Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 2 3 Götuhlið ÞinKholtsstrætis 13 Bakhlið hússins umdeilda að Þinffholtsstræti 13 Magnús L. Sveinsson við umræður í borgarstjórn: Einstrengingsleg sjónarmið mega ekki koma í veg fyrir að fólk geti búið í gömlum húsum Allmiklar umræður urðu í borgarstjórn 4. okt. sl. um beiðni Þuríðar Bergmann Jónsdóttur um leyíi til að endurbyggja viðbyggingu á baklóð hússins nr. 13 við Þingholtsstræti, sem Þuríður á og býr í. Borgarráð og húsafriðunarneínd hafði sam- þykkt að verða við beiðni Þuríðar en byggingarnefnd hafði tvívegis synjað erindinu. Málið kom fyrir borgarstjórn 4. okt. sl. Magnús L. Sveinsson flutti þá tillögu um að orðið yrði við beiðni Þuríðar og var það samþykkt með 10 atkvæðum gegn 4 atkvæðum alþýðubanda- lagsmanna, en Sigurjón Péturs- son sat hjá. Tillaga Magnúsar hljóðar svo: „Borgarstjórn samþykkir bygg,- ingu þá við húsið Þingholtsstræti 13, sem byggingarnefnd felldi með þrem atkvæðum gegn þrem á fundi sínum fimmtudaginn 27. sept. sl., samanber 50. lið fundar- gerðar byggingarnefndar þann dag.“ Magnús L. Sveinsson sagði, að þetta mál væri í sjálfu sér lítið og einfalt, en búið væri að gera það að stórmáli og kasta því á milli hinna ýmsu nefnda og ráða borg- arinnar og tefja afgreiðslu þess eiganda hússins til stórtjóns. Magnús sagði að málið væri einfaldlega það, að eigandi húss- ins hefði óskað eftir að fá leyfi til að rífa ónýta skúra á baklóð hússins og byggja í stað þeirra um 20 fm viðbyggingu á baklóðinni svo húsið yrði íbúðarhæft. Húsið er friðað í B-flokki og þarf því samkvæmt lögum, að fá samþykki húsafriðunarnefndar fyrir breytingunni. Eftir að húsa- friðunarnefnd hafði kynnt sér teikningar af umbeðinni viðbygg- ingu og einnig skoðað húsið sjálft, féllst hún einróma á umbeðnar breytingar. í samþykkt húsafriðunarnefnd- ar segir m.a.: „Teljum við að ekkert sé við fyrirhugaða viðbygg- ingu að athuga, enda fellur hún vel að byggingarstíl hússins. Vilj- um við því gefa jákvæða umsögn um téða viðbyggingu og mæla með því að hún verði leyfð." Borgarráð samþykkti einnig samhljóða (S.P. sat hjá) af sinni hálfu viðbygginguna á fundi sínum 4. sept. sl. Byggingarnefnd synjaði hins vegar beiðni húseig- andans tvívegis, fyrst á fundi 13. sept. með 4 atkv. gegn 3 og 27. sept. með jöfnum atkvæðum, 3 gegn 3. Magnús sagði, að málatilbún- aður allur hjá þeim aðilum, sem á móti þessu hafa verið, einkenndist af persónulegum metnaði og vald- abaráttu. Það fer ekkert milli mála, að meirihluti byggingar- nefndar gat ekki sætt sig við, að húsafriðunarnefnd og borgarráð tóku afstöðu í málinu á undan byggingarnefnd. Svo lítilsigld sjónarmið mega ekki ráða afstöðu manna í málum sem þessum. Hin einkennilega afstaða meiri- hluta byggingarnefndar kemur m.a. fram í bókun eins af meiri- hlutamönnunum, sem lét bóka í byggingarnefnd, að hann teldi að til greina kæmi að leyfa lengingu á þeirri hlið hússins, sem snýr að götunni. Eigandi hússins hafði aðeins farið fram á breytingu á viðbyggingu á baklóð, sem vart sést frá götu og hefði því ekki haft sýnileg áhrif á útlit hússins. Magnús