Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.10.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 41 félk f fréttum 54 milljarðar í bætur tilBítlanna? ÞÓ AÐ brezku Bítlarnir heyri liðinni tíð til, munu þeir þó hafa gengið þannig frá hnútunum, að til er sameignarfyrirtæki sem hefur það hlutverk með höndum að gæta hagsmuna þeirra sem hljómsveit- ar,— Þetta fyrirtæki hefur nefnilega ákveðið að fara í mál við væntanlega ameríska framleiðendur kvikmyndar sem segir frá Bítlunum, „Þegar Bítlarnir fæddustTalsmenn fyrirtækis þessa krefjast 140 milljón dollara bóta. Hug- myndin var að láta einhverja leika hlutverk Bítlanna, flytja lögin þeirra og fella inn í þessa mynd kvikmyndaþætti sem til eru af Bítlunum þegar þeir voru upp á sitt bezta. 140 milljónir dollara eru um 54 milljarðar ísl. króna. Þetta mikla skaðabótamál, sem ekki mun vera það fyrsta sem þetta Bítla-sameignarfyrir- tæki höfðar, verður rekið fyrir rétti í Los Angeles. Uthrópaði bróður sinn! KÚBÖNSK kona, sem var í New York á dögunum og tók þátt i mótmælaaðgerðunum gegn Castró einræðisherra er hann kom til borgarinnar til að ávarpa þintc Sameinuðu þjóð- anna.— Hún sagði, að Castró væri villidýr og honum yrði að steypa aí stóli!— Hún hafði og látið þau orð falla. að hún myndi ekki geta unað sér hvildar i haráttunni gegn Castro, fyrr cn land hennar og þjóð væri aftur frjálst. Þjóð okkar lifir undir járnhæl ein- ræðisherrans og hann hefur framið glæpi gegn landi okk- ar.— Konan sem svo mælti heitir Juanito Castro og er systir Castros. Hún tók þátt i þvi er hann steypti Batista af stóli en árið 1960 sneri hún baki við bróður sinum og flúði þá land til Bandarikjanna. Hún er kaupkona i Miami. Kínverskur andófsmaður í fangelsi BLAÐAFREGNIR frá Peking herma að þar hafi verið dæmt í máli hins fyrsta andófsmanns i höfuðborginni. Andófsmaður- inn Wei Jingsheng 29 ára sem er ritstjóri blaðsins Tansuo (Könnun) var dæmdur í 15 ára fangelsi af „Opnum dómstóli“ í Peking, en réttarhöldin í máli Weis stóðu. einn dag.— Vinum hans var bannað að vera i réttarsalnum og erlendum fréttamönnum var og meinaður aðgangur að réttarhöldun- um.— Var Wei dæmdur fyrir að haía miðlað erlendum mönnum (blaðamönnum) hernaðarlegum upplýsingum (Vesturlanda- fréttariturum um gang stríðsins milli Kina og Vietnams), að hafa haft i frammi andóf i blaði sinu og að hafa átt hlut að harðri gagnrýni á hendur ráðamönnum í sambandi við veggspjaidaútgáfu á „Lýðræðisveggnum i Peking.“ Viður- kenndi Wei brot sitt að sögn nærstaddra sem biaðamenn höfðu samband við, en ekki talið upplýsingga miðlunina og andófs- skrifin brot á lögum. Hann tók fangelsidómnum með mikilli ró,— í dómsorðunum var og kveðið svo á að eftir að hann hefur lokið að taka út dóminn sem hljóðaði upp á 15 ár megi hann ekki hafa afskipti af stjórnmálum næstu þrjú árin á eftir. Wei sem var rafvirki við dýragarðinn í Peking var handtekinn ásamt 20 öðrum andófsmönnum í Peking fyrir rúmu hálfu ári. EIMSKIP Viö vekjum athygli viöskiptavina okkar á því aö vörur sem liggja í vörugeymslu- húsum okkar eru ekki tryggöar af okkar gegn bruna, frosti eða öörum skemmdum og liggja þar á ábyrgð vörueigenda. — Athygli bifreiöainnflytj- enda er vakin á því aö hafa frostlög í kælivatni bifreiöanna. mmys sími: 27211 Austurstræti 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.