Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 39 því óhagstæðara reyndist að vera í þröngu nábýli. Þau ákváðu því að hefja eigin búskap, eigin atvinnu- rekstur. Árið 1923 flytja þau búferlum að Krossi í Innri- Akraneshreppi. Þau bjuggu þau í fjögur ár eða til ársins 1927. Ásamt búskapnum á Krossi vann Einar við plægingar og stundaði önnur jarðræktarstörf fyrir ná- granna sína. Stjórn heimilis og uppeldi dætranna kom því að verulegu leyti í hlut Guðbjargar og kom sér þá vel dugnaður hennar, útsjónarsemi og með- fæddir hæfileikar aðrir. Árið 1927 flytja þau Guðbjörg og Einar á Akranes. Keyptu þau hús það er Esjuberg kallaðist og var staðsett ofarlega á Skaganum miðað við þáverandi aðstæður. Þau bjuggu svo á Akranesi fram til ársins 1944, en skömmu áður en þaðan er haldið höfðu þau reist sér nýtt og vandað íbúðarhús við hlið hinnar eldri byggingar. Árið 1932 gerðist Einar Jónsson vegaverkstjóri á Austurlandi. Hann hafði þann starfa á hendi með vaxandi ábyrgð og annríki til ársins 1955, enda varð hann yfir- vegaverkstjóri í landsfjórðungn- um 1945 og hlaut þá að hafa umsjón með allri vegagerð austur þar. Þessi umskipti höfðu mikil áhrif á heimilislíf, breytti því í verulegum atriðum og skapaði ýmsan vanda. Guðbjörg varð að hafa ein alla forsjá heimilisins á Akranesi þann tíma sem Einar var fyrir austan og sá tími lengd- ist eftir því sem verkefnin urðu meiri og margvíslegri. Þá hafði Einar iöngun til að setjast að á Austurlandi, enda átti Austurland hug hans allan. Guðbjörg átti erfitt með að yfirgefa fyrra um- hverfi sitt. Hún unni Vesturlandi engu minna en bóndi hennar æskuslóðum sínum. Óvenjulegur umbrotatími í lífi þeirra hjóna verður er þau flytjast frá Akranesi árið 1944 og setjast að í Reykjavík. Næstu tíu árin er Einar að heita bundinn Austur- landi. Má segja að þau hafi þá átt tvö heimili, annað á Reyðarfirði en hitt í Reykjavík. Þegar Einar lætur af starfi sem yfirvegaverk- stjóri verða umskipti að þessu leyti. í Reykjavík voru þau hjónin Guðbjörg og Einar alltaf í sama húsi og einhver dóttir þeirra, fyrst Þórdís, þá Hjördís, en síðast og lengst Hulda. Guðbjörg missti mann sinn 29. júlí 1969. Sjálf lifði hún tíu ár til viðbótar með reisn og göfgi þeirrar mannveru, sem árin hafa gefið tækifæri að auðga, fegra og bæta. Guðbjörg hvarf úr þessum heimi rík mikillar reynslu 1. september 1979. Guðbjörg Kristjánsdóttir var ekki sterkbyggð kona, en engu að síður heilsuhraust. Hún hafði skapstyrk að fylgja fram áform- um sínum og fyrirætlunum. Guðbjörg fylgdist vel með öllu því sem gerðist. Ættmenni hennar voru að sjálfsögðu hugstæð, börn og barnabörn dætra hennar. Hún hafði mildi, en mikla einbeitni. Guðbjörg var trúuð kona. Hún varðveitti þar í senn fornan trúar- arf, en lét sig einnig miklu skipta hræringar er boðuðu endurmat og tengja vildu saman þekkingu og trú. Hún var skáldmælt og hvarf á vit þeirrar hæfni einkum á efri árum. Stef hennar og vísur voru fyrirbænir og blessunaróskir. Þannig kvaddi hún heiminn í heiðríkju vona sinna og drauma. Guð blessi minningu tengdamóður minnar. Guðmundur Sveinsson. Móðir mín Lisbet Guðbjörg Kristjánsdóttir lést á Borgarspít- alanum 1. sept. s.l. Það kemur stundum fyrir í lífi mannanna barna að okkur skortir orð til að þakka samferðafólki, ástvinum og sérstaklega móður sem hverfur okkar jarðnesku sjónum eftir hugljúf og ómetanleg kynni. En þetta er ganga okkar allra. Móðir mín var orðið háöldruð kona, en einhvern veginn er það nú svo að söknuðurinn verður ávallt sá sami, sérstaklega þegar um móður manns er að ræða. Mamma mín átti við vanheilsu að stríða síðari árin, en er af henni brá, var hún full af