
Valtýssyni,.en framlína liðsins var
afar dauf. Rafn Hjaltalín dæmdi
leikinn og gerði það af mikilli
rýði.
stuttu máli:
Akureyrarvöllur 1. deild
KA-ÍBV l-O(O-O)
Mark KA: Óskar Ingimundarson
(62. mínúta)
Áminning: engin
Dómari: Rafn Hjaltalín
—Sigb.G.
Sanngjarn
sigur FH
FH-INGAR sigruðu Selfyssinga 3—1 á Kaplakrikavelli ( gærkveldi í
leik liðanna í 2. deild. Var sigur FH-inga sanngjarn, þeir voru betri
aðilinn í leiknum og sóttu öllu meira. Liðsmenn Selfoss börðust þó vel
og sýndu á köflum frískan leik, en meiri brodd vantaði í sóknarleik
þeirra.
FII hóf leikinn af miklum krafti og skapaði sér strax góð tækifæri á
tyrstu mínútum leiksins. Fyrsta markið lét heldur ekki standa á sér.
A 6. mínútu tók Helgi Ragnarsson aukaspyrnu rétt utan við vítateig
og gaf vel fyrir inn á Pálma Jónsson sem nikkaði boltanum laglega í
netið. Pálmi skoraði aftur á 20. mfnútu hálfleiksins, eftir fyrirgjöf,
Selfyssingum mistókst að hreinsa frá og boltinn barst til Pálma sem
lagði vel fyrir sig og skoraði með föstu skoti.
FH
Selfoss w ■ I
Selfyssingar áttu gott færi á 26.
mínútu en hörkuskot Sumarliða
fór framhjá.
Rétt í lok fyrri hálfleiksins
bjarga svo Selfyssingar á línu
eftir mikla pressu á mark þeirra.
Á 51. mínútu leiksins skora
Selfyssingar sitt eina mark. Fengu
þeir dæmda aukaspyrnu rétt utan
vítateigsins og í stað þess að
skjóta var bBltinn sendur á
Sumarliða sem hafði komið sér
fyrir yst í varnarveggnum og sneri
hann sig laglega inn fyrir og
skoraði með hörkugóðu skoti efst í
markhornið. Var sérstaklega vel
að þessu marki staðið hjá Selfyss-
ingum.
En Adam var ekki lengi í
paradís, því að á 60. mínútu kemur
fallegasta mark leiksins. Helgi
Ragnarsson skorar þriðja mark
FH með viðstöðulausu skoti eftir
fyrirgjöf. Helgi tók boltann á lofti
og negling hans sleikti þverslána
og inn.
Lið FH átti góðan leik framan
af en varð fyrir því að missa mann
af velli og lék einum færri síðustu
20 mínútur leiksins. Viðar Hall-
dórssyni var vikið af leikvelli fyrir
að sparka í aftgurendann á liggj-
andi leikmanni eftir að dómarinn
hafði flautað. MJög ljótt brot og
óafsakanlegt hjá jafn leikreynd-
um manni og Viðar er. BeStu
menn FH voru þeir Janus sem nú
lék á miðjunni aftur og Pálmi
Jónsson sem átti stórleik í fram-
línunni. Þá var Helgi sprækur og
Valur.
Hjá Selfossi var Sumarliði best-
ur. Liðið átti mjög góða spretti í
leiknum og á eflaust eftir að hala
mörg stig inn í sumar, því að
leikmenn eru baráttugíaðir og
gefast aldrei upp.
-þr.
Svcrrir Brynjólísson sækir að marki Fram, Guðmundur Baldursson kemur út á móti með tilþrifum.
Þróttur lyffí sér
af botninum
Þróttur-
Fram
ÞRÓTTUR krækti í sitt fyrsta
stig í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu og það gegn liði sem
almennt var talið að myndi
bursta Þrótt, Fram. Framarar
hafa sýnt góða leiki í byrjun
mótsins og kom því á óvart hve
hrikalega illa liðið lék gegn
Þrótti í gærkvöldi. Það má með
sanni segja, að ef frá eru skildar
síðustu 15 mínútur lciksins, var
sú knattspyrna, sem sást, öll frá
Þrótti komin. Bæði liðin skoruðu
eitt mark, Þróttur skoraði sitt í
fyrri hálfleik, Fram í síðari
hálfleik.
Framarar áttu reyndar tvær
góðar atlögur að marki Þróttar á
fyrstu mínútunum og töldu menn
það vera forsmekkinn að því sem
koma skyldi. Trausti Haraldsson
skaut lúmsku langskoti sem Ólaf-
ur Runólfsson varði vel og Hafþór
Sveinjónsson skaut hörkuskoti
rétt yfir markið eftir aukaspyrnu
Trausta frá vinstri. En frá 5.
mínútu til 75. mínútu var hvorki
haus né sporður á liði Fram og
þurfti að sjá til liðsins til þess að
trúa því sem fyrir augu bar.
Þróttarar náðu á hinn bóginn af
og til þokkalegu spili úti á vellin-
um, þeir börðust grimmilega og
gáfu Frömurum aldrei frið til að
athafna sig. Ef framlína Þróttar
hefði verið beittari hefði getað
farið illa fyrir Fram.
