Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 19 ishúsinu fyrir sig og gesti sína, endurgjaldslaust.. Skrifstofuaðstaða þingmanna Stórbæta þarf skrifstofuað- stöðu þingmanna frá því sem nú er, er þeir híma tveir og tveir saman í litlum skrifstof- um með einn sameiginlegan síma í gegnum skiptiborð. Tryggja þarf þingmönnum rúmgóð og hentug skrifstofu- herbergi, fullbúin öllum nauð- synlegum húsgögnum og skrifstofutækjum. Þar þarf meðal annars að vera sími innan skiptiborðs Alþingis, beinn sími fyrir hvern og einn einstakan þingmann, og hátal- ari úr sölum Alþingis. Starfsmenn þingmanna Ekki getur talist óeðlilegt að alþingismönnum verði séð fyrir starfsfólki. Hverjum og einum þingmanni á að vera heimilt að ráða sér ritara, er þiggi laun frá Alþingi. Störf ritara verði nánar ákveðin af hverjum ein- stökum þingmanna, símvarsla, vélritun, ræðugerð, söfnun og úrvinnsla gagna og fleira og fleira. Launaður starfs- maður þingflokka Hverjum og einum þeirra þingflokka er skipa Alþingi hverju sinni skal heimilt að hafa í sinni þjónustu einn starfsmann, framkvæmda- stjóra, er í einu og öllu njóti sömu kjara og þingmenn. Skal hann annast yfirumsjón með starfsemi þingflokkanna í sam- vinnu við formenn þeirra, og auðvelda þingmönnum þannig störf þeirra. Formenn þingflokka Formenn þingflokka hafa stöðu sinnar vegna óhjákvæmilega ýmsum skyld- um að gegna, umfram aðra þingmenn. Ekki virðist því ósanngjarnt að þeir hafi hærri laun en aðrir þingmenn, til dæmis 15 til 25 af hundraði hærri laun en óbreyttir þing- menn. Jafnframt ætti að tryggja þeim að minnsta kosti helmingi hærri risnukostnað en öðrum þingmönnum. Það sama ætti að gilda um embættismenn Al- þingis, það er forseta Samein- aðs Alþingis og þingdeilda. Laun og störf ráðherra Séu laun þingmanna nú lág, þá er víst ekki annað hægt að segja en hið sama gildi um laun ráðherra. Tvímælalaust á að launa ráðherra mun betur en nú er gert, og virðist ekki ósanngjarnt að þeir hafi 100% hærri laun en alþingismenn, það er þrjár milljónir króna á mánuði miðað við núverandi verðlag í landinu. Þá yrði það einnig til bóta, að taki þingmaður við embætti ráðherra, segi hann af sér þingmennsku, og verði þafkall- aðir inn varamenn er njóti sömu réttinda og aðrir þing- menn. Raðherrar hafi hins veg- ar áfram seturétt og málfrelsi á þingfundum, en ekki atkvæðis- rétt. Þetta mun verða til þess að gera störf bæði ráðherra og þingmanna markvissari og ár- angursríkari en nú er. Greiðslur til sér- fræðilegrar aðstoðar Eitt af því sem gera þarf í stjórn landsmála er að gera þingmönnum og ráðherrum auðveldara að afla sér sér- fræðilegrar aðstoðar á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins. Því þarf að auka stórlega þær fjárhæðir sem varið er til slíkra hluta. Tryggja þarf þingflokk- unum og ef til vill einstökum þingmönnum, mun rýmri fjár- hag í þessu sambandi en nú er. Hluti þessa fjármagns þarf að ganga upp í kostnað við dreifingu og kynningu á því sem kannað er og gert í þjóðar- þágu. Störf Alþingis verði auglýst Stórbæta þarf alla aðstöðu alþingismanna í sjálfum sölum Alþingis. Til bóta virðist ef þingið yrði gert að einni mál- stofu. Þá þarf að bæta mjög aðstöðu þeirra er vilja fylgjast með umræðum á Alþingi. Aug- lýsa þar hvað er á dagskrá Alþingis dag hvern. Stórbæta þarf aðstöðu blaðamanna í Al- þingishúsinu. Stofna ætti emb- ætti blaðafulltrúa Alþingis, er sæi um að koma á framfæri fréttum við fjölmiðla og einnig yrði hann blaðamönnum er starfa á Alþingi innan handar við störf þeirra. Yrði landi og lýð til góðs Það er sannfæring þess er grein þessa ritar, að verði í einhverju, jafnvel þó það yrði ekki nema í örlitlu, farið inn á þær brautir sem hér hefur verið bent á, yrði það landi og landsmönnum öllum til góðs áður en langt um líður. Til opinberra starfa veldust hæfari menn. Aðstaða þeirra til vitrænna vinnubragða yrði mun betri. Um leið yrði hægt að gera meiri kröfur til þing- manna og ráðherra. Almenn- ingur fengi aukin tækifæri til að fylgjast með störfum Al- þingis, og veitti stjórnmála- mönnum þannig aukið aðhald er aftur skilaði sér í markviss- ari störfum þeirra. Tími er til kominn að þjóðin hætti öllum smásálarskap í sambandi við þingmenn sína. Tími er til þess kominn að þingmenn sjálfir verði sér með- vitaðir um þann vanda sem Alþingi sem stofnun á við að stríða. Slíkt mun skila sér margfalt aftur áður en varir. Um leið mun fara vaxandi álit fólks á stjórnmálamönnum, og sjálfstraust þeirra færast í vöxt, þannig að þeir geti haft til að bera nægilega reisn til að rétta þjóðarskútuna við eftir áralanga siglingu um brim og boða efnahagslegs og stjórn- málalegs fárviðris. flæða yfir Evrópu. Hvers vegna? • Heatset Enka Ultrabright nylon er nýtt gerfiefni er valdið hefur byltingu. Það gefur mýkt ullarinnar en styrkleika og endingu er varir. • Hin silkimjúka skýjaða áferð gefur teppunum sér- staklega aðlaðandi útlit. • Scotchgard meðferð efnisins gefur mótstöðu gegn ótrúlegustu óhreinindum og eykur um leið lífdaga þess. Þrif er sem leikur einn. • Heatset Enka Ultrabright nylon gólfteppin eru öll algjörlega afrafmögnuð. • Heatset Enka Ultrabright nylon gólfteppin eru fá- anleg með Polyurethane botni er ekki hleypur í vatni, ekki morknar og molnar og ekki festist við gólfið. Nýjung sem aðrir munu taka sér til eftir- breytni. PARMA BYGGINGARVÖRUR HF HELLISGÖTU 16 HAFNARFIRÐI-SÍMI 53140 WORLD CARPET Amerisku lúxus gólfteppin er :---------------------- Lampar ogljós í ,,nýju“ versluninni við Smiðjustíginn höfum við komið upp sér- stakri lampadeild. Með því viljum við auka þjónustuna við viðskiptavini okkar. Þar eru borðlampar, standlampar, loftljós og veggljós frá Lyktan AB í miklu úrvali bæði fyrir heimili og skrifstofur. Komið og skoðið nýju lampadeildina. MWáT - .-V KRISTJftn SIGGEIRSSOn Hfi LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.