Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 35 Halldór Jónsson verkfræðingur: Þríráratugir Senn líður að lokum 8. áratugs- ins, sem Tíminn segir að fari inn í söguna sem Framsóknaráratugur- inn. Má vera að rétt sé að kenna hann til þess, svo sérstæður í efnahagsstjórnartilliti, sem hann hefur verið. sömu sölutekjur og 0% hækkun í byrjun árs og 10% hækkun í júní. Munurinn er hinsvegar 5% hærra verðlag í árslok í seinna tilfellinu. Við athugun á nokkrum vél- væddum iðnfyrirtækjum kom eft- irfarandi í ljós: Víst voru síðustu ár Viðreisnar- Ár. Afskriftir sem % af veltu áratugsins ekki sem skyldu. Land- 1966 8.0 flótti og verðbólga gerðu vart við 1967 8.6 sig þá sem nú, þó allt sé ástandið 1968 8.9 mikilfenglegra í sniðum nú en þá. 1969 9.1 Báðum þessum köflum ætlar að 1970 7.7 ljúka með ráðleysi og uppstokkun 1971 5.5 þó um margt séu erfiðari aðstæð- 1972 6.2 ur nú en þá. 1973 4.4 Vissulega hefur margt áunnist á 1974 3.3 þessum síðari áratug, sem Fram- 1975 4.2 sóknarmenn eins og aðrir geta 1976 3.9 verið ánægðir með. Bera þar hæst 1977 3.4 200 mílurnar og efling byggðanna 1978 3.9 útum landið með nýju togurunum, 1979 minna en 3.0 þó ekki sé þetta eingöngu Fram- Fyrir mitt leyti er læsilegt sóknarmönnum að þakka. En það er sjálfsagt fyrir þá að bera sig mannalega, ekki veitir af skraut- fjöðrunum þessa dagana. Stefið í öllum stjórnarfram- kvæmdum á Framsóknaráratugn- um var hin svokallaða vinstri félagshyggja. Fyrsta afleiðing hennar á þessum áratug var að verðbólguholskeflan fór af stað, með vinnutímastyttingunni og kjaramálaafskiptum stjórnvalda, enda sáu menn þá ekki fyrir hversu afleiðingarnar yrðu trölls- legar . Fólkið hefur verið duglegt að bjarga sér, ný hús og bílar sanna það. En allt þetta kapphlaup hefur leitt til óbilgirni á öllum sviðum þjóðlífsins, og Sturlungagenin í sál okkar hafa gægst upp á yfirborðið. Þeir sem minna mega sín í þessum bardaga, fyrirtæki, ellilífeyrisþegar og sparendur hafa orðið illa úti, enda þrýstihóp- arnir ekki komnir upp á þessa aðila nema rétt um kosningar. Um hag fyrirtækja er aðeins talað þegar kreppa kemur og atvinnu- leysi. Þá æpa kommar að það þurfi að bjarga þeim úr kreppu mark- aðsbúskaparins, sem þeir virðast álíta að ríki hérlendis, með ríkis- afskiptum. Að kreppur séu hér oftar kreppur ríkisafskipta en markaðsbúskapar er ekki á dagskrá hjá þeim. Þess á milli gengur dælan um afætur, brask- ara og milliliða. Hver mann ekki upphrópanir kommanna um að afskriftir fyrirtækja væri ein- hverskonar þjófnaður frá alþýð- unni þeirra og kröfum um að skattleggja bæri taprekstur, sem oftar en hitt er þó skipulagður á Verðlagsskrifstofunni í Borgar- túni. En nú hafa alþýðueigendur sem sagt haft völdin um hríð og notað þau til þess að Ieggja á hana skatt á skatt ofan, afnema flýtifyrn- ingar og verðstuðulsfyrningar, tekið samningana úr gildi, rýrt kaupmátt launþega og sett nýtt íslandsmet í verðbólgu (Hið fyrra áttu þeir sjálfir). Hver hafa svo áhrif frelsaranna verið á stöðu fyrirtækja, sem af öllum úr smæl- ingjahópnum, virðast eiga fæsta formælendur (líklega vegna þess að þeim hefur aldrei lærst að koma fram sem þrýstihópur)? Verðbólgan hefur þau áhrif á afskriftir fyrirtækja, sem eiga að vera skattfrjáls hagnaður þeirra til endurnýjunar, að þær verða einskis virði þegar eignir standa í stað í krónum en endurkaupaverð margfaldast. Þetta er svo