lífi. Hún var vel hagmælt og gat setið tímum saman við skriftir og hafði fulla andlega heilsu fram til síðustu stundar. Sem betur fór bjó hún alltaf á fastmótuðu heimili er hún hafði skapað. Mamma átti marga af- komendur. Hún fylgdist með hverjum einstökum og gladdist ef vel gekk, en ef út af bar var hún kærleiksrík og dæmdi engan, því að fyrir henni voru allir jafnir, bæði fyrir Guði og mönnum. Þegar ég sagði mömmu, að ég ætlaði að flytjast vestur í Dali, varð hún mjög glöð og sagði að þá væri ég komin heim, því að hér liggja rætur hennar. Afi var fæddur að Skriðukoti í Haukadal og amma var ættuð úr Breiða- fjarðareyjum. Þvi miður bar hún ekki gæfu til að heimsækja mig, andinn var reiðubúinn en kraftur- inn á þrotum. Síðustu dagana sem hún lifði var ég svo heppin að vera samvistum við hana í Reykjavík. Mamma var falleg kona, jafnvel síðustu dagana eins og stórskáldið Steingrímur Thorsteinsson segir: Elli þú ert ekki þunic. anda Guði kærum. Foxur sál er alltaf unií. undir silfurhærum. Það er nú svo að þegar aldrað fólk deyr þá vaknar með manni, ekki sorg yfir dauðanum, heldur eru það minningar sem vakna, minningar um góða og gáfaða manneskju, sem aldrei brást skyldum sínum, elskaði og treysti dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum. Ég vona að við afkomendur hennar séum verðug- ir þess trausts. Foreldrar mínir voru alla tíð óvenjulega samhent hjón, sem áttu svo margt sameiginlegt, voru bæði óvenju ljóðelsk og fróðleiks- fús og nú veit ég að þau eru saman, því „anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið." Hafi hún þökk fyrir hvað hún var mér góð móðir, frá manni mínum, sem elskaði hana eins og bestu móður og síðast en ekki síst frá dóttur minni, sem lítil telpa bar gæfu til að vera samvistum við hana og pabba og verður henni alla ævi ómetanlegt vegarnesti. Hjördís. Hún amma mín er dáin. Það er eins og slökknað hafi á loga eilífðarinnar. Dauðinn var svo fjarlægur, fortíðin svo samtengd nútíðinni, hún var tengiliður margra kynslóða. Á þessari stressuðu tækniöld, þar sem lífsbaráttan er háð með hönd á stýri eða þumal á takka, þá er mikið guðslán að eiga síunga, aldna ömmu. Og þessi amma mín var engin venjuleg amma í mínum huga. Hún fæddist á litlum bæ, Bár, á norðan-verðu Snæfellsnesi við Breiðafjörð. Hún var komin af góðu og göfugu fólki. Þar um slóðir ólst hún upp og kynntist af eigin raun lífsbaráttu síðustu ald- ar og á heimaslóðum var hugurinn bundinn alla hennar ævi, þó bú- setan væri annars staðar. Hún eignaðist níu kraftmiklar dætur, sem allar eru á lífi. Amma hugs- aði um heimili sitt með miklum glæsibrag fram á síðasta dag. Og það var ekkert venjulegt heimili, því fjölskyldan var og er orðin stór. Hjá henni var sjálf undir- staðan, lífsbrunnurinn og fjöl- skyldustofninn. Nei, hún amma mín var engin venjuleg amma. Á tíræðisaldri var hún öllum gleggri, glettnari og skemmtilegri. I sumar var hún flutt mikið veik á sjúkrahús, allir lutu höfði og kvíðinn læddist að, en hvað gerist? Viku seinna er hún útskrifuð og þegar ég sótti hana gekk seint að koma henni í bílinn, því hún glettist svo við læknana og starfsfólkið, að það veltist um úr hlátri. Þannig var hún. Ég var svo lánsöm að umgangast ömmu mína nær daglega frá því að ég man eftir mér og mest þó síðustu árin, en hún bjó síðasta áratuginn í sama húsi og móðir mín Hulda, og naut einstakrar umhyggju hennar og Kláusar Eggertssonar manns hennar, sem vert er að þakka. Ógleymanlegar eru verzl- unarferðirnar okkar fyrir jólin. Allir þurftu að fá jólapakka, og hópurinn var stór. Þegar ég sótti hana á tilsettum tíma, þá var hún venjulega búin að bíða í kápunni sinni í klukkutíma