Það var á 34. mínútu, sem
Þróttur náði óvænt forystunni,
óvænt vegna þess að þó að þeir
hafi verið snöggtum skárri, höfðu
þeir fram að því engin færi skapað
sér. Boltinn barst inn í vítateig
Fram, þar náði honum Ársæll
Kristjánsson sem var óvaldaður
og afgreiddi knöttinn í netið með
þrumuskoti sem Guðmundur
Baldursson átti enga möguleika á
að verja. Reyndar hafði Guðm-
undur bjargað naumlega f.vrir
utan vítateig, þegar Sverrir
Brynjólfsson var kominn einn inn
fyrir vörn. Fram. Rétt fyrir leik-
hlé hnýttu Þróttarar saman góðri
sóknarlotu, Halldór Arason komst
í gott færi, en Guðmundur Bald-
ursson varði meistaralega.
Ýmsir hefðu kannski átt von á
Framliðinu sterkara í síðari hálf-
leik, eftir reiðilestur frá Hólm-
berti þjálfara. svo var þó ekki í
byrjun og ef halda hefði átt til
haga tölu á öllum missendingum
Framara, hefði þurft vasatölvu til
aðstoðar. Marteinn Geirsson, sem
jafnframt var besti maður Fram í
leiknum, var þó einu sinni nærri
því að skora snemma í hálfleikn-
um. Þá kastaði hann sér á fyrir-
gjöf frá hægri og skallaði þétt-
ingsfast á markið. En sökum þess
hve þröngt færið var, hafði Ólafur
markvörður tök á að vera rétt
staðsettur.
Heldur fóru Framarar þó að
hressast þegar líða tók að leiks-
lokum og á 75. mínútu hefðu þeir
átt að fá vítaspyrnu. Þá sendi
Ásgeir Elíasson vel fyrir markið
Stórsigur
Englands
ENGLENDINGAR tóku forystuna í 1. riðli Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu með sérlega sannfærandi sigri yfir Búlgörum í Soffíu.
Skoruðu Englendingar 3 mörk gegn engu, staðan í hálfleik var 1—0.
Það var að venju Kevin Keegan, sem var allt í öllu hjá enska liðinu.
og það var hann sem náði forystunni á 33. mínútu. Yfirburðir
Englendinga voru umtalsverðir og tvö mörk á tveimur mínútum
snemma í síðari hálflcik gerðu algerlega út um leikinn. Þau skoruðu
Dave Watson á 54. mínútu og Peter Barnes á 55. mínútu. Staðan í
riðiinum er nú þessi:
England 4 3 10 12
N-írland 5 3 11
írska lýðveldið 13 1
Búlgarfa 5
Danmörk 5
1 1
0 2
4
6-5
6-5
3-9
9-13
og virtist það deginum ljósara að
knötturinn fór í hönd Sverris
Einarssonar. Vilhjálmur dómari
sá þó ekkert athugavert og blés
því ekki. Framarar æstust hins
vegar við þetta og mínútu síðar
varði Ólafur vel skalla Marteins af
stuttu færi. Það var aðeins ein
mínúta í ntarkið, há fyrirgjöf
barst inn í teiginn hjá Þrótti frá
hægri, Marteinn skallaöi knöttinn
laglega til Péturs Orntslev sent
skoraði með þrumuskoti. Þetta
var sem sé á 77. mínútu og það
sent eftir lifði leiks var um stór-
sókn að ræða hjá Fram og að
sama skapi nauðvörn hjá Þrótti.
Sýndu Framarar þessar síðustu
mínútur eitthvað meira í áttina
við knattspyrnu heldur en fyrr í
leiknum. En allt kom fyrir ekki og
Þróttur lyfti sér af botninum.
Lið Þróttar er mjög jafnt,
enginn ber af, en allir gefa allt
sem þeir eiga til. Það væri út í
bláinn að tilnefna einn þar öðrum
fremri. Framararnir vildu líklega
gleyma leiknunt sem fyrst, aðeins
Marteinn og Guðmundur ntark-
vörður stóðu sig vel, Rafn átti
góða kafla, aðrir léku langt undir
getu.
I stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild Laugardals-
völlur Þróttur — Fram 1 — 1 (1—0)
Mark Þróttar: Ársæll
Kristjánsson (34. ntín).
Mark Fram: Pétur Ormslev (77.
mín).
Gul spjöld: Ársæll Kristjánsson
Þrótti.
Áhorfendur: 649
Dóntari: Vilhjálntur Þór
Vilhjálmsson.
- KK-
STAÐAN
Staðan í 1. doild or nú
þossi:
Þróttur — Fram 1—1
KA - ÍBV 1 -0
IA 3 2 10 6-3 5
ÍBK 3 1 2 0 4-0 4
Valur 3 1 2 0 5-2 4
Fram 3 12 0 5-3 1
KA 3 2 0 1 6—4 1
ÍBV 3 111 2-1 3
KR 3 111 3-4 3
Víkingur 3 10 2 3-8 2
Þróttur 3 0 10 2-4 2
Haukar 3 0 0 3 1-7 0