augljóst, að það þarf ekki vatnsslöngu úr Varmahlíð til þess að spúla hismið frá kjarnanum. Apparatið í Borg- artúni heldur því hinsvegar blá- kalt fram að afkoman sé nægilega góð, þegar krónulegar afskriftir nást og setur verðið í samræmi við það, þ.e.a.s. þegar því þóknast að taka umsóknir fyrir sem getur tekið mánuði með tilheyrandi tjóni. Merkilegt að Islendingar skuli ekki skilja það, að 5% verðhækkun í byrjun árs gefur hvert þessi fyrirtæki stefna. Ann- ar Framsóknaráratugur gerir útaf Halldór Jónsson. við þau hreint út sagt. Þessi fyrirtæki munu ekki fá að skulda 2 milljarða eins og Olíumöl hf. (Vextir af þeirri skuld ættu að nema þreföldu söluverðmæti framleiðslunnar í ár. Hvers vegna heldur Sighvatur að olíumalar- framleiðsla leggist niður á íslandi þótt Olíumöl hf. rúlli?) Hvernig eiga þessi fyrirtæki að endurnýja tækjakost sinn? Eiga þau sjóði til þess? Geta þau fengið og tekið lán og borgað háa vexti meðan Borg- artúnsapparatið reiknar út fyrir þau útsöluverðið, auk þess sem hið opinbera skattleggur hagnað ca. 65% beint auk verðbólgu, sem færir niðurstöðuna í núll. Til samanburðar endurmeta ríkisfyr- irtæki eignir sínar árlega og ákveða verð sitt útfrá þeim af- skriftum og arðsemi. Næsti leikur Nú þegar kratar eru hlaupnir úr sandkassanum, eins og einn fyrr- verandi vinur þeirra orðaði það, og komnir alla leið í möppurnar, þá verður gefið tækifæri á að stokka upp, þó það sé áfram vitlaust gefið vegna kjördæm- anna. Sé fólkið ekki ánægt með lífið og tilveruna, þá er ekki margra kosta völ ef á að breyta. Það er búið að reyna alla kokkteila af flokkum og þeir hafa allir gefist heldur illa og því verri hausverkur virðist fylgja þeim, sem þeir eru rauðleitari. Það hpfur hinsvegar ekki verið prófað að taka einn flokk „dry“, meirihlutastjórn eins flokks, sem ekki gæti skellt skuld- inni á fúlmennsku samstarfs- flokksins, eins og það er nú þægilegt. Engum blöðum er um það að fletta, að Sjálfstæðisflokkurinn á einn möguleika á þessu núna, meðan timburmennirnir af síðustu rauðblöndu eru hvað eftir- minnilegastir. Enda eru kommar þegar farnir að hafa í hótunum að finna slíka stjórn í fjöru og allir vita við hvað er átt. Dagsbrúnar- jakanum skaut skyndilega upp úr lygnunni og nú voru það ekki ályktanir um kjaramál heldur hrein pólitík sem var á dagskrá. Eitthvað hefur Mafían verið gagn- rýnd annarstaðar fyrir að blanda saman kjaramálum og öðrum hagsmunum. Annað mál er svo það hvernig meirihluta Sjálfstæðisflokksins myndi takast og víst hafa margir efasemdir um hæfileika forystu- liðs hans. Landskunnir gáfumenn eru í kapphlaupi við að afneita því að fara í prófkjör svo við sauð- svartir verðum víst að hafa sama liðið áfram. Kannske skiptir það öllu máli hverjir titlast þingmenn ef stuðningsmennirnir eru nógu duglegir að halda þeim við efnið. En allt slíkt yrði bara að koma í ljós. Hinsvegar er óþarfi fyrir launþega að láta kommana skipa sér að vera fyrirfram á móti slíkri stjórn. Slíkri stjórn yrði lífsnauð- synlegt að gera betur við launþega en kommunum sjálfum tókst. Vinstri stefna hefur nú beðið skipbrot í bili og hið glæsta draumsjónafley hennar liggur nú sem gamalt flak í fjöru raunveru- leikans eins og Gils lýsti Alþýðu- flokknum um síðustu kosningar. Henni mistókst hið opinbera ætl- unarverk sitt: Að bæta kjör laun- þega. Flest sem hún lofaði hefur reynst vindur. Hún færði þjóðinni meiri