og þegar hún enn einu sinni var búin að fara inn til að „slökkva ljósin, skrúfa fyrir vatnið og loka öllum hurðum" þá upphófst ævintýrið. Við vorum orðnar þekktar í sumum búðum, fengum sér-afgreiðslu og oft kaffi- sopa á bakvið. Og að lokinni einni af okkar mörgu verzlunarferðum, birtist mynd af okkur í einu síðdegisblaðanna. Allar gjafir ömmu voru nytsamlegar og skyn- samlega valdar. Hún keypti mikið af bókum, því sjálf var hún bókelsk og víðlesin. Ekki mátti nú gleyma ritföngunum, því þau voru ómissandi. Amma orti mikið, og skrifaði, mest síðustu árin. Hún bjó til vísur um flesta, ef ekki alla í fjölskyldunni. Og smásögur og ævintýri ömmu voru ógleymanleg. Alltaf sátu börnin hljóð, þegar amma las sögur sínar og ævintýri Fæddur 26. október 1911 Dáinn 14. október 1979 í dag verður til moldar borinn Ásgeir Marinó Einarsson fyrrum framreiðslumaður. Hann fæddist í Hrútafirði í Húnavatnssýslu en fluttist barn að aldri til Reykjavíkur. Ungur að aldri varð hann að vinna fyrir sér, eins og alltítt var með unglinga á uppvaxtarárum Ásgeirs. Innan við tvítugt hóf hann nám í framreiðslu, sem hugur hans stefndi að. Hann nam fag sitt á Hótel ísland undir handleiðslu Ólafs Jónssonar, er síðar varð fyrsti formaður Félags fram- reiðslumanna. Ásgeir gekk í fél. framreiðslumanna árið 1935. Að námi loknu starfaði Ásgeir ýmist á skipum Eimskipafélags Islands eða á veitingastöðum í landi. í upphafi síðustu heimstyrjald- ar fór hann sjálfboðaliði til Finn- lands, eftir að Rússar gerðu inn- rás í landið. Þar var hann í tvö ár. Þá fór hann til Svíþjóðar og dvaldi þar til ársloka 1944. Vann hann í fyrstu við skógarhögg og síðan á veit- ingastöðum og um skeið var hann þjónn í sendiráði íslands í Stokk- hólmi. Þegar Goðafossi var sökkt hér við land í byrjun desembermánað- ar 1944 fórst með skipinu Jakob bróðir Ásgeirs og var það honum þung harmafregn. Hann var þá einn á lífi í fjölskyldunni ásamt móður sinni. Ásgeir fékk leyfi til að ferðast með herflugvél til Englands og þaðan kom hann fljótlega heim. Þá stóð mágkona hans ein uppi með tvö ungbörn. Fluttist Ásgeir þá til hennar í Borgarnes og aðstoðaði hana við rekstur Hótel Borgarness, en hún var eigandi þess. Starfaði hann þar í nokkur ár, og eignaðist á þeim tíma með henni son, sem var skírður Logi. Þegar drengurinn var tveggja ára gamall slitu foreldrar hans samvistum og Logi ólst upp hjá móður sinni og síðar manni henn- ar. Þrátt fyrir það að Logi væri svo ungur þegar faðir hans fór frá honum var alltaf mikill kærleikur með þeim feðgum og er sonarsökn- uður sár nú, þegar leiðir hafa skilið. Eftir dvöl sína í Borgarnesi, fór Ásgeir til starfa á veitingahúsum hér í borg, einnig vann hann á Hótel D’Angleterre í Kaupmanna- höfn, og einnig á m/s Gullfossi. 1956 leggur Ásgeir enn land undir fót og fer þá til Ástralíu, en unir hag sínum ekki sem bezt og kemur aftur heim eftir 3 ára útivist. Árið 1966 hóf hann störf hjá undirrituðum í veitingahúsinu Sigtúni við Austurvöll og starfaði þar til ársins 1973, en þá brást heilsan. Síðan hefur Ásgeir átt við fyrir þau. Þær stundir voru dýr- mætar, sem seint munu gleymast. Hún sagði frá huldufólki og álfum, liðnum tíðaranda.og atvikum, og lék þetta allt af innlifun. Börnin gleymdu stund og stað. Okkar ógleymanlegu bæjarferð- ir urðu margar og strax að einni lokinni, var byrjað að skipuleggja þá næstu. Amma var sístarfandi og sat aldrei auðum höndum. Hún saum- aði mikið, einkum fyrri ár. Þær eru ófáar flíkurnar sem hún breytti og lagfærði snilldarlega. Allt var gjörnýtt, engu kastað. Allir í fjölskyldunni þekkja og eiga yndislega fallegu og mjúku lopateppin, sem hún hafði sér- staka ánægju