sagði, að þegar fjallað væri um endurbyggingu og lag- færingu á gömlum húsum yrði að hafa í huga, að lögð er mikil Magnús L. Sveinsson Frá borgar stjórn áherzla á að eftirsóknarvert sé fyrir fólk að búa í þeim. Við megum því ekki vera með svo einstrengingsleg sjónarmið, að það sé næstum útilokað fyrir fólk að búa í þessum gömlu húsum. Allur sá dráttur, sem orðið hefur á afgreiðslu þessa máls, meðan það hefur þvælst milli hinna ýmsu nefnda og ráða borg- arinnar, hefur valdið eiganda þess ómældu tjóni. Húsið stendur hálf- opið og leika regn og vindar um það. Komið er haust og veður fara versnandi. Þess vegna er það mjög knýjandi að fá úr því skorið hvort eigandi hússins fær að fram- kvæma umbeðna breytingu, sem húsafriðunarnefnd og borgarráð hafa samþykkt samhljóða eða hvort hann verðúr að hlíta duttl- ungum meirihlata byggingar- nefndar. Ég leyfi mér því að flytja tillögu um að borgarstjórn sam- þykki að verða við erindi konunn- ar. Málinu verður nú vísað til félagsmálaráðherra til úrskurðar, þar sem ágreiningur varð milli borgarstjórnar og bygginganefnd- ar. Ekki er vitað hvenær von er á úrskurði ráðherra. Mynd þessi var tekin við Romsey-klausturkirkjuna í Hampshire á Englandi s.l. laugardag, þegar þar voru geíin saman Penelope Eastwood og Romsey lávarður, en svaramaður var enginn annar en Karl prins aí Wales. A myndinni sjást foreldrar brúðgumans, Brabourne lávarður og lafði Brabourne, koma til kirkju í hjólastólum. Þau særðust bæði í sprengingunni fyrir tveimur mánuðum, þegar faðir lafðinnar, Mountbatten lávarður, var ráðinn af dögum, en í þeirri sprengingu fórust einnig móðir Brabourne lávarðar og Nicholas bróðir hans. Brúðguminn missti því afa sinn í móðurætt, ömmu í föðurætt og föðurbróður i sprengingunni. Misheppnuð morð- árás 1 Barcelona Barcelona, Spáni, 24. okt. Reuter. SPÆNSKA lögreglan kom í dag í veg fyrir tilraun til að sprengja í loft upp íbúðir for- ingja úr spænska hernum i Barcelona. Ekki er vitað með vissu hverjir stóðu að tilraun- inni, en talið að það hafi verið samtök Baska. Hafi samtökin á þennan hátt viljað mótmæla þjóðaratkvæðagreiðslu, sem hefst á morgun, fimmtudag, um aukna heimastjórn Catalon- iu og Baskahéraðanna. Um fimmtíu metra löng göng höfðu verið grafin í áttina að fjölbýlishúsum, þar sem foringj- arnir búa, og í göngunum fann lögreglan leiðslur, sem hún segir að bendi til þess að koma hafi átt fyrir sprengiefni undir fjöl- býlishúsunum. Bent er á að hér sé um svipaða aðferð að ræða og þegar skæruliðar Baska myrtu Luis Carrero Blanco, þáverandi forsætisráðherra í Madrid fyrir sex árum. Demirel myndar nýja ríkisstjórn Ankara, Tyrklandi. 24. okt. AP. FAHRI Koruturk forseti Tyrk- lands fól í dag Suleyman Demi- rel, leiðtoga stjórnarandstöðunn- ar og fyrrum forsætisráðherra, að mynda nýja rikisstjórn. Að loknum fundi með forsetanum skýrði Demirel blaðamönnum frá því að hann hefði tekið að sér að reyna stjórnarmyndun. Fráfarandi ríkisstjórn Bulent Ecevits sagði af sér í fyrri viku eftir mikinn ósigur í kosningun- um, sem fram fóru 14. október.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.