upplausn og ringulreið en framsókn, ábyrgð og festu. Ef fólkið vill raunverulegar lífskjarabætur þá er það vel mögulegt. Lykillinn að þeim liggur í stórvirkjunum og stóriðju í stað sprænuvirkjana og aukins heima- prjóns. Hann liggur í viðskipta- og athafnafrelsi, aðhaldi í meðferð opinberra fjármuna, skynvæðingu í landbúnaði og sjávarútvegi ásamt sem ábyrgastri hegðan allra einstaklinga með ráðdeild og vinnusemi. Hið síðast talda er í ágætu lagi. En til þess að hinir fyrri eiginleikar geti komið í ljós verður að ríkja stefnufesta á stjórnmálasviðinu og fjármálalegt traust. Fullreynt má nú teljast, að þessar aðstæður skapist ekki við bræðingsstjórnir eins og við höf- um haft þennan Framsóknarára- tug. Með tilkomu tækninnar hefur ísland breytzt úr mörkum hins byggilega heims í eitt af náttúru- auðugustu löndum veraldar. Verið getur að hér finnist olía til viðbótar öllu hinu. Verður þá erfitt um landjöfnuð, hvað sem mannjöfnuði líður. Er þá ekki nöturlegt, að tæki- færin glatist í stórum stíl vegna þess að Sturlungaeðlið í okkur ráði ferðinni fremur en skaplyndi Oddaverja. Vísasti vegurinn til upplausnar, nú sem fyrr, er hrærigrautur flokka og hrossakaupastefna, sem ' slíku fylgir. Tökum eftir því, að þeim ríkjum sem við jöfnum okkur helst til að menningarstigi, vegnar því betur sem þar eru færri og stærri flokkar á stjórn- málasviðinu. Þá virðast helst nást fram stefnur, sem eru ekki opnar í báða enda og með gati í miðjunni eins og lýsa mætti stjórnmála- straumum Framsóknaráratugs- ins. Er einhverju til hætt með djarf- legu vali? Því meir sem kjósendur sýna sig að því að vera hugsandi og djarfir fremur en flokkssauðir, þess minna verður um svefngengla og erfðaprinsa í stjórnmálum Endurreisnaráratugsins, sem nú fer í hönd. 20.10.1979 Halldór Jónsson verkfr. Landsmót votta Jehóva VOTTAR Jehóva á íslandi halda nú árlegt landsmót sitt i safnaðarheimili sinu að Sogavegi 71 i Reykjavík. Mótið hefst í dag (fimmtudag) og lýkur á sunnu- dag. Mót þetta er haldið undir ein- kunnarorðunum „Lifandi von“ og hafa á þessu ári verið haldin hundrað móta undir sömu eink- unnarorðum víða um heim. Dagskrá mótsins í Reykjavík er sú sama og verið hefur í öðrum löndum, dagskráratriði eru yfir 30 talsins, bæði erindi, samtöl, viðtöl og auk þess þrjú leikrit með litskyggnum, byggð á biblíulegum atburðum. Á mótinu verður þess m.a. minnst, að öld er liðin frá því að aðalmálgagn votta Jehóva, Varð- turninn, hóf göngu sína. Kl. 16 á sunnudag flytur Bjarni Jónsson erindi sem nefnist „Eina von mannkynsins — óbifanlegt Guðs ríki“. Mótsgestir munu á föstudaginn fara út meðal Reykvíkinga og bjóða þeim að sækja mótið. Al (.I.VSINOASIMINN KR: 22480 ^ JOoroutilitntiií) Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Stuðn- ingsmenn Gunnars S. Björnssonar halda fund í Ráðstefnusal Hótels Loftleiða fimmtu- daginn 25. þ.m. kl. 8.30. Ávörp flytja: Davíð Schevinp Thorsteinsson, Hjörtur Hjartarson og Gunnar S. Björnsson. Fundarstjóri: Siguröur Kristinsson. Fjölmennið og takið þátt í undirbúningsstarfinu. Stuðningsmcnn AUGLYSING MONUSTAN MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERO AÐALSTRÆTI • SÍMAR: 17152-17355 Eigum fyrirliggjandi í CJ5 og C J7 jeppa Körfur Bretti Hvalbaka Smíðum einnig hvers konar varahluti í CJ5 ogCJ7áverkstæÓiokkar y | Laugavegt 118 - Símí 22?A^ 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.