af að búa til og færa nýjum meðlimum fjölskyldunnar. Það voru ekki bara hendur hennar, sem voru sístarfandi, heldur ekki síður hugur. Hún var gædd þeim eiginleika að hugsa dýpra en flestir og íhuga. Það var sama hvert umræðuefnið var, erfiðan sjúkdóm að berjast, en alltaf bar hann þjáningar sínar af stakri þolinmæði og karlmennsku. Trú á annað líf bar hann í brjósti og fullviss þess þó að augun lokuðust og hjartað hætti að slá væri annar og bjartur heimur framundan. Hálfum mánuði áður en hann dó, kom hann í heimsókn til mín í Sigtún við Suðurlandsbraut. Hann var þá í hjólastól. Við ræddum mikið saman um gamla og nýja tíma og minnist ég varla að hann hafi verið glaðlegri í annan tíma en einmitt þetta kvöld. Hann var síðasti gesturinn er yfirgaf Sigtún þetta kvöld. Hann sagði mér að nú væri farið að líða að ævikvöldi, en samt myndi hann þrá að komast einu sinni norður í Hrútafjörð og líta sveit sína áður en yfir lyki. Sú varð ekki raunin á. Ég efast ekki um að nú sjái hann sína fögru Sigríður dóttir — Fædd: 13. febrúar 1891. Dáin 13. október 1979. Á föstudag var til moldar borin sú mæta heiðurskona, Sig- ríður Siggeirsdóttir. Ekki ætla ég mér það hlutverk að rekja ætt hennar eða langan lífsferil hér, það yrði mér ofviða, en ekki get ég látið hjá líða að rita nokkur þakkar- og kveðjuorð. Fyrir 15 árum tengdist ég Sigríði og fjölskyldu hennar, er ég kvænt- ist Selmu, stjúpdóttur Gylfa sonar hennnar. Eftir það naut ég þess ætíð, ásamt konu minni og börn- um, að eiga hana að, bæði sem kærleiksríkan vin og ömmu. Ógleymanleg eru öll þau jól og sumarkomur, sem fjölskylda hennar naut með henni við Hverf- isgötuna. Þá fylltist jafnan litla íbúðin af afkomendum og þeirra aldrei var komið að tómum kofa, alltaf hafði hún meira en aðrir að leggja til, og hennar ráð reyndust öllum farsæl og margir nutu þess oftar en einu sinni. Minni hennar var einstakt. Starfsdagur ömmu var orðinn langur. Það er mikið lán að halda að mestu heilsu í 92 ár og síauknum andlegum þroska. Og nú þegar hún amma mín er aðeins minning, þá finn ég enn betur en áður, hver tilgangurinn er með þessu lífi, hvernig við eigum að breyta hvert við annað og nýta reynslu okkar og þekkingu, og að amma mín gaf mér fjársjóð sem er meira virði en silfur hafsins og allt gullið í iðrum jarðar Ég veit að afi minn, sem einnig var einstakt glæsi- og góðmenni, beið hennar handan móðunnar' miklu, og ég sé þau í anda leiðast hönd í hönd í sælum endurfundi. Blessuð sé minning þeirra beggja. Rósa Gisladóttir. sveit í öðru ljósi og á æðra tilverustigi en áður. Ásgeir hlaut árið 1966 silfur- merki framreiðslumanna, sem var verðskuldaður heiður. Samstarfsfólk hans í Sigtúni bað mig að geta þess að það sendi honum saknaðarkveðju og mun alltaf minnast hans sem góðs félaga. Ég sendi syni hans og ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans. Sigmar Pétursson. Siggeirs- Kveðja fólki, og þrátt fyrir öra fjölgun, var ávallt nóg rými fyrir alla. Þessi boð voru Sigríði og okkur öllum hinum, ómissandi þáttur í hátíðahöldunum og hélt hún þess- um sið til hins síðasta, þrátt fyrir hrakandi heilsu hin síðari ár. Ávallt var hún hrókur alls fagnaðar, og virtist það henni hreinasta lífsnautn að umgangast börnin. Um leið og við kveðjum Sigríði ömmu hinstu kveðju og þökkum henni það veganesti sem hún veitti okkur, vottum við eftirlif- andi systrum hennar og niðjum samúð okkar. Blessuð sé minning hennar. Selma og Vilmar. Afmœlis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu mali. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu linubili. Minning—Ásgeir Marinó Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.