Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 3 Reyðarfjörður: Grjótskriður vegna rigninga Reyðarfirði, 24. október. HÉR hefur verið aftakaveður und- anfarna sólarhringa, mikið rok og gífurleg rigning, þannig að aurskriður hafa fallið á nokkrum stöðum, t.d. féll ein grjótskriða í Grænafellinu í gær og lokaði veginum um stundarsakir. Ef fer sem horfir má því allt eins búast við því að fleiri skriður fylgi í kjölfarið og vegir fari að spillast. — Gréta. Ljósm: RAX „Hér þarf greinilega að brúa, eða hvað sýnist ykkur?“ Framsókn á Reykjanesi: Jóhann, Markús og Helgi efstir JÓHANN Einvarðsson bæjar- stjóri i Keflavik hlaut fiest at- kvæði í fyrri untferð skoðana- kannanar framsóknarmanna á Reykjanesi i fyrrakvöld, vegna vals á mönnum á framboðslista Framsóknarflokksins við alþing- iskosningarnar í desember. „Utiloka enga möguleika” - segir Jón G. Sólnes — ÉG útiloka enga mögu- leika, sagði Jón G. Sólnes þegar Mbl. spurði hann i gær hvort það kæmi til greina að hann færi i sér framboð i Norðurlandskjör- dæmi eystra. — Það er búinn að vera mikill þrýstingur á mig úr öllum áttum, sagði Jón. Málið er eiginlega í biðstöðu núna og ómögulegt að segja hvað úr verður en það er alveg öruggt að þegar ég tek ákvörðun verður það fyrst og fremst með hagsmuni Sjálf- stæðisflokksins í huga. Ég mun alltaf verða sjálfstæðis- maður á hverju sem kann að ganga. Jón sagði að hann hefði orðið var við mikla óánægju í kjördæminu með það að kjör- dæmisráð hefði að engu óskir 450 flokksmanna, sem skrifað höfðu nafn sitt á undir- skriftalista og óskað próf- kjörs. Könnunin fór fram á Hótel Sögu í Reykjavík í fyrrakvöld, og máttu fulltrúar og varafulltrúar kjósa þrjá menn. Jóhann Einvarðsson hlaut 216 atkvæði, Markús Á. Einarsson 163, Helgi H. Jónsson 136, Þrúður Helgadóttir 107, Leó E. Löve 60 og Einar Geir Þorsteinsson 45. Þessi sex komast áfram í úrslit og verður valið á milli þeirra á fundi í Grindavík um helgina. Alls fengu 28 manns atkvæði í þessum fyrri hluta skoðanakann- anarinnar. Aðrir tón- leikar Sinfóní- unnar í kvöld AÐRIR áskriftartónleikar Sin- fóniuhljómsveitarinnar á þessu starfsári verða i kvöld i Háskóla- bíói klukkan 20.30. Efnisskráin verður sem hér segir: Beethoven Egmont-forleikur og fiðlukonsert og Holmboe-sinfónía nr. fimm. Stjórnandi er danski hljóm- sveitarstjórinn Eifred Eckart- Hansen, en einleikari Wolfgang Schneiderhan. o INNLENT Bjarni Guðnason efst- ur krata á Austurlandi ALÞÝÐUFLOKKSMENN í Aust- urlandskjördæmi hafa ákveðið að efna ekki til prófkjörs við val framboðslista flokksins vegna væntanlegra alþingiskosninga. Jafnframt hefur verið ákveðið að Bjarni Guðnason prófessor í Reykjavík skipi efsta sæti fram- boðslistans í kjördæminu eins og var siðast, en ekki hefur verið ákveðið um skipan annarra sæta. Alþýðuflokkurinn fékk ekki mann á þing af Austurlandi í síðustu kosningum. r „Atti sjálfur dálítinn þátt í framboði Ólafs” „Ég hef séð það í blöðum, að ég sé í fýlu vegna framboðs Olafs, en það er eins og hver annar þvætt- ingur,“ sagði Steingrímur Her- mannsson formaður Framsókn- arflokksins í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í gær, er hann var spurður álits á fram- boði Ólafs Jóhannessonar til Al- þingis. „Ég fagna því að Ólafur leggur nú sitt þunga lóð á vogarskálina," sagði Steingrímur ennfremur, „ég sannarlega fagna því, og veit að það verður okkur til mikils styrks, og ég átti nú sjálfur dálítinn þátt í að hann ákvað að fara í framboð." Steingrímur sagði einnig, að best væri að spyrja Guðmund G. Þórarinsson að því sjálfan, hvað hann ætti við með því að segja Ólaf ókrýndan leiðtoga flokksins. „Ólafur er náttúrulega eins og allir vita stjórnmálamaður þessa áratugar, að minnsta kosti hafa sjálfstæðismenn sagt það, og við framsóknarmenn erum ákaflega stoltir af því og teljum þetta hafa verið góðan áratug, og fögnum því að hann gefur nú enn á ný kost á sér,“ sagði formaður Framsóknar- flokksins að lokum. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins Y ngsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins Friðrik Sophusson Friðrik Sophusson varð sigurvegari í síðasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og tók sæti á Alþingi eftir síðustu kosningar, Á 7 mánaða þingferli hefur Friðrik meðal annars verið flutningsmaður að eftirtöldum málum: • Eflingu iönaöar. Meöal annars aö fella endanlega niöur aö- flutningsgjöld. • Sveigjanlegum vinnutíma. • Frjálsum útvarpsrekstri. • Um gjaldeyris og viöskiptamál. • Breyttum opnunartíma veit- ingahúsa. • Nýjum vinnubrögöum viö gerö fjárlaga. • Frjálsari verömyndun og sam- keppni á peningamarkaöinum. • Nýju verðmyndunarkerfi land- búnaöarvara. • Frjálsari gjaldeyrisverzlun. Kjósum Friðrik íöruggt sæti ____________________________________ Auglýsing. ið tvisvar til íslands. Segist hann hafa orðið fyrir áhrif- um af íslenzkum fornbók- menntum og lært af þeim, enda telur hann þær með mestu afrekum menningar- sögunnar. Þegar hann kom til íslands sagði hann, að það hefði verið draumur sinn um langt skeið. Borges er nú um áttrætt. Hann hefur legið í sjúkra- húsi í Buenos Aires um skeið. Borges sæmdur stórriddarakrossi FORSETI íslands hefur sæmt argentínska skáldið Jorge Luis Borges stór- riddarakrossi fálkaorð- unnar með stjörnu. Borges er eitt helzta skáld spænskrar tungu, og heimsfrægur. Hann hefur tekið ástfóstri við forna íslenzka menningu og kom- Almenna bókafélagið gaf út nokkrar sögur eftir Borges í þýðingu Guðbergs Bergssonar, og Matthías Johannessen hefur skrifað um hann alllangt mál í Samtölum-M, öðru bindi. Nokkur ljóða hans hafa einnig verið þýdd á íslenzku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.