Morgunblaðið - 21.10.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1979
61
.JU v
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10—11
FRÁ MANUDEGI
að taka hann í notkun. Það var
sannarlega meir en kominn tími
til að þessari mestu afturhalds-
stjórn í orkumálum væri steypt af
stóli.
• Alhliða viðreisn
íyrir aldamótin
Þau orkuyfirvöld sem nú taka
við verða að vinna að því með
öllum tiltækum ráðum að losa
þjóðina að fullu undan olíufarginu
í síðasta lagi fyrir næstu aldamót.
Setja verður í gang sem fyrst
rannsóknir og undirbúning að
stórvirkjunum meðal annars til
vetnisframleiðslu, til áburðar-
framleiðslu, til útflutnings og
notkunar hér. Sennilega verður
vetnið, áður en langt um líður,
okkar aðalorkugjafi.
Fullvíst er að nýrri ríkisstjórn
bíður gífurlegt verkefni í því að
vinna að bæði efnalegri og and-
legri viðreisn þjóðarinnar og von-
andi verður sú viðreisn ekki minni
en hin stórfenglega endurreisn
síðustu aldamótakynslóðar. Kjör-
orðið á að vera: Allir eitt, ísland
eitt.
Ingjaldur Tómasson
• Þakkir
Ég vil koma á framfæri mínu
besta þakklæti til Jóns Haralds-
sonar arkitekts fyrir prýðilega
gott erindi í „Um daginn og
veginn" mánudaginn 15. október
s.l. Og alveg sérstakar þakkir fyrir
ummæli hans um Torfuna frægu.
Þ. Hj.
I
f
I
!
Verktakar — Útgerðarmenn — Vinnuvéla- ^
eigendur o.fl. 4
Slöngur — Barkar — Tengi. i
Renniverkstæöi — Þjónusta — Háþrýstilagnir £
Nýlendugötu 14, Reykjavík. á
Sími: 27580. /
T/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A
Stálröratengi —
Skiptilokar —
Mælalokar
Fjöltækni s.f.
Þessir hringdu
• Bókin þýdd
fyrir 20 árum
Lesandi hringdi vegna bréfs
frá húsmóður í Velvakanda 17.
október s.l. Í þeirri grein er talað
um bókina 1984 eftir George
Orwell og sagt að hún hafi verið
þýdd á allar menningartungur
nema íslensku. Lesandinn sagði
þetta ekki rétt þar sem bókin hefði
verið þýdd af Hersteini Pálssyni
og Þóru Smith og gefin út af
Stuðlabergi árið 1951.
Maður er vildi kalla sig „Bóka-
orm“ hringdi einnig vegna greinar
þessarar og sagði m.a.
„Húsmóðir þessi segir að bókin
„1984“ hafi aldrei verið þýdd á
íslensku. Þetta er ekki rétt. Ég las
þessa bók fyrir um 20 árum í
ágætri íslenskri þýðingu.
• Óánægð með
framferði flokks-
ins
Gamall Sjálfstæðiskjósandi
hringdi til Velvakanda:
„Ég er sáróánægð með fram-
ferði Sjálfstæðisflokksins og er
næstum viss um að þeir munu
stórtapa í kosningunum framund-
an. Ég er að vísu orðin gömul
kerling, en ég vona að ég lifi fram
yfir kosningarnar. Og ekki ætla ég
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á búlgarska meistaramótinu í
ár kom þessi staða upp í skák
þeirra Krjistjanovs, sem hafði
hvítt og átti leik, og Nikolovs.
Hvítur virðist hætt kominn, þar
sem drottning hans er leppur, en
hann fann hins vegar snjalla leið
til þess að notfæra sér stöðu
svarta hróksins á b2:
29. g6+! - fxg6 (Ef 29. ... Kxg6
þá 30. Be4+ — Kh6, 31. Hh8 mát)
30. Dxb2 og hvítur vann auðveld-
lega, þar sem drottningin er frið-
helg. Ef 30.... Bxb2 þaf31. Rg5+ -
Kh6, 32. Hh8 mát.
að kjósa Sjálfstæðisflokkinn nú
þótt ég hafi kosið hann í fjölmörg
ár. Þeir hefðu vel getað afstýrt
nýjum kosningum þangað til í
sumar því þá hefði gamla stjórnin
fallið um sjálfa sig. En nú geta
andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins sífellt sagt: „Ef við hefðum
verið lengur við völd hefðum við
getað gert hitt og þetta. Við
höfðum bara ekki tímann." En ef
þeir hefðu setið þangað til í sumar
hefði þjóðin séð að þeir gátu
hvorki þetta né hitt.“
NAMSKEIÐ
Hvernig má verjast
streitu?
Andleg streita og innri spenna er eitt af alvarlegri vandamálum
stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja í dag. Þessi vandi er
fyrirtækjum og þjóðfélaginu í heild mjög dýr, þar sem dagleg afköst
minnka og fjarvistir aukast ef mikil streita hrjáir menn. Því er
mikilvægt fyrir menn að kunna tækni sem gerir þeim kleift aö
verjast streitu í starfi og auka þannig almenna vellíðan sína.
Stjórnunarfélagiö efnir í vikunni til tveggja námskeiöa um hvernig
megi verjast streitu. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Dr. Pétur
Guöjónsson félagssálfræöingur, en hann hefur haldiö námskeið
þessi fyrir starfsmenn fjölda fyrirtækja vestanhafs og má meöal
þeirra nefna Bank of New York, National Bank of North America,
N.B.C. útvarpsstööina og Heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneyti
Bandaríkjanna.
Fyrra námskeiðið veröur haldiö aö Hótel Esju dagana 23. og 24.
október kl. 13:30—18:30, og er fullbókaö á þaö.
Síöara námskeiðið veröur haldið 24. og 25. október kl.
13:30—18:30 hvorn dag, og eru fáein sæti laus á þaö námskeiö.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, sími 82930.
HÖGNI HREKKVISI
NUNARFELAG
SIANDS Síðumúla 23 — Sími 82930
Nýja
haust- og vetrarlínan
‘79-80